Morgunblaðið - 27.06.1969, Síða 7
MORGUNBLAÖIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1969
7
Vegaþjónusta FÍB hefur
þegar sannað ágæti sitt
„Vegaþjónusta FÍB byrjaði
smátt, en i dag spannar hún
oftast allt vegakerfi landsins,
og hefur fyrir löngu sannað á-
gæti sitt", sagði Magnús Valdi-
marsson, framkvæmdastjóri Fé
lags islenzkra hifreiðaeigenda,
þegar við komum að máli við
hann i vikunni tii að frétta
nánar af þessu stórmerka atriði
i starfi félagsins, sem einmitt
er nýbyrjað nú.
„Hún er orðin 20 ára gömul,
byrjaði með tveim bilum, en
nú eru þeir 30 talsins, þegar all
ir eru að störfum, eins og t.d.
á aðalumferðarhelgum eins og
Verzlunarmannahelginni. Eigin
lega má segja, að hún spanni
þá allt þjóðvegakerfið frá
Reykjavík, norður og vestur
um allt til Hornafjarðar, og
einnig i austursýsiunum út frá
Reykjavlk. Má eiginlega segja,
að vegakerfið sé girt af FÍB-
viðgerðarbílum."
★
„Hvemig á fólk svo að ná sam
bandi við þcssa bíla?
„Þegar fólk þarf á aðstoð að
halda, þegar óhappið gerist, er
bezt fyrir það að stöðva næsta
talstöðvarbíl, leigubíl eða ann-
an, þeir eru jafnan fúsir til að
liðsinna, og kalla þá upp næsta
FÍB-bíl. Annars er líka hægt að
gaoga að næsta sveitabæ, og fá
að hringja 1 Gufunesradíó, sem
hefur símann 22384, og það kem
ur svo boðunum áfram til næsta
FÍB-bíIs.
★
Annars viljum við leggjá á-
herzlu á það, að bifreiðastjór-
ar hafi jafnan varahjólbarða í
Magnus Valdimarsson fram
kvæmdasjóri á skrifsofu sinni.
(Myndina tók Sveinn Þormóðs-
son).
lagi, þegar leggja skal upp í
langferð, og eina slöngu heila
meðferðis, ekki sízt á nýju bíl
unum með slöngulausu dekkj-
unum. Ekki er síður nauðáyn-
legt, að fólk hafi með sér t.d.
í kveikjuna hamar, kveikju-
lok, platínur, þétti og 1-2 kerti.
Viftureimin er líka bráðnauð-
synleg. Þær geta verið af svo
mörgum gerðum. Nú og ef bíl-
arnir eru að einhverju leyti af
brigðilegir' þá að hafa vatns-
hosur og háspennukefli með-
ferðis. Allt þetta flýtir alveg
ótrúlega fyrir viðgerð og er til
sparnaðar og léttis."
★
„Er þessi vegaþjónusta starf-
andi alltaf"?
„Nei, og það er rétt að það
komi fram, að vegaþjónustu-
menn okkar eru aðeins að
starfi laugardaga og sunnudaga,
þvl að þá er þörfin brýnust.
Auðvitað líka á mánudeginum
eftir Verzlunarmannahelgi.
Vaktþjónustutíminn þessa daga
er frá kl. 1 til kl. 12 á mið-
nætti. Þurfi ökumaður á hjálp
að halda á öðrum tímum, er
það undir vilja viðgerðar-
mannsins komið að sinna kall
inu, FÍB óviðkomandi, og
bæ, en þar er alla jafna betri
starfsaðstaða, en úti á vegum,
auk þess sem langur tími kann
að líða, áður en vegaþjónustu
bíll er kominn á vettvang.
Mjög nauðsynlegt er að láta
ekki börn vera að leik á þjóð-
veginum, meðan viðgerð fer
fram. Og þá kemur sú áminn-
ing til ökumanna, að þeir hægi
Vegaþjónustumaður FÍB að störfum á vegum úti.
greiðslan rennur beint til við-
gerðarmanna. En auðvitað
ljúka viðgerðarmennirnir
drætti á bíl, þar til í höfn er
komið, þótt klukkan verði 12."
Hvernig og hvenær fer
greiðslan fyrir þessa þjónustu
frarn?"
„Hér þarf að skilja á milli
félagsmanna og utanfélags-
manna.
Félagsmaður fær viðgerðar-
þjónustuna ókeypis í einn
klukkutíma. Verði viðgerð-
in lengri, greiðir hann eftir
taxta. Þá er hitt til, ef við-
gerðarmaður getur ekki lokið
þessu á klukkutíma, tekur FÍB-
maðurinn bílinn í tog, og dreg-
. ur hann áleiðis að næsta við-
gerðarverkstæði, og 30 km. af
þeim akstri fær félagsmaður ó
keypis, en verður að greiða
það, sem lengra er. Annars er
óþarfi að fara með ónýt vara
dekk af stað, því að mörg
gúmmíverkstæði í Reykjavík
eru opin á sunnudögum og öll-
um nóttum. Innan bæjar- og
borgartakmarkanna skiptum
við okkur yfirleitt ekki af bíl
um, vegaþjónustan er eiginlega
bundin þjóðvegunum".
„Hvað með kranaþjónustu
FÍB?“
„Við erum með kranaþjón-
ustu nú orðið, einungis um helg
ar. Þurfi að lyfta bíl með krana
bíl, greiðist sú þjónusta sérstak
lega en félagmenn FÍB fá af-
slátt af þeirri þjónustu".
„Hvað svo með utanfélags-
fólk, Magnús?"
„Við veitum öllum bifreiða-
eigendum aðstoð, hvort sem
þeir eru félagsmenn okkar eða
ekki. Varðandi greiðslu getur
fólk valið um það að gerast
félagsmenn eða greiða eftir
taxta. Bifreiðaeigandinn getur
gerzt félagl hjá vegaþjónustu
mönnum FÍB á staðnum, og
nýtur þá um leið allra fríðinda
félagsmanna. Geri hann það
ekki, má við því búast, að komi
kall frá félagsmanni, hætti við
gerðarmaðurinn verkinu og fari
að sinna félagsmannskallinu,
því að félagsmenn hafa for-
gangsrétt. Gerist hann félagi á
staðnum heldur viðgerðin á-
fram, þrátt fyrir hitt kallið.
Rétt er líka að taka það
fram, að verði bílveltur eða
slys, má FÍB ekki koma þar
nærri fyrr en lögregla hefur
verið kvödd á vettvang.
Verði óhappið nærri byggð,
er ráðlegast, að biðja fyrsta bíl
sem að kemur að draga bilaða
bilin heim að einhverjum sveita
á sér, þegar þeir sjá vegaþjón
ustubifreiðina að störfum. Oft
fljúga grjóthnullungar yfir bif
reið og viðgerðarmann, vegur
inn skelfur, og nauðsynlegt er
að snöggbeygja ekki, því að til
eru dæmi um að brotin hafi ver
ið framrúða þess bíls, sem verið
var að gera við, af völdum
slíkra ökufanta.
Meðfram þjóðvegunum eru
mörg bifreiðaverkstæði, og
mun FÍB vekja athygli á þeim
síðar. Þá hefur FÍB fjölmarga
umboðsmenn víðsvegar um
landið, sem boðnir eru og bún-
ir að veita aðstoð. Fólk þarf
einungis að leita þá uppi. Skrá
yfir þá verður birt í blöðum
mjög bráðlega. Fólki er ráð-
legt að klippa þessar skrár út
og geyma í bifreiðum sínum.
Enginn veit hvað fyrir kann
að koma.
„Hefur svo Vegaþjónusta
FÍB komið að notum, Magnús?"
„Já, um það blandast engum
hugur, svo margar þakkir höf-
um við fengið fyrir þessa þjón
ustu. Að sjálfsögðu kemur það
í Ijós, að félagsmenn fá í henni
bæði forgang og afslátt á
greiðslum, jafnvel ókeypis, og
þess vegna er það mikið hags-
munamál að sem flestir bif-
reiðaeigendur fylki liði í FÍB,
og með sameinuðu átaki á að
vera hægt að veita bifreiðaeig-
endum ennþá meiri þjónustu,
og það er raunar kjörorð FÍB,
að svo skuli gert af fremsta
megni," sagði Magnús Valdi-
marsson, framkvæmdastjóri
FÍB, sem um mörg ár hefur
staðið í eldlínunni um þessa
þjónustu, og hefur unnið frá-
bært starf þeim til eflingar, sém
bifreið eiga. Að svo mæltu
gengum við út frá vistlegri
skrifstofu FÍB við Eiríksgötu,
sannfærðir um, að þar er verið
að vinna þjóðþrifaverk.
— Fr. S.
IIUNO
M\M
*
' ^úroMO*vvt
ZEPMYR S«< '55
tril söto. Uppl. ! s!ma 41826.
BIFREIÐAEIGENRUR
SætaáVlæði i allar tegundir
bíla, verð frá 1950 kr.
Bílaáklæði, Borgartún 25.
KEFLAVÍK .
Gamatl ísskápur til sölu.
Upp!. Háholti 22 ! dag.
TIL LEIGU
söt'uskáli í fulíuim gangi, aust-
an fjalls, semja ber við eig-
anda.
Hildiþór Loftsson,
sími 1287, Selfossi.
VÖRUBÍLL 1966
TH sölu lítið ekinn 8 tonna
vörubíB, Ford D 800.
Sími 81585.
STÚLKA
útskrifuð úr Kennaraskólan-
um óskar eftir vinnu við af-
leysingar. Vön verzlunar- ög
skrifstofustörfum. Uppl. í
síma 35853.
ÞRIGGJA HERBERGJA ÍBUD
óskast. Þrennt fullorðið í
heimil'i. Uppl. ! s!ma 41684
og 36407.
IÐNAÐARHÚSIMÆÐI ÓSKAST
um 55—60 fermetra. Upp-
lýsingar ! síma 14990.
KEFLAVÍK
Ti'l sölu 3ja herb. íbúð við
Suðurgötu í Keflavík, laus nú
þegar, útb. 100 þús.
Fasteignasalan Hafnargötu 27
Keflav., sími 1420 og 1477.
27 — 6 —* '69
Góð 3ja herb. íbúð til leigu
í Safamýri, góð umgengni
áskilin. Uppl. ! s!ma 10920.
TRAKTOR —■ LOFTPRESSA
Sem nýr traktor, Ford-5000,
með ámokstursskóflu og
Hydor traktors-loftpressa 145
cuf. með hömrum selst á
hagkv. verði, sími 81585.
RÚSSAJEPPI — FJALLABÍLL
Til sölu rússajeppi, árg. 1966
með stóru vel byggðu húsi,
klæddur að innan, Perkins
dísilvél. Sími 81550.
Höfum fyrirliqqjandi:
HESSIAN
fiskumbiiðastriga,
bindigarn
ng saumgam
Ólafur Glslason
& Co. h.f.
Ingólfsstræti 1 A - Sími 18370.
ALLT MEÐ
EIMSKIP
Á næstunni ferma skip vor
til fslands, sem hér segir:
ANTVERPEN:
Reykjafoss 30. júnf
Skógafoss 9. júlí *
Reykjafoss 19. júlí
Skógafoss 30. júlí
ROTTERDAM:
Reykjafoss 2. júlí
Skógafoss 11. júlí *
Reykjafoss 22. júl'!
Skógafoss 2. ágúst
HAMBORG:
Skógafoss 27. jún!
Reykjafoss 4. júlí
Skógafoss 14. júlí *
Reykjafoss 24. júlí
. Skógafoss 4. ágúst
LONDON / FELIXSTOWE:
Askja 1. júlí
Mánafoss 10. júl'í *
Askja 21. júl'í
HULL:
Askja 30. júní
Mánafoss 12. júlí *
Askja 22. júli
LEITH:
Gullfoss 27. júní
Gullfoss 11. júlí
Gullfoss 25. júli
GAÚTABORG:
Rannö 27. jún!
Tungufoss 15. júli *
KAUPMANNAHÖFN:
Kronprins Frederik
30. jún!
Gullfoss 9. júlí
Tungufoss 12. júlí *
Kronprins Frederik
19. jútí
Gullfoss 23. júlí
KRISTIANSAND:
Askja 3. júlí
Tungufoss 16. júl! *
NORFOLK:
Fjall'foss 9. júlí
Selfoss 16. júlí
Brúarfoss 28. júlí
GDYNIA / GDANSK:
Laxfoss 3. júlí
Tungufoss 9. júlí
Lagarfoss 25. júlí
TURKU:
Lagarfoss um 18. júlí
KOTKA:
Laxfoss 1. júlí
Lagarfoss um 21. júlí
LENINGRAD:
Bakkafoss 26. jún!
VENTSPILS:
Laxfoss um 2. júlí
Lagarfoss 23. júl'i
í
* Skipið losar í Reykjavík,
Isafirðj, Akureyri og Húsa-
vík.
Skip, sem ekki iru merkt
með stjömu losa aðeins
Rvík.
ALLT MEÐ
EIMSKIF