Morgunblaðið - 16.04.1970, Page 28
28
MORGUNBIAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1970
GEORGES SIMENON:
EINKENNILEGUR
ARFUR
vel smurð og snúast sjálfkrafa.
Ertu enn í reykbindindi?
Og varirnar á Gilles höfðu
skolfið, er hann svaraði með hóg
legri einbeitni:
— Hr. Plantel. Ég vildi heizt,
að þér afhentuð mér öll skjöl
viðvíkjandi fyrirtækjum frænda
míns.
Það datt alveg ofan yfir
Plantel.
— En ... en, góðurinn minn ...
En Gillea lét ekki undan og
fór klyf jaður heim til sín.
Hann valdi sér herbergi í
hægri álmu hússins fyrir vinnu-
stofu og bjó hana viðeigandi hús
gögnum. Þegar stofan var tilbú-
in, fann hann Poinieau í gömlu
kirkjunni og heilsaði honum
kurteislega með handabandi.
— Segið mér, hr. Poineau, er
hann Lepart góður í bókhaldi?
— Það ætti hann að vera. Það
er hans starf.
— Vilduð þér fá yð-ur ein-
hvern annan mann o>g láta
Lepart hjálpa mér, þegar ég þarf
þess með?
Upp frá þessu var faðir Alice
kallaður, næstum daglega upp í
einkaherbergi Gilles, og var
ekki trútt um, að hann væri dá-
lítið hreykinn af þessari nýju
forfrömun sinni, en jafnframt dá
lítið hræddur. Klæðnaður hans
var illa sniðinn og jarðarfarar-
legur, hreyfingarnar varkárnis-
legar, og hann bar gtleraugu í
stálumgerðum.
— Fáið yður sæti hr. Lepart.
Mig langaði að líta á Eloimöpp-
una, af því að þar er ýmislegt,
sem ég ekki skil. Þessir víxlar
til dæmis, sem eru ábektir af
Ducreaux . . .
Og klukkustundum saman sat
Gilles þarna, með blýant í hendi,
XXIV
eins og skólastrákur í einkatíma.
Á slaginu fjögur var hann
vanur að standa upp.
— Þakka yður fyrir, hr.
Lepart. Þá var það ekki meira
í dag.
Og Esprit Lepart fór þá aft-
ur í bílaafgreiðsluna, þar sem
yfirmaður hans. Poineau, horfði
á hann með nokkurri tortryggni,
en þorði þó aldrei að spyrja
hann neins.
Fáum mínútum síðar var Gill-
Húshjálp
Barnavemdarnefnd Kópavogs vill ráða konu til að annast
heimili í veikindaforföllum húsmóður.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður i síma 41570.
BARNAVF.RNDARFULLTRÚINN
I KÓPAVOGI. '
es vanur að ganga framhjá Bar
Lorrain, og Babin, sem sat þar í
sæti sínu að vanda, dró tjaldið
ofurlítið frá glugganum og sendi
honium hornauga.
Gilles var að því leyti ólffcur
öðrum elskendum, að hann beið
ekki fyrir utan hjá Publex, held
Ur gekk beint um bæinn og til
skemmtigarðsins.
Allt þangað til fyrir svo sem
hálfum mánuði hafði verið orðið
dimmt klukkan fimm, en nú var
kominn febrúar og dagarnir
teknir að lengjast, og margir
vegfarendur litu um öxl, til þess
að horfa á bróðurson Mau-
voisins, þegar hann gekk fram og
aftur undir trjánum.
Og þá kom Alice í stutta pLls-
inu, sem sýndi svo vel fallega
fótleggina, en hárið flaksaðist
fyrir vindinum, því að hún /ar
berhöfðuð.
— Halló!
Síðustu dagana höfðu þau,
birtunnar vegna, orðið að leita
á einhvern afskekktari stað, áð-
ur en þau gátu farið að kyssast.
En einmitt þennan daig var rign-
irig og það hellirigning, og vor-
kuldi í loftinu.
— Ertu búinn að bíða lengi?
Það brást aldrei, að hún segði
þetta sama. Það var orðin föst
venja. Og jafnvíst var hitt, að
hann svaraði:
— Nei, ég var alveg að koma.
Og með eðlilegu hispursleysi,
sem hann var alltaf svo hrifinn
af, stakk hún hendinni undir arm
hans. Hún hallaði sér að honum
og tyllti sér dálítið á tá þegar
hún gekk — en því hafði hann
oft tekið eftir hjá ástföngnum
stúlkum.
Hann var ekki með regnhlíf.
Og hún hló að honum, einn dag-
inn þegar hann var kominn með
regnhlíf, sem hann hafði keypt
sér sama dag.
— Þú ert svo skríitinn með
þetta, sagði hún. Það er rétt eins
og þú værir að bera kerti í
skrúðgöngu.
Regnkápan hans var rennvot.
Hún var í kápu úr gegnsæju
silki. Regndropar glitruðu í hár
inu á henni.
— Vil sku/lum fara undir regn
hlífina okkar.
Regnhlífin þeirra var stórt
tré, utarlega í garðinum, sem gaf
gott skjól fyrir regni, ef ekki
rigndi því meir.
Gilles saknaði næstum vetrar
kvöldanna, sem voru bæði kald
ari og dimmari, eins jólasnjóvar-
ins og hörðu frostanna, þegar
Alice hafði stungið hendinni í
frakkavasa hana, til þess að
125 g smjör
2 eggjarauður
2 msk. klipptur graslaukur
2 tsk. sítrónusafi
Hrærið ailt saman og berið
sumarsmjörið með heitu salt-
kjöti, fiskréttum og heitum
grænmetisréttum.
Hrært smjör með mismunandi
bragðefnum gerir matinn fjöl-
breyttari, fyllri og bragðbetri.
I
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Nú færSu fréttir og gagnlegar upplýsingar langt aö. Friimlegar liug
myndir geta aSskiliS J>ig frá fjöldanum.
Nautið, 20. apríl — 20. mai.
Stöðug vinna og vandleg íhugun koma sér vel fyrir þig. Þú ert
I dálitlum vanda, því að margar leiðir standa þér opnar.
Tvíburamir, 21. maí — 20. júní.
Haltu rakleitt áfram í dag og segðu jafnframt skoðun þína.
Reyndu allt, sem I þínu valdi stendur til að telja fólki hughvarf.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
I»ú skalt einbeita þér að þeim hluta starfsins, sem hægt er að vinna
í einrúmi. Ef þú gerir sérsamning við eitthvert fyrirtæki, getur það
orðið til frambúðar.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Þótt lítið sé að gera, geturðu stofnaö til arðsams kunningsskapar.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Þú fréttir ýmislegt þér í hag. Leggðu dálítið á þig, og settu fram
einstæðar skoðanir þínar. Þér verður mikið ágengt.
Vogin, 23. september — 22. október.
Það, sem þú gerir til að bæta sjálfan þig, og ræðir við sérfróða
menn, er allt þér í hag. Ljúktu bréfaskriftum og hugsaðu til þeirra,
sem eru fjarri.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Grafðu upp óljósar fréttir og ógreinilcgar. Kannaðu vel, hvert er
upphaf þeirra.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Það gengur vel vinnan með fleirum. Leggðu ekki of hart að þér,
þannig að aðrir megi sin einhvers að verki afstöðnu.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Hæfileikar þínir og sérþekking koma vel i Ijós i dag. Þú skalt
ryðjast áfram, þannig að tekið verði eftir þér. Óvenjulegar aðferðir
gefa þér óskipta athygli allra.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Notaðu sérgáfu þína til samninga, og farðu varlega, þvi að það
eru ekki allir Jafn móttækilegir fyrir hæfileikum þinum. Það sem
virðist rökrétt, er ekki alltaf það vinsælasta.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20 marz.
Nú léttir heldur á þér. Bara að þú gerir þér grein fyrir þvi. Sjáðu
hve langt þú kemst.
hita henni. Og þá voru varirn-
ar á þeim oft sprungnar að
morgni.
Sjórinn var gulur og fiskibát-
arnir voru að koma að, í einni
halarófu. Það liði ekki á löngu
áður en albjart yrði á þessum
tíma síðdegis, og þá yrði fjaran
þakin sundfólki.
— Um hvað ertu að hugsa?
— Ekkert.
Hann tók hana í fang sér, rétt
í sama bili og gömul kona gekk
framhjá. Hún sneri sér við til
þess að horfa á þau, en hélt svo
áfram og hristi höfuðið hneyksl
uð. Alice rak upp hlátur. Þau
höfðu bæði hneppt upp regnkáp
unum sínum, til þess að finna
líkamshitann hvort af öðru.
Regndroparnir, sem ultu niður
eftir andlitunum á þeim, blönd-
uðust kossum þeirra. Gilles gat
séð stóru brúnu augun stúlkunn
ar rétt við eigin augu.
— Líður þér vel?
— Hvers vegna ertu alltaf að
spyrja að því? Líður þér ekki
vel sjálfum?
— Fórstu í bíó í gær? Með
hverjum?
— Linette og Gigi.
— Töluðuð þið við nokkurn?
— Bara hann Albert, piltinn
hennar Gigi. Hann sat á næsta
sæti við hana.
Hann var afbrýðisamur. Nei,
ekki var það nú beinlínis það.
Þetta var eitthvað annað og
flóknara. Hann harmaði, hve
skammvinnir þessir fundir
þeirra voru, og að eftir fáar
mínútur mundi hann ekki leng-
ur ganga með henni, arm í arm,
og segja hvað sem honum gæti
dottið í hug, og stanza svo allt
í einu til þess að kyssa hana.
Sunnudagurinn var andstyggi
legur, því að þá gat hann alls
ekki hitt hana. Þá fór hún út í
stúlknahóp, og hann vissi, að þá
slógust strákar í för með þeim.
Þegar hann var einn í rúminu
sínu, ásakaði hann sjálfan sig
fyrir að vera hryggur, og tók að
velta því fyrir sér, hvort hann
ynni of mikið.
En hann var bara ekki hrygg
ur. Hann var órólegur. Alls kon
ar hugdettur streymdu gegnum
höfuðið á honum, hugmyndir,
sem hann hafði aldrei getað botn
að í. Eitt orð var, sem kom hon-
um alltaf í þungar hugleiðingar,
og það var orðið par.
Og þá sá hann í huganum allt-
af sömu sjónina — föður sinn
og móður, undir bogagöngunum
við tónskólann.
Þau höfðu dáið saman í her-
bergi í Þrándheimi, og þau voru
jörðuð í sömu gröfinni. Frænka
hans og Sauvaget læknir voru
annað parið. Enginn kraftur
hafði megnað að halda þeim
sundur, og jafnvel þótt þeim
Volvo MB88 með dróttarvagni
Til sölu er MB 88 með dráttarvagni á stól
(TRAILER). Er til sýnis við verkstæði vort
að Suðurlandsbraut 16.
Tilboðum sé skilað á skrifstofu vora fyrir
kl. 18.00 föstudaginn 24. apríl n.k.