Morgunblaðið - 16.04.1971, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1971
5
Markmið 6 ára kennslu
Eftirfarandi viðtal við frú
Valborgu Sigurðardóttur birt
ist í Foreldrablaðinu á s.l.
ári.
Mikill meiribluti allra 6
ára barna saekir nú hina al-
mennu skóla, og fullvíst má
telja, að áfram verði haldið á
þeirri braut. Ég vil þvi vekja
athygli foreldra alveg sér-
staklega á svörum þeim, sem
frú Valborg gefur i viðtalinu
varðandi markniið og störf 6
ára deilda.
Frú Valborg Sigurðardóttir
varð stúdent fi-á M.R. 1941.
Að loknu prófi í forspjalls
vísindum frá H.í. stundaði
hún náni í uppeldis- og sálar
fra'ði í Raiidaríkjiinum á ár-
unum 1942—1946, B.A. 1944,
M.A. 1946. Frú Valliorg hef
ur verið skólastjóri Fóstru-
skólans frá 1946.
G.M.
1. Hvert telur þú uppeldis
legt markmið 6 ára deilda
eiga að vera?
Barnið sjálft og persónu-
þroski þess á að vera höfuð
viðfangsefni forskólans —
ekki ákveðnar námsgreinar.
Höfuðmarkmið 6 ára deild
anna tel ég eiga að vera, að
efla heildarþroska barnsins,
þ.e. að efla tilfinninga, og fé-
lagsþroska þess, hreyfi-, verk-
og vitþroska þess, og búa það
þannig undir þœr kröfur, sem
fræðsluskyldan leggur því á
herðar.
Með því að skapa börnun-
um fræðandi og vekjandi um-
hverfi, og veita þeim alhliða
fóstrun i leik og starfi, tel ég,
að unnt verði að jafna að ein
hverju leyti uppeldisaðstöðu
þeirra. Börnin koma frá marg
vísiegum og misgóðum heimil
um og hafa m a. þess vegna
haft ólik og misjafnlega góð
ytri skilyrði til þroska.
Kosturinn við að taka börn
in inn í barnaskólann, áður
en hinn eiginlega fræðslu-
skylda hefst, er m.a. sá, að
unnt er að ná til hvers ein-
staks barns og rannsaka það
líkamlega og andlega. Ef öll
6 ára börn fengju að njóta
góðs af sérfræðingum þeim,
sem barnaskólarnir hafa á að
skipa eða munu hafa í náinni
framtíð, væri áreiðanlega
unnt að hlífa miklu fleiri
börnum við afdrifaríkum mis
tökum í námi, en hingað til
hefur tekizt. Á ég hér við
þjónustu sérfræðinga eins og
sálfræðinga, talkennara,
heyrnarsérfræðinga, augn
lækna, auk hins almenna heil
brigðiseftirlits skólalæknis.
Ótalin eru þau mistök, sem
orðið hafa í lestrarnámi
vegna þess, að barnið hóf
léstrarnám áður en það hafði
nægan þroska til þess.
2. Álítur þú að kenna eigi
6 ára börnum það, sem 7 ára
börn læra?
Nei, alls ekki, nema þá að
mjög takmörkuðu leyti og
með öðrum aðferðum en oft-
ast eru notaðar hér i 7 ára
bekk.
Trúlega vænta margir for-
eldrar þess, að börnin fái
að læra að lesa sem fyrst og
telji það jafnvel prófstein á,
hversu vel hefur tekizt um
forskólann.
En barnið er abnað og
meira en einhver lesvél, sem
þarf að setja sem fyrst i
gang. Margt þarf að læra ann
að en að lesa, skrifa og
reikna, sem er þroskavæn-
legra fyrir börnin á þessu við
kvæma aldursskeiði. T.d.
er mikilvægt að æfa barnið
í að tjá sig i töiuðu máli,
auka orðaforða þess og gefa
því tækifæri til að hlusta á
fallegt mál, áður en það fer
að læra að lesa. — Þau
böm, sem hafa þörf fyrir að
læra að lesa eða skrifa og
hafa eðlilegan þroska til þess
eiga að sjálfsögðu að fá að
gera það.
Sex ára böm eru allt öðru
vísi á sig komin almennt en
sjö ára börn, bæði líkamlega
og andlega. Þau eru ekki
einungis einu ári yngri og
minni að líkamlegum vexti.
3. Er þá eitthvað til í því,
seni sagt er, að 6 ára aidur-
inn sé sérstaklega viðkvænit
aldursskeið og börnin séu
venju frenmr fyrirferðarmik-
il og óróleg á þessum aldri?
Það er staðreynd, að á aldr
inum u.þ.b. 5% til 6V2 tekur
barnið örum þroskabreyting-
um, bæði andlega og líkam-
lega. Á þróunarferli barnsins
skiptast á skin og skúrir -
það er ekki alltaf sólskin. —
Marka má jafnvægisskeið og
misvægis- eða umrótaskeið á
vtxl. T.d. er 5 ára og 7 ára
aldurinn dæmigerð jafnvægis-
skeið, en 6 ára aldurinn um-
rótaskeið. Misvægis- eða um
rótaskeiðin einkennast af
spennu, öryggisleysi og marg
víslegum hegðunarvandkvæð
um, sem orsakast af auknu
geðnæmi barnsins. Það er því
ekki að undra, þótt böm í 6
ára aldursflokknum þyki oft
eríið, fyrirferðarmikil og
ergileg. Þessu þroskaskeiði
er oft líkt við gelgjuskeiðið
og með miklum rétti. Líkam-
inn er ekki einungis í örum
vexti, heldur er hann að taka
gjörbreytingum Á nokkrum
mánuðum tekur smábarnslík-
aminn á sig form skólabarns-
ins, og það er þó nokkurt
átak að læra á þennan nýja
líkama og stjórna honum. Af
þvi stafar hinn mikli hreyfi-
órói 6 ára barna. Þau eru á
eilífu iði, jafnvel þótt þau
sitji eða standi. Efnafar lík-
amans tekur hárfínum breyt-
ingum, sem fram kemur m.a.
i auknu næmi fyrir smit-
andi sjúkdómum.
Mikilvægar þroskabreyt-
ingar fara einnig fram, sem
hafa áhrif á augu barnsins og
sjón, og reyndar á allt hreyfi
og taugakerfið, með þeim af-
leiðingum t.d, að samhæfing
augna og handa er ekki eins
góð og áður. Þessar breyting
ar á líkamanum hafa meiri og
minni áhrif á sálarlíf barns-
ins, framkomu þess og getu
á þessu timabili. Þess vegna
ber að fara varlega í lestrar-
og skriftarkennslu.
Valboi-g Sigiirðardóttir
4. Á livern hátt getnr Jiá
6 ára deild undirbúið náni í
7 ára bekk?
Fyrst og fremst með því að
leyfa 6 ára börnunum að
njóta sín í leik og starfi, svo
að þau komist heil á húfi
gegnum hið erfiða umróta-
skeið 6 ára þroskaskeiðsins.
Þau þurfa að fá athafna- og
sköpunarþrá sinni fullnægt,
félagsþörf og fróðleiksfýsn,
að ógleymdri hreyfiþörf
sinni. Efling málþroskans má
nefna sérstaklega vegna þess,
hversu mikið grundvallarat-
riði hann er fyrir lestrarnám.
Ég tel því, að leikskólastarf-
semi henti þessu þroska-
skeiði vel. Forskólabekkir á
Norðurlöndum starfa allir
fyrst og fremst með leikskóla
sniði og annast fóstrur þá.
Danir kalla sína 6 ára bekki
leikskólabekki (börnehave-
klasse).
Leikstofan á ekki að vera
nein stássstofa, heldur á hún
að bera blæ af vinnustofu,
þar sem verkefnin blasa við
börnunum.
Það sem gert er í forskóla-
bekk eins og ég hef kynnzt
þeim, mætti sundurliða á eft
irfarandi hátt:
1. Samveru- og samtals-
stund. Börriin safnast kring-
um fóstruna til samtals og
umræðna um tiltekin efni eða
til að skipuleggja hópverk-
efni. Þau hlusta á sögur eða
segja sjálf sögur, syngja sam-
an og leika á hljóðfæri. Ýms-
ir skynjunar- og skynfæra-
leikir koma hér til greina.
Fjölbreytt fræðsla fer hér
fram, t.d. í sambandi við til-
tekin áhugasvið.
2. Frjálsir leikir, t.d. bygg-
ingaleikir, mömmuleikir, bíla-
leikir og hvers konar ímynd-
unarleikir.
3. Skapandi starf, eins og
föndur og myndmótun. Börn
in teikna, vatnslita, fingra-
mála, hnoða leir, klippa, líma,
vefa, sauma og smiða, hvert
eftir sinni getu og þroska.
Einnig vinna bömin hér
markvisst að ýmsum hópverk
efnum. Sköpunarmáttur
barnsins nýtur sín hér, auk
þess sem hugur og hönd þjálf
ast. Skapandi starf hefur og
róandi áhrif á börnin og
veitir tilfinningum þeirra já-
kvæða útrás.
4. Rytmik og hreyfileikir
hvers konar, sem fullnægja
hreyfiþörf barnanna og efla
hreyfileikni þeirra.
5. Alls konar útileikir
ásamt gönguferðum og kynn
isferðum, sem síðar gefa til-
efni til umræðna í samveru-
stundum og til hópverkefna í
skapandi starfi.
6. Ýmiss konar leikir og
störf, sem ætluð eru til þess
að búa barnið sérstaklega
undir skyldunámið.
„Þekking hefst með
reynslu, ekki orðum," sagði
Pestalozzi forðum. Börnin
þurfa að læra fyrst með því
SKOLA-
mAl...
að horfa, hliista og taka eftir,
með því að snerta á og npp-
lifa eða reyna hlutina. Ef
okkur tekst að halda fróð-
leiksfýsn barnanna, athafna-
semi og lífsgleði óspilltri og
skila þeim í 7 ára bekk fróð-
ari á mörgum sviðum, með
meiri málþroska, handlagn-
ari, öruggari í framkomu og
rólegri, höfum við skapað
traustari og varanlegri
grundvöll undir skólanám en
ella.
5. Hvort telur þú, að fóstr-
ur eða kennarar eigi að ann-
ast forskólann?
Að sjálfsögðu tel ég, að
fóstrur eigi að stunda fóstru-
störf og kennarar kennara-
störf!
En að öllu gamni slepptu,
tel ég, að mjög æskilegt væri,
að bæði fóstrur og kennarar
önnuðust forskólabekki, þar
sem margvíslegt samstarf
kæmi til greina, einmitt
vegna þess að 6 ára barn er
á krossgötum i þroskaferli
sinum. Á þessum aldri, sem
öðrum, eru börn mjög mis-
Franihald á bls. 20.
Nú eða...
næst er þér
haldið samkvæmi;
FERMINGAR-
AFMÆLIS-
eöa
T7EKIF7ERISVEIZLU
erum við reiðubúnir
að útbúa fyrir yður:
Kalt borð, Heita rétti,
Smurbrauð, Snittur,
Samkvæmissnarl.
Auk þess matreiðum
við flest það, sem
yður dettur í hug,
— og ýmislegt fleira!
Sælkerinn
HAFNARSTRÆTI 19
13835 - 12388.