Morgunblaðið - 05.03.1971, Side 32

Morgunblaðið - 05.03.1971, Side 32
DdGLEGR FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1971 JWöjrgwnMaþtþ RUGLVSinGRR #V~*2248D Jón Jónsson um þorskinn: „Spái engu ofsafiskeríi66 — en árgangurinn álitlegur VEGNA frétta ura mikla þorsk- veiði norskra sjómanna við Lo- foten, sneri Morgimblaðið sér til Jóns Jónssonar, forstöðumanns Hafrannsóknastofnunarinnar. Sagðist Jón álíta, að þessi ó- venju mikla veiði Norðmanna mi aetti rætur sinar að rekja til þorskárganganna 1963 og 1964. Islenzki árgangurinn 1964 var einnig mjög sterkur og sagði Jón, að við mættuni búast við þvi, að hann færi nú að koma tll hrygningar. „Ég spái engu Sálma- bókin uppseld — og breytt útgáfa í híiust SÁLMABÓKINA er nú hvergi að fá keypta, þar sem hún er uppseld og ný kemur ekki á markaðinn fyrr en seint á þessu ári. Verður þá um nýja og breytta sálmabók að ræða. Sigurbjörn Einarsson, bisk- up, formaður Sálmabókar- nefndar, tjáði Morgunblaðinu, að endurskoðun sálmabókar- inmar væri það langt komið, að ekki þætti fært að endur- prenta bókina nú í sinni fyrri gerð. Kvaðst biskup vonast til, að ný sálmabók yrði gefin út seint á þessu ári. Sálmabók sú, sem í notk- un hefur verið, kom fyrst út 1945 og hefur verið endur- prentuð oft síðan. Biskup sagði, að nýja sálma bókin yrði nokkuð breytt frá þeirri, sem nú er; hún yrði minni. Eitthvað færi út af sáimum, sem ekkert eru sungnir, og nýir kæmu í stað inn; þó yrðu nýjungarnar minni en hitt, sem út fer. 1 sálmabókamefnd sitja auk biskups: Tómas Guð- mundsson, skáld, séra Sigur- 'jón Guðjónsson, prófastur, og dr. Jakob Jónsson. Fimmti maðurinn í nefndinni var séra Sigurður Einarsson í Holti, en hann er látinn. ofsafiskirii,“ sagði Jón, „en þetta er mjög álitlegur árgang- ur.“ Jón sagði, að norsku þorskár- gangarnir 1963 og 1964 hefðu ver ið „dálitið sterkir" i ungfiskafla Norðmanna undanfarið og einn- ig hefðu erlendir togarar verið „að moða I þeim“, hvað iétt hefði ásókn í isienzka þorskinn á móti. Ekki er vitað um neitt samhengi eða samband milli þorskstofnanna tveggja; þess norska og þess íslenzka, en ís- lenzki árgangurinn 1964 var einn ig mjög sterkur; það er sá ár- gangur sem hefur haldið uppi góðum þorskafia fyrir Norður- iandi undanfarin ár. Sagðist Jón álíta, að veiði Frarahald á bls. 18 $&§£!& S'.; Andrúmsloftið var nánast rafmagnað66 — er íslendingum var sleginn geirfuglinn hjá Sotheby’s í gær „Ég er mjög ánægður. I>etta var afskaplega skemmtilegt og spennandi uppboð. Ég er hérna með hann í stofunni, þar sem ég tala við þig.“ Þannig fórust dr. Finni Guðmundssyni, fuglafræð ingi orð, er Mbl. ræddi við hann eftir uppboðið hjá Sotheby’s í gær. Um geirfuglinn sjálfan sagði dr. Finnur, að hann liti mjög sæmilega út, væri svolit- ið rykugur, en hann mætti hreinsa. Hann kvað fuglinn vel settan upp og sízt verri en þá fugla, sem söfn eiga. Samkvæmt einkaskeyti AP- fréttastofunnar til Mbl. í gær var geirfuglinn sleginn fulltrú- um Náttúrufræðistofnunar Is- lands á 9 þúsund sterlingspund (um 1.890.000 ísl. kr.). Uppboðs- haldarinn hjá Sotheby’s sagði að loknu uppboðinu, að náttúrusögu legur hlutur hefði aldrei fyrr verið sieginn þar fyrir svo háa upphæð, enda segir í upphafi AP-skeytisins, að slegið hafi ver ið heimsmet með þessari sölu fuglsins. Á uppboðkm í gær var einnig boðið upp steingert risaegg og var umboðsmanni, sem alla jafna býður í bækur slegið það á 1000 pund (um 210.000 ísl. kr.) Eggi þessu mun hafa verið verpt fyrir einni milljón ára af strút- iaga risadýri, sem heitir á lat- ínu aepyornis maximus. Fugl þessi er hinn stærsti, sem vitað er um að uppi hafi verið. Upp- réttur var fuglinn rúmir 3 metr- ar á hæð og vó um hálfa smá- iest. Eggið vó ferskt 10 kg og er þvermál eggsinis 28 þumflung- ar á annan veginn en 15 á hinn. Eggið fannst á eynni Mada gascar. í viðtali Mbl. við dr. Finn Guðmundsson, sem vitnað er til í upphafi fréttarinnar, sagði hann ennfremur: — Þið vitið, að það var um- boðsmaður DuPont, sem bauð á móti. Hann hækkaði sig í einu vettvangi um 2 þúsund pund — Framhald á bls. 21 538 fiskvinnslu- stöðvar 1970 Ú tf lutnings verðmæti 6.567,4 milljónir kr. ÁRfÐ 1970 voru starfræktar hér á Jandi 538 fiskvinnslustöðvar; 94 hraðfrystihús, 46 rækju- vinnslustöðvar, 17 hörpudisk- vinnslustöðvar, saltfiskframleið- endur voru 229 og skreiðarfram Laxárdeilan: leiðendur 158. Samanlagt verð- mæti útflutningsmatsskyldra fiskafurða á árinu nam 6.567.373. 000 krónum. Þetta kemur fram r nýlegu fréttabréfi Fiskmats rík isins og segir þar, að heldarkostn aður við fiskmat ríkisins og ferskfiskeftirlit hafi árið 1970 Frarahald á bls. 18 Íí septembermánuði hófust framkvæmdir við nýja há- I skólabyggingu á háskólalóð- inni. Húsið er reist fyrir laga- deild Háskólans og stendur í milli aðalbyggingar skólans I og Nýja Garðs. Stefnt er að því, að neðstu tvær hæðirn- 1 ar verði tilbúnar hinn 1. októ- l ber næstkomandi, en á þeim , hæðum verða aðalkennslu- stofurnar. Fullbyggt verður 1 húsið 4 bæðir atik kjallara, um 9000 rúmmetrar og áætl- I aður kostnaður í dag með inn- réttingum er 55 milljónir króna. Ljósm. Mbl. Ól. K. M. Enn tveir á skelinni Stykkishólani, 3. marz. SKELFISKVEIÐI hefur verið talsverð frá áramótum og skelin bæði unmiin hér og anmars staðar á landinu, svo sem í Reykjavik, Hafnarfirði, á Akranesi og víðar. Nú eru aill'ir bátar hætitir þess- um veiðuim, þar sem kaupendur hafa ekki séð sér fært að taika meiri skel, enda amiruar verðmæt- ari afli í fiskiðjuvenunum Tveir bátar stunda þó þessar veiðar enn og veiða fyrir Borgtnesinga, sem enniþá taka á móti skelinmi til vinnslru, hversu lemgi sem það verður. Hér búast bátar tiil netaveiði og einn þegar byrjaður, en eiins og annars staðar hefur verið ýmsum erfiðleikum bundið að mamna bátana. — Fréttaritari. boðaðir Sáttafundir Vinnu við virkjunarfram- kvæmdir hætt á meðan Unglingar í innbroti — og valda stórskemmdum Akureyrí, 4. marz SÁTTASEMJARAR í Laxárdeil- unni, sýslumennirnir Ófeigur Eiríksson og Jóhann Skaptason, hafa að tilhlutan forsætis- og iðn- aðarráðherra, Jóhanns Hafstein, boðað stjórn Laxárvirkjunar til fundar kl. 11 árdegis á laugar- dag og stjórn Landeigendafélags Laxár og Mývatns tii fundar síð- degis þann dag. Ráðherrann er svo vsentanleg- ur tii Akureyrar á sunnudag eða mánudag og er þá ráðgerður sáttafundur með framiangreind- um aðilum, ráðherra og Árna Snævarr, ráðuneytisstjóra. Samkvæmt upplýsingum Knúts Otterstedt, rafveitustjóra, verður vinnu við virkjunarframkvæmd- imar hætt á hádegi á föstudag. Ekki vildi Knútur segja ákveðið til um, hversu lengi vinmustöðv- unin yrði, en það fer eftir ár- angri fyrmefndra sáttafunda. Undanfarið hefur verið unnið að undirbúningi virkjunar sam- kvæmt þeirn hugmyndum, sem fram komu í nóvembermánuSi si.; þ.e. að jarðgöngin verða þrengd frá því, sem áður var ætlað, og verða þau 35 fermetr- ar í þverskurð ófóðruð, stöðvar- húsið verður minna og þar ein vélasamstæða í stað tveggja. Þá er og hugsanlegt, að stíflan verði lægri en upphaflega var ráð- gert. Með þeim tveimur véflasam- stæðum, sem fyrst voru ráð- gerðar, skyldi vera unnt að framleiða 19 MW, en gamfla stöð- in, sem nú er orðin um 30 ára, framieiðir með sínum tveimur vélum 4 MW. —■ Sv. P. ÞRÍR 14 ára drengir eru nú í hahli í iipptökuheimili ríkisins í Kópavogi á meðan rannsóknfer fram á nokkmm innbrotum, sem þeir hafa viðurkennt að hafa framið; m. a. innbroti í Hag- kaup í Skeifunni nm síðustu helgi. Verið er að meta skemmd- ir, er drengimir ollu í Hagkaupi og er matinu ekki lokið. Er það þó komið yfir eitt hundrað þús- und krónur. Samkvæmt upplýsingum rann- sóknarlögreglunnar bera for- efldrar slikra barna ekki ábyrgð á gerðum þeirra, nema unnt sé að leiða rök að þvi, að verknað- urinn sé afleiðing vanrækts upp- eldis. Ýmsir vilja þó halda þvi fram, að slík afbrot séu nægi- leg rök fyrir sliku, en heldur hefur það vafizt fyrir mönnum að gera rökin haldbær. Kaupi foreldri hins vegar heimilistrygg ingu, þá verður tryggingaféiag- ið undantekningarlaust áhyrgt fyrir skemmdum, er börnin vaida. Að sögn rannsóknarlögreglunn Framhald á bis. 21

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.