Morgunblaðið - 08.06.1971, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNl 1971
21
Síldar- og- fiskimjölsverksmiðjan á Akranesi.
Aðstaða okkar til vinnu-
hagræðingar er góð —
— segir Júlíus Þórðarson á Akranesi
Mikil vinna í
Síldar- og* fiskimjölsverk-
smiðjvinni á Akranesi
Valdimar Indriðason bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, framkv.
stjóri Síldarverksmiðjunnar og Heimaskaga h.f. og Jón Sig-
mundsson, forstjóri Brunabótafélags íslands á Akranesi, elzti
starfsmaöur (skrifstofustjóri) Síldarverksmiðjunnar.
SÍLDAR- og fiskimjölsverk-
smiðja Akraness er starfrækt
með togara- og vélbátaútgerð,
segir Júlíus Þórðarson, Akra-
nesi. Einnig er vélsmiðja starf-
rækt í sambandi við útgerðina. í
heild starfa á þriðja hundrað
manns þarna þegar flest er og
er þá unnið i ftystihúsi Heima-
skaga h. f. lika. Einn tog
ari, Víkingur, sem er afla-
hæsta skipið í flotanúm er eign
fyrirtækisins, og hefur sú út-
gerð gengið mjög vel. Hans Sig-
urjónsson. er skipstjóri á togar-
anum. Við erum nýbúnir að
kaujia Gróttu, um 200 tonna
skip, frá Reykjavík, og hefur
hún verið á nétum í vetur. Fram
hefur verið á línu í vetur og er
núna að fara á troll, og Ásmund
ur, sem hefur verið á línuveið-
um tiiun. fara á humarveiðar.
Við erum venjulega með einn
togara, tvo togbáta og einn hum-
arbát. Trillubátar leggja upp hjá
okkur líka.
Ui i áramótin keypti félagið
helnt i>g hlutabréfanna í Heima-
skag.t h.f. og hefur siðan séð um
rekslur hans.
Togarinn hafði í haust sl. ver
ið gerður út samtais í 10 ár. Á
þeim tima hefur skipið farið
samtals 132 veiðiferðir til tog-
veiða, afiað 31.197 tonn og 735
kg af bolfiski og 1.385 tonn af
síld. Brúttótekjur af sölum þess
um hafa verið 230 milljónir kr.
rúmar. Auk þess hefur verið
keypt síld og seld erlendis fyrir
2,5 milljónir. Skipið hefur alls
selt í Þýzkalandi 59 sinnum fyr-
ir samtals DM 8.207.000 eða um
200 milljónir skv. núv. gengi,
en í Englandi hefur það selt 20
sinnum fyrir £ 285.500 eða um
60 milljónir, skv. núv. gengi.
Heima hefur verið landað 54
sinnum fyrir um 110 milljónir
(ef reiknað er á núv. meðal-
verði. Mun því skipið vera búið
að selja afla erlendis fyrir um
360 milljónir kr. samkv. núver
andi verðlagi.
Árið 1969 tókst togaranum að
bjarga þýzkum skuttogara, Hus-
um, við Grænland. og voru út-
gerðinni dæmdar 8 milljónir ltr.
í björgunarlaun. Auk þess hlaut
skipshöfnin 4 millj. en af þeim
fékk skipstjórinn helminginn.
kr. í Þýzkalandi hafði verið
iandið 6 sinnum fyrir nálega 30
milljónir króna. Er þetta var,
var reiknað með því að skipið
gæti selt tvisvar sinnum til við
bótar erlendis.
Fiskverð var allmiklu hærra í
Þýzltalandi en á fyrri árum, eða
kr. 19,90 á kg. á móti 15,85 og
10,80 tvö fyrri árin. Meðalverð
í Englandi var kr. 23,30 á kg.
Veiðisvæði skipsins var aðal
lega heimamiðin. Meðalaflamagn
á árinu 1970 var 270 tonn í
veiðiferð á móti 250 tonnum
1969.
Vel hefur gengið með síldar-
verksmiðjuna og tók hún á móti
12 þúsund lestum af loðnu á
sl. vertíð. Allar þrær verk-
smiðjunnar fylltust og að auki
var. sett í gryfju, sem er
fyrir ofan Akranes, fyrir
neðan Berjadalsá. Það var prýð-
isþró. Þróanými var þá um 4000
lestir þarna upp frá og um 2500
hér niður frá. Við höfum enga
tanka og höfum ekkert rætt um
að fá þá. Soökjarnatæki eru
hér komin fyrir löngu og hafa
gefið góða raun. Auk þess sporn
ar það við mengun, það fer
ekki út í sjó, sem áður hafnaði
þar. Við vinnum beinin fyrir
alla útgerð á Akranesi.
Upprunalega var verksmiðjan
hlutafélagið Mjöl og Lýsi, sem
útgerðarmenn áttu og stofn-
að var 1937. Því var breytt og
hyggð stærri verksmiðja og
hlutaféð aukið með framlögum
frá bænum og mörgum einstakl
ingum og eins frá Shell og BP.
Er þetta eina almenningshlutafé
lagið sem starfrækt hefur verið
í yfir 30 ár á Akranesi.
Afkastageta síldarverksmiðj-
unnar er 360—380 tonn af loðnu
á dag. Geymslurými i þróm er
3000 tonn og inni í holti 6—7000
tonn.
Vélakostur er ágætur. Togai'
ar og vélbátar aðrir en okkar
eigin koma einnig og leggja
upp hjá okkur afla. f frystihús-
inu hjá okkur hafa mest starfað
140 manns. Komið hefur til tals
að kaupa skuttogara, en óákveð
ið enn. Við höfum fengið tilboð
frá Þýzkaiandi í 5—6000 tonna
skip og almennur áhugi er fyrir
því.
Ætlunin er í framtíðinni, að
endurbæta og endurnýja véla-
kost og frystihús og breyta öllu
í samræmi við gæðamatskröfur
Bandarikjamanna, sem eru harð
ar.
Afkastageta hjá okkur var til
skamms tima 20 tonn af flök
um i 7 lbs. umbúöum og 15
tonn i 5 lbs. umbúðum á 16 klst.
Geymslurými er fyrir 40 þús.
kassa af frystum flökum, 3000
tunnar af beitusíld og 20 tonn
af frystu kjöti.
Þetta hefur verið svona um
árabil óbreytt. Aftur á móti höf
um við nýlega keypt karfaflök
unarvél til að vinna karfann,
sem við áttum í erfiðleikum
með áður.
Beituslldina frystum við ein-
göngu til afnota fyrir bátana,
ekkert þar fram yfir. Loðnan
fór mest í bræðslu en einnig
var fryst hjá H. B. & Co fyrir
Japani. Við höfum talað um að
byggja við frystihúsið til að
bæta aðstöðu fyrir togarann.
Aðstaða til aukinnar vinnuhag,
ræðingai' er fyrir hendi í frysti-
húsi okkar, en nýjar vélar höf
um við ekki sett upp, eða færi
bönd, en það stendur til á át'-
inu.
Litið hefur borið á kvörtunum
erlendis frá um skemmdir, orma
eða bein, þó að við höfum að
sjálfsögðu ekki algerlega slopp-
ið fremur en aðrir.
Það aí fiskinum sem ekki hef-
ur verið saltað eða flakað hefur
fárið í skreið, svo sem öll keila
og smáfiskur. í vetur höfum
við saltað á 2. hundrað tonn, en
lítið eða ekkert i fyrra. Þessi
framleiðsla liggur hér ennþá og
er óseld en gott er að losna við
hana og þýðingarmikið að losna
við hana sem fyrst. Markaður
er líka opinn og eftirspurn góð.
— M. Thors.
Togarinn Vikingur landaði ár j Er aðalfundur var haldinn sl.
ið 1070 4340 tonnum. Brúttóafla! haust hafði togarinn þegar far-
verði.-æti var 57,7 milljónir kr. ið 15 veiðiferðir, og landað
Hann landað; 9 sinnum erlendis, heima 8 sinnum fyrir um 16,5
í Þýzkaland og Bretlar.di og milljónir króna, og einu sinni í
átta sinnum heima. 1 Englandi fyrir rúmlega 4,5 millj.
Július Þórðarson, framkvænidastjóri á Akranesi vi'ð loðnuþróiia.
Klœðskeri
ÓSKUM AÐ RÁÐA KLÆÐSKERA
UPPLÝSINGAR AÐ LAUGAVEGI 39.
ANDERSEN & LAUTH H/F.
Glnggotjoldastongii
. ...r
J. Þorláksson & Norðmann M.