Morgunblaðið - 24.06.1971, Page 5

Morgunblaðið - 24.06.1971, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1971 5 Saltfiskframleiösla Norðmanna: Góð sala og verðhækkun NORSKUR saltliskur er mjög eftirsótt vara á heimfniarkaði um þessar mundir, að því er segir í fréttum frá Bodö í Nor- egi. tjtflutningur saltfisks það sem af er þessu ári er mörg þúsimd lestum meiri en á sama tíma í fyrra, og stundum hefur r'íynzt erfitt að fullnægja eft.ir- spurn. Timabilið janúar til apri'l var heildarsaltfiskútflutningur Norð- marma 19944 lestir, en var 16519 liestir á sama tíma í fyrra. Heild- arútflutiningur ársins 1970 var um 50000 lestir og útflutningur- inn í ár verður töluvert meiri, að sögn forstjóra útflutnings- fyrirtækisins A. L. Unicos i Áia- sundi, Asbjöm Solbakk. Talsvert meira magn af fiski hefur verið saltað en i fyrra og verð i öllum gæðaflokkum hef- ur hækkað, en taka verður til greina að verð á blautfiski hefur einnig hækkað þó að það verð sem hefur fengiat hingað til sé fyililega viðunandi, að sögn Sol- bakks. Hann sagði, að Brasilía væri eini markaðurinn sem hefði ekki reynzt eins hagstæð- ur og i fyrra. — 0 — Að sögn Tómasar Þorvalds- sonar, stjórnarformanns SÍF, var allur islenzkur saltfisilrur af venjulegri gæðasamsetningu, sem Miðjarðarha fslöndin taka við, seldur i janúar og febrúar og þá ekki á lægra verði en Norðmenn selja blautfiskinn á núna. Tii athugunar er hvað gera eigi við þann saltfisk, sem var til úr því hráefni sem áður fór í skreið tii Nígeriu og er yfir- leitt léleg vara. Tómas sagði, að góðar horfur væru á þvi að koma mætti þessum fiski fyrir á ákveðnum stöðum. Hann sagði, að hér væri um nokkuð mikið magn að ræða og væri gert ráð fyrir að það næmi 4—6 þús. tonnum, þótt það væri ekki vitað nákvæmlega ennþá. Sigurður Ingvi Snorrason. Efnilegur klarinett- leikari Vín, 13. jún.í, SIGURÐUR Ingvi Snorrason lauk fyrir nokkrum dögum loka prófi við sólóistadeiidina i Vín- arakademíunni í klarinettieiik. Hlaut hann ágætiseinkunn eða Auszeichnumg. Sigurður er mjög ungur að árum, 21 árs gamaJl og er því óhætt að spá honum miklum frama. Kennari Sigurð- ar, Rudolf Jettel er þekktur kla.ri nettleiikari hér i Austurríki og þá ekki síður sem kennari og tónskálid. Han.n hefur samið við- urkenjidan skóla í kiarinettleik og er við hann stuðzt víðast hvar þar sem Vínaraðferðin er kennd. Á lokaprófimu spilaði Sig urður kvintett eftir Mozart og voru mótspilendur hans flestir þekktiir tónlistarmenn. Sigurður hefur haldið opinbera tónJeika bæði heiima og erliendis. 532 í Lauga- lækjarskóla GAGNFRÆÐASKÓLANUM við Laugalæk var slitið laugardag- inin 12. júní. Innritaðir nemend- ur voru 532 í 21 bekkjardeild. Kennarar voru 47, þar af 27 fastakennarar. Próf upp úr I. bekk þreyttu 156 nemendur, hæstu einkunn hlaut Hjördís Harðardóttir I. ág. einkunn 9.69 og var það hæsta einkunn í skólanum í ár. 4 aðr- ir nemendur í I. bekk hlutu ágætiseinkunn. Unglingapróf þreyttu 175 nem endur, þar af fengu 7 ágætiseink kunn. Hæstu einkunnir hlutu Eggert Pétursson 9.47 og Guð- rún S. Birgisdóttir 9.43, Á millibekkj aprófi upp úr III. bekk hlaut hæsta einkunn Sigurborg Óskarsdóttir úr verzl- unardeild, 7.96. Landspróf þreyttu að þessu sinni 46 nemendur, 38 stóðust, þar af 30 með framhaldseink- unn, en 4 aðrir munu þreyta haustpróf í nokkrum greiinum. Hæstu einkunn á landsprófi hlaut Reynir Guðmundur Jónas- son I. ág. einkunin, 9.1. Gagnfræðapróf þreyttu að þessu sinni 55 innanskólanem- endur og 45 utanskólanemendur (þar af 44 úr Kvöldskólanoim). Af iinnanskólanemendum stóð- ust 48, 2 luku ekki prófi og 5 stóðust ekkii. Hæsrtu einkunn hlaut Guðiún Matthíasdóttir úr verzlunardeild, 8.51. Af utanskólanemendum luku 34 gagnfræðaprófi og stóðust (þar af 33 úr Kvöldskólanum), hinir ýmist luku prófum í nokkr um greinum eða stóðust ekki. Hæstu einkunm hlaut Jakobína Ágústsdóttir úr Kvöldskólanum I. ág. einkunn 9.15. Skólinn verðlauinaðí þá nem- endur, sem sköruðu fram úr í námi og i félagsstörfum. Einnig afhenti skólastjóri verðlaun frá daniska sendiráðinu fyrir góða kunnáttu í dönsku og frá þýzka sendiráðinu fyrir góða þýzku- kunnáttu. Níe\Kom'2 ^ ve íför itt' VO Smokif'O p\easute

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.