Morgunblaðið - 01.12.1970, Síða 6
MORGUN’BLABIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DE9EMBER 1970
JARÐÝTUR TIL LEIGU Stórar Ripper-ýtur. Ýtuvélar hf, sfnvi 30877.
m sölu mý'w varaibliuiti.r í Gtoníu 6, 1966 vinstra framnibretti og ým®ir varahl'uti'r. Síml 32864 milli W. 12—1.
REGLUSÖM 19 ARA STÚLKA ósikar eftir virmu. Hetor vél- ritunar- og bók'haldskunn- áttu. Einnig bílpróf og bíl. Upplýsmgar í síma 83827.
HÆNUUNGAR Tij sölu eru hænoongar, 10 vikoa og ekfri. Hreiður hf„ sírni 12014.
LAMBAKJÖT beilir temibaskrokikair, kótetett- or, læri, bryggir, súpokjöt. StórlæQðkað verð. Kjötb. Laugav. 32, s. 12222, Kjötm.st. Laugalæk, s. 35020.
ÓDÝRT HANGIKJÖT Stórtækikað verð á bangi- kjötsteerum og frampörtum, útbeinað, stórlaskkað verð. Kjötb. Laugav. 32. s. 12222, Kjötm.st. Laugalæk, s. 35020.
UNGHÆNUR — KJUKLINGAR Ungfvæmur og ungihanar 125 kr. kg. Úrvats kjúklingar, kjúkbngataeri, lcjúkttngabr. Kjötm.st. Laugalæk. s. 35020. Kjötb. Laugav. 32. s. 12222.
SVÍNAKJÖT (ALIGRlSIR) Hryggir, bógsteik, læristeik, kótetettur, bamtoorgarahrygg- ir, kamtoar, bacon. Kjötm.st. Laugalæk, s. 35020. Kjötb. Laugav. 32, s. 12222.
ÚRVALS NAUTAKJÖT Nýtt neutafkjöt, snrtcbel, buff, gúítas, haikk, bógsteik, grillsteik. Kjötb. Laugav. 32. s. 12222, Kjötm^t. Laugalæk, s. 35020.
KJÖT — KJÖT 5 verðftokkar. Mrtt viður- kennda haogikjöt til jóHanna. Lifur og svið. Unghæmur. Sláturhús Hafnarfjarðar swnar 50791 og 50199.
KEFLAVÍK Til söiu góð þriggja hertoergja íbúð við Hólatoraiut í Kefla- vík. Sérirmgangor. Fasteignasalan Hafnarg. 27, Keflavík, sámi 1420.
NOTIÐ ÞÆGINDIN Verzfið toeint úr bifreiðinn'i. Fjolibreytt úrval söiuskála- vöru. Opið 07.30—23.30. Sunnudag 09.30—23.30. Bæjamesti við Miklubraut.
TIL SÖLU borðstofusett, eik ijósaikrónur gófflampi bónvél. Upplýsingar í síma 23043.
FJÖGURRA HERBERGJA iBÚÐ ósikast á leigiu, helzt með bífskúr. Upplýsingar í síma 13647.
TVEIR NÝIR tækifæriskjó lar t-M sölu. Upp- lýsingar í síma 51676 eftir M. 7.
ÁRNAÐ HEILLA
Áttræður er i dag Steinþór Guð
mundsson fyrrverandi kennari og
bœjarfulltrúi í Reykjavik og á
Akureyri. Hann verður í dag
staddur að Nesvegi 10.
70 ára er í dag Gísli Jakobs-
son frá Þóreyjamúpi, Vestur-
Húnavatnssýslu. Harm er stadd
ur í dag á heimili dóttur sinnar
og tengdasonar, Birkihvammi 12
Kópavogi.
24. október voru gefin saman
í hjónaband af séra Garðari Þor
steinssyni ungfrú Amfríður Ing
ólfsdóttir Suðureyri, Súganda-
firði og Pálmi Adolfsson Hellis-
götu 34 Hafnarfirði.
Ljósm.st. Hafnarf jarðar Iris.
Þann 26. september s.l. vom
gefin saman í hjónaband í
Glaumbæjarkirkju i Skagafirði
af sóknarprestinum sr. Gunnari
Gíslasyni ungfrú Anna Salóme
SA NÆST BEZTI
Stúlkan við biðilinn: Nei, ég tæki yður ekki, þó að enginn karl-
maður væri til í veröldinni annar en þér.
Biðillinn: Væri ég eini karlmaðurinn í heiminum, þá fengjuð þér
mig ekki, því að þá mundi ég biðja stúlku, sem væri laglegri
en þér.
Og hann sagði við þá: Farið og étið feitan mat og drekkið
sæt vín og sendið þeim skammta sem ekkert er tilreitt fyrir, því
að þessi dagur er helgaður Drottni vorum. (Neh. 8.10.)
I dag er þriðjudagur 1. desember og er það 335. dagur ársins
1970. Eftir lifa 30 dagar. Fullveldisdagurinn. Island fullvalda
ríki 1918. Elegiusmessa. Árdegisháflæði kl. 7.39. (Cr íslands al-
manaldnu).
Ráðgjafaþjónusta
Geðverndarfélagsins
þriðjudaga kl. 4—6 síðdegis að
Veltusundi 3, sími 12139. Þjón-
ustan er ókeypis og öllum heim-
U.
Næturlæknir í Keflavík
1.12 oð 2.12. Kjartan Ólafsson.
3.12. Ambjöm Ólafsson.
4., 5. og 6.12. Guðjón Klemenzs.
7.12. Kjartan Ólafsson.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74,
er opið sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga frá kl.
1.30—4. Aðgangur ókeypis.
Haust
Á ungum morgni leikur flest í lyndi
í ljóssins ríki, en hverju sætir það,
hve fáir meta æskuvorsins yndi
eins og skyldi, fyrr en haustar að.
Meinlega, þá margir harma hýsa
og hafa talið beztu daga sina.
Þá er gott, að Ijósin fara að lýsa,
er loguðu bezt, en hættu fyrst að skína.
Markús i Borgareyrum.
Halldórsdóttir Stóru-Seylu og
Konráð Gislason Sólheimagerði.
Ljósm.: Stefán Pedersen,
Sauðárkróki.
saman í hjónaband í Hafnar-
fjarðarkirkju af séra Garðari
Þorsteinssyni ungfrú Anna
Marý Gísladóttir og Friðrik H.
Helgason, Sólheimum, Vogum.
Ljósmyndas
Ljósmyndast. Hafnarfj. íris.
FRÉTTIR
Kvenfélag Árbæjarsóknar
Jóla- og afmælisfundurinn verð
ur haldinn miðvikudaginn 2.
desember kl. 8.30 í Árbæjar-
skóla. Tízkusýning og fleira. Af
mæliskaffi.
Kvenfélag Ásprestakalls
Jólafundurinn er í Ásheimilinu
Hólsvegi 17, miðvikudaginn 2.
desember kl. 8. Skemmtiatriði.
Kaffidrykkja. Dregið i happ
drættinu.
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur fund í Sjómannaskólan-
um þriðjudaginn 1. desember kl.
8.30. Magnús Guðmundsson sýn
ir blóma- og jólaskreytingar.
Nýir félagar velkomnir.
Kvenfélag Hafnarfjarðarkirkju
heldur jólafund föstudaginn 4.
desember í Alþýðuhúsinu kl.
8.30. Dagskrá: Jólahugvekja.
Þjóðlagatríóið „Lítið eitt“ leik-
ur og syngur. Sýnt tauþrykk.
Happdrætti. Kaffi.
Áramótafagnaður í snjóhúsi
Islendingum hefir aldrei
tekizt að gera sér gagnleg
snjóhús, á borð við snjóhús
Eskimóa. Veldur þar senni-
lega mestu um, að tíðarfar er
hér hvikulla heldur en í öðr-
um heimskautalöndum; hér
eru umhleypingar mikiir, vot-
viðri og frost sitt á hvað,
svo snjórinn ýmist þiðnar eða
frýs. En íslenzk æska hefir
þó löngum haft það sér til
gamans að gera snjóhús, þeg
ar vel stóð á. Þessi hús hafa
þó orðið mjög endingarlítil,
þau hröma og hrynja fljótt,
og eru því ekki nema til
stundargamans. Þó er getið
um eitt voldugt snjóhús hér
á landi, hlaðið af fullorðnum
mönnum og notað í sérstök-
um tilgangi.
Þjóðhátíðarárið 1874 varð
til þess að koma róti á hugi
manna, það var eins og víða
hefðu vaknað vonir um fram
farir hér á landi. Þetta kom
heSzt fram í þvi, að nú var
farið að halda fundi viða um
héruð til þess að ræða um
viðreisn lands og þjóðar. Þar
voru Norðlendingar ekki eft-
irbátar annarra. Og á gaml-
árskvöld héldu Eyfirðingar
samkamu á Espihóli, er vera
mun einstæð í sinni röð.
Á milli bæjanna Ytra- og
Syðra-Espihóls er hóll all
mikill og hár, sem Espihóli
heitir og draga báðir bæirn-
ir nafn af honum. Af þessum
hóli er mjög viðsýnt um Eyja
fjörð í góðu veðri. Þarna var
samkomustaðurinn á gamlárs
kvöld 1874 og var fundar-
salurinn snjóhús, meira og
veglegra en sögur höfðu far
ið af áður. Þar inni voru
borð og bekkir úr klaka, en
I gluggum voru glærar ísflög
ur. Skammt frá þessum mikla
sal hafði svo verið hlaðinn
bálköstur stór, 9 alnir á hæð
en efst logandi oiía, sem viti.
Þegar myrkur var fallið á
hófst skemmtunin og var það
tilkynnt með þremur fall-
byissuskotum. Þá voru fundar
menn hátt á annað hundrað.
Siðan var kveikt 1 bálkestin
um og skemmtu menn sér við
eldinn um stund. En um það
er síðar gerðist segir svo í
Norðanfara:
— Þá komu úr myrkrinu 3
nomir og gengu að katfli ein-
um miklum, sem oLía var i.
Kveiktu þær í, tókust í hend
ur og hoppuðu með miklum
ærslum og ólátum. Margir
púkar og vofur komu þá og
hrærðu í katlinum og hopp-
uðu með logandi eldibröndum
ásaimt nomunum. Svo var að
sjá, að seiðkonumar köstuðu
einhverju i ketilinn (og
sungu á meðan) og var þetta
ein af þulum þeim, er þær
kváðu:
Söfnum öllu saman því
sem að verst er heimi í,
þar af sjóðum galdragraut,
hið góða rekum alit á braut.
Verstu baekur brúka skal,
býsna margra höfum val:
Kynja ljótar koma þar
Klettaborgarsögumar,
Grýla og Freya fara með,
fáir hús þeim geta léð,
Kjartans ljóð og Kjörskráin
og kvæði er orkti vefarinn,
blaðið Timann brúkum þá,
Búarímur og Aldasibrá,
einnig skulu óhreinir
auka seiðinn Smámunir,
tryl.ltu magni töfra glóð
Töfralist og Bæringsljóð,
og allar bækur óþarfar
sem eru þjóð til skapraunar.
Þá kom fram Bakkus
gamli, hann irar hvítur fyrir
hærum, með gyllta kórónu á
höfði og fllösku i hendi, og
veittu nomimar og púkarnir
honum lotningu mikla og
þáðu með fögnuði veitingar
hans og hurfu síðan óvættir
þessar sviplega út í myrkrið.
Voru síðan ræður fluttar
úr klakastólnum, ýmislegs
efnis og mörg minni drukkin,
en samdrykkja fór hóflega
og siðsamlega fram og varð
að þessu öllu skemmtan
góð.
Að endingu tóku menn að
ræða um velferðarmái vor og
var ásamt fleira sérstaklega
haft að umræðuefni hvað
mönnum þætti mest varðandi
og ekki ofvaxið kröftum vor
um að koma á fót á þessu
þjóðhátiðarári. En þar eð
þetta þótti ekki nægilega yf-
irvegað, var samþykkt að af-
ráða ekkert í þessu velferðar
máli fyrr en á almennum hér
aðsfundi.
Frá
horfnum
tíma