Morgunblaðið - 24.06.1971, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNl 1971
Fa
MtÍLA LEHi.4. X
'Aujm
■=-25555
1^14444
\mtm
BILALEIGÁ
HVERFISGÖTU 103
VW SendiferÖabifreið-VW 5 manna -VW svefnvagn
VW 9manna-Landrover 7manna
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13
Sími 14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
0 Dvöl í Borgarspítala
Pétiir Sigurðsson, ritstjóri
skrifar:
„Velvakandi góður!
Viltu birta fyrir mig fáeinar
línur um Borgarspítalann og
þjónustuna þar?
Þetta miikla húsbákn. er
raunverulega heil veröld út af
CAR-IWNTAL-
Ttorðurbratd U1
Uafnarfirði
SÍMI 52001
EFTIR LOKUN 50046
Ódýrari
en aárir!
Shodh
LEIGAN
AUÐBREKKU 44-46.
SiMI 42600.
fyrir sig, og þar er margt að-
dáunarvert, gerð hússinis, öll
líknarþjónustan þar og margt
og margt.
Kvöld eitt var ég fluttur
þangað næstum frávita af van-
líðan. Mitt gamla og þreytta
hjarta, sem ég hef misboðið svo
oft, var komið nærri því að
gera algert verkfall, og því mið-
ur verð ég að játa það, að ég
kom þangað í mjög slæmu
skapi, en góðvild lækna og
hjúkrunarliðs þar var ekki
lengi að lækna þann leiða
kvilla.
0 Líknarmusteri
í þessu líknarmusteri lá ég
svo rúmar þrjár vikur og naut
hinnar beztu læknjshjálpar og
aðhlyrmingar. Ég hresstist
hvem hvorgun, þegar þetta
elskulega fólk, læknar og
hjúkrunarkonur, kom inn til
okkar sjúklinganna. Þar var
hin fullkomnasta þjónusta látin
í té, vissulega aðdáunarverð.
Ég á góðar endurmin’ningar um
dvölina þar og sendi hinu líkn-
andi þjónustuliði þar innileg-
ustu þakkir fyrir aðdáunar-
verða þjónustu og aðhlynningu.
Eftirfarandi vísur fengu
hjúkrunarkonurnar.
Hópferðir
Til (eigu í iengri og skemmri
rerðir 10—20 farþega biiar.
sími 32716.
BILALEIGA
CAR RENTAL
TS 21190 21188
BILALEIGA
Keflavík, sími 92-2210
Reykjavík — Lúkasþjónustan
Suðurlandsbraut 10, s. 83330.
Okumenn
Upprifjunarnámskeið fyrir ökumenn verður haldið í Templara-
höllinni við Eiríksgötu kvöldin 29. og 30. júní og 1. júlí n.k.
Efni námskeiðsins verður:
Umferðarlög.
Leiðbeiningar í umferðinni.
Tryggingamál.
Maðurinn i umferðinni.
Öryggi ökutækja.
BFÖ vill hvetja ökumenn til að sækja námskeiðið, sem verður
öllum opið.
Þátttöku skal tilkynna til Ábyrgðar h.f., Skúlagötu 63, sími
17455 eigi síðar en 25. júní n.k.
BIIMDIIMDISFÉLAG ÖKUMAIMIMA.
Þó að krankleiks höndin hörð
hart um stund mig leiki á jörð,
um mig heldur alltaf vörð
yndislegust kveirnahjörð.
Þegar lífið lánast verst,
ég ligg hér illa farinin,
hjálpar þá og hjúkrar bezt
hýri kvennaskarinm.
Pétur Sigurðsson,
Ægissíðu 68,
Reykj avík“.
0 Umferð um
Blesugróf
Baldur Snæland skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Þegar okkar vísu borgarfeð-
ur þöndu borgina upp um alla
Vatnisendahæð, urðu þeir að
leggja nýjan veg þangað upp
eftir. Nú var þessu nýja hverfi
skipt í tvennt: Stekki og Bafcka.
Neðst í Blesugrófinni skiptist
því vegurinn og verða Stekkj-
arar að láta sér naegja gamla
Breiðholtsveginm, sem vegna
gífurlegrar umferðar er nú
urinn niður í klappir. En hinir
geta látið þeysa á nýju mal-
biki. Hvergi á þessum götuim
eru gangstéttir og freistast fólk
því til að gamga á ákbrautinni,
sem er aðeins 2 akreinar. Sjá
allir, hvaða hætta er þesisu sam-
fara, þar sem hraðatakmörk
eru engin, enda meðalöku-
hraði ca. 60—80 km á klst. Má
þá heita kraftaverk, að þarna
ákuli .ekki hafa orðið stórslys.
0 Hvað þarf að gera?
Það, sem þarna þarf að gera,
er í fyrsta lagi að láta laga
kantana utan við malbikið, svo
að fært sé fyrir gangandi fólk.
í öðru lagi að setja hraðatak-
mörk á veginn frá læknum við
skeiðvöllinn upp að gatnamót-
um Stekkja — Bakka. Og í
þriðja lagi að setja zebrabraút
yfir veginn öfan við biðstöð
S.V.R., þar sem líka er eirua
verzlun hverfisins, og börn eru
þar sífellt að fara yfir. Munið,
að betra er að byrgja brunm-
inn, áður en barnið dettur ofan
í hann. Og meðal annara orða,
eigum við ekki að fá biðskýli
þarna í Grófinmi?
Kaldur Snæland,
Bjarkalundi
Blesugróf“.
0 Deilumálajöfnunar-
nefnd
Valgerður Sæmundsdóttir
skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Nú, þegar við hinir lægst
launuðu sjáum hilla undir
ríkisstjórn, er bæði vill og get-
ur bætt kjör okkar, svo að um
munar, (!) — ekki um neina
hungurlús — tel ég ákaflega
illa farið, ef þeir menn, er sitja
í eða styðja þá stjórn, geta ekki
lifað í einingar og friðarins
bandi. Þar eð mér finnst ógn
lítilmannlegt að vera stöðugt að
firrna að öllu, sem gert er,
segja að þetta eigi ekki að vera
svona heldur hinsegin — og
vita svo ekki, hvar eða hvernig
þetta hinsegin er, legg ég til,
að skipuð verði Deilumálajöfn-
unarnefnd. í henni skulu vera
Hannibal til hægri, en Ragnar
Arnalds til vinistri við Ólaf
Jóhannesson, sem ég set sem
oddamann, þar eð ég tel úti-
lokað, að hans afdráttarlausu
og skýru svör geti valdið mis-
Skilningi. Ef sjónvarpið hefði
möguleika á að lofa landsfólk-
inu að fylgjast með störfum
nefndarinnar, yrði það vafa-
laust til gagns og gamans.
Valgerður Sæmundsdóttir“.
Laxveiöimenn
Nokkrar stangir lausar í Soginu næstu daga og í sumar.
Veiði er þegar hafin.
Upplýsingar í síma 24534.
RAFMAGNST/EKMDINGUR
Nýútskrifaður tæknifræðingur (veikstraum) óskar eftir
atvinnu sem fyrst.
Tilboð sendist Mbl. fyrir 1. júl! merkt: „7837".
Maleigcm
AKBBAVT
car rental service
8-23-47
scndmn
LEIGUFLUG
FLUGKENNSLA
FLUGSTÖÐIN HF
Simar 11422. 26422.
Sumariö er inntil fjalla
13daga
fjaUaferðir
Brottfarar dagar
11. júli 251 júli 8. ágiist
veiö: 14,500
Allur matur
og þjónusta innifálin
hringiö í síma 25544
TIL ALLRA ATTA
NEW YORK
Alla daga
•-------
REYKJAVÍK
OSLÓ
Mánudaga
Miðvikudaga
Laugardaga
GLASGOW
Fimmtudaga
LONDON
Fimmtudaga LUXEMB0URG
Alla daga
KAUPMANNAHÖFN
Mánudaga
Miðvikudaga
Laugardaga
L0FTIEIBIR
>
SENDUM
BÍLINN
37346
Bilaleigan
SKÚLATÚNI 4 SÍMI15808 (10937)