Morgunblaðið - 03.07.1970, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1970
John Bell
í NÆTUR
HITANUM
JH
6
var ekkert hrifinn af. En verst
gat Sam þó þolað harkalega,
ónærgætna og heimtufreka fram
komu Gillespie. Sam komst að
þeirri niðurstöðu, að ekkert væri
hann nú hrifinn af negranum,
en þætti hins vegar vænt um að
sjá Gillespie komast í bobba. En
áður en hann kæmist lengra með
þessa hugsun sína, leit Gillespie
á hann.
— Spurðirðu þennan mann
nokkuð áður en þú komst með
hann hingað, spurði Gillespie.
— Nei, herra, svaraði Sam.
Þetta „herra“ sat dálítið fast í
kverkunum á honum.
— Hvers vegna ekki? Gillespie
hreytti út úr sér orðunum á
móðgandi hátt, fannst Sam. En
úr því að negrinn gat stillt sig
fannst Sam hann sjálfur ætti
ekki að standa honum að baki.
Hann hugsaði sig ofurlítið um,
en svaraði síðan eins stillilega
og hann gat.
— Þér skipuðuð mér að at-
huga járnbrautarstöðina vand-
lega og svipast um eftir einhverj
um, sem ferðaðist á puttanum,
eða hverjum, sem væri eitthvað
athugaverður. Þegar ég fann
þennan ne. . . þennan mann á
stöðinni, kom ég strax með
hann, svo að ég gæti haldið
áfram að framkvæma skipanir
yðar. Á ég nú að fara?
Sam var hreykinn af sjálfum
sér. Hann vissi vel, að hann var
ekkert vel máli farinn, en þarna
hafði hann svarað vel fyrir sig.
— Ég vil fyrst láta þennan
mann gera grein fyrir sér. Gille-
spie leit á Tibhs. — Þú segist
ist vera lögreglumaðaxr í Kali-
forníu?
— Já, það er ég, svaraði Tibbs
og stóð kyrr við hliðina áharða
stólnum.
— Sannaðu það.
— Það er spjald í veskinu
mínu.
Gillespie tók veskið á borð
inu oig svipurinn var eins og
hann væri að snerta við ein
hverjum óþverra. Hann opnaði
hólfið og glápti á litla hvíta
spjaldið í gegnsæja umslaginu,
svo skellti hann aftur veskinu
og fleygði því kær-uleysislega að
umga manninum. Tibbs greip
það og stakk því rólega í vasa
sinn.
— Hvað hefurðu verið að gara
í alla nótt? Nú var röddin í
Gillespie orðin fyrtin. Hún var
að reyna að koma af stað rifr-
ildi og manaði, hvern sem væri
að taka á móti.
ÁSTRÖLSK ÚRVALS VARA
NÍÐUR
SOÐNIR
ÁVEXTIR
JOHWSOM&HAABEBy/
HÓTEL AKRANES
Sími 93-2020.
Ferðafólk
bjóðum yður:
Gistingu
Cafetríu
Grill
kertasal
fundar- og samkomu-
sali.
Athugið:
Akranes er aðeins klukku-
tíma sigling frá Reykjavík
og um 12 km frá Norður-
og Vesturleiðinni. Á Akra-
nesi er ýmislegt að skoða
m. a. sérkennilegt byggða-
safn o. fl. o. fl.
Verið velkomin til Akraness.
HÓTEL AKRANES
Sími: 93-2020.
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Eignaskipti eru möguleg. Stutt ferð verður þér skemmtiieg.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Notaðu daginn til að hressa upp á útlit þitt. Ekki veitir nú af.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júni.
Hlustaðu á fólk, scm reynsluna hefur, en vertu hógvær.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
í dag hyrjarðu þriggja vikna betrumhætur á sjálfum þér.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Vertu féiagslyndur og gerðu öðrum lífið skemmtilegt.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Gefðu gaum að eldra fólki. Þú getur dregið athygli góðgerðafólks
að því.
Vogin, 23. september — 22. október.
Vinir þínir vilja gjarna aðstoða þig. Reyndu að vinna stærsta
verkið fyrst.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Allt samstarf gengur óvenjulega vel. Spurningar í sambandi við
fólk, sem er langt í burtu, eru jákvæðar.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember
Fólk sýnir þér mikinn áhuga og hjálpsemi í dag. Fjármál, sem
þú þarft að sinna með öðrum ganga vel.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Næstu þrjár vikur skaltu einbeita athygli þinni að því, hvernig
þú átt að virkja annað fólk. Líttu svo í eigin barm.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Stórhugur er sjálfsagður í dag. Reyndu að ásetja daginn eins mik-
ið og þér er mögulegt.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20 marz.
Notaðu þennan ágæta dag til að koma til móts við aðra. Reyndu
að vera dálítið þægilegur, ef hægt er.
— Eftir að ég kom úr lestinni,
fór ég inn á stöðina og beið. Ég
fór alls ekíki út fyrir brautar-
pallinn. Ekkert sást manninum
bregða, og það fór 1 taugarnai
á Gilllespie. Hann. skipti snöggt
uim tón.
— Þú veizt, að ekki' mundum
við nota mann eins og þig fyrir
lögregluþjón hérna, er það
eklki?
Hann þeið og dauðaþögn var í
herberginu.
— Þú hafðir þó vit á að fara
ekki inn í biðsal hvítra roanna?
Enn lagði Giilespie hendumar
fram á borðið og myndaði sig til
að standa upp.
— Já, svo fróður var ég.
Gillespie tók ákvörðun. —
Gott og vel, þú bíður hérna
fyrst um sinn, meðan ég fæ
gerða grein fyrir þér. Gættu
hans, Sam.
Sam Wood sneri við, án þess
að segja orð og elti Virgii Tibbs
út úr skrifstofunni. Venjulega
hefði hann nú ekki látið negra
ganga á undan sér gegmuim dyr,
en þessi negri beið ekki eftir
því að Sam færi á undan sér,
og það var ekki stund eða staður
til þess að setja það á oddinn.
Þegar þeir tveir voru farnir út
reiddi Bill GiMespie upp hnef-
ann og skellti hormrn niður á
borðið. Svo þreif hann símann
og las fyrir skeyti til lögregl-
uninar í Pasadena.
Sam vísaði Tibbs til sætis á
hörðum bekk í biðstofunni.
Tibbs þakkaði honum fyrir, dró
upp vasabrotsbókina sína, sem
hann hafði verið með á járn-
brautarstöðinni, og fór aftur að
lesa. Sam leit á bókakápuna.
Bókin hét „Að skilja vísindin“
eftir Conant. Sam settist niður
og óskaði þess heitast, að hann
hefði eitthvað að lesa.
Þegar himinninn tók að grána
úti fyrir, og var alsettur dökk-
um rákum á birtandi grunni,
vissi Sam, að nú var nætur-
akstri hans á eftirlitsbílnum lok
ið í bili. Svo var orðið framorð-
ið. Hann fór að fá í sig verki af
að sitja á harða bekknum. Hann
langaði í kaffisopa, þrátt fyrir
hitann, og hann langaði að
hreyfa sig eitthvað. Hann var
að ráða það við sig, hvort hann
ætti að standa upp og teygja úr
sér, þegar Gillespie birtist allt í
einu í dyrunum. Tibbs leit upp
og það var þögul spurn í augna-
ráðinu.
— Þú getur farið ef þú vilt,
sagði Gillespie og leit á Tibbs.
— Þú hefur misst af lestinni og
sú næsta er ekki fyrr en seinni
partinn. Ef þú vilt bíða hérna,
skal ég sjá um, að þú fáir morg-
unmat.
— Þakka yður fyrir, sagði
Tibbs. Sam fannst þetta geta
verið sér bending, og stóð upp.
Undir eins og Gillespie var far-
inn úr dyrunum, gekk Sam út
og eftir ganginum að dyrunum,
þar sem á stóð Karlar — hvítir.
Næturvörðurinn var þar inni,
að þvo sér um hendurnar. Ein-
hver kipringur í vörunum á
manninum sagði Sam, að hann
hyggi yfir einhverju fréttnæmu.
— Hefurðu frétt nokkuð, Pete?
spurði hann.
Pete kinkaði kolli, skvetti
vatni framan í sig og gróf síðan
andlitið í handklæði. Þegar
hann kom • aftur fram, til að
anda, svaraði hann: — Stjórinn
fékk skeyti fyrir nokkrum mín-
útum. Hann þagnaði og
skyggndist um, til að sjá, hvort
allir kamrarnir væru mannlaus-
ir. — Frá Pasadena. Stjórinn
hafði sent svohljóðandi skeyti:
„Staðfestið, að Virgil Tibbs sé
úr lögreglu ykkar. Við höfum al
varlegt morðmál hér. Höfum
haldið Virgil Tibbs hér, sem
grunuðum.“
— Ég lái honum nú ekkert,
þó hann vilji vita vissu sína,
sagði Sam.
— Bíddu þangað til þú heyrir
svarið, sem hann fékk. Pete
lækkaði röddina, svo að Sam
varð að ganga alveg að honum
til þess að heyra til hans. „Stað-
festum. Virgil Tibbs hefur verið
í lögreglunni í tíu ár. Núver-
andi embætti: rannsóknarfull-
trúi. Sérgrein morð og stórglæp
ir. f miklu áliti. Tilkynnið ef
þarfnazt er þjónustu hans í yð-
ar umdæmi. Samþykkjum, að
morð sé alvarlegt."
— Ha-ha! sagði Sam lágt.
— Einimitt, samþykkti Pete. —
Ég skal alveg bölva mér upp á,
að Bill Gillespie veit ekkert í
sinn haus um morðrannsóknir.
Ef hann ekki leysir þetta mál, og
það fljótt, fær hann allan bæ-
inn á hálsinn. Og nú hefur hann
tilboð um grunaðan mann, sem
er bæði sérfræðingur og neg. . .
Hann þagnaði, er Sam gaf hon-
um aðvörunarmerki. Fótatak
heyrðist í ganginum en hvarf
síðan út í þögnina.
— Það sem mig langar nú
mest að vita, sagði Sam, — er
það, hvernig Gillespie hefur get
að fengið þetta embætti sitt,
jafnvitlaus og hann er. Hann
ku hafa verið óþarflega fljótur
á sér með byssuna, þarna í
Texas, eða var það ekki?
Pete hristi höfuðið. Hann var
nú aldrei lögregluþjónn, af því
að hann var of stór til þess.
Hann var fangavörður, krafta-
jötunn sem gat ráðið við fylli-
bytturnar. Eftir þrjú ár í því
starfi, fór hann eftir auglýs-
ingu og fékk þessa stöðu hérna.
Hann vonast sjálfsagt eftir því,
að það geti komið honum í ein-
hverja betri stöðu, eftiir hæfileg
an tíma. En ef hann klúðrar
þessu, er hann búinn að vera
og það veit hann.
— Hvernig fréttirðu þetta allt
saman?
íþróttaunnendur
Það er óþægilegt að horfa á fótbolta blautur.
Komið í Leikfangaland og kaupið regnhlíf á aðeins
kr. 300.— og verið þurr.
Stálvaskar
DÖNSKU „JUVEL“ vaskarnir nýkomnir.
Úrvalsvara á góðu verði.
j. ÞORLáKsson & noRDiiinmi simi ii2so
BflílKflSTRFET111 5KULflGÖTU30