Morgunblaðið - 14.01.1971, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐBÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1971
7
FRÉTTIR
Wessauer sýnir að Bergstaðastræti 15
Félag anstfirzkra kvenna
heldur fund í kvöld 14. janúar
kl. 8.30 að HalJveigarstöðum.
Sýndar verða litskuggamyndir
úr sumarferðalaginu.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
Fundur verður þriðjudaginn 19.
janúar kl. 8.30 i Félagsheimil-
inu. Spiluð verður félagsvist.
Kaffi.
Áheit og gjafir
Gjafir og áheit til Kálfatjarnar
idrkju
Vilborg Magnúsdóttir frá
Innri-Ásiáksstöðum færði Kálfa
tjamarkirkju kr. 5.000 að gjöf
og ennfremur vandaðan altaris-
dúk, sem gefinn er til minning-
ar um foreldra Vilborgar Ingi-
björgu Jónsdóttur og Magnús
Magnússon og ennfremur tii
minningar um föðurömmu henn-
ar Þorbjörgu Sigurðardóttur og
Magnús Sigurðsson föðurafa
hennar.
Einnig hafa kirkjunni borizt
áheit frá L.E. kr. 500, Jóni í>or-
kelssyni kr. 500, og Guðfinnu
Ólafsdóttur kr. 500. Sóknar-
nefndin færir gefendum innileg-
ar þakkir.
Arnað iieilla
Laugardaginn 31. október
voru gefin saman i hjónaband
af sr. Jóni Þorvarðssyni ung-
frú Matthildur Björnsdóttir
Grænuhlíð 6, Rvik. og Róbert
Jónsson, Eskihlíð 18, Rvík.
Ljósm.st. Gunnars Ingimars.
Suðurveri
Miðvikudaginn 21. október
voru gefin saman í hjónaband
af sr. Jóni Þorvarðssyni ung-
frú Ingibjörg E. Sigfúsdóttir og
Jón Víðir Njálsson. Heimili
þeirra verður að Suðureyri, Súg
andafirði.
Ljósm.st. Gunnars Inigmars.
Suðurveri.
I>ýzki listamaðurinn Rudolf
Weissauer frá Miinchen sýnir
um þessar mundir margar mynd
ir sínar í sýningarsalnum að
Bergstaðastræti 15, hjá Guð-
mundi Árnasyni. Margar mynd-
irnar eru þegar seldar, og Guð-
mundur og listamaðiirinn hafa
varla við að setja „seld“ við
myndirnar, enda eru þær ódýr-
ar á okkar mælikvarða, Við hitt
um kunnan listamann á sýning-
unni i gær, sem sagðist telja
sýningu þessa eina albeztu, sem
hér hafa verið haldnar siðasta
árið. Rudolf hefur áður haldið
hérlendis 5 sýningar, enda er
hann ákaflega elskur að land-
inu, og þó sér í lagi norðurljós-
unum. Isienzk náttúra kemnr
víða í gegn í þessum myndum
hans. Neissauer er kunnur lista-
maður i heimalandi sínu. Sýn-
ingin að Bergstaðastræti 15 er
opin frá kl. 10 á morgnana til
kl. 6 síðdegis þessa viku og
hina næstu. Aðgangur er ókeyp-
is. Myndina tók Ijósm. Mbl. Kr.
Ben. af listamanninum á sýning-
unni í gær.
un sína ungfrú Guðrún Jóna Val
geirsdóttir, Skipholti 55 og
Hjörtur Guðnason, Kleppsvegi 2.
Á jóladag opinberuðu trúloí-
un síná ungfrú Vigdiu Þorsteins
dóttir Syðri-Hömrum Ásahrepp
og Björn Guðjónsson Hellu
Rang.
Á annan í jólum opinberuðu
trúlofun sina ungfrú Helga
Kemp, meinatæknir, Sauðárkróki
og Gunnar Gunnarsson, iþrótta-
kennaraskólanemi Starhaga 16.
GAMALT
OG
GOTT
Síra Einar Sigurðsson í Eydöi
um 1612
Laugardaginn 26 september
voru gefin saman í hjónaband i
Kópavogskirkju af sr. Ólafi
Skúlasyni ungfrú Þorbjörg Ás-
grímsdóttir og Heigi Gunnars-
son. Heimili þeirra verður að
Hörðalandi 2, Rvík.
Ljósm.st. Gunnars Ingimars.
Suðurveri
Á gamlárskvöid opinberuðu
trúlofun sína ungírú Sigríður
Snorradóttir flugfreyja, Selfossi
og Skúli Magnússon, flugmaður
Hveragerði.
Á gamlárskvöld opinberuðu
trúlofun sína Olga Guðmunds-
dóttir Laugarnesvegi 67 og Jó-
hann Halldórsson Bogahlíð 13.
Á jóladag opinberuðu trúlof-
Hér eru hirðar góðir,
hér eru biskupsstólar,
kirkjur i hverri krá,
klerkar á kenning fróðir,
komnir í landið skólar,
svo lýðurinn iæra má
valdsmenn taka nú vizku nóga
að fanga,
ef vildu þéir eptir ráðum
drottins ganga, —
en fyrir það vér eiskum meir
hið ranga,
allar stéttir þurfa ógnan
stranga.
Áramótakveðja
Hlýja rétti hafið yfir
hönd, er þökk og kveðjur færir.
Lengi í gömlum glæður lifir,
gleðistrengi minning bærír.
Richard Beck.
Tveir bræður
Grettir var hetja og garpur hinn mesti,
en grimmur nokkuð, kappinn þótti.
Auðnuna við sig hann aldrei festi,
þótt einn yfir sundið hann logann sótti.
Líkt og risastór holskefla, er rennur um sundið,
eða rammefldur brimsorfinn klettur fór hann.
Gegn atlögum hörðum, er á hann var hrundið
og ætíð af hólmi með sigur stóran.
Aí afli og hreysti var hann öllum meiri,
eitiiharður í útlegðarfargi,
en þó vil ég óska, að við ættum fleiri,
sem Illuga frá Bjargi.
Sigríður Jónsdóttir
frá Stöpum við Reykjanesbraiit.
Skýring: Þetta 20 ára ljóð mitt, rifjaðist upp, er ég ias,
að Húnvetningar ætli að reisa Gretti minnisvarða að Bjargi.
Og nú spyr ég? Hvers vegna ekki Iliuga? — Höí.
REGLUSÖM STÚLKA brotamAlmur
ósfcest á. pou beifnifc i Bamda rfkgunium, báðer ferðir borg- aðar. AHar uppl. pefnar í síma 21145, Akureyn. Kaupi allan brotamálm lafig- hæsta verði, staðgreiðste. Nóatón 27, sími 2-58-91.
HNAPPAGATAVÉL (REECE) tii'l söfcr Uppl. í síme 13433. SKATTFRAMTÖL Sigfinmjr Sigurðsson bagfræðingur Bannahlíð 32, simi 21826.
TIL SÖLU um 60 f'm af ■kiteeðn'injgu, not- uð, og staurar 5x5 ca. 40— 50 ssk. Uppl. í síma 51018. HAFNARFJÖRÐUR - NAGR. Ódýru dilkasviðm, 10 hauser á kr. 475, 50 hausar á kr. 1990 Aaðeim® einn sfcamimt- ur á bvenn viðskiptamann. Kjötkjallarinn, Vesturbr. 12.
HAFNARFJÖRÐUR - NAGR. Dtfkakjöt 1. og 2. vorðflokik- ur, súpukjöt, taeri og bryggir. Sölitum og tökium í reyfc eft- ir ósfc katrpanda. KjötkjaUarínn, VestMrbr. 12. HAFNARFJÖRÐUR - NAGR. Ödýru rúHupyteumar kr. 125 smk. Nýtt ha'kikað kjöt, 3 teg., verð frá kr. 149 kg., hrossa- buff, lækikað verð kr. 148 kg. Kjötkjallarmn, Vesturbr. 12.
SNIÐKENNSLA N ámskeuð í kjófeœniO!, hefst 15. jamúaf. Ðag- og tovöld- timar. Sigrún A. Sigurðardóttir, DrápuihBð 48, 2. h., s. 19178. ÞBR ER EITTHURfl Tjf FVRIR RLLR
Clœsileg raðhús
til sölu á homlóðinoi við Sundlaugaveg og Laugalaek. I kjaílara
er stórt sjónvarpsherbergi, vinnuherbergi, geymsla o. fl.
A 1. hæð er dagstofa, borðstofa, eldhús með borðkrók, aod-
dyri, skáli og snyrting. Á 2. hæð eru 4 svefnherbergi, bað.
þvottahús og gangur. Tvennar svalir. Bilskúrsréttur. Afhendast
fokheld vorið 1971. Beðið eftir Veðdeildarláni. Teiknmg tii
sýnis á skrifstofunni.
ARNt STEFAlMSSON, HHL.
Málflutningur. Fasteignasala.
Suðurgötu 4. Sími: 14314.
Kvöldsími: 34231.
Með yðar framtaki og okkar
aðstoð, getið þér nú lagað yðar
eiginn bjór, og á aðerns thi
dögum. Eitt sett, sem í er kom,
sykur, humier, ger o. ft., nægir
í 20 Itr. af 2.25% sterku öli, sem
er Ieyfi5egt hámark.
Vinsamlegast sendið mér 1 sett gegn:
□ Póstkröfu, kr. 370.— Q Meðf. greiðslu kr. 330.—
Nafn Heimilisfang
SEMPLEX umboðið. Pósh. 4141, Rvk.
ÚTS/ M.A
KVENKÁPUR FRÁ KR.: 500.-
DRAGTIR - 500.-
PEYSUR - 195.-
PILS - 300.-
BLÚSSUR
OG MARGT AJfe'
FLEIRA KÁPUDEILD. SKÓLAVÖRÐUSTÍG 22 A.