Morgunblaðið - 04.05.1971, Page 24
24
MORGTJNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MAl 1971
BLÓÐ-
TURNINN
■ivJ-ÉCrC'XÍ'-'X-Jv;*.
r
} , .
7
. . 72 . .
það rétt, að þér gerið tilkall til
þessara peninga?
— Hvort ég geri það! Vitan
lega geri ég tilkall til þeirra.
Þeir eru min eign. Allt hérna
á móanum er min eign. Þér getið
sjálfur lesið samninginn.
Jimmy hristi höfuðið. — Það
mál verður líkskoðarinn að úr-
skurða. Hann kann að úrskurða,
að Benjamin Glapthorne hafí
fundið þennan fjársjóð. Þetta
mál snýst um fundið fé, skiljið
þér.
En Woodspring veifaði ákaft
höndum i mótmælaskyni.
—. Fundið fé! öskraði hann.
Bull og vitleysa! Hvernig getur
það verið fundið fé, þegar ég
vissi alltaf . . .
Hann snarþagnaði og svo varð
vandræðaleg þögn, sem Jimmy
rauf loksins.
— Nú, svo að þér vissuð það
alltaf, hr. Woodspring! endur-
tók hann aivörugefinn. — Hve
langt er síðan yður tókst að lesa
úr ritningarstöðunum í ættar-
biblíunni?
Bóksalinn svaraði þessu engu.
Hann greip fyrir kverkarnar,
vandræðalega, rétt eins og hann
fyndi þegar snöruna um háls
sér. Svo riðaði hann og hefði
dottið ef Jimmy hefði ekki grip-
ið i hann.
Hann var síðan fiuttur í lög-
reglustöðina, þar sem Jimmy og
Appleyard spurðu hann í þaula.
En framburður hans varð svo
margsaga, að Appleyard fannst
verjandi að taka hann fastan.
— Það er yður að þakka, að
hann varð nógu hræddur í fyrst
unni sagði Appleyard þeg-
ar fanginn hafði verið fluttur í
klefann, niðurbrotinn og upp-
gefinn. Og nú þurfum við að
safna sönnunum, sem nægja til
þess að hengja hann.
Samvinna margra aðila nægði
til þess að sanna flest atriðin í
kenningu Priestleys. Af dagbók
hjá Horace Woodspring mátti
sjá, hvaða staði faðir hans hafði
heimsótt á verzlunarferðum sin-
um, síðasta árið. Myndir voru
teknar af bóksalanum hárkollu-
lausum og sendar lögreglunni í
hlutaðeigandi borgum, með
beiðni um að sýna þær byssu-
smiðum og járnvörusölum
staðarins. Þessar myndir þekkt-
ust í Exeter og Bedford. Byssu-
smiður í fyrrnefndu borg-
inni hafði selt kassa af Nimrod-
skotum manni, sem mjög líktist
myndinni. Og önnur var þekkt
af lyfsala, sem hafði selt
sprerigiefnið. Og í báðum tilvik-
um mátti sjá af bókunum, hve-
nær Woodspring hafði verið
þarna á ferðinni, og það sama
var staðfest af gistihúsum í þess
um borgum.
Horace Woodspring var þaul-
spurður um bókakaup föður sins
i Klaustrinu. Hann staðfesti, að
einu sinni hefði faðir sinn komið
með biblíuna, ásamt öðrum bók-
um. Horace hafði bent föður sín
um á, að hún væri einskis virði,
AKRA
á brauó
AKRA
á brauð
brauð
Skiiur þú þuð sem þú lest
— í Biblíunni?
Smárit okkar gætu hjálpað þér.
Skrifið eftir fríu eintaki til Christadelphian
Bible Mission, 138 Ledi Drive, Beardsden,
Glasgow. V. K.
!
Fyndist þér
að konan þín
tæki sér
elskhuga?
Hvað er langt síðan, að þú tjáðir henni ást þína?
Hvenær leiztu á hana, — almennilega?
Þú manst það ekki? Þú ættir að skammast þín;
I dag, þegar ungar eiginkonur eyða meiri tíma
og peningum fyrir útlit sitt, fá þær oftast
vafasama gullhamra að launum.
INNOXA Living peach er gert fyrir konur,
sem þurfa helzt aldrei að segja til um aldur sinn.
Hrífandi konur, sem gera sér far um að halda
athygli eiginmanna sinna — og allra hinna
sem kunna að meta fallegt útlit vel snyrtrar konu.
INNOXA
Eykur yndisþokkann.
og Woodspring hafði lagt hana
til hiiðar og skilað henni til
Símonar seinna.
Loksins voru einkaskjöl
Woodsprings rannsökuð og
komu þá fram uppdrættir af því,
sem skrifað var framan við
biblíuna.
Réttarhöldin stóðu í tvo daga.
Frægur lögfræðingur hafði
verið fenginn til að verja málið
og hann véfengdi hvert
smáatriði hjá saksóknaranum.
Eftir að dómarinn hafði gefið
hlutlaust yfirlit, dró kviðdóm-
urinn sig í hlé. Það var komið
langt fram á kvöld, síðari dag-
inn, þegar kviðdómendur komu
aftur. Woodspring greip báðum
höndum um dómgrindurnar og
heyrði formann kviðdómsins
segja orðið: „Sekur“.
Er hann var spurður, hvort
hann hefði nokkur andmæli að
flytja hristi hann aðeins höfuðið
máttleysislega.
Templeeombe hafði reynzt
sannspár. Farningcoteeignin
var seld, og salan nægði rétt
til þess að losa skuldirnar. Fjár-
sjóðurinn, sem nam rúmiega tólf
þúsund gíneum í gulli, skiptist
að lokum jafnt milli Arhurs
Blackbrook og systur hans.
Joyce keypti af sínum hluta lif-
eyri handa Horning og konu
hans. En þrátt fyrir ailar áskor-
anir bröður síns neitaði hún að
að flytjast á heimili hans.
Hún sagSi úpp við leigubóka-
safnið, seldi húsið sitt í Lyden-
bridge, og hvarf á brott svo að
lítið bar á, og enginn nema
Jimmy vissi, hvert hún fór.
Hanslet var að vonum hreyk-
inn af frammistöðu skjól-
stæðings síns. — Þú hefur stað-
ið þig vel í þessu Lydenbridge-
máli, drengur minn, sagði hann
vingjarnlega, daginn, sem réttar
höldunum lauk.
En Jimmy hristi höfuðið. —ég
er nú hræddur um, að það sé
ekki mér að þakka, sagði hann.
— Þetta hefði allt farið. í hund-
ana, hefði ekki prófessorinn
verið.
(Sögulok).
AKRAIAKRA
á brauð | á brauð
Hriitui-tnn, 21. marz — 19. apríl,
l»ú færð ófullkonmar fréttir.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Þér er óhætt að hafa þolinniæði með því, sem annað fólk segir.
Tvíbnrarnir, 21. niaí — 20. júni.
Sérfróður maður getur hjálpað þér í vcrkefnum þínum. Þú
færð uppórvun að vanda
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Það er óráð að gizka á lausnina í stað þess að kanna rnálin.
Ljónið, 23. júli — 22. ágúst.
Dagurinn gcngur eins vel, og þú sjáifur vilt.
Mc.vjan, 23. ágúst — 22. septeniber.
Nú reynlr á, hve viturlega þú hefur safnað að þér.
Vogin, 23. september — 22. októbec.
smáatriðin geta orðið þér þrándur í götu, cf þú lætur þau ráða.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Þú frelstast til að taka þér fleiri skyldur á herðar.
Kogniaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Þú ræður ekki við allt í augnablikinu, og bíður þvl áiekta.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Iteyndu að taka sönsum, þótt það kosti meira.
Vatnsherinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Ekki vantar fjölbreytnina í kringum þig,
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Þú færð aðgang að annarra auði.