Morgunblaðið - 14.01.1971, Síða 27
MORGUNBLAÐDÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1971
27
Um 674 þúsund sáu
leikina í Mexikó
ALLS greiddu 673.975 áhorf-
endur sig inn á leiki í heims-
meistarakeppninni í knatt-
spyrnu í Mexikó. Sá leikur
sem bezt var sóttur i keppn-
inni var leikur Beigíu og Mexi
kó er fram fór á Aztek leik-
vsuiginum í Mexikóborg 11.
júní. Á þann leik greiddu
greiddu 108.192 áhorfendur sig
inn. Sá leikur sem næst bezt
var sóttur var úrslitaleikur-
inn milli Brasilíu og Italíu,
en á hann komu 107.412 áhorf
endur, á leik Rússlands og
Mexikó komu 107.160 áhorf-
endur, á leik Uruguay og
Vestur-Þýzkalands 104.403 á-
horfendur, á leik E1 Salvador
og Mexikó komu 103.085 og
á leik ítaiiu og Vestur-Þýzka-
lands 102.444 áhorfendur.
Sá leikur sem verst var
sóttur var leikur Svíþjóðar og
Israels, en á þann leik, sem
fram fór í Toluca, komu að-
eins 9.624 áhorfendur.
Mun færri áhorfendur sáu
leiki heimsmeistarakeppninn-
ar i Mexikó en þegar keppn-
in fór fram i Englandi árið
1966. Þá komu 1.614.677 áhorf
endur samtals á leikina í loka-
átökunum.
Eins og við skýrðum frá á dögiinum hafa farið fram kosning-
ar um íþróttamann og íþróttakonu ársins að undanförnit.
Iþróttakona ársins 1970 var samiiljóða kjörin Chi Cheng frá
Formósu, en þessi mynd var tekin af henni í sumar.
• •
Orlagaríkt
mark
FIÆSTUM mun í fersku minni
það hryllilega slys er varð á
Ibrox Park í Glasgow 4. jan. sl.,
er 66 manns létu lífið og 145
slösuðust er áhorfendapallur
hnindi er leik Glasgow Rangers
og Celtic var að -ljúka. Strax
daginn eftir lysið var stofnað-
ur sjóður til styrktar þeim er
misst höfðu aðstandendur sína
í slysinu og fyrir þá er höfðu
slasazt. Mikið fjármagn safnað-
ist í þennan sjóð, en stærsta
framlagið kom frá Glasgow
Rangers, sent gaf upphæð sem
svarar 10,2 millj. ísl. kr. Strax
eftir að fréttist um slysið fóru
sanuiðarskeyti að berast viða
að, og nteðal þeirra sem sendu
skeyti voru NLxon Bandaríkja-
forseti, Brandt, kanslari Vestur-
Þýzkalands og Hussein Jórdaníu
konungur.
3ja dálka myndin er af hinu
örlagaríka marki sem Glasgow
Rangers gerði á síðasta augna-
bliki leiksins og varð til þess
að áhorfendur sem famir vortt
að týnast burtu þustu aftur inn
á pallana. Það er Colin Stein
(í dökkri skyrtw) sem skoraði
markið. Á tveggja dálka mynd-
inni sést svo hveraig umhorfs
var eftir að pallurinn hntndi.
Mikið slasað fólk liggur á jörð-
inni, t -ðan beðið var læknis-
h jálpar.
Frá BEZTU FRÁ 1947 því að farið var að kjósa íþróttamann ársins, 1947,
hefur sá heiðurstitill fallið eftirtöldu íþróttafólki í skaut:
1947 Aiex Jany, Frakklandi sund
1948 Fanny Blankers-Koen, Hollandi frj. íþróttir
1949 Emil Zatopek, Tékkóslóvakíu frj. íþróttir
1950 Bob Mathias, Bandaríkjunum frj. íþróttir
1951 Emile Zatopek, Tékkóslóvakíu frj. iþróttir
1952 Emile Zatopek, Tékkóslóvakíu frj. íþróttir
1953 Fausto Coppi, ítaliu hljólreiðar
1954 Roger Bannister, Englandi frj. íþróttir
1955 Sandor Iharos, Ungverjalandi frj. íþróttir
1956 Wladimir Kuz, Rússlandi frj. íþróttir
1957 Wladimir Kuz, Rússlandi frj. íþróttir
1958 Herbert Elliot, Ástralíu frj. iþróttir
1959 Wladimir Kusnezow, Rússlandi frj. íþróttir
1960 Wilma Rudolph, Bandaríkjunum frj. íþróttir
1961 Valerie Brumel, Rússlandi frj. iþróttir
1962 Valerie Brumel, Rússlandi frj. íþróttir
1963 Valerie Brumel, Rússlandi frj. íþróttir
1964 Don Schollander, Bandaríkjunum sund
1965 Ron Clarke, Ástraliu frj. íþróttir
1966 Jim Ryun, Bandarikjunum frj. íþróttir
1967 Jim Ryun, Bandaríkjunum frj. íþróttir
1968 Bob Beamon, Bandarikjunum frj. íþróttir
Vera Caslavska, Tékkóslóvakru fimleikar
1969 Eddy Merckx, Belgiu hjólreiðar
Liesel Westermann, V-Þýzkalandi frj. íþróttir
1970 Pele, Brasilíu knattspyrna
Chi Cheng, Formósu frj. íþróttir
Elías í stöð-
ugri framför
Sigraði í 4 greinum á jólamóti
ÍR og stökk 2 m í hástökki
HIB árlega Jólamót ÍR í frjáls
um íþróttum innanhúss var hald
iS í ÍR-húsinu við Túngötu dag
ana 27. og 29. desember sl.
Athyglisverður árangur náðist
L mörgum greinum, en lang
hæst ber afrek Elíasar Sveins-
sonar, 18 ára pilts, er tókst nú
að stökkva í fyrsta sinn yfir
2,00 mtr. í hástökki og er hann
þriðji íslendingurinn er nær því
marki. Þessi árangur Elíasar er
nýtt drengjamet innanhúss og
ennfrentur jöfnun á inmanhúss
unglingameti Jóns Þ. Ólafssonar
frá árinu 1961. Elías hefur æft
mjög vel í vetur og er Kklegrur
til að bæta afrek sín mjög veru
lega í hinum ýmsu greinum í
vetur og á komandi sumri, en
hann er sem kunnugt er mjög
fjölhæfur og efnilegur tugþraut
armaður.
Mjög skemmtileg keppni var
á mótinu í öðrum greinum, rná
þar m.a. nefna sigur Elíasar yfir
Jóni Þ. Ólafssyni í langstökki
án atrennu, en Jón hefur verið
nær ósigrandi í þeirri grein sl.
áratug, en Elías náði þarna sín
um bezta árangri í skemmti-
legri keppni við Jón, en þess
ber að geta að sá síðamefndi
hefur ekkert æft í vetur.
Amnars voru helztu úrslit
mótsins þessi:
FYRRI DAGUR:
Hástökk án atrennu metr.
Jón Þ. Ólafsson, ÍR, 1,66
Elías Sveinsson, ÍR. 157
Erlendur Valdimarsson, ÍR, 1,57
Friðrik Þór Óskarsson, ÍR, 1,57
Guðm. Jóhannesson, HSH, 1,53
Langstökk án atrennu: mtr.
Elías Sveinsson, ÍR, 3,20
Jón Þ. Ólafsson, fR, 3,15
Friðrik Þór Óskarsson, ÍR, 3,07
Erlendur Valdimarsson, ÍR, 3,00
Þrístökk án atrennu: mtr.
Elías Sveinsson, ÍR, 9,49
Friðrik Þór Óskarsson, ÍR 9,16
Ágúst Ásgeirsson, ÍR, 8,11
Einar Guðjohnsen, ÍR, 8,03
Hástökk með atrennu:
Elías Sveinsson, ÍR, 1,90
Erlendur Valdimarsson, ÍR, 1,68
SÍBARI DAGUR:
Hástökk með atrennu: mtr.
Eiías Sveinsson, ÍR, 2,00
(ísl. drengjam. innanhúss)
Friðrik Þór Óskarsson, ÍR, 1,70
Guðm. Jóhannesson, HSH, 1,66
Ágúst Ásgeirsson, ÍR, 1,66
Einar Þorgrínasson, ÍR, 1,60
Magnús G. Einarsson, ÍR, 1,56
(ísi. piltamet itmanhúss)
Langstökk án atrennur m4r.
Friðrik Þór Óskarsson, ÍR, 3.18
Elías Sveinsson, ÍR, 3,14,
Sigfús Jónsson, ÍR, 2,55