Morgunblaðið - 22.01.1971, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1971
Kve nnadaIk
'&h4*
Leikskóli fyrir foreldra
HUGMYNDIN varð til árið
1948, þegar fjögurra ára dóttir
sálfræðingsins Tobiasar Brocher
spurði han:n: „Hvernig lærðir
þú að vera pabbi?“ Brocher
kvaðst hafa orðið svarafátt. En
þessi spuming dóttur hans varð
til þess, að hann gerði sér ljóst,
að engin kennsla er föl fyrir
„mikilvægasta starfið“ foreldra
hlutverkið.
Brocher ákvað að reyna að
bæta úr þessu. Hanin komst að
þeirni niðurstöðu, að sé full-
orðnum manni fengið leikfang
í hendur og látinn einn með
BUFF er góður matur
það, muni hann líta til æsku
sinnar, hvort heldur hún var
hamingjusöm eða ekki, og við
það muni hann öðlast betri
skilning á sjálfum sér og börn
um sínum. Brocher, sem nú veit
ir forstöðu sálfræðideild „Sig
mund Freuds Institute" í Frank
furt, stofnaði fyrsta „leikskóla
fyrir foreldra“ í Ulm í Þýzka-
landi árið 1955. Nokkrirr aðrir
svipaðir skólar hafa síðan verið
stofnaðir í Þýzkalandi og öðr-
um evrópskum löndum, og ver
ið er að rannsaka þetta við
Menininger rannsóknastofnunina
í Kansas.
í þessum foreldra-leikskólum
eru engir fyrirlestrar. Þesis í
stað koma 10 foreldrar saman
tvö kvöld í viku til ýmiss konar
leikja, svo sem að móta úr leir
og mála með fingrunum. Síðan
hittast þeiir þriðja kvöldið ásamt
æfðum kennara þeim til aðstoð-
ar, ræða um það, sem gert var
hin kvöldin, hvers þeir urðu vís
ari meðan á leiknum stóð. Ár-
angurinn varð oft hreinasta op-
inberun fyrir þátttakendurna.
Einn af nemendum Brochers
var dómari nokkur, mjög ná-
kvæmur maður, sem leit niður
á hina þátttakendurna. Fyrsta
kvöldið, þegar mála átti með
fingrunum, átti hann mjög erf
itt með að leika með og dýfði
aðeins litla fingrinum ofan í
hvíta málningu, og setti tólf
raðir af punktum á hvítan papp
ír. Að þrem vikum liðnum var
þessi sami maður með máln-
ingu upp fyrir olnboga, virtist
sannarlega í essinu sínu og mál-
KARFA VIÐ RÚMSTOKKINN
GÓÐ hugmynd er að koma fyr
ir körfu á barnarúminu, eins og
sést á myndinni, og setja þar
í þau leikföng, sem vinsælust
eru þá stundina. Er þá kannski
von ti'l að einhver morgunhani
geti dundað örlítið í rúminu
áður en mamma og pabbi eru
vakin.
aði með öllum regnbogans lit-
um. Þegar sálfræðingurinin
spurði, hvort honum fyndist
þetta ekki skemmtilegt, svar-
aði dómarinn, að hann hefði
aldrei fengið að leika sér þann
ig sem barn, móðir hans hefði
refsað honum, ef hann óhreink
að sig. Hann sagðist hafa átt í
orðasennum við konu sína
vegna sonar þeirra, vegna þéss
að hann hefði ekki getað liðið
að drengurinm óhreinkaði sig.
Nú sagðist hann líta öðrum aug
um á málið og geta dæmt af eig
in reynslu, sonur hans skyldi fá
að leika sér eins og hann lysti.
Margs konar vandamál, sem
foreldrar eiga við að stríða,
koma í ljós með þessum leik
tímum. Móðir, sem reiðist óeðli
lega, þegar barnið fæst ekki til
að fara að sofa, kartn að end
urlifa sína eigin æsku. Foreldr
ar ætlast oft til þess, að barn-
inu takist sitthvað, sem þeim
hefur ekki tekizt sjálfum. Einn
af þátttakendunum gerð sér t.d.
loks grein fyrir því, að geð-
vonzka hans gagnvart litlu dótt
ur sinni stafaði af því, að hann
var hræddur um, að hún myndi
fjarlægjast hann eins og hans
eigin systir hafði gert mörgum
árum áður. Brocher álítur, að
foreldrar þurfi oft og tíðum
á slíkri leik-lækningaraðferð að
halda, til þess að endurlifa og
leysa þeirra eigin bældu vanda-
mál. Takist þeim það, geta í
mörgum tilvikum þeirra eigin
börn notið sín til fulls.
NET FYRIR RÚMINU
Á vissum aldri sparka börnin
oft sænginni út úr rúminu og
fátt er tiT ráða gegn því nema a?
binda sængina við rúmstólpana
Þó hefur einhver stungið upp á
því, að strengja net fyrir, til aí
sængin fari ekki ofan á gólf, og
er kannski einhver bót að því
sængin er þó jafnt til fóta á-
fram, að því er manni sýnist.
RÚSINU-BUFF
500 gr hakkað nautakjöt, smjör
líki til að steikja i, salt, pipar,
rúsínur.
Borið fram með soðnum hrís
grjónum, 2 appelsínum í sneið-
um. Nokkrar hakkaðar möndl-
ur. Grænmetissalat. Sósa bragð-
bætt með appelsínusafa og
rjóma.
8 kökur úr kjötinu gerðar af
langar og rúsínum stungið í,
steiktar á pönnu og kryddaðar.
Vatni hellt á og látið smásjóða.
Sósan bragðbætt. Appelsínu-
sneið og hakkaðar möndlur sett
ar á hverja kjötsneið.
BUFF MEÐ PIPARRÓTAR-
FYLLINGU
150 gr hakkað kjöt (4 litlar
sneiðar, ætlað fyrir einn), 1 egg,
salt, pipar, 14 dl rjómi, rifinn
hrár laukur, smjörlíki til að
steikja úr. Fylling: 2 matsk.
smjör, sinnep, rifin piparrót. —
Kjötið hrært með eggi, salti,
pipar, rjóma og rifnum lauk.
Gerð úr þessu rúlla og skornar
4 sneiðar, sem lagðar eru sam-
an tvær og tvær með fylling-
unni (eins og ein tesk. á hvora
samloku). Brúnirnar á kjöt-
sneiðunum þurfa að vera vel
saman, svo að fyllingin haldist
á sinum stað. Sneiðarnar steikt
ar vel í gegn. Grænmetissalat
eða jafningur með.
BUFF MEÐ TÓMATHATTI
500 gr hakkað kjöt. Tómatar.
Búin til buffstykki og steikt á
pönnu báðum megin. Tómatar
skornir í tvennt, steiktir á
pönnu og lagðir ofan á buff-
stykkin. Örlítil kínversk soja
sett á hvert buffstykki. Kartöfl
ur og grænar baunir með.
KARRÝ-BUFF
500 gr hakkað kjöt hrært með
einu eggi og einni eggjarauðu,
franskbrauðsmolum, 1 litlum
lauk söxuðum, salti, pipar, 1
tesk. karrý og enskri sósu. Búin
til lítil buff-stykki sem steikt
eru á pönnu. Sveppir steiktir
og dreift yfir buffið, einndg
bacon, ef vill. Vatni hellt á
pönnu til þess að fá sósu með.
FYLLT BUFF
400 gr hakkað kjöt
salt og pipar
1 rifinn laukur
2 matsk hveiti
2 matsk. rasp
1 egg
3 dl mjólk eða sódavatn
Smjör til að steikja úr.
Fylling: epli og sveskjur.
Hakkið hrært og buffsneiðarn
ar steiktar í smjöri. Áður en
Skemmtileg húsgögn í barna- og unglingaherbergi
þeim er snúið við, er lagt ofan
á það sveskja og eplasneið. —
Buffið steikt áfram og borið
fram með sósu og hrásalati.
BUFF MEÐ OSTSNEIÐ
% kg hakkað kjöt
smjör eða smjörlíki
salt og pipar
tómatsósa
ensk sósa
ostasneiðar.
Salat, hakkaður laukur, rauð
beður. Olíu-edik lögur.
Búið til úr kjötinu 8 kökur
og þær steiktar í brúnuðu
smjöri. Kryddaðar með salti og
pipar. Setjið tómatsósu og enska
sósu á og hyljið hverja sneið
með þykkri ostsneið (helzt feit
um). Setjið lok á pönnuna eða
setjið buffið í eldfast fat í ofn
inn, þar til osturinn er bráðin-n.
Borið fram strax, ásamt salati
sem í er sett hakkaður laukur,
rauðbeður og olíuedikslögur. í
NÝJASTA TlZKA
Þessi kjól-dragt er samkvæmt
allra 'nýjustu tízku. Efnið í
henni er ullarjersey. Jakkinn er
stuttur með tveimur vösum,
stungnum, hnepptur að framan.
Pilsið er líka hneppt að fram-
an, og víkkar aðeins út að neð
an. Liturinn á þessari dragt er
dökkblár, blússan gul með rúllu
kraga. Hnapparnir á dragtinni
eru úr málmi.
staðinn fyrir salat, má nota hvít
kál.
HÁTÍÐABUFF
400 gr hakkað kjöt, salt, 1 egg,
2 matsk kartöflumjöl, IV2 dl
sódavaitin, pipar, 10 snieiidar aif
bacon.
Kjötið hrært með kryddi,
eggi, kartöflumjöli og sódavatni
gerðar úr því 10 buffkökur. —
Bacon-sneið vafin utan um
hvert buff og fest með tann-
stöngli. Steikt á pöninu og bor
ið fram með kartöflum, græn-
metisjafningi eða grænmetis-
salti.
PARÍSARBUFF
Gerðar þykkar kökur úr hökk
uðu kjöti, síðan skomar þvert
og á milli sett 1 tesk. af hakk-
aðri steinselju, smjörbiti og
salt. Steikt á venjulegan hátt.
SÆNSKT BUFF
750 gr hakkað kjöt, 2 soðnar
kartöflur, 1 soðin rauðrófa,
1 eggjarauða, 14 bolh mjólk, 1
matsk. saxaður laukur, salt,
pipar.
Kartöflur og rauðrófa skornar
smátt og hrært saman við kjöt
ið ásamt eggi, mjólk og kryddi.
Gerð úr þessu meðalstór buff-
stykki og brúnuð á pönnu, snú
ið oft og gegnum steikt.
VÍNARBUFF
750 gr hakkað kjöt, V2 bolli
brauðmylsna eða molar, 1 tesk.
salt, 14 tesk. pipar, 1 tesk. papr
ika, 2 matskeiðar matarolía, 2
matsk. smjörlíki, 4 sítrónusneið
ar, 8 gaffalbitar, 2 tesk. kapers.
Gerðar kökur, aflangar úr kjöt
inu, velt upp úr brauðmylsnu,
kryddað með salti, pipar og
papriku. Steikt upp úr blöndu
af olíu og smjörlíki við meðal
hita. Sítrónusneið, gaffalbiti og
kapers sett á hverja kjötsneið.
Kartöfliusiailait borið með.
FALLEGIR HANZKAR
Fallegir hanzkar, sem virðast
fara mjög vel við stígvélin, sem
nú eru allsráðandi í fótabúnaði.
Önnur gerðin er reimuð en hin
með málmspennum.