Morgunblaðið - 20.06.1971, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚNl 1971
NÆR 06 FJÆR
D
IíAMR OG SVÍAK
DANIR og Svíar heyja hina ár-
legTi viðureign sína i knatt-
spymu í dag, og hefiur þess
arar viðureignar verið beðiðmeð
miidlli eftirvæntingu á Norður-
löndum. Landsieikurinn verður
leikinn á Idrætsparken i Kaup-
mannahöfn að viðstöddum 50.000
áhorfendum og er löngu uppselt
á leikinn. Danir binda miklar
vonir við iandslið sitt, enda er
það nú að mestu skipað atvinnu
mönnum, og segja má að það
hafi verið sameiginlegur draum-
ur dönsku þjóðarinnar um langt
skeið að knésetja Svía í knatt-
spyrnu.
Árangur danska landsliðsins
hefur tekið miikilli breytingu,
síðan danska knattspymusam-
baindið ákvað að kalla danska
aitviinnumenn heim til lands-
ileikja. Liðið hefur nú leikið þrjá
iaindsleiki með stuttu miIJibiii.
Fyrsti leikurinn var háður í
Lissabon og unnu Portúgalar
með 5:0, næsti leikur var gegn
Beigum í Kaupmannahöfn og
töpuðu Danir 1:2 og siðasti leik-
ur iiðsins var á dögunum gegn
Skotum og unnu Danir þá sinn
fynsta landsleik um langt skeið
með einu marki.
Danska landsliðið verður þann
ig skipað í dag.
Markvörður Erik Lykke Sör-
ensen (Morton Skotlandi), bak-
verðir Torben Nielsen (B-1903),
Mdgens Berg (B-1909, áður Dund
ee Utd.), Preben Arentoft (New
eastie), Jörgen Rasmussen (Rand
ers Freja).
TengUiðir Kresten Bjerre (Rac
ing White, Belgiu), Ole Bjöme-
mose (Werder Bremen, Þýzka-
tandi), Finn Laudrup (Brönshöj,
áður Austria Wien og Ajax).
Framherjar Jörgen Christen-
sen (Sparta Rotterdam), Keld
Pedersen (Köge, áður Groning-
en Hollandi), Ulrik ie Fevre
(Borussda Mönchen—Gladbach).
Varamenn Ndels Hagenau (K.
B.), FHemming Pedersen (K.B.),
Ame Toft (Álborg), Birger Pet-
ersen (Hvidovre), Ofle Forsing
(B-1903).
Sviar hafa vailið hóp 16 leik-
manna, sem landsiiðið verður
siðan valið úr, og er hann þann-
ig skipaður:
Mairkverðir Ronnie Hellström
(Hammarby og Sven Gunnar
Larsson (Örebro).
Bakverðir Hans Selander (Sir-
ius), Rofland Grip (Sirius),
Ghrister Hult (Norrköping),
Bjöm Nordqvfet (Nörrköping),
Krister Krfetensson (Malmö) og
Kurt Axeflsson (Brygge).
Tengiliðir Bo Larsson (Malmö),
Tommy Svensson (öster) og Jan
Olsson (Gais).
Framherjar Ove Eklund (Átv-
idaberg), Ove Grahn (Grasshopp
ers), Ove Kindvall (Feijenoord),
Örjan Persson (Örgryte) og
Sven Lindman (Djurg&rden).
R.L.
70,09 METRAR 1
SLEGGJUKASTI
Á móti í Bandaríkjunum fyr-
ir skömmu sigraði George Frenn
í sleggjukasti og kastaði 70,09 m.
Bill Skinner sigraði i spjótkasti
með 84,47 metra á sama móti og
Jeff Matthews í 3ja miina
hlaupi á 13:56,9 min.
TVÖ PÓLSK MET
Á frjáfeíþróttamóti er fram
fór í Gdansk voru sett tvö ný
pólsk met. Stanislaw Lubiejew-
ski kastaði sleggju 69,52 metra
og Ludwika Chewinska bætti
eigið met í kúluvarpi kvenna
um 9 cm er hún kastaði 17,58
metra. 1 kúluvarpi karla sigraði
Wladysla Komar sem kastaði
20,18 metra. Þrir pólskir hlaup-
arar hiupu 500 metra hlaup á
betri tima en hið óopinbera
Evrópumet í greininni er. Það
voru þeir Jan Werner 54,8 sek.,
Badenski 55,0 sek. og Jan Bala-
chowski 55,2 sek. Beztum tima i
þessu hlaupi hafði Fraikkinn
Jean Claude Naliet náð — 55,8
sek.
JESPER TÖRRING
7,80 METRAR
Á íþróttamóti í Danmörku
stökk Jesper Törring 7,89 metra
í langstökki, vel yfir danska
metinu, en afrekið fæst ekki stað
Jesper Törring — stökk 7,89 m
í meðvindi.
fest þar sem aðeins of mikill
meðvindur var er Törring
stökk. Hann náði hins vegar
tveimur löglegum stökkum 7,61
m og 7,45 m. Á sama móti hljóp
Törring 110 metra grindahlaup
á 14,2 sek., og stökk 14,21 metra
í þrístökki. Arne Jonsson sigr-
aði í 100 metra hlaupi á 10,7 sek.
og Jarl Fangel í 400 metra
hlaupi á 49JL sek.
FDÁ 17 TTTXTT TVTÓ'TTNJTT
Valbjörn sigraði öragglega i llO metra grindahlaupinu, en mótvindur kom í veg fyrir að góður
timi næðist. Valbjöm virðist nú vera í ágætri æfingu og líklegur til afreka í tugþraut í sumar.
TVÆR KONTJR
Hinn kunni sænski frjáls-
íþróttamaður, Kenneth Lund-
mark, hefur sezt að í borginni
Sait Lake City í Bandarikjunum,
en þar var hann við nám s.l.
vetur. Hefur hann tekið þar
mormónatrú og hyggst ganga að
eiga tvær konur í sumar. Ætlar
Lundmark að búa í Bandarikj-
unum áfram, en keppa fyrir
Svíþjóð. Hann hefur sett sér
það takmark að stökkva 2,30
metra í hástökki, og hefur æft
mjög dyggilega að undanfömu.
MÓT 1 DES MOINES
Á frjálsíþróttamóti í Des
Moines í Bandaríkjunum sigraði
Raimo Pihl frá Svíþjóð í spjót-
kasti, kastaði 77,80 metra. Landi
hans,Ulf Johansson, varð ann-
ar með 73,51. Á þessu móti sigr-
aði A1 Feuerbach í kúluvarpi
með 20,06 metra, Mike Bowers i
hástökki, stökk 2,14 metra og
Frank Shorter sigraði í 3 milna
hlaupi á 13:07,0 min.
LÁGMARKSKRÖFUR
FYRIR OL
Danir hafa þegar sett frjáls-
íþróttafólki sínu lágmarkskröf-
ur fyrir Olympiuleikana í
Múnchen 1972. Eru mörkin það
ströng að s.i. sumar náðu aðeins
fjögur þessum lágmörkum. Það
voru Tom B. Hansen I 1500
metra hlaupi 3:40,6 mín. (3:41,6),
Kaj Andersen í kringlukasti:
59,13 m (59,00) ,Steen Schmidt
Jensen í tugþraut: 7692 stig
(7600) og Birgitte Jennes í 800
metra hlaupi 2:05,0 min. (2:05,0).
KVALHEIM SIGRAÐI
Norski hlauparinn Ame Kval
heim, sem er við nám í Banda-
ríkjunum tók þátt í 5000 metra
h'laupi í Walnut í Kalifomíu og
sigraði á ágætum tíma 13:52,0
min. Sigraði hann m.a. I hlaupi
þekktan bandarískan hlaup-
ara George Young. Jay Silvest-
er sigraði í kringlukasti á móti
þessu, kastaði 67,16 metra, og
George Frenn sigraði í sleggju-
kasti, kastaði 69,46 metra.
Randy Matson sigraði í kúlu-
varpi, kastaði 20,66 metra, Lee
Evans sigraði í 400 metra hlaupi
á 46,6 sek., og Amie Robinson
sigraði í langstökki, stökk 8,14
metra.
MAO TIL DÝRÐAR
Mao tse-tung til dýrðar stökk
kinversk stúika, Wu fu-shan, að
nafni, 1,82 metra í hástökki og
setti þar með kinverskt met.
SILVESTER I FINNLANDI
Bandariski heimsmethafinn í
kringlukasti Jay Silvester hélt
til Finnlands eftir keppnina í
Sviþjóð og sigraði þar á alþjóð-
legu móti í grein sinni, kastaði
64,84 metra. Af öðrum afrekum
á móti þessu má nefna að Antti
Kalíliiomiki sigraði i stangar-
stökki, stökk 5,16 metna, og
Jorma Kinnunen í spjótkasti,
kastaði 78,98 metra.
86,98 METRAR I
SPJÓTKASTI
Hannu Siitonen sigraði í spjöt
kasti á íþróttamóti sem fram fór
i Lauritsala í Finnlandd og vann
glæsiiegt afrek, kastaði 86,98
metra. Átti hann annað kast sem
mældist 86,52 metrar. Á sama
móti sigraði Rauno Mattila í
5000 m hlaupi á 13:55,0 min., og
Ossi Karttunen í 200 metra
hlaupi á 21,9 sek.
ÞRIDJI BEZTI
Vladimir Ljachow, 33 áira
bamakennari i Moskvu, náði ný
lega þriðja bezta árangrinum
sem náðst hefur i heiminum í ár
í kringliukasti, er hann kastaði
63,50 metra á móti I Moskvu. Er
afrek hans jafnframt nýtt rúss-
neskt met, og er hann fyrstur
Rússa til þess að kasta yfir 63
metra.
KRÖFTUG DAMA
Faina Melnik setti nýlega rúss
neskt met í kringlukasti kvenna
á móti er fram fór i Riga. Kaist-
aði hún 62,90 metra og bætti
rússneska metið um 36 cm. Heims
metið á hins vegar Liesel West-
ermann frá Vestur-Þýzkalandi
og er það 63,96 metrar.
Staðan í I deild
STAÐAN i 1. deild íslandsmóts-
Fnaim 3 2 1 0 6:3 5
ÍBK 3 2 0 1 7:4 4
Valur 3 1 1 1 3:3 3
ÍBA 3 1 1 1 5:5 3
ÍBV 3 1 1 1 6:6 3
ÍA 3 1 0 2 5:7 2
KR 3 1 0 2 3:5 2
Breiðablik 3 1 0 2 3:6 2
Þeir hafa skorað mörkin:
Eyjólfur Ágústsson, ÍBA 3
Haraldur Júlíusson, ÍBV 3
Andrés Ólafsson, ÍA 2
Jón Sigurðsson, KR 2
Arnar Guðlaugsson, Fram 2
Kári Ámason, ÍBA 2
Steinar Jóhannesson, ÍBK 2
Óskar Valtýsson, iBV 2
Bjöm Lárusson, ÍA 1
Erlendur Magnússon, Fram 1
Einar Þórhallsson, Breiðabl. 1
Friðrik Ragnarsson, ÍBK 1
Gísli Torfason, ÍBK 1
Guðm. Þórðarson, Breiðabl. 1
Haraldur Sturlaugsson, ÍA 1
Jóhannes Eðvaldsson, Vel
Jón Ólafur Jónsson, ÍBK 1
Kristinn Jömndsson, Fram 1
Magnús Steiniþórsson, Breiðabl. 1
Magnús Torfason, ÍBK 1
Matthías Hallgrímsson, ÍA 1
Ólafur Júlíusson, ÍBK 1
Sigurþór Jakobsson, KR 1
Sigmar Pálmason, ÍBV 1
Sigurbergur Sigsteinss., Fram 1
Þórir Jónsson, Val 1
Molbúarnir eru
samir við sig
FLESTIR kannast við hinar
gömlu og góðu molbúasögur.
Nýlega bættist ein í safnið,
og hefur það fram yfir hinar
að hún er óvéfengjanlega
sönn. Saga þessi gerðist er
knattspyrnulið Molbo, sem
leikur í 5. deild í Danmörku,
átti að mæta öðru liði, Nim-
tofte, á heimavelli sínum i
Molbo fyrir skömmu. Gerðist
ekkert sögulegt fyrr en liðin
tvö, dómararnir og iínuverð
irnir voru komnir út á völl-
inn, cn þá uppgötvaðist að
enginn fótbolti var til staðar
og ekki tókst Molbo-búunum
að útvega bolta í tæka tíð,
þannig að dómararinn varð
að aflýsa leiknum.
Atvik þetta var svo kært
til józka knattspynusam-
bandsins, og hefur það nú
dæmt Molbo liðinu tap í leikn
um, og auk þess þarf það að
greiða 20 kr. sekt til Nim-
tofte og ferðakostnað dómar-
ans, alls kr. 87.00.
— Og þetta er einmitt upp
hæðin sem við þurftum til
þess að kaupa fótbolta fyrir,
sagði formaður íþróttafélags
Molbo, Henrik Callesen Mad-
sen. — En þessi „ekta“ mol-
búasaga mun ekki endurtaka
sig, bætti hann við — án þess
að hafa bolta, vinnur maður
ekki fótboltaleiki!