Morgunblaðið - 15.04.1970, Qupperneq 6
6
MOBGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1970
KAUPUWI ALUMiNlUM KÚLUR
hæsta verði.
Málmsteypa Ámunda Sig-
urðssonar, Skipholti 23.
Sími 16812.
MÁLMAR
Kaupi allann brotamákn nema
járn haesta verði. Staðgr.
Opið 9—6 dagl., laugard.
9—12. Arinco, Skúlag. 55,
símar 12806 og 33821.
NÝKOMIÐ
Teppabotnar frá 450 kr. og
púðar 75 kr. með ofnum
mynstrum.
Hof Þinghohsstræti 1.
VÉLVIRKJAR
Véh/irkjar og vanir verk-
stæðismenn óskast strax.
Mikil vinna.
Vélsmiðja Ól Ólsen Ytri-
Njarðvík, s. 1222 og 1185.
MJÚG BARNGÓÐ
12 ára telpa óskar eftir
barnagæzlu á 1—2 börnom
hálfan eða atlan daginn í
sumar. Upplýsingar í síma
41194.
BIFREIÐASMIÐIR —
réttingarmenn. Viljum ráða
tvo réttinga'rmenn eða bif-
reiðascniði nú þegar.
Bílasprautun B. G„ Keftavík,
sím'i 92-1950.
EINBÝLISHÚS TIL LEIGU
ti'l 1. september, með eða
án húsgagna, laust nú þegar.
Upplýsingar í sima 84142.
ÓSKUM EFTIR
að taka á leigu í sumar góð-
an 10—12 tonna bát. Tifboð
óskast send afgr, Mbl. fyrir
25. apríl, merkt „S245 —
5205”.
NOTAÐ MÓTATIMBUR
Óska eftir að kaupa notað
mótatimbur. Upplýsingar í
síma 33852.
ÍBÚÐ ÓSKAST
3ja—5 herbergja rbúð ósk-
ast til teigu. Upplýsingar í
síma 33852.
WILLYS '46
til sýnis og sölu að Kteifar-
veg 15 eftir kl. 19.00. Símii
37262.
GJALDMÆLIR
Ósika eftir að kaupa eða
leigja gjoldmætir. Sími 41698.
FISKVINNA
2—3 memn óskast í frsk-
vinnu á Gelgjutanga. Símar !
30505 og 34349.
SMJÖRBRAUÐSDAMA
Kona, sem er vön að smyrja
braoð óskast. Uppl. I skrif-
stofu Sæla Café, Brautar-
holtii 22.
LAGTÆKUR MAÐUR
óskast trl aðsoðar á hús-
gagnaverkstæði, símii 10117
og 18742.
Kötturinn Kálus
Kötturinn á mynd þessari heitir Kálus, af þvi að honum þótti svo
sott kál, en sú sem á hann heitir Sóley Ólafsdóttir, 12 ára, en sjálfur
er kötturiim þriggja ára. Kettinum fellur sjáanlega vel við reikni-
vélina, ætli hann sé ekki annað hvort í kattalögreglunni eða skatta-
lögreglunni? Ólafur E. Jónsson tók myndina.
Ef maður syndgar á móti þér sjö sinnum á dag og kemur sjö sinnum
aftur til þín og segir: Ég iðrast, þá átt þú að fyrirgefa honum.
í dag er miðvikudagur 15. apríi og er það 105. dagur ársins 1970.
Eftir lifa 260 dagar. Tungl fjærst jörðu. Árdegisháflæði kl. 1.49. (Úr fs-
landsalmanakinu.)
AA- samtökin.
'Uðtalstími er í Tjarnargötu 3c alla virka daga frá kl. 6—7 e.h. Sími
16373.
Almennar upptýsingar nm læknisþjónnstn f borginni eru gefnar I
•tmsvara Læknafeiags Reykjc-vikur
Næturlæknir í Keflavík
14.4. og 15.4. Kjartan Ólafsson
16.4. Arnbjörn Ólafsson
17.4., 18.4. og 19.4. Guðjón Klem-
enzsson
20.4. Kjartan Ólafsson,
Eæðingarheimilið, Kópavogi
fHíðarvegi 40, sími 42644
Læknavakt i Hafnarfirði og Garða
areppi. Upplýsingar í lögreglu-
rarðstofunni sími 50131 og slökkvi
rtöðinni, sími 51100.
Ráðleggingastöð Þjóðkirkjumnar.
/Mæðradeild) við Barónsstíg. Við
talstími prests er á þriðjudögum
og föstudögum eftir kl. 5. Viðtals-
simi 1 88 88.
tími læknis er á miðvikudögum eft
ir kl. 5 Svarað er i síma 22406
Geðverndarfélag íslands. Ráð-
gjafa- og upplýsingaþjónusta að
Veltusundi 3 uppi, alla þriðjudaga
kl. 4—6 síðdegis, — sími 1213»
Þjónustan er ókeypis og öllum
heimil.
TENGLAR
Skrifstofan opin á miðvikudög-
um 2-5, mánudögum 8.30-10, sími
23285.
Orð lífsins svara I sima 10000.
Tannlæknavaktin
er £ Heiisuverndarstöðinni, laug-
ardaga og sunnudaga frá kl. 5-6.
Fimmtugur er í dag Helgi Þórar-
insson, hreppstjóri, í Æðey í ísa-
fjarðardjúpi.
FRETTIR
Mæðrafélagið
heldur fund að Hverfisgötu 21,
fimmtudaginn 16. apríl kl. 8.30.
Félagsmál. Skemmtiþáttur og fé-
lagsvist. Takið með ykkur gesti
VÍSUKORN
Hjá frónbornu tíkunium fegurst ég
veit,
fæða af sér kynborna syni.
Því aldrei er prýði i íslenzkum
reit,
af útlendu blóðhunda kyni.
Gunnlaugur Gunnlaugsson.
Yndi það ég þekki mest
þýðan taka fríðan hest.
Fara á bak í fjallasal
við fuglakvak í grænum dal.
Leifur Auðunsson.
GAMALT
OG
GOTT
Tekur hann sína brúði í hönd,
leiðir hana á önnur lönd.
Hún má ekki ganga
nema á gullspöngum;
hún má ekki sitja
nema á silfurstóli;
hún má ekki liggja
nema á línkodda;
hún má ekki sofa
nema á svanadúni;
hún má ekki drekka,
nemá það víniið væri
sem júnkærinn bæri.
Silki eru herrnar sokkabönd,
sjálfur skal hann þau leysa.
Leysi sá sem leysa kann,
það er hann ungi hofmann;
í kvöld skal hann kyssa' hana,
aldrei skal hann missa' hana,
vel skal hann hennar njóta.
Þar fer hann N.N.
með unga brúði sína,
en ég tölti á eftir
með skótötru mína.
SÁ NÆST BEZTI
1 fárviðrinu mikla, þegar togarinn Júlí fórst undan ströndum
Nýfundnalands, komust fleiri íslenzkir togarar í hann krappan. Á ein-
um togaranum var til dæmis svo rammt að kveðið, að um tíma
væntu skipverjar sér varla lífs.
Eftir eina hrinuna gekk gamall háseti til tveggja unglinga, huigðist
hughreysta þá og sagði:
„Verið þið óhræddir, drengir! Ég hef séð hann svartari en þetta.“
„Jæja!“ hreytti þá annar strákurinn út úr sér. „Þú hlýtur þá að
vera afturgen>ginn.“
„Mín er meyjan væna
U
Ljóðasyrpa um konur og ástir
í stað kynningarinnar á 19. aldar skáldunum, sem hefur veinju-
lega verdð í Dagbókinni á miðvikudögum að undanförnu, bregð-
um við í dag eilitið út af vananum, og birtum nokkur erindi
þekktra skálda um konur og ástir, og vonum, að ekki falli verr.
Mín er meyjan væna
mittisgrönn og fótnett,
bjarteyg, brjóstafögur,
beinvaxin, sviphrein;
hvít er hönd á snótu,
himintoros á kinnum,
falla lausir um ljósan
lokkar háls inn frjálsa. —
Jónas Hallgrimsson.
Vökunætur
Þér ég helga þessar nætur,
þessar dimmu vökunætur,
þessar björtu Braganætur,
bezta, eina vina mín,
því ég vaki vegna þín.
Ég er þinn um þessar nætur,
þessa daga og nætur,
ár og daga, alla daga og nætur.
Guðmundur Friðjónsson
á Sandi.
Visukorn
Læt ég fyrir ljósan dag
ljós um húsið skína,
ekki til að yrkja brag
eða kippa neinu í lag,
heldur til að horfa á konu mína.
Páll Ólafsson.
Hrafnsvörtum lék í lokkum hár
ljósan um háls, um dökkar brár
tindrandi augu ástarþrár
eldgeisla sendu þýða.
Gísli Brynjúlfsson.
L____
Þau tvö, sem aleim ætla‘ að vaka,
þér einni að gefa traustið sitt,
þau má ei neitt til morguns saka
við mjúka vinarskautið þitt.
Þann stað, sem helgast ástum einum,
má ekki snerta fótur vor.
í dögg á Edins aldinreinum
sjást aldrei nema tveggja spor.
Þar sjá þau dýrðarsali þína,
unz sólin upp að morgmi rís,
sem gefa alla ævi sína
fyrir eina nótt í Paradís.
Þorsteinn Erlingsson.
Og þér skal varla verða kalt,
því volgt er bak við feldinn minn,
og ef þér fyndist samt of svalt,
ég sjálfsagt meðal finn.
En kæra, bezta, komdu þá,
því kvæðið máttu til að fá. —
Og svo er nokkuð, sem ég má
ei segja, fyrr en þá.
Hannes Hafstein.
Gagntekinn, hrifinn, utan við mig enn
af æsku þinnar fyrstu munarkossum,
ég finn í hjarta ást og ótta‘ í senn
slá undarlega saman heitum blossum.
Hannes Ilafstein.
MINNING
Það eitt er víst, að ég aldrei
augunum þín.um gleymi,
er sástu sumarið koma
sunnan úr bláum geirni.
— Svo fegin varstu, að mér fannst þú
fegursta konan í heimi.
Þið voruð þrjár, þessar systur,
og þú varst sú í miðið. . . .
Eitt kvöld í kyrrlátu veðri
ég kvaddi þig út við hliðið.
— Nú er hann kominn á morðan,
og nú er sumarið liðið.
Jóhannes úr Kötlum.
Ósk
Ég vildi' ég fengi að vera strá
og visna í skónum þínum,
þvi léttast gengirðu eflaust á
yfirsjónium minum.
Páll Ólafsson.
V-