Morgunblaðið - 16.04.1970, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APR.lL 1970
Framtíðaratvinna
Laghentir menn óskast.
Trésmiðjan VÍÐIR H.F.
Tilboð óskast
í 40 tonna Lorain vélkrana, árg. '51, sem er gangfær og verður
sýndur hjá íslenzkum aðalverktökum næstu daga.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri þriðjudaginn 21. apríl
kl. 11 árdegis.
Sölunefnd varnarliðseigna.
Málmar
Ég kaupi ekki bara eir og kopar, heldur
Al Krómstál Nimonium
Blý og spæni Plett
Brons Kvikasilfur Ónýta rafgeyma
Eir Mangan Silfur
GuN Magnesíum Stanleystál
Hvrtagull Monel Tin
Hvttmálm Messing Zamak
og spæni Nikkel Zink
Kopar og Nikkelkróm Vatnskassa
koparspæni afklippur og
Króm spæni
Mikið hækkað verð fyrir ónýta rafgeyma.
Langhæsta verð, staðgreiðsla.
NÓATÚN 27 — SÍMI 2-58-91
Símnefni Masjomet.
AUGLÝSING FRA PÓST- OG SIMAMALASTJÓRNINNI.
Evrópufrímerki 1972 og 73
Hér með er auglýst eftir tillögum að Evrópufrímerki fyrir
árin 1972 og 1973.
Tillögurnar sendist póst- og símamálastjórninni yrir 15. júní
1970 og skulu þær merktar dulnefni, en nafn höfundar fylgja
með í lokuðu umslagi.
Póst og símamálastjórnin mun velja úr eina eða tvær tillögur
og senda hinni sérstöku dómnefnd Evrópuráðs pósts og síma,
CEPT, en hún velur endanlega hvaða tillögur skuli hljóta verð-
laun og verða notaðar fyrir frímerkin.
Fyrir þær tillögur, sem notaðar verða, fá höundar andvirði
2.500.— gullfranka eða kr. 71.872.—.
Væntanlegum þátttakendum til leiðbeiningar skal eftirfarandi
tekið fram:
1. Stærð frímerkisins skal vera sú sama eða svipuð og
fyrri islenzkra Evrópufrímerkja (26—36 mm) og skal
framlögð tillöguteikning vera sex sinnum stærri á hvern
veg.
2. Auk nafna landsins og verðgildis skal orðið EUROPA
standa á frímerkinu. Stafirnir CEPT (hin opinbera
skammstöfun samráðsins) ætti sömuleiðis að standa.
3. Tillöguteikningar mega ekki sýna neinar konar landakort.
4. Heimilt er að leggja fram tillögur, sem kunna að hafa
verið lagðar fram áður.
5. Með tiliöguteikningunum skulu fylgja skýringar á hug-
mynd þeirri, sem ligur að baki teikningunni.
Reykjavík, 13. apríl 1970.
P6st- og símamálastjórnin.
Fræðimenn frá mörg-
um helztu háskólum
— skrifa í afmælisrit dr. Stefáns Einarssonar
Nordica et Anglica: Studies in
Honor of Stefán Einarsson. Ed-
ited by Allan H. Orrick. 1968.
Mouton. The Hague. Paris. DG
50: —.
Stefán Einarsson prófessor
varð sjötugur í júní 1967, en
u.þ.b. ári síðar kom út í Hague
vísindarit heligað honuim. Er það
myndarlegt rit, tæpar tvö hundr
uð blaðsíður í stóru broti. Rit-
stjórn annast Allan H. Orrick,
en í ritið skrifa sextán vísinda-
menn ritgerðir um margvisleg-
ustu efni. í bókarlok er síðan
sikrá yfir rit Stefáns Einanssonar
og tekur hún yfir rúmar 20
blaðsíður.
Fremst í bókinni er grein eft-
ir John G. Allee við George
Wasbington háskólann um dr.
Stefán Einarsson. Rekur hann
þar æviferil dr. Stefáns og störf
og segir að loikum, að áat
hans á íslandi og íslendingum
kristallist í þeim mætum, sem
hann hafi á þrermir stór-
mennum lands síns, Sigurði Nor
dal, Þórbergi Þórðarsyni og Hall
dóri Laxness.
Fyrsta vísindaritgerðin er eft-
ir starfsbróður Stefáns við
Johns Hopkins University,
Kemp Malone, og nefnist: ,,The
Franrks Casket and the Date of
Widsith.“ Næst ritar G. Tur-
viMe-Petre í Oxford grein um
íslenzkt afbrigði af Somniale
Danielis. Karl Schneider við
Múnsterháskóla skrifar um forn-
ar enskar rúnir og Archer Tayl-
or við Berkleyhásikóla í Kali-
forníu ritar grein, sem hann
nefnir: „When Wine is in, Wit
is out.“ Margaret Schlauch við
Varsjárháskóla skrifar um
fyrstu pólsku úbgáifu íslenzku
Eddanna og Einar Haugen við
Harvard háskóla skrifar um
framburð á norrænu máli til
forna. Dorothy Whitelock við
Cambridge háskóla skrifar
grein, sem heitir: „Wultfstan Can
tor and Anglo-Saxon Law,“ og
Didrik Arup Seip frá Oslóarhá-
skóla á þarna grein um athug-
anir á máli Magnúsarlegend-
unnar í Orkneyingasögu. Arthur
G. Brodeur frá Berkley háskól-
anum í Kaliforníu ritar grein-
ina: „A Study of Diction and
Style in Three Anglo-Saxon Narr
ative Poems,“ og Sven B.F. Jan-
son, Stokfchólmsháskóla skritfar
um nýuppgötvaðan rúnastein í
Vásteljung, Södenmanland. Ge-
orge S. Lane, við University of
North Carolina, sfcritfar grein,
sem heitir: ,,The Use of Hittite
and Tocharian Materalis in Geir-
manic Etymologies." Stith Thom
son við Indiana University skrif
ar grein, sem heitir: .Icelandic
Parallelis among tthe Northeast-
ern Algonquians: A Reconsider-
ation.“ Dag Strömbáck, Uppsala-
háskóla, skrifar grein, sem heit-
ir: Some Remarks on Learned
and Novelistic elements in the
Icelandic Sagas. W.P. Lehmann,
Texasháskóla, skrifar: „Post-
Consonantal 1 m n r and Metri-
cal Practice in Beowulf." Síð-
asta ritgerð bókarinnar er eftir
Richard Beck, North Dakota há
Kápusíða afmælisritsins.
skóla, og heitir: Hans Hylen — a
Pioneer Norwegian Translator
of Icelandic Poetry.
Þessi upptalnimg gefur betur
til kynna en langt máil hverrar
virðingar dr. Stefán Einarsson
nýtur í hópi fremstu fræðimann-a
víða um heim.
Margar ritgerðanna í bókinni
fjalla um afmarkað sérsvið og
eiga því ekki erindi til alls
þorra manna. En þarna er líka
að finna ritgerðir um efni, sem
margir íslendingar hljóta að láta
Skrifstofustúlka
Stúlka vön bókhaldi óskast strax.
Upplýsingar í símum 66218 og 66219.
Veiðileyfi
í Svartá í Húnavatnssýslu verða seld nú þegar.
Upplýsingar í síma 11117 milli kl. 5 og 6 daglega og eftir
kl. 7 á kvöldin í síma 12565.
Nýtt og glæsilegt veiöihús mun verða tH afnota fyrir
veiðimenn.
Kaupfclag vili ráða
bifvélavirkja
til að annast verkstjóm á viðgerðaverkstæði.
Upplýsingar gefur Gunnar Grímsson starfs-
mannastjóri SÍS.
Starfsmannahald S.f.S.
Dr. Stefán Einarsson.
sig miklu varða. Nefni éig þar til
grein Dag Strömbácks um lærð
og skáldsagnakennd atriði í ís-
el ndin gasögum, en Dag Ström-
báck er ásamt þeim Sigurði
Nordal og Einari Ól. Sveins-
syni í hópi upphafsmanna bók-
festukenningarinnar. Þá er
grein þjóðsagnafræðingsins
heimskunna, Stith Thomsons,
um íslenzk þjóðsagnaminni
hliðstæð þeim, sem fyrir koma
hjá Algonquianindíánunum, mjög
athyglisverð, og hlýtur aðskipta
ísiliendinga miklu máli. Þar er
komið enn eibt atriði, sem rennir
stoðum undir ferðir norrænna
manna til Norður-Ameríku til
forna.
Ritskráin í bókarlok nær frá
1920 til 1965. Þar er að finna
492 rit, ritgerðir, ritdóma og um-
sagnir. Þó er þesisi ritskrá ekki
tæmandi, því að dr. Stefán birti
eftir síg nokkrar ritgerðir' eftir
1965. Eigi að síður er ómetanleg-
ur fengur að ritskrtánni, sem ger
ir grein fyrir venkum höfundar-
ins frá ári til árs.
Afmælisrit dr. Stefáns Einars
sonar er ánægjulegur vottur
þess, hverrar virðingar helztu
hugvísindamenn íslands njóta
hvarvetna í hinum menntaða
heimi.
Jón Hnefill Aðalsteinsson.
FYRSTA FLOKKS FRÁ FONIX
Ballerup
•r ein BALLERUP hrærivélanna.
Þær eru fjöihæfar: hræro, þeyfo,
hnoða, hakka, skilja, skræla, rífa,_
pressa, mala, blanda, móta, bora,
bóna, bursto, skerpa. Þær eru
fallegar og vandaðar og fóst f 4
stærðum.