Morgunblaðið - 10.02.1971, Síða 13

Morgunblaðið - 10.02.1971, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MEÐVIKUDAGUR 10. FEBRUAR 1971 13 þrjá stafi: a, i og ó, og ég get skrifað þá og nokkra fleiri. Þú getur ekki hugsað þér, hvaó þetta er allt sniðugt og hvað ég hef gert margt í vetur. Og nú er ég að gera þessa undir- skál, ég á krukku, sem ég held að passi ágætlega við hana. Saman við borð sitja þau Kristján Arnþórsson, önnum kafinn við púsluspil, Magnús Helgi Magnússon er að vefa lit ið teppi í herbergið sitt og Mar grét Bragadóttir er að setja saman skrúfukubba. — Ég þekki alveg fullt af stöfum, segir Kristján — en mér finnst meira gaman að púsla en þekkja stafi. Sjáðu, nú er myndin komin og ég get alveg talið, að það eru þrír kettir á myndinni. Ég kann nefnilega að telja alveg upp að tuttugu — eða hér um bil. — Það kann ég líka og svo á ég sjúkrabíl, segir nú Helgi og bætir því við að pabbi sinn sé bílstjóri sem eigi baeði hús og bil og þúsund krónur að minnsta kosti. Margrét hefur náð sér í leir og býr á svipstundu til feg- urstu stjörnur, smáhjörtu og sitthvað fleira. Hún kippir sér ekki upp við það, þótt sessu- náutar hennar geri að karl- manna sið lítið úr verkum henli ar. — Ég kann fleira en að leira og svoleiðis, segir hún mér, —- ég hef líka lært um- ferðarreglur. Ég verð að fara yfir Reykjanesbrautina á hverj um degi til að komast í skól- ann og þá verður maður nú að kunna umferðarreglurnar. Edvard Ragnarsson hefur þarna dregið upp á töflu af tilrauninni um þurreimingu á tré. og eðlisfræði EÐLISFRÆÐIKENNSLA 1 ELLEFU ARA DEILDUM Sl. sumar var haldið nám- skeið fyrir þá kennara, sem vildu taka að sér eðlisfræði- kennslu í tveimur elztu bekkj- um barnaskóla. Vegna þrengsla í mörgum skólum og ýmissa annarra ástæðna vegna er þessi kennsla þó ekki veitt nema í nokkrum Reykjavíkurbarna skólanna. f Hlíðaskóla er hún ekki algerlega ný af nálinni, þar sem gerð var tilraun með þessa kennslu fyrir Skólarann- sóknir í fyrra og þá aðeins í ellefu ára bekkjum. Þessa kennslu önnuðust þá þau Tómas Einarsson og Ragnheiður Bene- diktsson. Tómas hitti ég upp I Hlíða- Skóla þennan dag og hann sagði að samið hefði verið uppkast að slíkri bók og hún sett í kennslu þar og í Öldutúns- skóla í Hafnarfirði. Árangur- inn var góður og að fenginni nokkurri reynslu voru fundir með höfundum bókarinnar þeim Óskari Maríussyni og Ólafi Guðmundssyni og siðan samin sú bók, sem nú er kennd í ell- efu ára bekkjunum. Áfram hef ur verið haldið í vetur og farið yfir seinni hluta af bók Öskars, sem heitir Efnafasar. Nú er einnig verið að kenna um ljós- ið í sérstakri bók eftir Loft Magnússon og Sigurð Simonar- son. — Ekki er vafi á því- að ell- efu ára börnin hafa haft bæði gagn og gaman af þessari kennslu sagði Tómas. — Sjón- deildarhringur þeirra hefur vikkað og þau fóru að gera ýmsar tilraunir heima hjá sér og sáu þá margt frá öðru sjón- arhorni en áður. Nú hefur eðl- isfræði verið sett á námsskrá ellefu ára barna, en tilrauna- kennsla er hafin í þeim tólf ára deildum, sem ekki hafa fyrr fengið þessa leiðsögn. Sama máli gegnir með eðlisfræði og flestar aðrar námsgreinar, að nemendur eru misjafnlega opn ir og áhugasamir, en fljótlega kemur lika fram hverjir það eru sem ná árangri og tvímæla- laust tel ég að stigið hafi verið stórt spor í rétta átt og von- andi að tök verði á að þessi kennsla komist sem fyrst í alla barnaskólana. Ásgeir Guðmundsson segir mér að kennarar í Hlíðaskóla hafi verið ákaflega fúsir til að fara á námskeið og taka að sér þessa kennslu. Nú eru tveir tím ar vikulega í ellefu ára bekkj- I’arna gekk tilraunin erfiðlega, en hafðist að lokum. Ljósmyndir Mbl. Kr. Ben. unum og áfram í tólf ára deild og siðan í 1. og 2. bekkjum gagn fræðastigsins þar. — Svo virðist sem nemendur á ungum aldri séu býsna mót- tækilegir fyrir þessu náms- efni, enda kannski ekki komn- ir til alls konar fordómar og hætt er við nokkrum árum síð- ar. Almennt talað er það ekki okkar reynsla hér að neinir teljandi erfiðleikar séu með fag kennslu á barnaskólastigi, eins og sumir halda. Danska er kennd með tilraunaverkefnum og enskan kemur efalaust á næstunni. Ýmsar fleiri breyting ar á námsefni barnaskólanna eru á döfinni s.s. í náttúru- fræðum. Kostur gafst síðan á að fylgj ast með eðlisfræðikennslu í 1. bekk gagnfræðadeildar. Þar var Edvard Ragnarsson að leið beina nemendum við fyrstu verfclegu tilrauiniinia, þuirreiim- ingu á tré, sem þau höfðu gert um veturinn. I leikmannsaug- um er kennslustofan ágætlega útbúin, þar voru hvers kyns tól og tæki á hvérju borði og áður en tilraunin var gerð útskýrði Edvard með teikningum og skýr ingarmyndum á töflunni. Þessir nemendur hafa ekki fengið eðl isfræðikennslu fyrr en í vetur. Áhugi virtist óskiptur og ó- spart var spurningum beint til kennarans. Eftir að hafa síðan lítillega blaðað í þeim kennslubókum, sem nú eru hafðar á boðstól- um fyrir nemendur í eðlisfræði frá 11—14 ára, læðist sjálfsagt að einhverjum sá áleitni grun- ur, að unnt hefði verið að læra eðlisfræði í eina tíð, ef ein- hverjum áþekkum aðferðum hefði verið beitt. h.k. . . . mí er eftir að vita, hvað gerist . . . ekld ber á öðru en til- ratmin hafi heppnazt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.