Morgunblaðið - 24.06.1971, Síða 18

Morgunblaðið - 24.06.1971, Síða 18
——— 18 -* ——-—i,. —■'■■■.... ■ ■■—.-w ■ ■ MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNl 1971 Pétur Guðmundsson Minning í DAG, fimmtudaginn 24. júní er jarðsunginn frá Kópavogs- kirkju Pétur Guðmundsson Ný- býlavegi 16 í Kópavogi. Hann átti við vanheilsu að stríða nokkur síðustu árin, en hafði aðeins verið fáa daga að þessu sinni á sjúkrahúsi er hann iézt þar þann 17. þ.m. Pétur var fæddúr 16. apríl 1903 að Ytri-Hjarðardal i Önund- arfirði, sonur hjónanna Guð- nýjar Amgrímsdóttur og Guð- munda.r Bjarnasonar er þar bjuggu þá en fluttust 1909 að Hesti í Önundarfirði og við þann bæ voru þau kennd og einnig börn þeirra, sem í hugum eldri Önfírðinga verða alltaf „Hestssystkinin". Þau Hesthjón- in þóttu mjög greind og dugleg, sem ekki veitti af, því bömin urðu 11, þrjár stúlkur og átta piltar, en efnin lítil eins og hjá flestu alþýðufólki. Ekki var um skólagöngu að ræða hjá þeim systkinum, fyrr en þá á full- orðinsárum, því allir þurftu að fara að „vinna fyrir sér“ strax og þeir gátu. Hugur þeirra mun þó hafa staðið til skólalærdóms eins og fleiri ungmenna á þeim tíma, sem urðu að láta slíkan munað á móti sér, en e.t.v. sýrtir það hug þeirra að eldri syst- kinin studdu yngsta bróðurinn Véstein — núverandi forstjóra Kísilgúrverksmiðjunnar — tii langskólanðms. En gott veganesti t Maðurinn minn, sonur, faðir og tengdasonur, Sigurjón Sigurjónsson, andaðist á Borgarspítalanum 22. júní. Hulða Valdimarsdóttir og aðstandendur. t Ástkær sonur okkar og bróðir Niels Jensen, Hátúni 10, Keflavík, lézt að kvöldi hins 17. júní. Jarðsett verður laugardagínn 26. júní frá Keflavíkurkirkju kl. 2 siðd. Aðalheiður og Fred Jensen og systkin. t Otför eiginmanns míns GEORGS HANSEN bankaútibússtjóra, Póigötu 1, isafirði, er lézt aðfaranótt 21. þ.m. verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 25. þ.m. kl. 15. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir. Fyrir mína hönd, barna og tengdabarna. Vigdis Hansen. t Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir LARUS KARL LARUSSON, Grenimel 31, verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 25. júní kl. 3.00 e.h. Lára Óladóttir, Þórir Lárusson, Margrét Lárusdóttir, og tengdaböm. t Útför eiginmanns míns SIGURJÓNS SIGURÐSSONAR, fyrrv. verzlunarstjóra Álafoss, Laufásvegi 38, fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 25. júní kl. 1,30. Blóm eru afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á að láta líknarfélög njóta þess. Rannveig Guðmundsdóttir og fjölskylda. t Eiginkona mín, móðlr okkar, tengdamóðir, amma og langamma MARÍA JÓNA JAKOBSDÓTTIR Köldukinn 22, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 25. þ.m. kl. 2 e.h. Þorlákur Guðlaugsson, Sigríður E. Þorláksdóttir, Kjartan Steinólfsson, Eyþór Þorláksson, Sigurbjörg Sveinsdóttir, Katrín Þorláksdóttir, Steindór Agústsson, barna og barnaböm. haía þau haft að heiman því öll hafa þau reynzt úrvals fólk á hinum ýmsu sviðum þjóðlífsins. Heyrt hef ég að Guðmundur Bjamason hafi sagt við einhvern son sirnn er hann fór að heiman, að hann vonaði að hann mætti njóta þess, en ekki gjalda, að vera sonur þeirra hjóna. — Og nú hefur það fyrsta þessara systkina runnið sitt æviskeið til enda. Pétur var fjórði elztur af systkinunum og fór strax að vinna fyrir sér þegar kraftarnir leyfðu. Hann ólst upp í Önund- arfirði við þau störf er þar lágu íyrir til sjós og lands. GuSný móðir hans dó 1920 en faðir hans var áfram á Hesti þar til hann dó 1924. Ásta, systir Péturs gift- ist Ingimundi Guðmundssyni (þekktur hér syðra sem Ingi- mundur í gamla pakkhúsinu hjá Eimskip) og bjuggu þau á Hesti t Útför móður minnar, Önnu G. Schmidt, sem iézt að Elliheimilinu Grund þ. 16. júní, fer fram frá Fríkirkjunni föstudaginn 25. þ. m. kl. 1,30 e.h. F. h. vandamanna, Kobert Schmidt. ásamt Pétri þar til þau fluttust til Reykjavíkur. Eftir það bjó Pétur þar, til 1930 að hann brá búi og fluttist suður. Eftir að suður kom gerðist Pétur atvinnubílstjóri, stundum á eigin bil .en oftast á áætluntar- leiðum, s. s. í Kjós og Kjalames, Fljótshlíð og Vík og varð hann þékktur sem dugnaðar ferðabil- stjóri. Vegir voru þá ekki eins góðir og nú og bílarnir ekki eins fullkomnir, engar talstöðvar, sími óviða og viðgerðarþjónusta hvergi nema helzt í Reykjaví'k. Bílstjórarnir urðu því að treysta mjög á sjálfa sig og gera allt sjálfir. í misjöfnum veðrum urðu sumar þessar ferðir hreinar svað- ilfarir, sem aðeins harðdugleg- ustu menn gátu stundað. Meðan póststjónnin rak sérleyfisleiðina Reykjavik — Akureyri vann, Pétur þar, og hann var einn af eigendum Norðurleiðar h/f sem seinna tók við þeiriri leið, og starfaði þar þangað til hann hætti að hafa akstur að aðal starfi. Síðustu 15 árin var Pétur starfsmaður Kópavogsibæjar, lengst af með starfsheitið „heil- brigðisfulltrúi". Mér er kuninugt um að starfssviðið var allvíð- tækt, því verkefnin kotnu miklu örara en embættin í þessum bæ, sem óx með meiri hraða en áður hafði þékkzt hér á landi. Ráða- menn þeir, sem réðu Pétur til bæjarins vissu að hann gerði hlutina, ef þurfti að gera þá, nærri því hvort sem það var hægt eða ekki. E.t.v. eru engin mál eins bæjarfélags eins per- sónuleg og heilbrigðis- og hrein- lætismál, sem allir hafa vit á og leyfi til að rífast um og hér voru næg verkefni til gagn- rýni þar sem allt var ógert. Þrátt fyrir það veit ég ekki til að nokkrum hafi verið illa við Pét- ur og svo mikið er víst að þótt skipt ha.fi verið þrisvar um pólitíska ráðamenn í Kópavogi, síðan hann fór að starfa þar, þá var aldrei sikipt um heil- brigðisfulltrúa. Árið 1946 settisí Pétur að í Kópavogi. Hann var því einn af frumfoyggj unum, er þéttbýli fór að myndast hér. Hann naut þess að hafa verið þátttakandi í þeirri uppbyggingu, sem hér hefur átt sér stað og brá hart til andsvara, ef honum þótti hallað á Kópavog í orðræðum. — t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug vjð andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu JÓHÖNNU KRISTJÁNSDÓTTUR frá Fáskrúðsfirði. Þorvaldur Jónsson, Oddný Jónsdóttir, Sigríður Jónsdóttír, Guðmundur Sigfúscon, Margrét J. Petersen, Emil Petersen, Berta J. Snædal, Gunnlaugur Snædal, barnabörn og aarnabarnaböm. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hiýhug við andlát og jarðarför föður, tengdaföður og afa okkar ÓLAFS GUÐJÓNSSONAR Þorvarður Ólafsson, Fanney Guðjónsdóttir, Björgúlfur Þorvarðarson, Alma Þorvarðardóttir, Ólafur Rúnar Þorvarðarson. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa RAGNARS J. LÁRUSSONAR Andrea Jónsdóttir, Sveinn H. Ragnarsson, Jón P. Ragnarsson, Erla S. Ragnarsdóttir, Jónína Ragnarsdóttir, Ragna L. Ragnarsdóttir, Guðlaug Ragnarsdóttir, Halldóra Elíasdóttir, Sigriður Ingvarsdótlir, Steinar Þorsteinsson, Gunnar Ivarsson, Ólafur Þ. Ragnarsson, Halldóra Ragnarsdóttir. og barnabörn. Kópavogsbær er góðum þegná og málsvana fátækari við fráfall hanls. í tæp nitján 'ár höfum váð Pétur verið samjstarfsmenin í stjórn Sjúkrasamlags Kópavogs. Ýmis verkefni hafa verið leyst þar, sum skemmtileg önnur síð- ur. Ég mimniat þess nú, að eitt var það sem Pétri var alltaf illa við, én það var þégar við urðum að hækika iðgjöldin. Pérsónuleg útgjöld réðu þar ekki, heldur var það samúðin með þeim sem verst voiru staddir fjárhagslega, sem lét haran ekki í friði. Það er gott að kyranast mönnum með hjarta þótt það hangi ekki utara á þeim daglega. Pétur Guðmundsson var tví- giftur. Fyrri kona hans var Ágúista Guðjónsdóttir frá Efri- Húsum í Önundarfirði, en þau slitu samvistum. Þrjú af börn- um þeirra eru á lífi: Guðný daraslkeranari, búsett í Kópavogi, Ásgeir vélstjóri hjá Eimskip og Hjördís, frú í Kópavogi. Seinni koraa haras var Ásta Davíðisdóttir frá Þverfelli í Lundarreykjardal. Börn þeirxa eru: Sigrún hjúkrunarkona í Kópavogi, Arana gift í Noregi, Davíð, verkstjóri við Þórisós og Kristín, sem nú dvelst heima. Ég votta venzlafólki samúð og trúi að það njóti haras frekar en gjaldi. Pétur var maður í lægra lagi, en þrekvaxiran, laglegur og létt- ur á fæti á yngri árum. Hanm var sögumaður ágætur, fjölfróð- ur í samræðum og bráðhmyttinm í tilsvörum. Haran var fagnaðar- hrókur á mannamótum og gleðimáður í hvívetna sem sómdi sér vel með höfðingjum, en aldrei höfðingjasleikja eða með neiran fleðuskap. Vertu sæll Pétur, — þakka þér samferðina. Ég vona að mér hafi tekizt að miranast þín hér án oflofs — Það veit ég að þér hefði ekki líkað. Það átti að verða fundur bráðlega, en héðam af mæta ekki allir fynr en hinum megin. — Við korraum bráðum. Þórður Magnússon. ÞANN tæpa áratug, sem sá, er hripar þessar línur, hefur átt heima í Kópavogi, hefur hann kynnzt við fjölmargt ágætisfólk, sem varpar birtu á lífsbráutina. Meðal þeirra er Pétur Guð- mundsson, heilbrigðisfulltrúi, sem lézt á þjóðhátíðardaginn og er jarðaður í dag. Flestar minningar um hann eru í ætt við það dýrðarvor, sem við höfum átt í ár. Við urðum samstarfsmenn rúm átta ár og allan þann tíma minnist ég þess ekki, að hann hafi skipt skapi. Hann lagði sig allan frám um að skapa þá umgengismeniningu, sem æskilega verður að telja í þéttbýli. Það er tvillaust rétt, sem hann getur um i spjalli í tímariti Verkstjórafélagsins fyrir einum sjö árum, að hann átti sér enga óvildarmenn, en marga vini, þrátt fyrir óvenju erfitt starf og torleyst. Pétur var alltaf boðinn og bú- inn að leySa vanda manns og erum við hjón og ekki síður börrain okkar, þakklát fyrir marg an góðan greiða okkur veittan með því hugarfari sem ekkert væri sjálfsagðara. Það dró verulega úr starfs- orku Péturs um skeið meðan við unnum saman, og það svo, að læknar töldu vart að hann mundi vinnufær að nýjú. En áhuginn og starfsgleðin færðu Framhald á bls. 21 t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vin- arhug við andlát og útför bróður okkar og fósturföður, Valgeirs Jóhanns Eyjólfssonar, Hausastöðum, Garðahreppi. Ólafía Eyjólfsdóttir, Þórey Eyjólfsdóttir, Hörður Sigurvinsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.