Morgunblaðið - 14.01.1971, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1971
5
ogasjo
'■ ...................
um fljúgi til einhverra við-
komustaða skipanna og
þaðan aftur heim. Loftleiðir
hafa undanfarin ár átt um
þetta góða samvinnu við
skipafélög og ferðaskrifstof-
ur einkum í Þýzkalandi, og
eru samningarnir við Cana-
dian Pacific nýtt skref á
braut, sem þegar hefur verið
mörkuð.
natonal Air Bahama til Lux-
emborgar.
Gert er ráð fynir tveggja
sólarhringa viðdvöl í Reykja
vík á vesturleið.
Aðallega eru tæplega
þriggja vikna ferðir í boði,
en unnt er að fá styttri eða
lengri ferðir.
Loftleiðir og Canadian Pa-
cific hafa auglýst hina fyrir-
huguðu samvinnu bæði með
útgáfu sérstakra bæklinga og
almennum auglýsingum.
Gert er ráð fyrir að fyrstu
farþegarnir, sem ákveðið
hafa að taka þessu boði fari
frá London 14. febrúar n.k.
Að undanförmu hefuir það
farið mjög vaxandi að far-
þegar með skemmtiferðaskip
MEÐFYLGJANDI auglýsing
var á forsíðu Sunday Times
Weekly Revun hinm 20. des.
sl. og er hún sameiginlega
frá Loftleiðum og skipafélag
inu Canadian Pacific. Við
snerum okkur tiíl Loftleiða
og fengum meðfylgjandi upp
lýsingar um ferðir þæar, sem
hér er um að ræða:
Á síðastliðinu hausti tókust
um það samningar fynir milli
göngu skrifstofu Loftleiða í
London, að farþegum þeim,
sem sigla vilja með skemmti
ferðaskipum Canadian Pa-
cific um Kanibahaf, verði
gefinn kostur á að fljúga
með Loftleiðum til New
York og svo frá Nassau, að
siglimgu lokinni, með Inter-
tiiottnipht nt th< atnit <t nnn m m ttn
. . ■
Hr. R. W. Orme, yfirmað-
ur Loftleiða í brezku sam-
veldislöndunum sagði í gær,
að þetta væru fyrstu ferð-
irnar með flugvél og skipum
yfir hafið á vegum CPS, og
hefðu þegar verið ákveðnar
3 ferðir: ein í febrúar og tvær
í marz. Þaðan af ákvæði
CPS-skipafélagið hvaða áætl-
anir yrðu gerðar, og yrði
starfað á þeim grundvelli
fyrst um sinn. Fyrsti farþeg-
inn í slíkri ferð kemur hing-
að bráðlega, en það er brezk
ur læknir, dr. Taylor.
Fyrirkomulag þessara
ferða heimilar greiðslufrest,
og er því aðgengilegt, sagði
hr. Orme eninfremur og 38 far
þegar eru bókaðir þegar, og
er það gott miðað við það,
að byrjað var að auglýsa
ferðirnar í nóvemberfok.
v<k w < ;
' JKOOWO.O K'./i
>K(
:; -
■ . :
/.<■ -.v>, v.
•• ■> • •■ O •>
■::•■•:■••• '•••'-•■••■:
•■•. ■> V tv, y <y »
-
•••• •••••:•••••,::•:, '.•■ :• •'•:••:••
<í»c • <-<»\>>
• >**»>»
:»••; •> * :>>■
wmxéxvf' <•-■>:■>■• <
, »v< O'. ‘v< ••
♦ • •
*•■■ ■•.»..
tt*
Eitt af skemmtiferðaskipum Canadian Pacific.
Auglýsingin i Sunday Times.
Um áramót frá
útkjálkasveit
Það sem gerir þessi áramót
mest eftirminnileg er þetta milda
veður, sem verið hefir frá því
fyrir jól. Snjólaust i byggð og
einnig að mestu á fjöllum.
Klakalaus jörð að kalla, og
þetta er um háskammdegið á
okkar kæra og kalda landi.
Desember var þó ekki eintóm
blíða. Illviðri voru um og eftir
miðjan mánuðinn, svo flug til
Patreksfjarðar lá niðri á aðra
viku, sem er óvenju slæmt fyr-
ir jól. — Það kom sér illa fyrir
marga, og ekki sizt kaup-
mennina, sem þráðu sínar vörur
á jólamarkaðinn. Fólkið beið
eftir þeim með peningana. Þeim
hefir verið svipað innanbrjósts
og sjómanni, sem veit krökkt af
fiski í kringum sig, en hefir
ekkert veiðarfærið, „árans
vandræði," og „þarna fer hún
til baka með alla pakkana,"
„aumingja fólkið að komast ekki
niður." Þannig stunur mátti oft
heyra, þegar vélarnar gátu ekki
lent, og urðu frá að hverfa, en
Flugfélagið lét ekki sitt eftir
liggja, að reyna svo sem hægt
var, án þess þó að setja allt í
voða.
Ég tel útkomuna úr árinu,
hvað veðrið snertir, verða góð-
viðrisár.
Biiskapur.
Mörgum bóndanum mun þó
finnast árið erfitt fjárhagslega,
vegna grasleysis, sem þýðir
meiri kaup á fóðurbæti, og minni
eftirtekju eftir dýran áburð.
Góða tíðin nú, hefir þó nokkru
bjargað, og ef til vill gefið sum-
um aftur trúna á landið og bú-
skapinn, eftir undanfarandi
harðæri frá náttúrunnar hendi.
Líkur eru til að hér bjargist
allt með fóður. Enginn hefir
hætt búskap á árinu, og enginn
hafið búskap. Sumsstaðar liggur
þó við að menn gefist upp og
færi sig á malbikið eða mölina.
Einn starfandi bóndi lézt á ár-
inu, Kr. Júl. Kristjánsson E-
Tungu. Ekkja hans, frú Dag-
björt Torfadóttir, heldur bú-
rekstri áfram með aðstoð upp-
kominna barna sinna.
Vargur og æðarvarp.
Minkurinn virðist nú breið-
ast hér út, og verður vart við
hann á fleiri og fleiri stöðum,
sérstaklega þar sem einhver von
er um veiði í ám eða vötnum,
þótt ekki sé nema bröndur. Þá
er farið að verða vart við hann
við sjóinn, þar sem hann nær i
marhnút, smákola og svoleiðis.
Nokkur minkahreiður hafa
unnist, því hér er minkahundur
vel haldinn. Þá er mjög lítið
orðið um það, að menn gangi á
refaveiðar, svo sem áður var,
þegar eitt refaskinn gat verið
að verðmæti á við mörg lambs-
verð. Við þetta verður refurinn
spakari, og aðgangsharðari við
æðarvarpið á vorin, en æðar-
varp var komið vel af stað í
Örlygshöfn. Vargur stór-
skemmdi það á siðastliðnu vori.
Hér í Rauðasandshreppi er
viða mjög góð aðstaða fyrir æð-
arvarp, en þvi miður alltof lítið
notuð, og er hverskonar vargur
víða því til fyrirstöðu, hundar
og jafnvel kettir ekki undan-
skildir.
Htindahald.
Hundahald er nú víða á dag-
skrá, og margir stungið niður
penna um það, en ekki allir sam-
mála að vonum.
Hér hefir hundum farið mjög
fækkandi, og mörg heimili hund
laus. Sjálfur átti ég lengi hunda,
og þótti vænt um mína hunda,
en er mjög feginn að hafa hætt
við hundahald. Betra að smala
fénu hundlaus en með hundum,
og átti ég þó allgóða hunda. Til
að taka af mér stóra króka við
smölun bæði á fjalllendi og í
klettunum, sendi ég nú blýkúlu
í staðinn fyrir hund, og gefst
vel. Féð venst þessu eins og
öðru, því maðurinn og skepnan
eru svo mikið vani.
Breytingin við smalamennskur
hjá mér og mörgum öðrum, er
að billinn kemur stað hestsins,
og smáriffill í staðinn fyrir
hundinn og tel ég skiptin eftir
ástæðum nokkuð góð, og í sam-
ræmi við þá vélaöld, sem við lif-
um á.
Fræðslumál.
Nýr skólastjóri kom að Heima
vistarskólanum í Örlygshöfn,
Guðmundur Friðgeirsson. Hann
er fjölskyldumaður, frú hans er
Margrét Sverrisdóttir, og kenna
þau bæði við skólann, en auk
barnafræðslunnar, er þar einnig
kennt unglingum hreppsins, eða
skyldunámið.
1 Breiðavík gengur allt sinn
vana gang, drengirnir sjá þar
vel sjónvarp, en það var erfitt
að ná því, þar sem engin skil-
yrði voru nær en í tæplega kíló-
metra fjærlægð, en þetta tókst
með verulegum kostnaði. Dreng-
irnir senda vinum og vanda-
mönnum beztu áramótakveðjur.
Oddvitaskipti.
Snæbjörn Thoroddsen, sem
unnið hefir fjölmörg trúnaðar-
störf fyrir sveit sína, og vinnur
enn, og verið oddviti hennar um
þrjá áratugi, gaf nú ekki lengur
kost á sér til sveitarstjórnar,
enda verður hann áttræður á
komandi ári. Við oddvitastarfinu
tók Össur Guðbjartsson, Kolls-
vík, traustur maður á bezta
aldri.
Ibúafjöldi.
Ibúar hreppsins voru á
síðasta ári um 120, þar af 75
karlar, svo skortur á hinu göfg-
ara kyninu er tilfinnanlegur. Og
það sem verra er, er að á síð-
ustu 15 árum er aðeins rúm 30%
konur af þeim börnum, sem
fæðzt hafa, svo hætt er við að
erfitt verði með félagslíf í fram-
tíðinni. En ég hef það fyrir satt,
að félagslif sé þeim mun betra
sem konur eru i meirihluta, og
þeirra félagsskapur í heild
traustari og betur stjórnað.
Framtíð sveitarinnar veltur því
nokkuð á því, hvað ungu menn-
irnir verða duglegir við að færa
kvenkosti góða heim í sveitina.
Raforkuniál.
Mál málanna. Ekki er með öllu
vonlaust, að ráðamenn raforku-
mála, séu að færast nær því að
koma auga á, að það muni þess-
ari sveit og þjóðarbúinu hag-
kvæmt að virkja Suðurfossá á
Rauðasandi til viðbótarraforku
fyrir sunnanverða Vestfirði, og
láta þá Barðaströnd og Rauða-
sandshrepp fá raforku, sem þeir
ættu fyrir löngu að vera búnir
að fá, ef skilning hefði ekki
skort á þörfum þessa fólks fyrir
raforku, þessari dýrmætu
orku, sem er undirstaða allra
lifsþæginda og velmegunar, og
sem verður meir ómissandi með
hverju árinu sem líður, svo það
er ekkert að gera fyrir fólkið
annað en taka saman föggur sín
ar og fara.
hana skortir, þó frá vatnsorku
en ekki olíu.
Gleðilegt nýtt ár, þökk fyrir
liðið.
Látrunt um áramót 1970-71.
Þórður Jónsson
Það er ekki óliklegt, að fólki,
bæði hér og annars staðar, sem
sett hefir verið hjá við úthlutun
raforku of lengi, sé svipað inn-
anbrjósts í hvert sinn, sem sá
HEIMSKI og harði dómur er
upp kveðinn, eins og börnum,
sem sett eru hjá við úthlutun
jólagjafa, svo dýrmæt ér þessi
orka.
Þess vegna er það min ósk til
ársins 1971, að það megi gefa
sem flestum heilbrigði og ham-
ingju, og raforku þeim, sem
NÝR MOSKVICH
80 HESTÖFL
Biireiðar &
Landbúnaðarvélar hí.
Suðurlandsbraut 14 - Reykjavík - Sími 31t600