Morgunblaðið - 08.06.1971, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.06.1971, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNl 1971 7 í Stofnaði til Islandsf erðar fyrir hóp Bandaríkjamanna Það þykir ekki S frásö;?n færandi þótt 45 Ameríkanar kumi í heimsókn til Islands, en hitt má teljast til tíðinda að islenzk kona, búsett í Bandaríkjunum, varð til þess að vekja áhuga þeirra á fs- landi og skipulag'ði ferðina liing-að. Kona þessi heitir Ingra Jónasdóttir Georieres og: nú búsett í New Yersey, en amerisku ferðalangarnir eru einnig- þaðan. — Ég bý á stóru dvalar- heimili fyrir aldrað fólk í New Yersey. 1 samkomusal hússins eru oft haldnar kvöldvökur og á nokkrum slikum kvöldvökum sagði ég frá Islandi og sýndi kvik- myndir þaðan, sagði Inga í viðtali við Morgunblaðið. — Áður en ég vissi af var stór hópur vistmanna orðinn ákveðinn i þvl að fara til ís- lands. Ég tók niður nöfn þeirra og hafði þvi næst sam- band við skrifstofuna Best Way Travel í New York og þeir gengu endanlega frá okkar málum. — Auk þess að sýna Islandsmyndir í dval- arheimiiinu sýndi ég þær í safnaðarheimili í nágrenninu og voru einnig þó nokkir þar sem fengu áhuga á málinu og slógust í förina. Ferðin hingað tii ísland hef- ur verið mjög ánægjuieg og hópurinn var alveg í sjöunda himni með ferðalagið, svo ég gæti vel ímyndað mér að framhald yrði á ferðum sem þessari því þegar hópurinn kemur heim eftir þessa vel heppnuðu ferð kveikir það í þeim sem heima sátu í þetta skiptið. Ameríkanarnir dvöldu hér í tæpa viku, en sjálf verður Inga hér i hálfan mánuð í við bót og ætlar hún að nota tím ann til þess að heimsœkja ætt ingja og vini. Inga Jónasdótt- Inga Jónsisdóttir Georgos og sonur hemnar Hubert Georges, som oiiuiiig var með í föriiuu til íslaiiids. (Ljósm. Kr. Bein). ir Georges er fædd og uppal- in í Reykjavík og er dóttir hjónanna Jónasar H. Jónsson ar fasteignasala og Sigurlaug ar Indriðadóttur. Inga var tvítug þegar hún fluttist vest ur og bjó hún lengst af í New York. Inga á tvo upp- komna syni, sem eru búsettir í New Jersey og fluttist hún einnig þangað fyrir nokkrum árum. Sagði Inga að ef það væri ekki fyrir synina og barnabörnin sín í Bandaríkj- unum þá mundi hún flytja fyrir fullt og allt heim til Is lands strax á morgun. Loks sagði Inga Jónasdóttir Georg es að hún vonaðist til að hún kæmi fljótlega aftur til Islands með nýjan hóp áhuga samra Bandáríkjamanna. VÍSUKORN Stjarfur hugur, stirð mín önd, stýra ekki hratt þér hönd, penninn hægt um pappír líður, próförk veit hvað hennar bíður. H.V. FRÉTTIR Hraunprýðiskonur För til Akureyrar 18. júní. Upplýsingar í sima 50290, Rann- veig og 50231, Guðrún. Ferðanefndin. Sumarskóli Guðspekifélagsins að Jaðri tilkynmir þátttakendum: Lagt verður af stað frá húsi félags- ins Ingólfsstræti 22 á miðviku- dagsmorgun kl. 11 stundvíslega. Ný rakarastofa Jörundur Sigurðsson, rakari opnaði á laugardaginn var, nýja rak- arastoí'u að Grensásvegi 50 hér í bæ. Hann hefur undanfarið liálft ár starfað á Rakarastofu Austurbæjar, en fyrir þann tíma starfaði hann í þrjú ár í Svíþjóð. Hann mun annast allar herra- og dömu- og barnakiippingar. 16 FETA VATNÁBATUB BROTAMÁLMUR með vagna og 16 hestafla utanborðsmótor til sölu. Sögin hf, sími 22184. Kaupi allan brotamálm lang- hæsta verði, staðgreiðsla. Nóatún 27, sími 2-58-91. HJÓN MEÐ ÞRJÚ BÖRN LlTIÐ HÚS óska eftir þriggja herbergja íbúð, helzt í Kópavogi. Slmi 41006. til sölu í Hveragerði, stór lóð. Upplýsingar í síma 43011 og 30943. KLÆÐI OG GERI VIÐ bólstruð húsgögn. Húsgagnabólstrunin, Garða- stræti 16. — Agnar Ivars. Heimasími í hádeginu og á kvöldin 14213. 8—22 FARÞEGA BIFREIÐIR Tökum að okkur fólksflutn- inga innanbæjar og utan, svo sem: Vinnuflokka, hljómsveit- ir, hópferðir. Ferðabílar hf., slmi 81260. INNRÉTTINGAR Vanti yður vandaðar innrétt- ingar í hýbýfi yðar, þá leitið fyrst tilboða hjá okkur. — Trésm. Kvistur, Súðavogi 42, simar 33177 og 36699. HÚSMÆÐUR Stórkostleg lækkun á stykkja þvotti 30 stk. á 300 kr. Þvoft ur sem kemur í dag, tilbúinn á morgun. Þvottahúsið Eimir, Síðumúla 12, sími 31460. HÚSRÁÐENDUR Það er hjá okkur, sem þið getið fengið upplýsingar um væntanlega leigjendur yðar að kostnaðarlausu. — Ibúða- leigumiðstöðin, Hverfisgötu 40 B, sími 10099. GALLABUXUR 13. oz nr. 4—6, 220,00 kr. nr. 8—10, 230,00 kr. nr. 12—14, 240,00 kr. Fullorðinsstærðir 350,00 kr. LITLI SKÓGUR Snorrabraut 22, sími 25644. SKILVlS Litla stúlkan, sem tók rautt og hvítt þríhjól inn í innri gangi að Njarðargötu 61 sl. föstudag, er vinsamlegast beðin að skila því aftur á sama stað. BlLAÚTVÖRP Eigum fyrirliggjandi Philips og Blaupunt bílaviðtæki, 11 gerðir í allar bifreiðar. önn- umst ísetningar Radíóþjón- usta Bjarna, Siðumúla 17, sími 83433. Skoda 1000 MB mjög vel með farinn til sýnis og sölu. HAFRAFELL H/F., Grettisgötu 21. Hef opnað hárgreiðslustofu að Dunhaga 23. STEIiLA MARÍA Sími 12556. H afnarfjörður Til sölu á góðum útsýnisstað við Hverfisgötu stór 3ja herb. nýleg efsta hæð í timburhúsi. Ibúðin er í góðu ástandi, með sérhita og sérinngangi. ÁRNI GUNNLAUGSSON hrl. Austurgötu 10, Hafnarfirði. Sími 50764. HUNDRAÐ KRÓNUR Á MÁNUDI Fyrir tlTT HUNDRAÐ KRÓNUR á mánuii seljum vrð RITSAFN JÚNS TRAUSTA 8 bindi í svörtu skinnlíki Við undirskrift samnings greiðir kaupandi 1000 krónur. SÍÐAN 100 KRÓNUR Á MÁNUÐI. Bókaútgáfa GUÐJÓNSÓ Hallveigarstíg 6a — Sími 15434

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.