Morgunblaðið - 27.06.1969, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 196-9
21
,EF VID SLITUM LOGIN
SLÍTUM VID OC FRIÐINN'
Hugleiðingar Gríms Jónssonar
frá Súðavik á aðalfundi LOFTLEIÐA
UAÐ ER af sérstökum ástæðum,
að ég leyfi mér að ávarpa þe-ssa
samikcxmu með noklkrum orðum.
Þótt ég. sé nú á fimmta árinu yfir
áttrætt, treysti ég, að mér auðn-
ist að koma því slkýrt á fram-
færi, sem mig langar að ræða um
við yður.
í fyrsta lagi vil ég taka undir
með framkvæmdastjóra Loft-
leiða, er hann í útvarpsviðtali,
útskýrði starfsimannadeiluna, að
ég harma innilega, að nokkur á-
greiningur skuli geta átt sér
stað milli hinna þýðingarmestu
máttarstoða hjá jafnágætu fé-
lagi sem þessu, út af fremur þýð
inigarlitlum málefnum og að
mínu áliti á ýmsan hátt á röng-
um fors-endum.
Að því er ég bezt veit, hefur
ríkt fyrirmyndarsamvinna milli
allra í þessu félagi, þar til nú
að smámál veldur íriðslitum. Á
Alþingi til forna segir sagan, að
Þorgeir Ljósvetningagoði hafi
mælt fram þes-si orð við kristni-
töku: „Ef við slítum lögin, þá
slítum við og friðinn".
Ég vil segja við Loftleiðamenn
og við Okkur alla, sem erum í
þessu félagi, að ef friðurinn er
rofinn, er hætt við, að hamingj-
an hætti að brosa svo mildilega
við félagi voru, sam hún hefir
gert til þessa tíma. Mætti Guð
gefa, að það yrði aldrei.
í öðru lagi vil ég benda á, að
Loftleiðir er aðeins unglingur
að aldri, miðað við mörg önnur
eldri og voldugri samtök úti í
hinum stóra heimi með miklu
meira fjánmagn að baki sér, auk
annarra aðstæðna, Keppnisað-
stæður Loftleiða hafa verið mjög
erfiðar við þessa voldugu keppi-
nauta um loftferðirnar og önnur
viðslkipti. Dugnaður félagsins og
gengi hefur vakið heimsathygli,
og er það að verðleikum. Að
þetta srnáa flugfélag gkuli hafa
haldið velli með slíkum glæsi-
brag til þessa dags, má segja,
að það gangi kraftaverki næst.
Hér hafa miklar dáðir verið
drýgðar og hafa því verið úrvals
starfskraftar í hverju rúmi.
Það má með sanni segja, að
það sem hér hefur áunnizt hjá
félaginu líkist meira ævintýri úr
gkáldsögu en raunveruleika. Á
íslenzkan mælikvarða er það
undravert, að aðeins 25 ára gam
alt fyrirtæki er orðið einn stærsti
skattgreiðandi íslenzka rikisins
í augum aldamótadrengjanna
hefði það verið álitið miklu
meira virði, að hafa verið virkur
þátttakandi í ævintýri þessu, en
geta innheimt smátekjur með
kröfugerð. Sú er sikoðun mín, að
þeir kröfugerendur, sem hér um
ræðir, hafi ekki áttað sig á því
um sinn, hve þáttur hvers ein-
stakis og allra í heild hefur haft
miikla alþjóða-r þýðingu. Ég vil
eklki trúa því að þessir menn
hefðu viljað stofna til vinnu-
stöðvunar út af svo lítilfjörlegum
málefnum, að vel athuguðu máli.
Ánægja yfir vel unnum störfum
veitir meiri fullnægju en ágóði
dauðrar fjárhyggju. Geri ég og
ráð fyrir því, að allir starfs-
menn fái sómasamlega greitt fyr
ir sín störf, og sannarlega efast
ég ekíki um, að Loftleiðir vilja
hag starfsmanna sinna sem mest-
an og beztan og gera við þá sam
kvæ-mt því, sem þeir telja sér
fært samkvæmt öllum aðstæð-
um. Við vitum vel, að allir aðil-
ar verða að minnast þess, að
þetta unga félag er í örum vexti
og til þess að það geti rækt hlut
ver'k sitt í tækni og framförum
og nái svo langt í uppbyggingu
nýrra far-kosta, sem nauðsynlegt
er, til að félagið sé samkeppnis-
hæft, er slkilningur og samábyrgð
arhugur allra hagur, já allra hag
ur.
En allt þarf sinn tíma. Frarna
ferill unglingsins hefur verið svo
glæsilegur til þessa, að enginn
þarf að efast um góðan árangur,
ef allir aðilar eru sameinðair í
eining-u og góðvild. Óska ég af
heilhug, að svo megi verða.
f nokkirum pennadráttum hef
ég leyft mér, að draga fram að-
aldráttinn í sögu flugfélags vors,
sem er rétt rúmlega 25 ára um
þessar mundir. Aldurstímamót
þessi eru þess verð, að þeirra sé
minnzt, vegna fyrstu fruimherj-
anna, sem báru í brjósti eldmóð
flugfélagshugmyndarinnar og
báru hana til sigu-rts. Þeim var
vel ljóst, að þeirra eigin sjóðir
voru of simáir til að mögulegt
væri að ráðast í svo fjárfrekt
fyrirtæki. Varð því að leita ann
ar-ra úrræða. Viljastyrkurinn,
sem, reiðubúinn er til að
takast á við alla erfiðleika, var
hér fyrir hendi, ásamt Guðs hand
leiðslu og góðra manna hjálp. Þá
var framarlega í flokki Kristján
Jóhann Kristjánsson, fyrsti for
maður félagsins á bernskuárum
þess.
í margra augum hafa byrj-
unarörðugleikamir þótt ærnir
þótt ekki bættist ofan á sú þol-
raun er þessir ungu menn máttu
reyna, þegar aðalflugvél þeirra
strandaði á Vatnajökli, en þar
var gæfan með, að öll áhöfn og
farmur bjargaðist. Við þetta tæki
færi sýndu margir ágætir menn
mikinn dugnað og hjálpfýsi og
auk þess flugherinn á Keflavík-
urflugvelli. Var drengsikapur
hans mikill við þennan atburð,
þótt ekki kæmi að tilætluðu
gagni. Við björgunartilraunirnar
muna menn eflaust, að hann
missti flugvél sína og varð hún
til á jöklinum. Þótt ógerlegt væri
talið að bjarga vélinni af jöklin
um og koma henni til byggða,
réðust þessir ungu menn í það
áhættufyrirtæki að bjarga vél-
inni og koma henni í fullkomið
ástand. Segja má, að þarna hafi
gæfudísin brosað við þes-sum
framsæknu mönnum og svo hef
ur verið til þessa dags. Veit ég,
að allir félagsmenn eru einhuga
um, að jafnglæstur árangur geti
náðst í framtíðinni sem hingað
til, og helzt enn betri.
Úr því að ég hef gerzt svo fjöl
orður um frægðarferil Loftleiða
manna, þykir mér skylt að geta
þess, að frumherjarnir sem báru
hugsjónaeldinn í brjóstum sin-
um voru ekki fæddir á rósaihæg-
indum eða til hóglífis, heldur til
harðra átaka, sem varð þrotlaust
erfiði, ef árangur átti að nást,
en árangurinn náðist líka með
Guðs hjálp.
Hér get ég ekki nefnt nöfn
þessara vösiku manna, en veit að-
eins, að nokkrir þeirra eru nú
stjórnarmenn þessa félags.
Persónulega hef ég aðeins
kynnzt einum þessara frumherja,
og var það fyrir tilstilli vinar
míns Aðalsteins Pálssonar skip-
stjóra. Þessi maður var Ólafur
Bjarnason. Eftir kynningu mína
við hann, get ég með vissu sagt,
að hann var sannur dáðadrengur
og mikill samningamaður og
mætti hans hafa notið við nú,
en hann er liðinn fyrir mörgum
árum.
Því miður, var það ekki svo
mikið sem ég hefði viljað, sem
ég gat lagt á vogarskálina til
hagsbóta fyrir þetta félag á sín-
um tíma, en þó má ég segja, að
á þeim aðalfundi Sölumiðstöðvar
Hraðfrystihúsanna, þegar til um
ræðu var 100.000,00 króna hluta-
fjárframlag til Loftleiða, þá lagði
ég þar fram minn stuðning við
samþykkt þessa máls.
Þótt gamall sé orðinn, geri ég
mér vel grein fyrir, að nútíma-
maðurinn lifir að mörgu leyti
eftir gjörbreyttum lifnaðarhátt-
um, miðað við þá, er ég þekkti
sem ungur maður. Kröfur til lífs
ins eru margfalt meiri á öllum
eða flestum sviðum. Flest mat
bæði á hug- og hlutlægum svið
um er breytt og má því segja, að
hér sé um tímana tvenna að
ræða.
Á einu sviði hefur mér dottið
í hug sikyldleikinn milli Egils
Skallagrímissonar og nútíma-
mannsins. Báðir geta þeir verið
framúrgkarandi dugmiklir og
kröfuharðir. Egill átti gull og
silfur, — nútímamaðurinn á al-
hliða kröfugerð á ýrnisis konar
þægindi og munað. Um þetta er
ekki nema gott eitt að segja,
ef sá sem fullnægja Skal kröf-
unum, hefur einihverja mögu-
leika á að mæta þeim, án tjóns
fyrir hann og þjóðarhaginn.
Þjóðarhagurinn, hann má aldrei
gleymast íslenzku þjóðinni.
Um gull og silfur-ágirnd Egils
er þetta sagt, löngu eftir að hann
lézt:
Skulum ei gull girnast
gráti veldur úr máta,
öllu í eilífð spillir.
Of dátt látið at velli.
og svo þetta:
Fár veit hversu féit
fári veldur ok sárum,
geld ek glapra kaldra
get ek ei vist með Kristi.
Að mínu viti veldur það mestu
á hvern hátt hlutirnir eru fram-
kvæmdir og hvort að baki liggur
heil hvöt.
í Njálssögu segir, að Hallur á
Síðu hafi viljað láta son sinn
liggja bótalausan friðarins vegna.
Þetta vildi sá maður á sig leggja
hans vegna og var tillag hans
:vo trj'cils metið, að menn vildu
fúslega greiða vigabæturnar fyr
ir son hans og urðu þær hinar
mestu, sem nokkur maður hafði
verið bættur. Göfugur hugsunar
háttur nær þannig beztum ár-
angri að lokum.
Hér lýk ég máli mínu með
ágætum heillaóskum um gæfu-
ríka framtíð Loftleiða.
Friður sé með yður öllum.
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIDSLA*SKRIFSTOFA
5ÍMI 10*100
Hafnarfjörður — Hafnarfjörður
PERMANENT
litanir, lagningar, lokkalýsingar, klippingar og öll önnur þjón-
usta sem hárgreðslustofa getur veitt.
Hárgreiðslustofan Lokkur
Suðurgötu 21, simi 51388.
K a u p u m
hreinar og stórar léreftsfuskur
prentsmiðjan_______
HUSNÆÐISMALASTOFNUN
RÍKISINS
Húsnæðismálastofnunin verður lokuð í dag föstudag 27. júní
vegna skemmtiferðar starfsfólks.
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RÍKISINS
LAUGAVEGI77, SÍMI22453
Uppþvottavélar
Hinar vinsælu kanadisku uppþvottavélar
frá BLANCHARD fást nú aftur.
Ganga fyrir heitu vatni.
Fást með góðum greiðsluskilmálum.
NÝBORG
Hverfisgötu 76 — Sími 12817.
S
F
Gistihúsið VARMÁ
í Mosfellssveit
Tökum á móti dvalargestum til lengri og skemmri dvalar,
sundlaug og gufubað er á staðnum.
Hestaleiga tekin til starfa. — Simar 66156 og 66195.
GISTIHÚSIÐ VARMA.
Verið velkomin
í BJARKARLUND
Hótel Bjarkarlundur, Reykhólasveit býður yður gistingu í 1,
2ja, 3ja eða 4ra manna herbergjum.
Morgunverður frá kl. 8—10 f.h.
Heitur matur frá hádegi til kl. 10 að kvöldi.
Kaffi. smurt brauð og kökur ailan daginn.
Verið velkomin í Bjarkarlund.
HÓTEL BJARKARLUNDUR.
Karlmannaskór frá þýzka fyrirtœkinu
Manz
eru skór hinna vandláfu
Höfum fengið óvenju gott úrval
í F, G, H, J og K breiddum.
Fætur yðar eiga skilið skó sem hæfa þeim.
Skóverzlunin
í Domus
Sími 18519.