Morgunblaðið - 14.01.1971, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1971 19
Kristín Ingimundar-
dóttir Sandlækjarkoti
inaböndin, þau, er föðurmissir-
inn óf.
Er Ragnheiður var um tví-
tugt, hleypti hún heimdragan-
um og dvaldi vetrartíma á
Blönduósi og einnig hjá móður-
systur sinni í Bolungarvík, þar
sem hún nam ýmsa handavinnu
og um tíma karlmannafatasaum
hjá Þorsteini skreðara á ísa-
firði og mátti því segja, að þar
væri náttúran náminu ríkari.
Vorið 1918 giftist Ragnheiður
Arnóri bónda Einarssyni á Tind
um í Geiradal, þar sem hann
hafði búið með móður sinni,
Kristíinu, og systrum frá 1902.
Nú voru þær systur farnar að
heiman. Yfir heimilinu á Tind-
um hvíldi myndarbragur að
þeirra tíma hætti. Kristín hafði
búið þar nærri 40 ár og hafði
því lagt vinnu og orku í þessa
byggingu. Arnór var íhugull,
hygginn og skemmtion í við-
ræðum. Mátti því hin unga hús-
móðir treysta fylgi hans, sem
brást heldur ekki þeirra löngu
samvistir. En á Tindum skeði
hliðstæður atburður og á
Hvammi í Dölum í brúðkaupi
Ólafs Feilan, er Auður djúp-
úðga eftir að hafa ávarpað boðs
gesti gekk til dyngju sinnar
hina síðustu göngu. Að loknum
veizlufagnaði hinn 6. júlí 1918
fór Kristín til rekkju sinnar,
þar sem hún andaðist skömmu
síðar. Frá tengdamóður sinni
hafði Ragnheiður engin heil-
ræði. Hún þurfti ekki langs að
bíða, að hin unga húsmóðir
sýndi í verkinu, að hún var því
vaxin. Hún mat þar og hagnýtti,
sem hún taldi, að myndi verða
sínu heimili til trausts og
halds, en frjálslyndi hennar og
framsýni naut sín að fullu.
Um nokkurt árabil var Arn-
ór sjúklingur og varð að dvelja
um tíma í sjúkrahúsi. Jók það
umsvif og störf húsmóðurinnar,
einkum störf við sparisjóð
Geiradalshrepps, er Arnór sá
um.
Margan bar að garði á Tind-
um, meðal annars í sambandi
við sparisjóðinn, auk þess var
þar gott að gista. Húsbændurnir
skemmtin í viðræðum og rausn
í veitingum, staðarlegt heim að
líta og víðfeðm og fögur útsýn.
Á heimili þeirra dvaldi hin síð-
ustu ár gömul kona, einstæðing-
ur, er verið hafði vinnukona
hjá foreldrum Arnórs og var
hlúð að henni með skilningi og
umhyggju gagnvart ellinni. Þar
var aldrei gerður greinarmunur
gests og heimamanna.
Ragnheiður var skemmtin 1
viðræðum, unni því, sem fag-
urt var í náttúrunni, mannlíf-
inu, ljóðum og litum. Er ung-
mennafélagið Unglingur var
stofnað og hún var á unglings-
árum, tók hún virkan þátt í
starfsemi þess og einnig kven-
kvenfélagsins, er þar var stofn-
að í sveitinni. Arnór dó 1969,
hafði verið sjúklingur hin síð-
ari ár. Þau höfðu þá búið sam-
an í 51 ár. Börn þeirra eftir
aldri: Grímur bóndi á Tindum,
Einar vélaverkfræðingur, bú-
settur í Reykjavík, Kristín, bú-
sett í Kópavogi, Bjargey, hús-
freyja að Hofsstöðum í Reyk-
hólasveit. Síðastliðið ár dvaldi
Ragnheiður á elliheimilinu
Grund, þar sem hún lézt hinn
3. janúar. Þar með var lokið
langri ævi, sem veitti skin og
skúr, sigra og ósigra, sorg og
gleði, en að leiðarlokum örugga
vissu þess, að máttur ódauðleik-
ans búi í oss og lýsi þar yfir,
sem liggur nú nár.
G. B.
Ég þaikka ölluim, sem glöddu
miig á sextugsafmæl'i mínu
með gjöfum og sikeytum.
Guð blessi yktour ölll.
Aðalheiður Jónsdóttlr.
Fædd 5. ágúst 1896.
Dáin 24. desember 1970.
Felum drottins föðurhönd
harma vora og hjartaþunga, —
hann á sjálfur gamla og unga,
frjáls að leysa líkamsbönd.
Jónas Hallgrímsson.
Á aðfangadag jóla s.l. andað-
ist að heimili sínu, Sandlækjar-
koti í Gnúpverjahreppi, húsfrú
Kristín Ingimundardóttir eftir
langa vanheilsu. Betri jólagjöf
en lausn úr líkamsfjötrum hefði
Kristín varla getað kjörið sér til
handa, úr því sem komið var.
Þó að hún nyti og hefði notið
umhyggju og ástríkis dætra
sinna, tengdasona og barna-
barna í ríkum mæli og væri
þeim og öðrum vinum sínum
þakklát fyrir nærgætni og góð
vild, þá vissi hún sjálf, að heils
an var þrotin, og ekki þess að
vænta, að hún næði aftur nein-
um verulegum bata.
Árið 1920, er hún var 24 ára
að aldri, réðst Kristín Ingimund
ardóttir að Sand ækjarkoti. Átti
það fyrir henni að liggja að
vinna lífsstarf sitt á þeim bæ. Á
Jónsmessu 1921 giftist hún Ei-
ríki Jónssyni, bónda í Sandlækj
arkoti, Bjarnasonar. Höfðu þeir
langfeðgar búið þar hver fram
af öðrum i marga ættliði og
vegnað vel.
Guðbjörg Kristín, — svo hét
hún fullu nafni, — var fædd að
Kiðjabergi i Grímsnesi 5. ágúst
1896. Voru foreldrar hennar
Ingimundur Guðmundsson, sem
lengst bjó í Andrésfjósum á
Skeiðum, og kona hans, María
Gísladóttir. Ingimundur var ætt
aður úr Laugardal í Árnessýslu,
en María úr Fljótshlíð. Voru
þau hin mestu atgervis- og
sæmdarhjón. Ingimundur var
maður hár vexti og þrekinn,
enda afrendur að afli. María,
kona hans, var fríð kona sýnum
og hvers manns hugljúfi. Bæði
voru þau hjón alkunn að góð-
mennsku og greiðvikni. Áttu
þau mörg börn, sem upp kom-
yst og urðu nýtir menn.
Kristín Ingimundardóttir bar
það með sér, hvar sem hún fór,
að hún var af góðu bergi brot-
in og hafði alizt upp við góð-
an heimilisbrag. Hún var frið
kona og fönguleg, einkar svip-
hrein, þægileg og óþvinguð í
framkomu og bauð af sér góðan
þokka, enda var hennar innri
maður eigi siðri hinum ytra. Góð
vild, samúð og hjálpfýsi voru
rikir þættir í skaphöfn hennar.
Jafnan var hún glaðlynd og gam
ansöm, svo að úlfúð eða þras
gat ekki þrifizt í návist henn-
ar. Meðan Kristín naut fullrar
heilsu, var hún hamhleypa til
allra verka, að hverju sem hún
gekk, hvort heldur var úti eða
inni.
Heimilið í Sandiækjarkoti var
í tíð tengdaforeldra Kristínar,
þeirra Margrétar Eiríksdóttur
og Jóns Bjarnasonar, rómað fyr-
ir gestrisni og myndarbrag.
Hélzt svo um alla búskapartíð
þeirra hjóna, Kristínar og Ei-
ríks, og raunar allt fram á þenn
an dag.
Maður Kristínar Ingimundai
dóttur, Eirikur Jónsson, var sex
tán árum eldri en hún, fæddur
2. febrúar 1880. Lézt hann 14.
maí 1966.
Áður en Eiríkur kvæntist,
hafði hann um langt árabil veitt
forstöðu búi foreldra sinma.
Var hann talinn maður vel efn-
aður um þær mundir, sem þau
Kristín giftust.
Þó að við ýmsa örðugleika
væri að etja hjá þeim hjónum,
eins og öðrum, á kreppuárunum
á fjórða áratugi aldarinnar, þá
mun óhætt að segja, að þau hafi
lengst af búið við góðan efna-
hag, enda voru þau mjög sam-
hent og samhuga. Búið var stórt,
ræktunar- og byggingarfram-
kvæmdir miklar. Margt var að
starfa, að mörgu að hyggja og
tómstundir fáar. Ekki var fyrst
og fremst verið að spyrja um
eigin hag. Hitt var látið sitja i
fyrirrúmi, að aili.r heimifismenn
mættu vel una sínum hag og
nytu þess, að blessun var í búi.
Þeim hjónum, Eiríki og Krist-
ínu í Sandlækjarkoti, varð
tveggja dætra auðið. Hin eldri,
Margi’ét, er gift Eiríki Bjarna-
syni, bónda Kolbeinssonar frá
Stóru Mástungu. Tóku þau ungu
hjónin við búi í Sandlækjarkoti
fyrir rúmum tuttugu árum.
yngri dcttirin, María, er gift
Bimi bónda í Skálholti, Erlends
syni, hreppstjóra á Vatnsleysu í
Biskupstungum.
Auk þess ólst upp hjá Eiríki
og Kristínu systurdóttir Eiriks,
Vilborg Kristbjörnsdóttir frá
Bimustöðum, sem gift er Gísla
Sigurtryggvasyni bifreiðastjóra.
Einnig ólu þau upp systurdótt-
ur Kristínar, Elínu Sigurjóns
dóttur, sem gift er Aage Peter-
sen, vélstjóra.
Órofa tryggð tengdi þau hjón,
Eirík og Kristínu, Bjarna bónda
Gíslasyni á Stoðulfelli. Bjarni
var systursonur Eiríks og hafði
alizt upp hjá afa sínum og ömmu
í Sandlækjarkoti og dvalizt þar,
til þess er hann kvæntist og fór
sjálfur að búa.
Ýmsir aðrir, ungir og aldnir,
skyldir og vandalausir, höfðu
dvalizt hjá þeim hjónum um
lengri eða skemmri tíma og not-
ið umhyggju þeirra og góðvild-
ar.
Barnabörn Kristínar voru orð
in átta, þegar hún lézt. En auð-
vitað voru henni börn fóstur-
dætranna jafnkær. Ef þau eru
talin með, hafði hún eignazt sex
tán barnabörn.
Veraldarauð flytur enginn
með sér af þessum heimi. Én
lengi hefur það verið trú manna,
að látnum kæmu að liði góðverk
er þeir hefðu unnið i þessu
lífi. Sé eitthvað hæft í þeirri
trú, þurfum við nú engan kvíð-
boga að bera í brjósti fyrir hag
Kristínar Ingimundardóttur.
Henni fylgja inn á land lifenda
alúðaiþakkir og hlýjar kveðjur
allra, er henni kynntust.
Útför hennar var gerð frá
Hrepphólakirkju, laugardaginn
2. jan. s.l., að viðstöddu miklu
fjölmenni.
Fornvinur.
Jörð óskast
til kaups á Suðurlandi Má vera 100—200 km frá Reykjavik.
Æskilegt að heitt og kalt vatn sé til staðar.
Tilboð sendist Mbl. fyrir 18. 1. merkt „Jörð — 6047".
ÚTSALA
JT
Utsalan hefst í dag
á barna- og dömu-
' peysum
Laugavegi 28.
Tilboð óskast
í laxveiði í Brúará og Hvítá í landi Hamra II í Grimsnesi.
Tilboð óskast fyrir 15. febrúar.
Sími um Minni-Borg.
Ný huseign til leigu
Einbýlishús á Flötunum. 6 herbergi og tvöfaldur bílskur.
Húsið er nýbyggt og ekki fariö að búa i þvi.
Tilboð sendist Morgunblaðinu merkt: „Ný íbúð — 6177" fyrir
næstkomandi helgi.
Afgreiðslustarf
Stú.ku eða unglingspilt vantar til afgreiðslustarfa nú þegar.
Verzlun Axels Sigurgeirssonar
Barmahkð
laun
Stúlka óskast til almennra skrifstofustarfa Kvennaskóla- eða
hliðstæð menntun æskileg.
Umsókn er tiigreini aldur. menntun og fyrri störf sendist afgr.
Mbl. merkt: „Austurbær — 6612".
FUA FLUGFEM-JAGINMJ
Skrifstofustarf
Fiugfélag íslands óskar að ráða tvær til þrjár stúlkur til
starfa í farskrárdeild féiagsins i vetur eða vor.
Hér er um að ræða bæði fasta atvinnu og sumaVstörf.
Tungumálakunnátta og nokkur vélritunarkunnátta nauð-
synleg.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofum félagsins.
Umsóknir merktar: „Starf í Farskrárdeild" sendist Starfs-
mannahaldi í síðasta lagi þann 25. þ. m.
FLVCFELAC LSLANDS