Morgunblaðið - 15.04.1970, Blaðsíða 31
MORiGUN.BLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1070
31
Áhorfendurn-
ir nær 2 millj.
— á 20 ára starfsferli Þjóðleik-
hússins. Sýningar á 5. þúsund
Á ÞKIM 20 árnm, sem liðin eru
frá því Þjóðleikhúsið tók til
starfa hafa nær tvær milljónir
áhorfenda sótt leiksýning-ar Þjóð
leikhússins, en þær eru orðnar
á fimmta þúsund. Þjóðleikhúsið
hefur sýnt 200 leiksviðsverk: 145
leikrit, 13 hamaleikrit, 33 söng-
leiki, óperur og óperettur og 9
balletta. Auk þess hafa 21 er-
lendir listsýningahópar komið
fram I Þjóðleikhúsinu og sýnt
leikrit, óperur og balletta. Koma
þessar tölur fram í stuttu yfir-
liti, sem þjóðleikhússtjóri hefur
gert yfir störf leikhússins frá
því hað tók til starfa.
Af þeim leikritum, sem Þjóð-
leikhúsið hefur sýnt, hafa 43
verið íslenzk, þar af 28 ný. Leik
sýningarnar í Reykjavík eru
orðnar rúmlega fjögur þúsund,
leiksýningar úti á landi nokkur
hundruð og erlendis hefur Þjóð-
leikhúsið haft 6 sýningar.
Þjóðleikhúsið tók til starfa
haustið 1949 og 1. nóvember
höfðu flestir leikararnir verið
ráðnir. Sumardagurinn fyrsti
1950 var ákveðinn sem vígslu-
dagur og þá var sýnt leikritið
„Nýársnóttin" eftir Indriða Ein-
arsson, en hann var frumkvöð-
ull að byggingu Þjóðleikhússins.
Naesta kvöld var „Fjalla-Eyvind
ur“ eftir Jóhann Sigurjónsson
sýndur og þriðja kvöldið „ís-
landsklukkan“ eftir Halldór Lax
ness og var það eina nýja ís-
lepzka leikritið. Þessi þrjú leik-
rit voru svo sýnd til skiptis til
júníloka og jafnan fyrir fullu
húsi.
Um 25 leikarar hafa lengst af
verið við Þjóðleikhúsið á svo-
kölluðum A og B samningum.
Fastráðnir starfsmenn eru um
60 en tiuk þeirra eru um 300,
sem að einhverju leyti hafa laun
uð störf hjá leikhúsinu á hverju
ári.
Aðsókn að Þjóðleikhúsinu hef
ur yfirleitt verið nijög jöfn og
hafa leikhúsgestir verið 90-100
þúsund á ári.
Fyrsta árið voru tekjur og
gjöld Þjóðleikhússins um 3.5
millj. kr. og var þá nokkur tekju
afgangur, en nú eru mótsvarandi
tölur 40 milljónir. Fyrsta árið
var aðgöngumiðaverðið víðast í
SJÚKRAHÚSIÐ á Húsavík,
sem nú er í byggingu, verður
væntanlega tekið til fullra af-
nota um næstu mánaðamót,
húsinu 35 krónur en nú er það
240 krónur. — Þjóðleikhúsið hef
ur alltaf fengið nokkurn hluta
skemmtanaskattsins, eða 35-50%
auk nokkurs styrks til viðbótar
frá ríkissjóði.
Afmælisins verður minnzt
með hátíðarsýningu á „Merði
Valgarðssyni" á sumardaginn
fyrsta og er skýrt frá því ann-
ars staðar í blaðinu.
Togara-
sala
TOGARINN Egilil Skallagríms-
son se’di í gær í Þýzkalamdi 194
lestir fyrir 145.200 mörk eða kr.
3.463.000. Meða'liverð er kr. 17,85
á kg.
en í þessari viku mun lækna-
miðstöðin, sem er í húsinu,
taka til starfa. Til hægri á
myndinni er gamia sjúkrahús
ræðir
pyndingar
Strassbourg, 14. apríl NTB.
RÁÐHERRANEFND Evrópu-
ráðsins kemur á morgun, mið-
vikudag, saman til fundar til
að ræða, hvort Grikkland hafi
brotið mannréttindaskrá Evrópu
með því að pynda fanga. Utan-
ríkisráðherrar landanna munu
kynna sér frumkvæði Norður-
landanna þriggja, Noregs, Dan-
merkur og Svíþjóðar, og Hol-
lands í málinu. Hugsanlegt er
að ráðherranefndin muni sam-
þykkja skýrslu frá 87 vitnum,
en hún var lögð fram þann 18.
nóvember í fyrra. >á kann einn
ig svo að fara að nefndin muni
ákveða að birta skýrsluna.
ið, sem tók til starfa 1936.
Við þessa nýju læknamið-
stöð starfa þrir læknar, Öm
Arnar, Gísli G. Auðunsson
og Oddur Bjamason. Gísli er
héraðsiæknir Húsavíkurhér-
aðs og Oddur héraðslæknir í
Breiðumýrarlæknishéraði með
aðsetri á Húsavík.
Læknamiðstöð
Norski bústjórinn í fóðurframleiðslueldhúsi Loðdýrs h.f. í
gærmorgun.
*
Arnesinga
kórinn
ÁRNESINGAKÓRINN í Reykja
vík heldur söngskemmtun í
Gamla bíói laugardaginn 18.
apríl kl. 3 e.h. fyrir Árneainga
í Reykjavík og aðra þá er hlýða
vilja.
Kórinn var stofnaður árið 1966
að tilhlutan Ámesingafélagsins í
Reykjavík og hefur sungið á
mörgum skemmtunum þess síð-
an og einnig alloft á skemmt-
unum fyrir aðra aðila, bæði hér
í Reykjavík og austan fjalls.
Stjórnandi kórsins er Þuríð-
ur Pálsdóttir söngkona og und-
irleikari Jónína Gísladóttir.
Á tónleikunum 18. þ.m. mun
kórinn flytja fjölda innlendra
og erlendra laga m.a. lög eftir
mörg helztu tónskáld Árnesinga
fyrr og síðar.
Einsöngvarar með kórnum
verða Guðrún Tómasdóttir og
Margrét Eggertsdóttir.
(Frá Árnesingafélaginu).
— 145 tonn
Framhald af bls. 32
er ísrek enn hér úti fyrir. Hafa
bátar oft átt í miklum erfið-
leikum með að komast að net-
um sínum. Hafa þeir orðið fyrir
töluvérðu netatjóni vegna íss-
ins.
Hér er í dag SA stinnings-
kaldi með bleytuhríð.
— Ólafur.
— Kopechne
Framhald af bls. 1
að skrifa niður vitnaframburð og
heldur því fram að hann hafi
einkarétt á að birta og selja ein-
tök af skýrslunum. Hins vegar
hafði hæstairéttairritairi, . Edward
V. Keating gert samning við fyr
irtæki um birtingu á skjölun-
um og hugðist hann dreifa þeim
til fréttamiðla, sem höfðu pant-
að þau fyrir 75 dollara eintakið.
Ákvörðun alríkisdómarans í dag
er til þess ætluð að koma í veg
fyrir petta.
Lippman hafði samþykkt að
selja afrit að skjölunum dagblöð
um og tímaritum í ágúst í fyrra.
Dinis héraðssaksóknari segir að
í öllum öðrum málum, sem hann
þekki til hafi það verið venja
að það sé hlutverk hraðritara
hvers réttar að útvega þeim setn
áhuga hafa á, eintök af dóms-
skjölum.
Þannig er vélasamstæðan í eldhúsinu.
Evrópuráðið:
Ráðherra-
nefndin
Fyrsta minkamál
tíðin framleidd
Dýrin eru nú í
f GÆRMORGUN var löguð
fyrsta máltíðin hérlendis úr ís-
lenzku fóðri fyrir 900 minkalæð
ur, sem Loðdýr h.f. hefur kom-
ið fyrir að Lykkju á Kjalar-
nesi. Fóðrið samanstendur fyrst
og fremst af ferskum fiskaf-
skurði, fiskbeinum, svo og inn-
mat úr sláturdýrum.
Norski bústjórinn Arne Bond
en, sem stýrir minkabúi Loð-
sóttkví
dýrs að Lykkju var mjög hrif-
inn af hinum ferska fiskúrgangi,
sem hann fær upp í hendumar
dag hvem. Taldi hann, að hið
góða minkafóður, sem Loðdýr
h.f. hefur aðgang að, mundi
verða þess valdandi, að minkar
hér á landi yrðu stærri en á hin-
um Norðurlöndunum, og skinn
því bæði betri og verðmeiri en
almennt gerðist.
Hinar 900 læður Loðdýrs h.f.
munu gjóta á tímabilinu 25. apríl
til 15. maí n.k., og á hver læða
allt að sex hvolpa.
Bæði vegna þess að dýrin eru
í sóttkvi, og mjög viðkvæmt
tímabil er fram undan hjá læðun
um, er allur aðgangur bannaður
að minkabúgarðinum, en gæzlu
vakt er við búgarðinn allan sól
arhringinn.