Morgunblaðið - 01.12.1970, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1970
Útgefandí hf. Án/akur, Reykjavik.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Bjöin Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjóm og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 10-100.
Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80.
Askriftargjald 195,00 kr. á mánuði innanlands.
I lausasölu 12,00 kr. eintakið.
FURÐULEG AFSTAÐA ASÍ
Cambandsstjórn Alþýðusam-
^ bands íslands sat á fundi
í tvo daga í síðastliðinni viku
og gerði m.a. ályktun um
kjaramál, þar sem sambands-
stjómin lýsir samþykki sínu
við ályktun miðstjórnar ASÍ
þess efnis, að verðstöðvunar-
lögin hafi raskað grundvelli
kjarasamninganna. í fram-
haldi af þessu hvatti sam-
bandsstjómin til þess, að
skipuð yrði nefnd verkalýðs-
félaganna, sem ætti að krefj-
ast þess, að gerðir yrðu nýir
kjarasamningar, en sem
kunnugt er, renna kjara-
samningar verkalýðsfélag-
anna ekki út fyrr en haustið
1971.
Með þessari samþykkt hef-
ur sambandsstjóm ASÍ lagt
blessun sína yfir þá furðu-
legu afstöðu, sem miðstjóm
sömu samtaka hefur tekið til
ráðstafana í efnahagsmálum,
sem augljóslega bæta hag
hinna verst settu. En Alþýðu-
samband íslands neitar að
horfast í augu við þá stað-
reynd.
Af því tilefni er ástæða til
að. rifja enn einu sinni upp
efni verðstöðvunarlaganna.
í fyrsta lagi er komið á al-
gerri verðstöðvun í landinu
til 31. ágúst á næsta ári. Þetta
er hinum lægstlaunuðu í
hópi launþega augljóslega í
hag. Ástæðan er sú, að vísi-
töluhækkanir á laun koma
ekki til útborgunar fyrr en
3 mánuðum eftir verðhækk-
anir og þar sem vísitölukerfið
byggist á hlutfallslegum
hækkunum veitir það há-
launamönnum mun meiri
hækkun á kaupi en láglauna-
mönnum. Þess vegna er verð-
stöðvunin fyrst og fremst
hagstæð iáglaunamönnum.
í öðru lagi hefur verð brýn-
ustu lífsnauðsynja verið lækk
að stórlega og er sú lækkun
fyrst og frermst í hag hinum
verst settu. Mjólkin hefur á
stuttum tíma lækkað úr
kr. 18.00 lítrimn í kr. 14.30.
Mikil verðlækkun hefur orðið
á smjöri, ostum, rjóma, kinda-
kjöti og kartöflum. Þessi
mikla verðlækkun á algéng-
ustu neyzluvörum er lág-
launafólki mikil kjarabót. í
þriðja lagi hefur orðið stór-
hækkun á fjölskyldubótum,
sem nema nú 8000 krónum á
ári með hverju barni. Hækk-
un f j ölskyldubóta og lækkun
á verði nauðsynjavara gerir
það að verkum, að t.d. verka-
maður með mörg börn á
framfæri sínu, býr nú við
mun betri kjör, en hann hef-
ur gert og hefði gert, ef verð-
bólgan hefði haldið áfram.
Þetta er staðreynd, sem jafn-
vel forystumemm ASÍ hljóta
að viðurkenna.
Á móti þeim beinu kjara-
bótum, sem nú þegar hafa
verið tryggðar láglaumafólki,
er hugsamlegt, að það verði
að fresta því að fá greidd
1—2 vísitölustig um nokkurra
mánaða skeið á næsta ári. í
þetta formsatriði bítur for-
ysta ASÍ sig og krefst nýrra
kjarasamninga með þeirri
óvissu á vinnumarkaðnum,
sem slíkri kröfu óhjákvæmi-
lega fylgir.
Þessi vinnubrögð Alþýðu-
sambands íslands eru forkast-
anleg. Með verðstöðvunarlög-
um ríkisistjómarinnar hefur
hvoru tveggja unnizt, að lág-
launamenn hafa hlotið óum-
deilda kjarabót og atvinnuör-
yggi þeirra verið tryggt og
öryggi hefur verið skapað í
rekstri atvinnufyrirtækj anna.
Það er ekki hægt að fallast á
það, að ASÍ gerir tilraun til
þess að spilla þessum árangri,
eingöngu vegna hatrammrar
pólitískrar baráttu milli
nokkurra leiðtoga þess, sem
borizt hafa á banaspjót á
hinum pólitíska vettvangi um
margra ára skeið.
Ummæli Ólafs Jóhannessonar
IT’yrirsjáanlegt er, að nýtt
4 átak er framundan í land-
helgismálum íslendinga og
þess vegna ber að leggja
ríka áherzlu á samstöðu
þjóðarinnar allrar í þeim efn-
um. Því miður hafa stjómar-
andstæðingar eða málgögn
þeirra, átt upptök að óþarfa
deilum um þessi efni og hafa
haldið því fram, að landhelg-
issamningurinn við Breta frá
1961 sé þröskuldur í vegi fyr-
ir nýrri útfærslu landhelg-
innar, fyrst og fremst vegna
þess ákvæðis hans, að skjóta
megi frekari deilum um þetta
mál til Alþjóðadómstólsins í
Haag.
Af þessu tilefni er rétt að
rifja upp ummæli núverandi
formanns Framsóknarflokks-
ins, Ólafs Jóhannessonar, á
Alþingi nokkru áður en sam-
komulag tókst við Breta, en
hann sagði á Alþingi 14. nóv.
1960: „Og þess vegna eigum
við ekki að skorast undan því
að eiga orðastað við aðrar
þjóðir am þetta mál og við
eigum ekki að skorast undan
því að taka þátt í viðræðum
við aðrar þjóðir um það. Og
ég verð að segja og vil láta
það koma fram í sambandi
við þetta, að ég tel raunar
eina veikleikamerkið í okkar
málstað hér vera það, ef rétt
Hótel Esja:
25% herbergja pöntuð
fyrir næsta sumar
Hótelherbergjum f jölgað
um helming
HÓTEL Esja heldur áfram hótel-
rekstri í vetur, en sú hugmynd
að leigja hluta hótelsins skóla-
fólki á vetrum er úr sögunni.
Esja verður rekin sem hótel allt
árið með fullkominni veitinga-
sölu í veitingasölunum á 9. hæð.
f vetur er unnið að stækkun
hótelsins, þ. e. fjölgun herbergja
um helming og einnig er verið
að ganga frá söium, sem leigðir
verða Tækniskólanum og Mat-
sveina- og veitingaþjónaskólan-
um fyrir kennslustofur, en má
nýta sem ráðstefnusali að sumr-
inu.
Friðrik Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri, tjáffi Mbl. að þeg-
ar væri búið að panta 25% af
hótelherbergjum í Esju fyrir
mánuðina maí til september í
sumar, og er þá miðað við að
stækkunin verffi komin í gagnið,
þannig að herhergjum hafi fjölg-
að um 68 eða í 135 h-erbergi
alls. Nú eru 67 herbergi til leigu
í hótelinu, eins og tveggja manna
herbergi, og nýbúið er að taka
í notkun ákaflega glæsilega
EINS og kunnugt er, munu
a.m.k. fjórir hinna nýju skut-
togara, sem samið hefur ver-
ið um byggingu á, verða gerð
ir út frá Reykjavík. Ögur-
vík h.f. hefur samið um
smíði tveggja skuttogara í
Póllandi, sem gerðir verða út
frá höfuðborginni og Bæjar-
útgerð Reykjavíkur hefur
fest kaup á tveimur þeirra
togara, sem smíðaðir verða á
Spáni. Framlag og lán
Reykjavíkurborgar vegna
þessara togarakaupa mun
nema um 63 milljónum kr.,
þ.e. 45,6 milljón króna fram-
lag til BÚR-togaranna óg
lánsloforð til Ögurvíkur h.f.,
sem nemur 17—18 milljónum
króna.
Geir Hallgrknsson, borgar-
stjóri gaf þessar upplýsingar á
blaðamannafundi sínum í fyrra-
dag og sagði, að lánsloforðið til
Ögurvíkurtogaranna næmi 7%%
af kostnaðarverði þeirra, sem
væri samtal um 246 milljónir kr.
en hins vegar yrði borgin vænt
anlega að leggja fram 15% af
kaupverði BÚR-togaranna, þ.e.
bæði framlag eiganda og hlut við
komandi sveitarfélags.
svítu á 8. hæð með útsýni í norð
ur yfir sundin og til Esjunnar.
Eru hótelherhergin nú á þremur
hæðum, 6., 7. og 8. hæð, og unn-
ið af kappi við aff koma upp
herbergjum á 3., 4. og 5. hæð og
vonazt er til að því verði lokið
fyrir 1. maí.
Á annarri hæð er uininiið við að
ininrétta 700 fermetra húsnæði,
sam Tækniákólimin og Matveina-
og veitm/gaþjónaokólinn munu
fá tiil afnota, og sam hægt verð-
ur að Skipta niður í stórar og
litlar kennslustofur. En þaið hús-
næði á að verða hægt að nýta
fyr.ir ráðstef-nuiháld fyrir hótalið
V’EÐURSTOFU flotans á Kefla-
víkurflugvelli hefur verið veitt
viðurkenning fyrir starfsemi
sína af flotamálaráffherra Banda
ríkjanna. Vi^Urkenningin er und
irrituff af E. R. Zumvalt flota-
Borgarstjóri sagði, að erfitt
væri að segja til um rekstrar-
möiguleika togaranna. Á sínum
tíma var talið, að togararnir
gætu í mesta lagi staðið undir
80—100 milljón króna kaupverði
en hagur þeirra kann að hafa
breytzt nokkuð til batnaðar síð
an, sagði borgarstjóri. En allt
fer þetta eftir aflamagni, sem er
mjög breytilegt. Fyrir nokkrum
árum var afli togaranna 15—20
tonn á sólarhring, síðan féll hann
niður í 5—7 t. á sólarhring en fór
aftur upp í 11—13 t. á sólarhring.
Þessa stundina er afli togaranna
heldur tregur. Auk aflamagnsins
hefur fiskverðið að sjálfsögðu á
hrif á afkomu togaranna.
Geir Hallgrímsson sagði, að
ráðizt hefði verið í þessi togara
kaup á þeirri forsendu, að togara
floti landsmanna væri að ganga
sér til húðar og líða undir lok.
Menn hafa talið, að ekki sízt frá
Reykjavík, væri nauðsynlegt að
sækja á fjarlægari mið, þar sem
næriiggjandi mið eru ekki jafn
gjöful og áður.
í framitíðinni má gera ráð fyr
ir einhvers konar friðunaraðgerð
um og að komið verði á fót kvóta
kerfi og er þá nauðsynlegt fyrir
okkur að tryggja okkur hlutdeild
í veiðum á fjarlægum miðum,
sagði Geir Hallgrímsson, borgar
stjóri.
á suimrin og þegar steólamiir eru
ekki að nota það.
Á amnarri hæð er líka 400
ferm. húsnæði, sem uninið er við
að setja upp sem fundairsalli fyr-
ir hótelið og má þá nota þalð
sem stóirain sal eða 4 minmi. En
þar verður einnig aðstaða tll
veitinga.
Á götuhæðinni er nú móttaka
og bankaútiífc, En hinin hiluti
götuhæðar bííur um sinn óinin-
réttaður. Þar er fyrirhugað að-
aleldhús og veitingaisalir fyrir
aiLIt hótelið, sem þá miðast við
helmiings stæHdkun til viðbó'tar.
En fyrst um sinn verður notað
eldihúsið á efstu 'hæð og veitinigia
salurinn þar.
foringja, yfirmanni flota Banda-
ríkjanna. J. K. Beling flotafor-
ingi, yfirmaffur varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli, afhenti Veð
urstofunni þessa viðurkenningu,
sem er fyrir timabilið frá maí
1969 til maí 1970.
Veðurþjónusta Veðurstofu flot
ans starfar, eins og kunnugt er,
í náinni samvinnu við deild
Veðurstofu Island á Keflavíkur
flugvelli, að veðurathugunum og
gerð veðurkorta.
Viðurkenningin er veitt fyrir
veðurspár, haffræðilegar athug
anir og almennar veðurathugan
ir, í þágu varnarliðsins og flota
Atlantshafsbandalagsins.
Stofnunin hlýtur sérstakt lof
fyrir árangur í samskiptum við
margar þjóðir, endurbætta starf
semi háloftaathugana með tækj
um sem flutt eru af loftbelgjum,
áframhaldandi framfarir í nýt-
ingu upplýsinga frá veðurathug
unarhnöttum, og loks almennar
veðurathuganir, sem að staðaldri
eru með þeim beztu, sem þekkj
ast hjá flota Bandaríkjanna.
(Fréttatilkynning frá
Varnarliðinu).
Ræðismaður
dæmdur
NEW YORK 28. nóvamber, AP.
José Cordova, fyrrverandi vara-
ræðismaður Kólombíu í New
York, var í dag dæmdur í gæzlu-
varðhald fyrir tilraun til að
smygla kókaini að verðmæti 5
milljónir dollara til Bandaríkj-
anna. Hann var handtekinn 14.
október er hann reyndi að
smygla 35 pundum af kókaíni til
Bandaríkjanna er hann kom úr
heimsókn til ættingja í Kólomb-
íu, en var látinn laus gegn
25.000 dollara tryggingu. Hann á
yfir höfffi sér alit að 20 ára
fangelsisvist og 10.000 dollara
sekt.
Togarakaupin:
Borgin leggur
fram 63 millj.
— í beinu framlagi og lánum
Veðurstofa flotans
hlýtur viðurkenningu
er hermt, að við höfum neitað
að leggja þetta mál til úr-
lausnar hjá alþjóðadómstól-
um. Ef það er rétt, þá hefur
verið haldið á anman veg á
þessu máli, en var gert 1952,
því að ef ég man rétt, og það
leiðréttist þá hér á eftir, ef ég
fer með rangt mál, þá var það
boð ístendinga þá að leggja
þetta mál og þá deilu undir
úrlausn alþ j óða dómstólsins,
þegar fjögurra sjómílna fisik-
veiðilandhelgin var ákveðin.
Og vissulega er það svo, að
smáþjóð verður að varast það
að ganga svo langt, að hún
geti ekki alltaf verið við því
búin að leggja mál sín undir
úrlausn alþjóðadómstóls, því
að sannleikurmn er aá, að
smáþjóð á ekki annars staðaír
frekar skjóls að væinta held-
ur en hjá ailþjóðasamtökum
og alþjóðastofnuinum, af því
að hún hefur ekki valdið til
að fylgja eftir sínum ákvörð-
unum eins og stórveldin. Og
þess vegna hefði að mínu viti,
hvert eitt spor í þessu máli,
átt að vera þannig undirbúið,
að við hefðum verið við því
búnir að l'eggja það undir úr-
lausn alþj óðadómsitóls.“
Undir þesisi orð geta allir
þeir, sem af einilaegni og
skynsemi vilja vinina að ís-
lenzkum bagsmuinum, tekið.