Morgunblaðið - 08.06.1971, Side 8
8
MORGUNBLA.EHÐ, MUÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 19T1
: '' \
W-y-y-^-ý.
____ >____
'mrt.
GæzluvöUuritm í plássiau.
Patreksf j örður:
Hér býr dugmikið
og vinnusamt fólk
— rætt við Ólaf Guðbjartsson oddvita
ÞAÐ er hreinssta ánægja aS
hetmisæ’kja ýmsa staði á Ve»t-
fjörðum um þessar mundir.
Þar er atvinnulíf í hámarki
og enginm baTlámstóna í
möimum. Patreksfjórður er
engun undantekning, þar hef-
ur verið uppgangur hin síð-
ari ár og afkoma íbúa með
bezta móti. Þar hefur, eins og
víða aimars staðar verið
skeggrætt um skuttogara-
kaup, framikvæmdir í pláas-
imi eru margþættar og brydd
að er upp á þeirri riýjung að
halda þar í sumar sjóvœr.u-
námiskeið fyrir unglinga 12—
16 ára. Þetta og fleira kom
íram í samtali, sem biaða-
maður Morgunhlaðsiins átti
við Ólaf Guðbjartsson, odd-
vita Patreksfj arðarhrepps ný-
verið.
— Ekki er arunað hægt að
segja en afkoma manna hafi
verið góð. Á árunum 1967—
68 lenti Patreksfjörður í nokk
urri lægð, eins og fjötaiiörg
byggðarlög ötunur, sem byggja
afkomu sína á sjávarútvegi.
Eiins og alkunna er skapaðiat
það ástand fyrst og fremst
vegna verðhruns á sjávaraf-
urðum á erlendum mörkuð-
um. Frystihúsið hér lenti þá
í greiðsluörðugieikum, en hag
þess tókst að rétta við. Nú eru
starfraekt hér tvö frystihÚA
Hraðfryatihúsið Skjöldur og
Hraðfrystihús Patreksfjarðar,
og reka baeði útgerð líka.
Gerðir eru út sex bátar, 100
torrn og stærri, eirtn þeirra
leggur lítið upp hér og er
aðallega við síld- og loðou-
veiðar. Hinir landa hér og út-
vega húsunum mikið hráefni.
Þá eru albmargir amaerri bát-
ar á handfærum og dragnól
og eru þessir bátar aðalhri-
efnisgjafi f rystihúsarma á
sumrin.
— Hefur, verið rastt uin
skuttogarakaup ?
— Já, því er ekki að leyna
að áhugi er á því að kaupa
500—600 tonna sfkuttogara, en
slikar bollaleggiingar eru að-
eins á umiræðustigi. Þau kaup
verða að líkimdum gerð í fé-
lagsdkap við frystihúsið á
Tálknafirði. Þá er og unnið
að samningum á 250 torma
togskipi og verður okkur ir.ik
ils virði að fá það hingað.
Vertíðin í vetur var nokkuð
góð, miðað við aðra lands-
hluta að minnsta kosti. Vinna
var þvi -næg í vetur. Svo
koma árstímaT á Patreksf jrði,
sem annars staðar, að dauf-
ara er yfir og stundum hefur
verið erfítt að brúa það bil
fyrir verkafólkið í frystihúa-
m
Óiafur Guðbjartsson.
uiuirn. En með tilkomu nýja
skipains, sem að ofan var
nefnt, ætti að verða hægara
um vik.
íbúðabyggingar hafa ekki
verið ýkj a miklar, en nú er
að komast hreyfing á þær að
nýju. Hreppurinn hefur unn-
ið að því að undirbúa bygg-
ingu fjölbýiishúss með tólf
íbúðum. Vonir standa til að
tilskiiin leyfi fáist það tíman-
lega að hægt verði að byrja
nú í sumar. Þá er 1 bígerð,
að sögn oddvita, að hefja
framkvæmdir að nýju við fé-
lagsheimilið; grunnurinn að
ixjfckrum hluta hússins hefur
löngu verið steyptur og er
búizt við að sá hluti, sem
nú verður unnið að, kosti full-
gerður um eða yfir 20 miiljón
ir króna. Nefna má og að
Patreksfjörður er að fá nýja
slöklkvíbifreið; sú sem fyr-
ir er þykir ekki fullnægjandi
lengur. Tveir menn úr pláss-
inu sóttu slökkvistjóranám-
skeið, sem var haldið í Reykja
vik í vor.
Um skólamál staðarins
sagði Ólafur m. a.:
— Bam'askólahúsið okkar er
myndarleg bygging, en sá
hængur er á, að gagnfræða-
deildimar þrjár hafa fengið
þar inni og því er orðið
þröngt á þingi. Sótt hefur
verið um leyfi tií að reisa
gagnfræðaskóla og nokkur
upphæð hefur verið veitt á
fjáirlögum í þvi skyni. Við
bamiaskólahúsið er leikfimi-
hús og sundlaug er á Vatn-
eyrinni. Ef ráðizt verður í að
byggja gagnfræðaskóla yrði
ugglaust einnig stefnt að því
að koma upp nýju iþróttahúsi
og surwHaug.
Á Patreksfirði er ein hezta
höfn hérlendis. Hún var
byggð i>nn í landíð, þar sem
áður var tjöm. Þetta fyrir-
tæki var umdeilt á sínum
tíma, en nú eru víst flestir
aammála um, að vel hafi tek-
izt til. Víðlegupláss staerri
báta er gott, en vantar rými
fyrir smærri bátana. Remman
er mjög djúp og þama geta
lagzt að bryggju skip af öll-
um stserðum, hvort sem það
eru fiiskiskip eða flutniniga-
slkip — þ. e. þá sjaldan þau
koma.
Samgöngur Patrek'sfjarðar-
hrepps hafa aðallega byggzt
á ílugi. Leiðinni til vallarins
er haldið opinni yfir veturinm
og stefmt er að því að gera
betra húsnæði fyrir farþega,
en það er mjög ófullkoimflð.
Sömuleiðis á að bæta öryggis
þjónustu þar. Nú er raf-
m.agnslaust á vellinum, en
strengur verður lagður yfir
fjörðinin, Umferð um
flugvöllinn er mikil, flog-
ið er þrisvar í viku og um
völliinn fara einnig farþegar
— og varningur — til Tálkna-
fjarðar og Bíldudals. Vöru-
flutniingarndr hafa aukizt stór
lega, þar sem slíkir flutning-
ar á sjó eru stopulir. fbúarn-
ir á PatreksfÍTði kvarta und-
an því að sjaldan standist aug
lýstar áætlanir, iðulega eru
þær felldar niður á síðustu
stundu og ekki er það óþekkt
fyrirbrigði, að vamingurinn
verði eftir í Reykjavík.
Fyrir nokkrum áruim var
lítillega byrjað á varanlegri
gatnagerð í plássínu og steypt
ur hluti af Aðalstrætí. Ekki
hefur þetta þó reynzt eirus vel
og Skyldi og nú ér verið að
skipuleggj a Aðalstrætið altt
með það fyrir augum að
byggja það síðan upp með mal
biki eða steypu. Þá verður í
sumar unnið að lagningu nýs
holræsakerfis í Aðalstræli. Þá
má geta þess að fyrir fáein-
um árum var lögð ný vatns-
veita og reyndist vatnið
prýðilega, en var ekki nóg.
Því varð að nota vatnið úr
gömlu veitunni líka. Nú eru
á döfinni framikvæmdir, sem
ættu að stuðla að því að nægi
legt vatn fengist úr nýju veit-
unni fyrir haustið,
Síðast en ekki sízt, sagði
Ólafur frá mjög athyglisverðu
framtaki hreppsinis í sam-
bandi við vin.nu barna og
ungli.nga í sumar. Sjóvinnu-
námskeið verður haldið fyrfar
unglinga 12—16 ára. Þar verð
ur kennt allt sem að sjósókn
lýtur. Báturinn Vestri verður
notaður til ferð>a með ung-
mennin og Jón Magnússon
verður skipstjóri og leiðbeiin-
andi. I landi anraasl þeÍT leið-
sögn og fræðslu bræðurnir
Gísli og Bergistekiin Snæ-
björnissynir. Þetta er reynt í
fýrsta skipti og sagði Ólafur,
að menn væntu þess að það
yrði til að efla áhuga ung-
menina á sjónum. Ekki rná
gleyma að skólagarðar verða
starfræktir fyrir 10—12 á.ra
börn. Fimrn þúsund fermetria
landrými hefur verið tekið
undir garðana og var verið að
girða og hreirasa landið um
þær sömu mundir og þetta
samtal fór fram. Aðalleið-
beiniandi verður þar Leifur
Bjarnason, starfsmaður
hreppsins, og treyst er á að-
stoð fleiri aðila, Auk þess
verða svo nokkrir ungliragar
teknir í viminu til hreirasuruar
og fegrunar á bænu.m, eins og
venja hefur verið.
— Ég lít vissulega bjÖTtum
augum til framitiðariraraaT,
sagði Ólafur að lokum. —
Full ástæða er til að ætla aS
hér verði áfram blómlegt at-
viraraulíf og fólkinu fjölgi.
Fyrir er dugmifcið og virarau-
sairrat fólk, sem getur haft
sambærilegar tekjur við það
sem gerist hvar sem er aram-
ars staðar á lamdirau.