Morgunblaðið - 08.06.1971, Blaðsíða 10
10
MORGUNRLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNl 1971
ÁNÆGJU-
LEGUR SJÓ-
MANNADAG-
UR I NAUT-
HÓLSVÍK
Skútur slglingaklúbbanna í Nauthólsvík.
SJÓMANNADAGURINN var
haldinn hátíðlegur í Reykjavik
og fór hið bezta fram í Nauthóls
vík að viðstöddu fjölmenni. Er
fyrirhugað að halda hátíðina
þar frajnvegis, e(n þó varð tölu-
verð umferðartruflun, vegna gíf-
urlegrar umferðar í Nauthólsvík
og sagði Guðmundur Hallvarðs-
son, framkvæmdastjóri Sjó-
mannadagsráðs að leysa þyrfti
umferðarvandamálið fyrir næstu
hátið.
Hátíðahöldin hófust með því
að sjómannamessa var sungin í
Dómkirkjunni kl. 11, þar sem
biskup íslands herra Sigurbjöm
Eilnarsson minmtist drukknaðra
sjómanna. Dómkórinn söng, ein-
söngvari og organisti voru Guð-
mundur Jónsson og Ragnar
Bjömsson. Viðstaddir messuna
voru forsetahjónin, herra Krist-
ján Eldjám og frú Halldóra Eld-
jám, forsætisráðherra, Jóhann
Hafstein og borgarstjórinn i
Reykjavík, Geir Hallgrímsson.
í Nauthólsvík hófust hátíða-
höldin kl. 13.30 með því að
Lúðrasveit Reykjavíkur lék sjó-
manna- og ættjarðarlög undir
stjórn Páls P. Pálssonar og fána-
borg var mynduð með sjómanna-
fánum og íslenzkum fánum. Þá
flutti fulltrúi ríkisstjórnarinnar,
Eggert G. Þorsteinsson ávarp og
síðan fulltrúi útgerðarmanna,
Guðmundur Jörundsson, fulltrúi
sjómanna Helgi Hallvarðsson og
loks afhenti Pétur Sigurðsson,
fonnaður Sj ómaninadagsráðs
heiðursmerki sjómannadagsins.
Ávörp þremenninganna eru birt
á öðrum stað í Mbl. í dag.
Pétur Sigurðsson sæmdi eftir-
taida heiðursmerkjum sjó-
mannadagsins: Pétur Einarsson
háseta, heiðursmerki, silfurkross.
Pétur Einarsson var fjarstaddur,
skipverji á Reykjafossi og gat
því ekki tekið við heiðursmerk-
inu ajálfur; Þorvald Árnason,
skipstjóra á Ásþór, skipstjóra
og aflamann á Faxaflóasvæðinu
í yfir 30 ár og Axel Sigurðsson,
kokk á Gullfossi. Axel Var fjar-
staddur en við viðurkenning-
unni tók sonur hans. Síðast en
ekki sizt afhenti Pétur Sigurðs-
son Gróu Pétursdóttur gull-
kross dagsins og er hún þar með
fyrsta konan, sem hann hlýtur.
Gulikross sjómannadagsins hafa
félaga sínum, sem var meðvit-
undarlitill orðinn.
Hófust nú leikir í Nauthóls-
víkinni. Fyrst var kappróður og
varð fyrst sveit á Gísla J. John-
sen, sem hreppti lárviðarsveig-
inn, 7 gullpeninga og silfurbikar
að launum. Önnur var róðrar-
sveit frá Óskari Halldórssyni,
sem hreppti Morgunblaðsskjöid-
Ifcilliilllll!
: -
bát, sem búinn var tveimur 40
hestafla utanborðsvélum og
brunuðu þeir félagar fram og
aftur á Fossvoginum og fóru
m.a. inn á Nauthólsvíkina og
rétt smugu út fyrir nesið. Einn
þeirra lét svo þyrlu varnarliðs-
ins taka sig upp úr sjónum og
flytja inn á mitt hátíðasvæðið.
Vakti þessi „björgun“ óskipta
Mannfjöldinn í Nauthólsvík
Ljósm. Sv. Þorm.
athygli fólks einkum hinna
yngri. Þá má og geta þess að
um það bil er kappróður hófst
kom þyrla Landhelgisgæzlunnar
og flaug yfir hátíðasvæðið,
stanzaði í loftinu og hækkaði
og lækkaði til skiptis. Þó fór
þyrlan að bryiggjuendanum i vílk
inni og tók þar dúkku, sem sat
þar í björgunarstól, flaug með
hana yfir svæðið, en skilaði
henni siðan til sama lands aft-
Margt var fleira til skemmt-
unar — kaffi og gossala var á
svæðinu og bíll, sem eininig er
bátur sýndi listir sínar með því
að aka ýmist eða sigla um vik-
ina. Þá má loks ekki gleyma
svokölluðum koddaslag. Slá var
sett upp við bryggjuna og fóru
bræður tveir út á slána og
reyndu með því að berja hvor
annan með koddum að hrinda
hvor öðrum í sjóinm. Lyktaði
þeirri viðureign eins og efni
stóðu til — með bræðrabyltu,
báðir höfnuðu í sjónum.
Á sjómannadagskvöld voru
haldnar skemmtanir í samkomu-
húsum borgarinnar, m.a. ungl-
ingadansleikur í Tónabæ frá kl.
20 til 24. Alls staðar fóru
skemmtanir þessar hið bezta
fram.
aðeins 5 aðrir aðiiar hlotið.
Þegar hér var komið sögu var
komið að afreksverðlaunum fyr
ir vasklega björgun úr sjávar-
háska á árinu. Verðlaunin hlaut
tæplega tvítugur piltur úr Gaul-
verjabæjiarhreppi, Beneditot
Benediktsson frá Tungu, háseti
á Fjalar frá Eyrarbakka, en þá
háseti á Kristjáni Guðmunds-
syni frá sama stað. Benedikt
bjargaði skipsfélaga aínum,
Skúla Hartmannsayni, er féll út-
byrðis og var hætt kominin við
netalagningu í Eyrarbakkabugt
10. marz síðastliðinn. Varpaði
Benedikt sér í sjóirun og barg
Morgunbiaðsskjöldurinn afhentur.
inn, en þetta var eina skápið i riðl
inurn sem hafði stærð til að
hljóta hann. Númer þrjú var svo
róðrarsveit frá vélbátnum Vali.
í riðli númer 2 keppti kvenna
sveit ísbjarmarins og sjóskátar
og í riðli 3 Sjóvinmuskólimn og
róðrarsveit íþróttafélags Eim-
skips. Sjóskátar uimnu silfurbik-
ar, sem Sjómannafélag Reýkja-
víkur gaf í róðrarkeppni ungl-
inga og hlutu þeir ennfremur 7
gullpeninga. Sjóvinmuskólinn
hlaut 7 silfurpeninga. Róðrar-
sveit Eimskips hiauit 7 guillpen-
inga, en Sjóvinnuskólinn 7 silf-
urpeninga. f riðli 3 var enginn
bikar að verðlaunum, þar sem
enn hefur ekki verið aflað bik-
ars fyrir keppni landróðrarfólks.
Þá var efnt til kappsiglingar
á seglbátum, en það var aðieins
óformleg keppnd vegna mismun-
andi eiginleika bátanna, sem í
mörgu voru ekki sambærilegir.
Þátt tóku siglingaklúbbar æsku
lýðsráða Reykjavíkur og Kópa-
vogs, svo og siglingaklúbbamir
Brokey og Ýmir, en það eru
eldri deildir, þ.e.a.s. þeirra, sem
eldri eru en 16 ára.
í björgunarsundi sigraði Þor-
steinn Geirharðsson og annar
varð Magnús Albertsson. f sfakka
sundi varð fyrstur Ragnar
Jónsson og annar einmig Magnús
Albertsson, sem þátt tók í báðum
sundunum.
Þá hófst sjóskíðasýning, sem
vakti óskipta aðdáun áhorfenda.
Sex féiagar úr björgunarsveit
Slysavarnafélagsina í Vík í Mýr-
dial höfðu þeir meðferðis hrað-
iH i
Lyktir koddaslagsins
Þátttakdndur í HtakkasundL