Morgunblaðið - 01.12.1970, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1970
MMmi
Frumvarp á Alþingi:
í öll f iskiskip
Nauðsyn aukinnar vöruvöndunar
Á ÞINGFUNDI í efrideild í gær
mælti Björn Jónsson fyrir frum
varpi er hann flytur og fjallar
það um ráðstafanir til að auka
vöruvöndun útflutningsafurða
sjávarútvegsins. Eru helztu
ákvæði frumvarpsins þau, að
skylt skuli að hafa sérstaka fisk
kassa um borð í fiskiskipum, og
á að leggja í þá afla, jafnóðum
og hann er innbyrtur. Þá skal
fiskvinnslustöð, sem tekur við
fiski til verkunar, skylt að geyma
fisk þannig, að hann skemmist
ekki, meðan hann bíður vinnslu-
meðferðar. Leggur Björn til, að
fiskmat rlkisins framkvæmi skoð
un á því, hvort slík aðstaða sé
fyrir hendi, og geri tillögur um
úrbætur, þar sem þeirra gerist
þörf. Getur Fiskmat ríkisins að
gerðum slíkum tillögum ákveðið
vinnslustöðvum tiltekinn frest til
að fullnægja þeim skilyrðum
Sem sett eru.
Bjöm leggur einnig til með
frumvarpinu að Fiskveiðasjóði
verði skylt að lána til 6 ára með
venjulegum lánskjörum sinum
til útgerðarfyrirtækja, sem skyld
uð verða til þess að kaupa fisk-
kassa og gera breytingar á lest-
arrúmi skipa.
í framsöguræðu sinni með mál
inu ræddi flutningsmaður nauð-
syn þess að efla vöruvöndun hér
lendis á þessu sviði og benti m.
a. á að innan við helmingur út-
fluttra sjávarafurða væri fyrsta
flokks vara. Þegar þess væri svo
gætt, að verðmismunur milli
gæðaflokka væri varla undir
10% yrði auðsætt, að auka
mætti heildarverðmæti afurð-
anna um hundruð milljóna kr.,
ef unnt reyndist að breyta svo
meðferð sjávarfangs; að mestur
hluti þess yrði 1. flokks vara.
Siðan ræddi flutningsmaður
um reynslu sem fengizt hefði af
notkun fiskkassa um borð i fiski
skipum, en hún hefur verið mjög
góð.
Eggert G. Þorsteinsson, sjáv-
arútvegsmálaráðherra tók til
máls við umræðuna, og sagði að
hér væri mjög mikilsverðu máli
hreyft, en þegar hefðu farið
fram rannsóknir á þessu sviði.
Hvatti ráðherra til þess að sú
þingnefnd er fengi frumvarpið
til meðferðar, kynnti sér hvað
gert hefði verið og tæki tillit til
þess, þegar frumvarp þetta yrði
afgreitt.
Ragnar Ólafsson, stjórnarformaður KRON, lýsir nýja vöruhúsinu
fyrir fréttamönnum og gestum í gær. — (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
Domus opnar í dag:
Tekur sæti
á Alþingi
1 GÆR tók Eyjólfur Konráð
Jónsson ritstjóri sæti á Alþingi
sem fyrsti varaþingmaður lands-
kjörinna þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins. Tók Eyjólfur sæti
Bjartmars Guðmundssonar.
Nýtt vöruhús KRON
— við Laugaveg
KRON opnar í dag vöruhús að
Laugavegi 91 og er það fyrsta
vöruliúsið hér á landi, þar sem
allar verzlanirnar eru reknar af
sama aðila. í þessu nýja vöru
húsi eru verzlanir á þremur hæð
um og sölugólfrými er 700 fer-
metrar. Eftir áramót verður
skrifstofa félagsins einnig flutt
í þetta hús, sem KRON keypti í
apríl sl. af verzluninni Edin-
borg fyrir 28 milljónir króna. —
Eftir áramótin mun KRON hætta
starfrækslu vefnaðarvöruverzl-
unar að Skólavörðustíg 12 og
—
■ í i i s t i t i / T / t y
Cekt-áx í. B í / i / i / O / í í / 8
7/a-cv í B í í / t t / í / LÍ £ t 7
At/h/g X B / í / O O / / / o i * í■ <S?
í i o B í o o o O o o í o 2
l’/rif.Kfj* i o o s í B / í o / / / o é
r/SMgrr/ i i A * o / o B o o i í Jj o *■
1 L o t / / B í- / / í í 6 /
í í o / B í í t í 4 í / í ií
strrcc/. i 0 í fl í i % / o í 6 t t >
r/ser/K i / n / / í / / / i t o i. »t
r/i/r O o B i i O í í i ~r z Q o í st
M/xr ■\ i 0 í B o i í s / / o o Á'
/U'MATáSX í t i t t H / í o / / / 4 7ý
í/fvs/ce i t t o / B / i T í í ic o 6
»>i/SC,V / 0 í 0 ð o o 11 / £ i t í rí
61/CCX/C L / o t / / í <*> 1« / i f 7
Tj/va>c / / t í í í í / i Ú fl i 7
t/j/sj/cvsk / o / 6 í í o L í Ó t í J. * ■ %
ft//7//cv/c í L / e L jL 1 L ±i o i ■
o í o / o i 7 L í o o í ■ ff
SA'/T 1////S/'/ T t í / X / O Lj / / o í fl 7
76*7/SC/* • O s t i / o t f í / / m / 7
M*C/c/S/C L e í / / L / / t L i O 7
Skákmótið
SVONA lítuir skáktaflan út eftir
tólf umferðir í millisvæðaimótinu
i Palma. Mjög erfitt er að segja
um það á þessu stigi, hverjir
hafna í sex efstu sætunum, en
sem kunnugt er ganga sex meom
áfram til kandídatamótsims.
Fischer virðist öruggur.
Geller og Polugajevsky
(báðir Rússar) eru einnig
líklegir.
Varla verður Larsen undam-
skilinn, enda þótt Damir sýn-
ist nú nokkuð „nervösir“ út
af honum. Ég hefi trú á, að
Larsen komist í gegn.
Portisch (Ungverjalandi) hef-
ur tvisvar komizt á Kandí-
datamót, og ég rniæli einmig
með homum nú.
Uhlmann (Austur-Þýzkalandi)
hefur staðið sig vél, og virð-
ist ekki óeðlilegt að spá hon-
um eimiu af efstu sætunum.
Þá eru þetr komnir „kandídat-
arnir“, en spáin er birt án
ábyrgðar, enda lönig leið til
mótsloka enin. — Sv. Kr.
bókaverzlunar að Bankastræti 2.
Nýja vöruhúsið ber heitið
Domus en svo heita vöruhús
samvinnumanna í Svíþjóð.og Nor
egi. í Domus er verzlað á þrem-
ur hæðum, sem fyrr segir. f
kjallara eru nýlenduvörur, leik
fömg, búsáhöld, ferða- og sport-
vörur og stærri heimiilistæki. Á
götuhæð eru borðbúnaður, gler-
og postulínsvörur, leir- og kera-
mikvörur, útvörp og sjónvörp,
tóbak, sælgæti, blöð og tímarit.
Á annarri hæð má fá fatnað alls
konar og bækur. Á palli milli
fyrstu og annarrar hæðar verður
svö veitingastofa. Verzlunar-
stjóri að Laugavegj 91 er Örn
Ingólfsson.
Húsið er teiknað af Haraldi V.
Haraldssynd, arkitekt, frágangur
innanihúss var skipulagður hjá
teiknistofu Sambands íslenzkra
samvinnufélaga og um verzlana
fyrirkomulagið voru höfð sam-
ráð við sænska samvinnusam-
bandið, en hjá því voru innrétt
ingarnar keyptar.
Erling Ellingsen.
Erling Ellingsen
forstjóri látinn
ERLING Ellingsen, forstjóri
Tryggingar hf., er látinn, 65 ára
að aldri.
Ei-ling fæddist í Reykjavík 20.
júlí 1905, soniur hjónanna Othars
Ellimgsen og Marie Johammie
Berg. Hann varð stúdent frá MR
1924 og lauk prófi í bygginga-
verkfræði frá Þrándheimi 1928.
Árið 1945 vairð Erling Elling-
sem fyrsti flugmiála®tjóri íslamds
og gegmdi því starfi til 1951, ea-
hamm stofnaði tryggingafélagið
Trygging hf„ þar sem hamn var
aðailifraimkvæmdastjóri til dauða-
dags. Konia Erlimgs var Elím Sig-
ríður Harallz, dóttir Haralds
Níelissonar, prófessors, en hún
lézt fyrir sköimnm.
Þingmál í gær
Á FUNDÍ neðrideildar Alþing-
is í gær kom stjórnarfrnnivarp-
ið um lífeyrissjóð bænda til
fyrstn umræðu, en frumvarp
þetta hefur áður hlotið af-
greiðslu í efrideild. Magnús
Jónsson fjármálaráðherra mælti
fyrir frumvarpinu, en einnig
tóku þeir Stefán Valgeirsson og
Eðvarð Sigurðsson til máls.
Frumvarpið var síðan afgreitt til
2. umræðii og landbúnaðarnefnd-
ar.
Hleðri-bær
Síðumúla 34
M HÁOECIS-
RÉTTIR
Meðri-bær
SKIPAUTGCR0 RIKISINS
Ms. Hekla
fer 10. þ. m. austur um land í
hrkigferð. Vörumóttaka á þriðju-
dag, miðvikudag, fimmtudag,
föstudag og mánudag 7. des.
til Hornafjarðar, Djúpavogs,
B re iðda Is vík ur, S töðva rfja rða r,
Fáskrúðsfjarðar, Reyðarfjarðar,
Eskifjarðar, Norðfjarðar, Seyðis-
fjarðar, Borgarfjarðar, Vopna-
fjarðar, Þórshafnar, Raufar-
hafnar, Húsavíkur, Akureyrar og
Sigiufjarðar.
Ms. Herðubreið
fer 4. þ. m. vestur um land í
hringferð. Vörumóttaka i dag
og á morgun til Vestfjarða-
hafna, Norðurfjarðar, Siglufjarð-
a r, Ólafsfjarðar, Akureyrar,
Kópaskers, Bakkafjarðar og
Mjóafjarðar.
Þá mælti Emil Jónsson fyrir
frumvarpi um sölu á íbúðum
framkvæmdanefndar byggingar-
áætlunar, en frumvarp þetta hef
ur hlotið samþykki efrideildar.
1 neðrideild mælti Hannibal
Valdimarsson svo fyrir frum-
varpi sínu um breytingu á al-
mannatryggingalöggjöfinni, en
frumvarp þetta kveður á um að
sjómenn fái ellilífeyri fyrr en
aðrar stéttir. Jón Skaftason tók
einnig til máls við umræðuna.
Á fundi efrideildar voru fjög-
ur frumvörp afgreidd til neðri
deildar. Voru það frumvörp um
Innheimtustofnun sveitarfélaga,
Almannatryggingar, afstöðu for
eldra til óskilgetinna barna og
aðstoð íslands við þróunarlönd-
in, en er síðast nefnda málið var
tekið til umræðu mælti Ólafur
Björnsson fyrir breytingartil-
lögu er hann flytur við frum-
varpið, og var hún samþykkt við
atkvæðagreiðslu.
Til annarrar umræðu var svo
tekið frumvarpið um stofnlána-
deild landbúnaðarins, en það
frumvarp er í tengslum við frum
varpið um lífeyrissjóð bænda.
Steinþór Gestsson mælti fyrir
áliti landbúnaðarnefndar um mál
ið, en einnig tók Ásgeir Bjarna-
son til máls og gerði grein fyrir
breytingartillögum er hann flyt-
ur við frumvarpið. Umræðum
um málið var lokið, en at-
atkvæðagreiðslunni var frestað.
Blaðamaður
fórst
Dröbak, Noregi 29. nóv. NTB.
NORSKUR blaðamaður við Aft-
enposten, Erik Lunde, lét lífið á
sunnudaginn, er hann var að
kafa niður að flaki þýzka beiti-
skipsins „Blucher" fyrir utan
Dröbak í Oslófirði. Var hann
ásamt félaga sínum niðri á um
það bil 70 metra dýpi og var að
taka myndir af flakinu. Þegar
þeir voru á leiðinni upp varð fé-
lagi Lundes þess var að eitthvað
var athugavert og kom I ljós að
kafarabúningur hans hafði festst
og mátti hann sér enga björg
veita. Félaginn hafði ekki meiri
súrefnisbirgðir svo að hann varð
að flýta sér upp á yfirborðið.
Annar kafari var síðan sendur
til að losa Lundes, en þegar upp
var komið með hann, var hann
látinn.
Fiskkassar um borð