Morgunblaðið - 24.06.1971, Side 16

Morgunblaðið - 24.06.1971, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTÚÐAGUR 24. JÚNl 1971 í KVIKMYNDA HÚSUNUM Frábær, ★★★ mjög góð, ★★ góð, ★ sæmileg, O léleg, Sig. Sverrir Pálsson Erlendur Sveinsson fyrir neðan allar hellur, Sæbjörn V aldimarsson Háskólabíó: FANTAMEÐFERÐ ÁKONUM Morðingi leikur lausum hala í New York. Hann myrðir ein- ttngis miðaldra konur, og bregð- ur sér ætíð í nýtt gervi. Mað- urinn sem falin er rannsókn málsins heitir Morris Brummel. Gengur honum ekki sem bezt leitin og er látinn hætta rann- sókninni. Reiðist þá morðinginn og krefst þess að hann sé látinn halda áfram, þar sem Brummel hafi sagt blöðunum að morðin séu vel og vandvirknislega und- irbúin. Loks fer þó svo að morð- inginn fær horn í síðu lögreglu- mannsins, og dregur þá að enda- lokum. Leikstjóri er Jack Smight, en með aðalhlutverkin fara Rod Steiger, Lee Remick og George Segal. ★ ★ Rod Steiger er góður í öllum þeim sex gervum, sem hann kemur fram í. Efnis- þráðurinri kemur einstaka smnum þægilega á óvart, en að öðru leyti er myndin ósköp flöt. Steiger átti upp- haflega að leika lögreglu- manninn, og Segal morðingj- arm, en Steiger taldi það fj arstæðu og hlutverkið sniðið fyrir sig. ★ ★ Það ná tæpast orð yfir leik Rod Steigers í þes»ari mynd, sem að öðru leyti er fremur óvönduð að gerð. — Hervm tekst samt að halda uppi spennu enda er efnið mjög áhugavert og myndin uppfull af skemmtilegum smá atriðum, í tengslum við aðal efnið. ★★★ Tilgangur gaman- myndar um fjöldamorðingja og fómardýr hans, er ákaf- lega lágreistur, sérstaklega þar sem slíkir atburðir gerast nú æ tíðari. En þetta er einkar heppilegt hJutverk til að sýna hinar fjölmörgu hliðar snililingsins Rod Steig- er. Tónabíó: TVEGGJA BARNA FAÐIR Abraham Rodriquez (Alan Arkin) frá Puerto Rico er stað- ráðinn í að bjarga sonum sínum, Ábraham yngri (Miguel Alejan- dro) og Louis (Ruben Figuoroa) úr fátæktinni, sóðaskapnum og afbrotafélagsskapnum í New York. Lupe (Rita Moreno) vill giftast AbTaham. en hann sinnir því engu, enda far- inn að brjóta heilann um hina furðulegustu áætlun til að koma drengjunum sem lengst burt frá fátækrahverfinu. Hann ætlar að láta þá „farast“ úti fyrir strönd Florida, þannig að strandgæzlan finni þá og litið verði á þá sem flóttaböm frá Kúbu. Þetta tekst og þúsundir Bandaríikjamanna senda drengjunum gjafir og ham ingjuóskir. En annað hljóð kem ur í strokkinn, er upp kemst hvemig í pottinn er búið. ★★★ í auglýsingu um mynd ina stendur: „Rráðskemmti- leg . . . gamamcmjmd,“ en þessi yfirlýsing gefur alranga hugmynd um innihaldið. — Tragi-kómedía, kannski. — Leikur meir á strengi tnlfinn inga en heilbrigðrar skyn- semi, án þess þó að stíga teljandi vixlspor. Arkin mjög góður. Of oft kaatað höndum til kvikmyndatökunnar. ★★ Myndin er vel gerð hvað snertir kvikmyndatöku-klipp ingu (sjá atriðaskiptim) og leik, tónlisitin er heldur við- kvæmnisleg. En heildarjafn- vægið þrýtur, þegar Abra- ham tekur að útfæra ásetl- un sina. Samfélagsraunsæið breytist í gamanleik og ótrú leg ævintýri, sem varpa reyndar ljósi á aðra hlið bandarísks þjóðfélags. ★ ★ Þessi mynd sýnir veik- burða, vonlausa baráttu smæl imgjans gegn óbreytanlegri stöðu sinni í þjóðfélaginu. — Slær á viðkvæma strervgi. Stjörnubíó: LANGA HEIMFERÐIN Myndin er látin gerast við lok þrælastriðsins, 1866. Bentley, G. Hamilton, er liðsforingi í her S- ríkjamanna, en hann og menn hans sitja allir í fangabúðum Norðurríkjamanna. Þeim tekst að flýja og Walcott major, G. Ford, er falið að veita þeim eftirför. Bentley og félagar hirða upp hjúkrunarkonu á flótta sínum, Emily (I. Stevens), en hún er ástfangin af Walcott. Bentley kemst að því, að stríðinu er lok ið, en heldur því leyndu fyrir mönnum sínum. — Og áður en ,,Langa heimferðin" er á enda, dregur að óumflýjanlegu upp- gjöri. Lei'kstj. Phil Karlson. Ö Áður fyrr voru lélegar has armyndir bara lélegar hasar mjrndir, en síðan þeir fóru að troða sinni misjafndega há leitu siðfræði inn i lélegu hasarmyndirnar, hafa þær versnað bil muna (þ.e.as. flestar, og þessi fylgir meiri hlutanum dyggilega). 0 Ein af þessum yfirborðil- kenndu kúrekamyndum, sem sýna einungiis eltingaleik tveggja andstæðinga, með til heyrandi byssuleik, en tekst ekki að segja neitt spaklegt, þrábt fyrir mákinn vilja. Nýja bíó: BANDOLERO Ræningjaflokki Dee Bishop mis- tekst að ræna banka í Texas, og lenda meðlimir hans í fangelsi. Eru þeir allir dæmdir til henging- ar, þar sem þeir eru eftirlýstir glæpamenn, og myrtu þar að auk\ einn helzta borgara bæjarins, Stoner. Mace, bróðir Dee, fréttir af hrakförum hans, og tekst að bjarga flokknum úr snörunni á frumiegan hátt. Á flóttanum reynir hann að fá bróður sinn til að snúa af villu síns vegar og gerast heiðarlegur maður á ný. Kona Stoners, sem tekin var sem gísl, og Dee, fella hugi saman, og verður það m.a. til þess að hann samþykkir ráðagerðir bróð- ur síns — en þá er allt um sein- an. Leikstjóri: Andrew V. Mc- Laglen. ★ Þokkaleg byrjun, lélegur miðkafli og blóðugur endir. Þegar menn eru akotnir nið- ur unmvörpum áhorfendum til aðhláturs, hefur ofbeldi fengið á sig anman og verri blæ en í myndum Sergio Le ones, þar sem ofbeldi er gert eins viðbjóðslegt og það í rauninni er. ★ Hér reyna Kanar að fara nýjar leiðir í vestraformi. Þetta tekst þó ekki sem skyldi, aðallega vegna lélegs handrits og vandræðalegra tilburða Raquel Welch til að reyna að sýna eitthvað meira en kroppinn. En þeir gömlu reiðgarpar, Dean og James standa fyrir sínu. Austurbæ j arbíó: SJÁLFSMORÐS- SVEITIN Myndin hefst á því að valdir eru nokkrir menn til að gegna mikRvægu starfi 1 þágu Breta og Bandaríkjamanna, s©m í fljótu bragði virðist vera sama og dauðadómur þeirra sjálfra. Það á að fljúga með þá til Þýzkalands, þar sem þeir eiga að stökkva niður í fallhlífum og síðan að eyðileggja Zumrmerhof- flugvöllinn, sem er bækistöð þeirra flugvéla Þjóðverja, setn látnar eru verja helztu iðnaðar- héruð Þýzkalands. Þegar til kast anna kemur fer ekki allt sem skyldi. Flugvélin, sem flytur þá og sprengiefnið er skotin niður og þeir standa uppi sprengjuefn islausir, hundeltir af Þjóðverjum. En þeir gefast ekki upp, ná sam bandi við London og biðja um að fá sent sprengiefni og tekst að leysa verkefnið, þótt ékki snúi þeir allir aftur. 0 Ein af þessum spemrandi myndum, sem gerðar eru fyr ir het j udýrkendur. Sjálffi- morðssveitin verður ekki til eínd til rannsóknar á sögu- legri staðreynd, heldur eín- ungis til að smjatita á hetju skap Englendinga og hæðast að Þjóðverjum. Þokkalega, en ófrumlega gerð. Ömurleg stælmg á „Tólf ruddar.*4 Ekki ein einasta vit glóra finaiam'leg. Hafnarbíó: KONUNGSDRAUMUR Þegar Grikkinn Matsoukas, sem býr með fjölskyldu sinni 1 Chi- cago, heyrir úrskurð læknis um að sonur hans eigi 1 mesta lagi eitt ár eftir ólifað, segir hann: „Sonur minn mun ekki deyja." Matsoukas trúir á hinn gríska ættarstofn, og að sól og mold Grikklands geti læknað son hans, en hann vantar peninga fyrir far- inu. Eftir skímarveizlu nokkra með freyðandi vínum og grísk- um dansi býðst Cicero vinur Matsoukas til að lána honum fyr- ir farinu, þvi að eiga slíkan vin, geri lffið þess virði að lifa því. En það reynist of gott til að geta verið satt Matsoukas grípur þá til örþrifaráða, sem varpa um leið ljósi á mannkosti hans. Leik- stjóri Daniel .Mann. Með aðalhlut- verk fara Anthony Quinn og Irene Papas. ★★★ Zorba hefur aldrei stig ið mörg skref frá Anthony Quinn og hér fylgir hann hon um í hverju fótmáli. Lífs- þrótturinn er allsráðandi, uppgjöf er óhugsandi, jafnvel fyrir dauðanum. Andleg heilsubót í gráum hversdags- leikanum. Látlaus mynd í allri gerð, en áherzlan lögð á hið mannlega. ★ ★ ★ ★ Þetta er kvikmynd um mannlífið, sem grípur á- horfandann hugfanginn vegna lífsþróttar síns, en ekki vegna þess hvemig hún er gerð. Kvikmjmd, sem sannar, að formið þarf hvorki að vera fagurt né frumlegf, heldur aðeins þjóna tilgangi sínum. ★ ★ Hér væri á ferðinni nokkuð hversdagsleg mynd, ef aðalhlutverkið væri ekki „klæðskerasniðið“ fyTÍr Ant hony Quinn. Og hann fyllir það manngæzku og karl- mennsku og bregzt hvergi bogalistin i glímu sinni við Thalíu. Gamla bíó: HVAR VARST ÞU ÞEGAR LJÓSIN SLOKKNUÐU? M. Garrison, D. Day, sem er fræg Broadwstjama, hraðar sér heim til manns síns, en kemur óvart að honuim í örmum annarrar konu. í bræði sinni strunsar hún út og fer upp í sveitabústað þeirra, hell ir 1 sig hálfu glasi af svefnmeð ali og dettur út af. — Waldo Zane, R. Morse, er féhirðir vax- andi stórfyrirtækis. Hann stelur peningum fyrirtækisins, ekur á bílgarmá út úr borginni, en bíll inn bilar svo fyrir utan sveita- býli Garrison-hjónenna. Þar dembir hann í sig hinum helm ingnum af svefnmeðalinu í mis- gáningi — og dettur út af. Stuttu síðar kemur eiginmaðurinn til að biðja um fyrirgefningu, en Magg ie og Waldo verður þá fátt til skýringa. Leikstj. Hy Averback. ★ Myndin á harla lítið skylt við það, sem gerðist „whtn the lights wen-t out.“ Doris Day — fæi'ibanda-filma og hvergi ein af hentnar betri. Terry Tomas kemst einna skást frá myndinni. ★ Bakgrunnur myndarinnar gefur ti'lefni til skemmtilegra augnablika og aft örlar á kímni. Gerð mjmdarinnar er vart umtalsverð, nema hvað leikur er oft góður. Laugarásbíó: INDIANAARAS í DAUÐADAL t: Höfuðsmanni nokkrum í Norð- urrikjahernum, tekst á síðustu stundu að forða gullsjóði Daw- sonvirkic, áður en hann felíur í hendur illmennum. Veit dóttir hans ein hvar hann er falinn, eftir að rumpulýðnum tekst að kála pabba hennar. Á nú að merkja þann sáluga þjóf, og bregzt dóttirin þá hin versta við, að vonum og hyggst sækja sjóð inn væna. Fær hún sér til full- tingis þær kempumar Gömlu Shatterhönd og rauðskinnafor- sprakkann Winnetou. Ekki hyggj ast illmennin heldur láta sitja við svo búið, og upp’nefst nú bar átta mikil og má lengi ekki á milli sjá . . . í 0 f stuttu máli sagt ómerki leg skemmtun, jafnvel fyrir börn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.