Morgunblaðið - 14.01.1971, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1971
RAUOARÁRSTÍG 31
=—25555
1^-04444
VffllFIB/fí
BILALEIGA
ITVERFISGÖTU 103
VW SeHMabifreið-VW 5 maim-VW svtíovagn
VW S maiina -Landrovef ?manna
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13
Sími 14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
Amerísk
fjöfs'kylda óskar eftir korvu twf
heímifishj'álpa r eitt ár. FerðLr
grekkier.
Mrs. J. B. Tonkel,
26 Newcomb Blvd.,
New Orleans, La,
U.S.A.
Sköfum útihurðir
og utanhússklæðnínga.
HURÐIR & PÓSTAR
Simi 23347.
DAGINITE
6 og 12 volta.
ROLLS-ROYCE
Garðar Gíslason hf.
bifreiðaverzlun
£ Fyrirspurn til sjón-
varpsins um næstu
Lenín-myndirnar
„Sjónvörpungur“ ðkrifar:
„Kæri Velvakandi!
Eftirfarandi fyrirspum til
sjónvarpsins bið ég þig um að
birta hið bráðasta í dálkum
þínum:
Hvenær megum við eiga von
á næstu Lenin-myndinni?
Sú nýjasta, sem var sýnd
mánudagskvöldið 11. jan.,
var alveg óskaplega skemmti-
leg og fræðandi, þótt hún væri
bara finnsk, en ekki sovézk,
eins og þær fyrri. Heimilisfólk-
ið hjá mér var hreint bergnum-
ið af hrifningu að sjá þennan
hjartaprúða og góða mann-
kynsfrelsara á skerminum. Hjá
honum fannst ekkert illt, eins
og fram kom, og þar að auki
var sú nýja uppgötvun gerð í
þessari mynd, að hann hefði
Mka verið skemmtilegur. Því-
Mkt og annað eins, hviHk dýrð,
hvílik dásemd!
Ég hefði að vísu heldur kos-
ið, að myndin væri sovézk, eða
a.m.k. sænsk. Mér finnst, að
sovézkar myndir séu beztar, og
svo þær sænsku næstbeztar, en
þið hafið röðina ennþá öfuga.
Ég skora innilega á forráða-
menn sjónvarpsins að verða
sér nú strax úti um þær
fáu Lenínsmyndir, sem íslenzka
sjónvarpið hefur ekki ennþá
sýnt. Bezt væri að fá sovézkan
íramhaldsmyndaflokk, sem
mætti sýna og endurtaka i all-
an vetur. Þá væri nú gaman
að lifa! Ég trúi ekM öðru en
nýráðni kommissarinn hjá
ykkur geti útvegað stíka séríu
hjá vinum sínum í Novosti.
Er hann ekki ráðinn til þess
og annarra áiika viðvika? Nú,
bregðist það, þá getið þið leit-
að til nýju sjónvarpsstjörnunn-
ar ykkar, sovézka ambassa-
dorsins, sem kom svo ljómandi
skemmtilega fyrir á skénninum
hjá ykkur og sagði svo dæma-
laust óhlutdrægnislega og dá-
samlega fallega f rá hon-
um Lenín, þegar hann átti af-
mæli. Þá voru sannkölluð jól
á mínu heimili.
Með von um svar, beztu
kveðjum til forráðamanna
sjónvarpsins og hjartans
þakklæti til útvarpsstjóra og
útvarpsráðs.
Sjónvörpungur".
Q Launaflokkar kennara
Benedikt Axelsson, Blöndu-
bakka 8, skrifar:
„Þegar mér verður hugsað
til nýgerðs kjarasamnings við
opinbera starfsmenn, vefeur
það hjá mér svipaðar tilfinn-
ingar og hjá manni, sem er ný-
búinn að missa ömmu sína. En
þegar vel menntaðir menn að
eigin sögn lýsa því yfir, að
bamaken-niarar hafi farið vel
út úr þessum samningum, líður
mér, held ég, svípað og ömmu
áðumefnds manns.
Það er að visu rétt, að sumir
bamakennarar fengu nokkra
kjarabót, en, ef ég man rétt,
var upphafleg ætlunin með
þessum samningum, að allir
ríkisstarfsmenn fengju kjara-
bætur. Þetta hefur ekki gerzt,
og nægir þar að benda á mót-
mæli margra starfshópa innan
BSRB.
Sannleikurinn um hinar
miklu kjarabætur bamakenn-
ara er aftur á móti sá, að þeir
kermarar, sem útskrifast fyrir
árið 1962 og hefja kennslu,
lenda í 18. flokki. Þeir, sem
útskrifast eftir þennan tíma,
verða áfram í 16. flokki, og
þeir, sem útskrifast á þessu
ári, lenda í 13. flokki. Þeir
lækka sem sagt um þrjá launa-
flofeka, og ef einhver vill kalia
það kjarabót, þá hann um það.
£ Mér er spum
Aftur á móti mega háskóla-
menntaðir merrn gjarnan
sleppa síðast nefnda atriðinu
úr áfram í baráttunni fyrir
bættum kjörum sér til handa.
Við stöndum nefnilega með
þeim í þeirri baráttu, og ef það
er eittfhvað fleira, sem við get-
um fyrir þá gert, er það vel-
komið. En, ef það getur orðið
þeim til einhverrar huggunar,
þá áttu barnakennarar, eftir
því sem Svavar Helgason
starfsmaður S.Í.B. upplýsti á
fundi um daginn, að lenda í
16. flokki samkvæmt starfsmat-
inu. Af hverju lentu þeir þá
ekki í þeim flokki, mér er
spum. Var það kannski gert
til að veikja samtalkamátt stétt-
arinnar? Það hlýtur að fara
svó, ef menn vara sig ekki,
að hver höndin verði uppi á
móti annarri, þegar kennarar
við sama skóla vinna sömu
störfin og hafa sömu menntun,
en eru i mismunandi launa-
flakkum.
Eins og háskólamenntaðir
kennarar hafa bent réttilega á,
var menntun lítils metin í
samningunum. Ábyrgð var
metin í peningakössum, en ekki
mannslrfum, og eins og áður er
frá greint, var starfsmatið ekki
tekið tfl greina. Eftir hverju
var þá farið að skipan manna
í launaflokka? Mér er spurn.
Þar hljóta einhver annarfeg
sjónarmið að hafa ráðið. Við
skulum því standa saman,
kennarar á íslandi, í baráttu
okkar fyrir bættum kjörum.
Við skulum bjóða háslkóla-
menntuðum mðnnum saimvinnu
neita að taka í ötrétta
sundrungarhönd þeirra.
Benedikt Axelsson, kennari.“
0 Hlutur tollvarða
Velvakanda hefur borizt
brétf frá Páli Hannessyni, toll-
verði, þar sem hann fjallar um
nýgerða kjarasamninga rikis-
starfsmanna og lýsir óánægju
með hl-ut tollvarða í þeim
samningum. Hann segir m.a.:
„Á ég þarna við 15. launaflokk
eða aðstoðarvarðstjóra. Hins
vegar tfl samanburðar má geta
þess, að enginn launaflokkur
hjá lögreglunni er fyrir neðan
16. I.fl. Og fá þann flokk, nýlið-
ar i Iabb- og rabb-liðinu, er einsk
is annars þurfa að gæta, er á
götuna kemur, en þess, að ekki
verði ekið ofan á þá. Þó er
það haft eftir fjármálaráð-
herra, að hann vilji gera
vel við sína menn. Þannig er
ég sjálfur í starfi, sem ekki
er lengur til — eftir tæplega
30 ára þjónustu. En þetta er
ekki allt, heldur er af fleiru
að taka. Heyrzt hefur, að
a.m.k. 40 manns við tollstjóra-
embættið, sem gjörþekkja toit-
málefni á Islandi, muni auglýsa
eftir störfum á frjálsum vinnu-
markaði. Nýfct sjónarmið hefur
einnig skotið upp kollimim.
Það er afhausunarviðhorfið.
Eldri starfsmenn skulu ekki
njóta núverandi viðurtcenning-
ar fyrir íyrri störf. Og finnist
smáveila í heilisufari, eða ef
þrekið er farið að þverra, þá
skal aflóga þeim sömu. Lög
frumskógarins, þar sem hann
er svartastur, skulu framveg-
is gilda, eins og að framan er
getið um 15. launaflokkinn, og
síðar verður nánar drepið á.
Hausaramir eru harðir kariar
og væntanlega sjálfir við
góða heilsu. Og engum skal
hlíft, tja, nema auðvitað þeim
með rétta hugarfarið og sem
eru réttum megin í stjórnmálum
og aðstöðu hafa. Þá skiptir
menntun og fyrri störf ekki
máli og reyndar efekert það er
hið svokallaða starfsmat segir
til um. Enda er allt það kram
eintómt píp. Það held ég, að öll
um rfkisstarfsmönnum sé loks-
ins orðið ljóst nú, jafnvel þeim
treggáfuðusfcu og einföldustu,
og líka þeim, sem þófctust eiga
„sfcuðningsmenn" og „vildar-
vini" ails staðar. Síðar I bréf-
inu segir Páll Hannesson: „Það
er nefnilega þannig ástatt fyrir
mér nú, eins og fyrir manni
einu-m við sama embætti fyrir
allmörgum árum. Þannig var,
maður sá lenti í meiri háttar
samkvæmi hér í bæ. Meðal ann
ars var hann spurður af
virðulegri frú: „Hvaða laun
hafið þið nú við svona emb-
ætti?" Maðurinn sá í hendi
sér, að spurning þessi fól í sér
eins konar gildru til að rakka
hann sjálfan niður. Svo að í
svari sínu bætti hann 50%
við kaup, sem hann hafði
réttilega, og þótti víst, að sóma
Síniutm væri borgið. Svarinu
fylgdi kuldalegt og fyrirUtlegt
tillit, sem samstundis sleit sam-
ræðunum svohljóðandi: „Nú já,
og lifið þið á þessu!“
nuGivsniGnR
«2,^.22480
Heimdallur — Alþýðubandalagið
KAPPRÆDUFUNDUR
í Sigtúni, mánudaginn 18. janúar næstkomandi klukkan 20,30.
Umræðuefni:
„AÐILD ÍSLANDS AD ATLANTSHAFSBANDALAGINU
OC VARNIR LANDSINS"
Ræðumenn:
Frá Heimdalli:
Ellert B. Schram,
Halldór Blöndal,
Jón E. Ragnarsson.
Frá Alþýðubandalaginu:
Loftur Guttormsson,
Sigurður Magnússon,
Svavar Gestsson.
Athugið: Húsið verður opnað kl. 20.00. — Allir velkomnir .
Heimdallur. félag ungra Sjálfstæðismanna. Æskulýðsnefnd Alþýðubandalagsins.