Morgunblaðið - 13.02.1971, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.02.1971, Blaðsíða 16
16 MORG-UNBLAÐIÐ, LAUGARÐAGUR 13. PEBRÚAR 1971 Gunnar Árnason, stud. psych; Húsmæðralaun Kanpmannahöfn, 23. janúar. Kristján J. Gunnarsson, skóla stjóri ritar þ. 19. janúar mjög athyglisverða grein hér í blaðið um stöðu konunnar í þjóðfélag- inu, tækniþróun og uppeldi, hús mæðralaun o.fl. Kristján kemur víða við, en hið nýstárlegasta í grein hans er tvímælalaust hugmyndin um „húsmæðralaun" til handa mæðr um allra barna frá 0 til 16 ára, er samsvari þeirri upphæð, sem fer til greiðslu launa starfsfólks vegna dvalar barna á vöggustof um, dagheimilum, leikskólum og tómstundabeimilum. Líkar tillögur hafa komið fram hér í Danmörku, aðallega tvenns konar. Annars vegar hugmynd um uppalendalaun til handa foreldrum ungbama til 3ja ára aldurs, til að hindra þann skaða sem dvöl á vöggu- stofum og rofið tilfinningasam- band í frumbemsku kunni að hafa fyrir þroska bamsins. Hins vegar hafa forkólfar „barnarétt inda" viljað fá „barnalaun" til handa öllum börnum frá 0 til 16 ára, í svipuðum tilgangi og Kristján drepur á í sambandi við sjálfsákvörðunarrétt barna: „Hugsanlegt er að ganga jafn- vel enn þá lengra í jafnréttis- hugsjóninni og segja, að sá tæp ur þriðjungur þjóðarinnar, sem er böm undir sextán ára aldri, ætti að hafa um það sjálfs- ákvörðunarrétt, hvort þau vildu alast upp á uppeldisstofn- unum eða heimili." Áður en ég vík að þessum hug myndum vil ég fyrst ræða nokkru nánar um hin einstöku ^aldursskeið bamsins. V ÖGGUSTOFUALDTJRINN Aldurinn frá 0 til 3ja ára er mjög mikilvægt tímabil í lífi barnsins. f>að er engin ný bóla að fyrstu ár barnsins hafi ver- ið talin mikilvæg fyrir þroska þess, og flestir sálfræðingar í dag eru sammála um, að ekkert skeið ævinnar sé mikilvægara fyrir tilfinninga- og persónu- þroska mannsins en fyrstu 5 til 6 ár ævinnar. f>að var hins vegar ekki fyrr en eftir síðari heimsstyrjöld að menn gerðu sér fulla grein fyr- ir hinni gifurlegu þýðingu, sem traust tilfinningasamband smá- bamsins við einhvern fullorð- inn, hefði fyrir allan framtíðar- þroska þess. Nú kom í ljós að ekki aðeins tilfinninga- og per- sónuleikaþróun bamsins skaðast alvarlega sé þetta tilfinninga- samband rofið í lengri tíma (t.d. við að annað hvort barnið eða móðirin þarf að leggjast á sjúkrahús), heldur einnig að greindarþróunin staðnaði. Raun ar hefur komið stöðugt betur i ljós að tilfinningaþroskinn er nauðsynlegt skilyrði til að bam ið geti náð fullum greindar- þroska. 1 yfirlitsgrein yfir langtíma- rannsóknir varðandi þróun barnsins kemst bandarískur prófessor (Bloom) að þeirri nið urstöðu, að á tímabilinu fram að 4ra ára aldri sé greindarvöxt- urinn örastur. Við samanburð á mörgum langtímarannsóknum kemst hann að þeirri niður- stöðu að 50% af þeim breyting- um sem verða á greind barnsins gerist fyrir 4% árs aldur, 30% verða á aldrinum 4% til 8 ára en aðeins 20% af breytingunum verða á aldrinum 8 til 18 ára. Að sjálfsögðu ber að taka slíkar niðurstöður með nokkrum fyrirvara m.a. vegna vandkvæða við greindarmælingar smábarna, en þær staðfesta samt sem áður það sem fjölmargar klíniskar at- huganir hafa sýnt, að rofið eða lélegt tilfinningasamband á fyrstu árum ævinnar getur haft mjög alvarlegar afleiðingar fyr- ir alla framtíð bamsins. 1 alvar- legustu tilfellum leiðir þetta til geðveilu eða beinlínis geðveiki hjá börnum; í vægari tilfellum til alvarlegra erfiðleika við að tileinka sér þá reynslu sem sið- ari þróunartímabil hafa upp á að bjóða, (t.d. þróun samvizku og siðgæðisvitundar á 4ra til 6 ára aldrinum) og til minnk- andi námshæfileika og greindar. >að ber þó að taka skýrt fram að allar þær rannsóknir sem sýna alvarlegan mismun á stofnunum og heimilum, hafa bor ið saman, annars vegar smá- barnaheimili og sjúkrahús (þar sem bömin dvelja allan sólar- hringinn) og hins vegar for- eldraheimili. 1 nýrri rannsókn- um, þar sem vöggustofuböm, sem dvelja þar aðeins hluta úr sólarhringnum, eru borin sam- an við heimilisböm, hefur ekki tekizt að sýna fram á skaðleg áhrif, og áhrifin hafa raunar verið gagnleg sérstaklega fyrir börn sem búa við erfiðar aðstæð ur heima fyrir. Sé vöggustofa innréttuð og starfrækt eftir beztu kröfum varðandi leiktæki, menntun starfsfólks o.fl. getur hún haft gagnleg áhrif fyrir öll börn. mjög strangar kröfur, eigi vöggustofa að geta komið í stað heimilisuppeldis. Á vöggustof- unni þarf barnið að fá: 1. náið tilfinningalegt sam- band við eina eða fleiri af fóstr unum; barnið verður að finna að þeim fullorðna þyki í raun og veru vænt um það. 2. líkamleg atlot; klapp og gælur og það að hvíla í faðmi þess sem bamið treystir, hefur mikla þýðingu fyrir öryggistil- finningu og tilfinningaþroska barnsins. 3. möguleika til að nota öll skynsvið sín; geta bæði séð og heyrt, þreifað á og bitið í sem allra fjölbreyttasta hluti. 4. fá félagslega hvatningu bæði með nánu sambandi við þá fullorðnu og við eldri böm. 5. mikla hvatningu til að læra að tala og nota hugtök. 6. tækifæri til að hreyfa sig á nægilega stóru svæði, bæði skríða, ganga, klifra o.m.fl. Mikið vantar að sjálfsögðu á að allar vöggustofur fullnægi þessum skilyrðum. Til skamms tíma var litið á það sem aðal- verkefni vöggustofunnar að við hafa fullkomið hreinlæti og sjá um að börnin fengju nægan og hollan mat. Var því aðallega hjúkrunarmenntað fólk ráðið til starfa í vöggustofum. Hér í Danmörku eru t.d. að- eins örfá ár síðan farið var að sérmennta starfsfólk til vinnu á vöggustofum og smábarnaheimil um. Slík sérmenntun fyrir vöggu- stofufóstrur mun enn ekki vera til á Islandi, og munu sennilega líða áratugir áður en vöggustof- ur verða sambærilegar heimilis- lífi hvað uppeldislegt gildi snert ir. DAGHEIMILAALDUB Varðandi dagheimilaaldurinn (u.þ.b. 2% til 6 ára) gegnir öðru máli. í fyrsta lagi hefur aðskilnað- ur við foreldri nú mun minni skaðleg áhrif á bamið. 1 öðru lagi eru skólakerfi hinna þróaðri landa sífellt að færa niður aldurstakmark byrj- enda. 1 Frakklandi fara t.d. nær öll börn í leikskóla frá 3ja ára aldri. Hér í Danmörku eT það yf irlýst markmið að stefna að þvi að fullnægja allri eftirspurn eft ir dagheimilum, og að dvölin þar verði ókeypis. I þriðja lagi hafa rannsóknir sýnt að dagheimilisvist hefur gagnleg áhrif á flest böm, þó mest á þau sem búa við erfið- ar heimilisaðstæður og lágt menntunarstig foreldra. í fjórða lagi eru dagheimili á Islandi sennilega þær uppeldis- stofnanir, sem bezt gegna því hlutverki að hafa áhrif á félags kennd og félagsþroska bam- anna. SKÓLAALDUKINN Á aldrinum 7 til 15 ára eru böm skólaskyld. Varðandi aðstöðu skólabarna má benda á að sífellt fleiri að- hyllast þá skoðun að skólinn eigi að vera vinnustaður bam- anna, því skuli enginn heima- vinna vera, en allt nám íari fram innan veggja skólanna, eins og vinna á flestum öðrum vinnustöðum. Þetta myndi að sjálfsögðu lengja nokkuð dvöl barnanna í skólanum dag hvern. Á sama tíma og þetta gerist styttist stöðugt vinnutííni fólks, þannig að ekki er ósennilegt að innan fárra ára verði munurinn á vinnutíma foreldra og saman- lögðum „skóladvalartíma" barna horfinn, eða orðinn svo litill, að slikt valdi ekki umtalsverðum erfiðleikum fyrir bamið. HVAÐ ER TIL RÁÐA? Kristján skrifar: „Innan fárra áratuga munu svo til allar kon- ur fara að vinna úti og svo til allt uppeldi færast af heimil- unum og yfir á stofnanir. Ekk- ert getur hindrað þessa þróun. En ef við óskum, getum við e.t.v. tafið nokkuð fyrir henni með því að taka upp algerlega nýtt mat á starfi húsmóðurinnar. Við urkenna verður í verki, að vinna hennar sé arðbær (pro- duktiv) fyrir þjóðfélagið og að hún eigi að launast og veita hús móðurinni fjárhagslegt sjálf- stæði til jafns við annað vinn- andi fólk." Kristján nefnir ýmis skynsam leg rök bæði með og móti þessu. Af meðrökum nefnir hann t.d. gagn fyrir bamið, þ.e. betri borgarar í framtíðinni sparnað- ur við byggingu og rekstur stofnana; síðar meir sparnaður í löggæzlu, framfærslu og trygg- ingamálum vegna þess að færri munu þurfa á aðstoð eða að- haldi að halda í framtíðinni, og að valið milli heimilisstarfa og vinnu utan heimilis verði í raun og veru frjálsara fyrir konuna sé reynt að samræma þau fjár- hagslega, bæði hvað laun og skattamál snertir. Af mótrökum nefnir Kristján fyrst og fremst það, að þjóðhags lega fæst betri nýting á vinnu og menntun kvenna, ef þær vinna utan heimilisins. — Jafn- vel í ríkjum, sem aðhyllast sem allra mest frelsi einstaklihganna í einkamálum, eru sett lög, sem hafa áhrif á hegðun þeirra, enda hefur hegðun einstaklings- ins nær ætíð áhrif á þjóðfélag- ið beint eða óbeint. Má i þessu sambandi benda á, að frönsku stjórninni tókst að fjölga barns- fæðingum verulega fyrir nokkr- um árum með því einfaldlega að hækka bamalífeyri. Hjá okkur hljóta t.d. lögin um 50% frádrátt frá skatti á launum giftra kvenna, að hafa hvetjandi áhrif á konur til að vinna utan heim- ilis, jafnvel þótt markmið lag- anna hafi e.t.v. verið annað í upphafi. Ákvarðanir um slíka lagasetningu eru þýðingarmikl- ar stjórnmálalegar ákvarðanir, þar sem taka verður tillit bæði til pólitiskra framtíðarmarkmiða og efnahagslegra aðstæðna í nú tið og framtíð. Hugsum okkur nú að hug- mynd Kristjáns um húsmæðra- laun vegna bama frá 01—6 ára, kæmist til framkvæmda. Hverj- ar yrðu afleiðingarnar? Við get- um aðeins spáð: 1. Fleiri konur (og e.t.v. ein- staka karlmenn) myndu velja að vinna é heimilinu í stað vinnu utan heimilis. 2. Húsmæðralaunin myndu ná yfir ca. 20 til 25 ár úr lífi kon- unnar (miðað við dreifingu fæð- inga á 4 til 9 ár). Þannig myndu þær konur, sem velja að vinna heima hafa slík laun frá t.d. 20 til 25 ára aldri til 40 til 50 ára aldurs. 3. Hafi kona þannig notað „beztu ár ævinnar" til húsmóð- urstarfa er mjög erfitt fyrir hana að komast út á vinnumark aðinn aftur, bæði af persónuleg- um ástæðum, skorti á starfsþjálf un og minnkandi möguleik- um fyrir miðaldra og eldra fólk á vinnumörkuðum hinna þróaðri landa. Þannig yrði húsmóður- starfið sennilega hið raunveni- lega lífsstarf fyrir margar þess- ara kvenna, og þá kemur m.a. sú spuming, hvort þær eigi að fá eftirlaun t.d. frá 50 ára aldri. 4. Þetta gæti haft þau hliðar- áhrif að heimavinnandi konur myndu eignast fleiri börn en hinar, sem ynnu utan heimilis, og þar með myndi barnsfæðing- um i heild fjölga og þar með þjóðinni. 5. Sennilegt er að þær konur sem velja að vinna heima verði ekki jafnt dreifðar á starfssvið og menntunarsvið þjóðfélagsins, þannig yrði þetta stærri freist- ing íyrir þá konu, sem litla menntun hefur hlotið, og á því ekki völ á starfi utan heimilis, sem veiti henni ánægju, þroska og góð laun. 6. Fjórða og fimmta atriði myndu síðan í sameiningu hafa þau áhrif, að þau böm, sem mest gagn hafa af dagheimiladvöl (ss. börn frá heimilum með lágu menntunarstigi foreldra) myndu alls ekki koma á dag- heimili. 7. Þetta myndi seinka jafn- réttisbaráttu kvenna á þennan hátt í fyrsta lagi, verði húsmóð- urhlutverkið gert lokkandi með launum myndi það hafa letj- andi áhrif á menntunarleit kvenna. 1 öðru lagi fengju eiginmenn og aðrir sterkari tromp á hendi, til að letja konuna að vinna ut- an heimilis, og í þriðja lagi myndu stéttasamtök húsmæðra, á launum, standa i vegi fyrir fullkomnu jafnrétti milli kynj- anna. 8. Frá þjóðfélagslegu sjónar- . miði yrði sennilega verri nýt- ing á þeim kostnaði, sem lagður hefur verið í menntun þeirra kvenna, sem velja húsmóður- starfið. 9. Þjóðhagslega séð yrði marg falt verri nýting á vinnu kvenna. Þetta eru sem sagt nokkrar af þeim hugsanlegu afleiðingum, sem gætu orðið af húsmæðra- launum, séu þau greidd þar til börnin ná 16 ára aldri. Það skal tekið skýrt fram, að ég er al- gjörlega sammála Kristjáni um vandamálið s.s. um aðlögun lifn- aðar- og uppeldishátta að breytt um framleiðsluháttum þjóðfé- lagsins, og að við þörfnumst að- lögunartíma „meðan hið félags- lega stofnanauppeldi nær að þróast betur og verða færara um að valda uppeldishlutverk- inu, heldur en orðið er.“ Hvemig hægt er að leysa það er aftur á móti öllu erfiðara. Ef gripið er í taumana á einum stað í þjóðfélagsvélinni hefur það 1 flestum tilvikum fjölda auka- og hliðaráhrifa á önnur svið. Vegna þessara fyrrnefndu aukaáhriía get ég engan veginn samþykkt tillögu Kristjáns i heild. Hins vegar kæmi til greina að gera ráðstafanir, sem ganga skemmra, en gætu þrátt fyrir það bætt nokkuð úr. Á ég þar fyrst og fremst við ráðstafanir til hjálpar bömum á vöggustofualdri. Eins og áður er getið er frumbernska barnsins ákaflega mikilvægt tímabil í þró un þess og því afdrifaríkt hvem ig til tekst um uppeldið á því skeiði. Við höfum enn ekki kom- ið á fót sérmenntun fyrir fólk, sem starfa vill á vöggustofum. 1 frumbemsku skiptir tilfinn- ingalegt samband við foreldra eða aðra fullorðna meira máli en á nokkru öðru skeiði ævinn- ar. Allt þetta mætti færa fram sem rök fyrir því að við ættum að hækka fæðingarstyrk og barnalífeyri til barna fyrstu 2 til 3 æviárin all verulega, þann- ig að annað foreldri eða bæði geti minnkað við sig eða hætt vinnu á meðan barnið er i frum- bernsku. Samhliða þessu þyrfti svo að leggja mikla áherzlu á að leiðbeina foreldrum um upp- eldi og aðbúð smábama, (m.a. þyrfti að veita „eftirlitsljós- mæðrum" stóraukna fræðslu í uppeldisfræði.) Verði þróunin á Islandi lík og hún hefur verið t.d. í Danmörku og Svíþjóð má búast við að barnafjöldi á fjölskyldu minnki mikið á næstunni, fari t.d. nið- ur í 2 til 3 börn á f jölskyldu. Einnig er sennilegt að flestir foreldrar vilji ákveða sjálfir, hvenær og með hve löngu milli- biíi þeir vilji eiga bömin. Er þá sennilegast að flestir velji að eiga þau á sem allra skemmst- um tíma t.d. með u.þ.b. 1 árs millibili. Tökum dæmi: vilji hjón eignast 2 börn og vilji ann- að þeirra taka sér frí frá störf- um eða námi meðan börnin eru I frumbernsku, þyrfti það hjóna sem heima vinnur ekki að vera nema 3 til 4 ár frá vinnumark- aði eða námi og gæti síðan tek- ið til óspilltra málanna, þar sem frá var horfið. Æskilegast væri þó, að mínu áliti, að báðir foreldrar gætu fengið styttri vinnutíma meðan bömin eru í frumbernsku, þann ig að þau venjist bæði, frá byrj- un, á að skipta með sér verkum við bamagæzlu og hússtörf. Gunnar Ámason, stud. psych. Hins vegar verður að gera Fóstrur óskast Kleppsspítalinn óskar eftir að ráða fóstrur til starfa. Allar nánari upplýsingar veitir forstöðukonan, sími 38160. Reykjavík, 11. febrúar 1971 Skrtfstofa ríkisspitalanna. Til New York óskast stúlka trl húsverka á íslenzkt barnlaust heimili sem fyrst. Séð verður um löglegt dvalar- og atvinnuleyfi. Ein- hver enskukunnátta nauðsynleg. Meðmæli óskast. Umsóknir sendist Morgunblaðinu fyrir 22. febrúar merkt: „6915". Skrifstofustúlka Skrifstofustúlku til símavörzlú og vélritunar vantar strax. Nokkur enskukunnátta nauðsynleg. Umsókn sendist blaðinu merkt: „6744".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.