Morgunblaðið - 21.09.1969, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.09.1969, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 19'69 skulum fara aftur inn í hús, Jakob. Þeir hlupu áleiðis til hússins. ' En allt í einu staðnaemdist Dirk og sagði: — Við skulum ekki fara inn alveg strax, Jakob. Við skulum leika, að við séum að elta hóp af uppreisnarmönnum árið 1763. Við erum að rekja sporin til höfuðstöðva þeirra í hidllirigningu. Við bjóðuim höfuð skepraunum byrginn, af því að við erum tveir hraustir van Groen- wegel, sem hræðast hvorki guð né menn, eða skítuga þræla. Hvað segirðu um það? Jakob, sem skildi svona tal, samþykkti þetta hiklaust. Hann glotti og svaraði:_ — Gott! Af stað með okkur! Á eftir þessum skítugu uppþotsseiggjum! Við brennum þá við stjaka þegar við náum í þá. — Og við pyndum Atta áður en við hrennum hann, sagði Dirk. Eldingar skullu og klofn- uðu og þrumurnar drundu, rétt eins og skotið væri af hundrað byssuim, gegnum ákafan hvin- inn í regninu. Dirk og Jakob hlógu í ögrunarskyni og hlupu í spiretti að runnunum, sem sá ust óglöggt í vaxandi dimmunni, handan við appelsínu- og sapo- dillatréð. Þeir gengu bognir og þóttust halda á byssurn í hönd- unum. Graham, sem stóð inni í for- skálanum, kom auga á þá og kallaði: — Þarn.a eru þeir, Dihk og Jakob! Hvert geta þeir verið að fara í þessu veðri? — O, vertu ekki að hugsa um Dirk, sagði Hermine og hló. — Hann er brjálaður, hvort sem er. Graham sagði ekkert, en er hann hleypti brúnum að drengj- unum, sem voru að hverfa. leið honum illa. Hvers vegna, gat hann ekki sjálfur sagt það. Gæti það verið af því að hann öfund- aði Dirk, raunverulega? í seinni tíð voru allir að stigja, að Dirk 22 væri brjálaður, en það lá einhver aðdáun í því öðrum þræði. Það var ekki lengra síðan en í gær. að afi hafði skríkt og sagt' — Ja, þessi drengur, hann er nú að vísu hálfvitlaus, en það er samt hugur í honum, svei mér þá! Og Susan Lafferty og Lumea Niffens höfðu sagt opin- skátt, að þær kynnu vel við hann. Dirk var ruddalegur og hrokafullur. Dáðust þær Susan og Lumea virkilega að rudda- skap og hroka? Eldhnöttur sprakk upp yfir trjénum og þruma kvað við, rétt eins og hleypt væri af hundrað fallbyssum samtímis. Gralh'am hrökk við, snerist á hæli og gekk inn. notar VOGUE Viljið þér hafa fallegri fætur, þá ráðleggjum við Vogue-sokka og sokkabux- ur. Vogue er sænsk gæðavara, sem framleidd er úr fínu og mjúku úrvalsgarni. Vogue hefur úrvalið í sokkum og sokkabuxum. Vogue hefur gæðin. Fætur er reynt hafa Vogue biðja aftur um Vogue. Sölustaðir: Vogue, Skólavörðust. 12, Vogue, Laugav. 11, Vogue, Háa- leitisbr., Vogue, Hafnarfirði, Verzl. Skemman, Akureyri, Kaupfélag Þing- eyinga, Húsavík, Femina, Keflavik, og Verzl. Sigurðar Ágústssonar, Stykkishólmi, Verzl. Drífandi Vest- mannaeyjum, Verzl. Böðvars Svein- björnssonar, ísafirði, Verzl. Ölfusá. Um hálfum mánuði seinna til- kynnti Storm, að Jakob ætti að fara til Nýju-Amsterd'am og hefja nám í trésmíðum. Það var búið að semja um þetta allt og nú yrði Jakob að vera tilbúinn að fara næsta dag. Öllum óvænt, þaut Dirk ekki upp í vonzku. Hann fölnaði, en var rólegur. Hann sagði: — Það hlaut að koma að því. Við viss- um það og við erum við því bún ir. Við höfum gert samning okk- ar í milli — fóstbræðralag. Ég skal aldrei bregðast honum og hann ekki mér. Við verðum vin- ir fram í rauðan dauðann. Elísabet og Storm gláptu á hann, steinhissa á þessum ákafa í honum. Augun voru ísköld og hörkuleg, er hann sagði þetta, og hnefarnir hrepptir. Storm hló við og sagði: — Ef á það er litið, að þú hefur kennt honum að lesa og skrifa, þá hef- ur hann að minnsta kosti ástæðu til að vera þér eilíflega þakk- látuir. Dirk svaraði þessu engu. Þau sátu öll í borðstofunni við morg unkaffið, því að það rigndi og forskálinn ar blautur og óvist- legur. Wilfred, sem var í nýjum eldrauðum morgunslopp, rak upp gamalmennaskríkjur og horfði með ánægjusvip á Dirk. upp yfir bollann sinn. Hermine, sem sat hjá Graham á legubekk Nei, frú mín g ð. Ég sé að maður n yðar er vant við látinn og líka einkaritarinn. undir fjölskyldumyndinni, sagði þá: — Hvaða nafn ætlar hann Jakob að taka, pabbi? Storm leit hvasst á hana og sagði. — Auðvitað nafnið hans föður síns — Frick. Jakob Frick. Hvers vegna spyrðu? — Bara vegna þess. að einu sinni heyrði ég Mörtu og Nibiu vera að karpa um eittWað Það var eins og Mörtu fyndist Frick elkki vera paibbi Jakobs. Storm skellti í góm. — Þú ætt- ir að hlusta varlega á það, sem þrælarnir eru að segja, Hermine. — Marta og Nibia eru alltaf að rífast um einhvern hégómann sagði Hermine, — og ég ték aldrei mark á því, sem þær eru að segja. — Jakob er ekikert líikur Frick, sa.gði Gralham. — Ég kann ekki við þetta Frick-nafn, greip Dirk fram í. Ég hef oft sagt Jakob, að hann ætti að taka sér eitthvert fínna nafn, Og ég stakk upp á Green- field. Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl. Margt. er það, sem bú tekur ekki eftir í dag. Nautið, 20. apríi — 20. maí. Þú átt meira fylgi að fagna meðal ókunnugra. Xvíburarnir, 21. maí — 20. júní. Það hafa ekki allir skilning á því, hvar á bjátar. Krabbinn, 21. júní — 22. júli Þú færð ágæta lausn á málunum, ef þú verður rólegur. Ljóniö, 23. júlí — 22. ágúst. Þú ert stálheppinn í dag. Gamalt fólk fylgir þér að málum. Meyjan, 23. ágúst — 22. september. Atburðarásin fer í gang, og þú sérð breytingar til batnaðar. Vogin, 23. september — 22. október. Útkoman hjá þér verður með bezta móti, vegna þess, hve þú liefur skipulagt vel. Sporðdrekinn, 23. október. — 21. nóvember. Sæktu um, eða bjóddu eitthvað fram. Þú færð góðar upplýsingar . Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. Þú skalt undirrita samninga varðandi heimili þitt. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. Vinir þínir koma þér í einhver mál, sem þú áttir ekki von á að flækj ast í. Eitthvað er það, sem ber að fagna. Komdu þér samt rólega út úr þessu. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Þú færð litla aðstoð, en þú getur samt gert bætur á staðháttum, og gerðu öllum það skiljanlegt. Fiskamir, 19. febrúar — 20. marz. Ef þú ert á réttri leið, fer allt vel. Ef svo er ekki skaltu hugsa ráð þitt vandlega og finna snurðuna. ■ EIN ANGRUN ARGLER ■ EF YÐUR VANTAR FYRSTA FLOKKS EINANGRUNARCLER ÞÁ ER i»i» EINANGRUNARGLER RETTA LAUSNIN HAGKVÆMT VERÐ W ÁRA ÁBYRGÐ LEIGJUM ÚT M.A. GLERÍSETNINGAR- TÆKI. GLERSALA ÞÉTTIEFNI UNDIRBURÐUR LOFTKÝTTISSPRAUTUR. VINNUPALLA. STIGA.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.