Morgunblaðið - 27.06.1971, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 27.06.1971, Blaðsíða 11
n.fiy. MORGUNBLAÐÍÐ, SUNNXJI>AGt;R 27. JÚNÍ 1971 11 aldamót, olli þvi að þörfin á ekipulagningu óx mjög. Eátt af fyrstu verkum heimaistjórnarinn ar var það að leggja fyrir Al- þingi árið 1905 frumvarp til laga um byggingarsamþykktir. Hannies Hafstein, ráðherra ís- lands, mælti fyrir frumvarpinu og sagði meðal annairs: „Tilgang urdnn með því (þ.e. frumvarp inu) er sá að ráða bót á þeirri éreglu, sem nú á sér stað að því er byggingar snertir í fiest um kauptúrvum landsins, og eru ákvæði þess hin sömu og í gild andi lögum um byggingarsam- þykktir í kaupstöðum.“ Guðmundur Björnson, 2. þing maður Reykvíkinga, og síðar landlæknir, flutti mjög athyglis verða ræðu um frumvarpið. Hann sagði meðal annars: „All ir, sem verið hafa í kaupstöð- um, vdta nú hvílíkt hringl er á byggingarmálum þeirra víðast hvar, af þvi að enginn uppdrátt ur er til, engar fastar fyriræti- anir um götur og torg, og það eru sínir menn sitt í hvert skipt ið, sem ákveða hússtæðin og mæla út lóðirnar . . . Til þess að koma í veg fyrir þetta eru í. Noregi t.d. öllum kauptúnum gert að skyldu að láta gera upp drætti af bæjarlóðum og marka þá allar götur, sem í bæjum eru, og einnig götur, sem fyrár- hugaðar eru. Síðan á að senda uppdrætti þessa til stjómarinn ar, og ef hún staðfestir þá, má ekki frá þeim víkja nema með sérstöku leyfi henaiar. Með þessu er komið í veg fyrir allt hringl.“ Þarna er, að ég ætta, í fyrsta skipti á Alþingi bent á nauð- syn þess, að sett séu almenn skipulagslög og kveðið á um skipulagsskyldu, en áður hafði Páll Briem vikið að því svo aem áður segir. jón Magnússon, þingmaður Vestmannaeyinga síð ar bæjarfógeti i Reykjavík og ráðherra, varð fyrir svörum. Kvaðst hann vera því hlynnt- ur, að sett yrðu byggingarlög fyrir alla kaupstaði, en slíkt þyrfti frekari undirbúnings við. Frumvarpið var síðan samþykkt og gildir enn sem lög að mestu leyti. Hér verða ekki rakin á- kvæði þeirra um skipulag, enda gi’ltu þau ekki í Reykjavík né öðmm kaupstöðum, heldur voru þau aðeins fyrir löggilta verzl- unarstaði. Þar er stuttlega talað um gerð uppdrátta að því skipu lagi, er samþykkt hafi verið, en gerð þess var í höndum sveitar stjórna. Þá eru sett rækileg ákvæði um heimildir til breikk unar gatna, fjarlægð milli húsa o.s.frv. Þessi ákvæði giltu, unz sett vom skipulagslögin 1921. Að öðm leyti gilda þessi lög enn. Fyrir nokkmm ámm var gerð tilraun til að breyta þeim og samið nýtt frumvarp til bygg ingarlaga. Þótti flestum slíkt hin mesta nauðsyn, enda hvila bygg- ingarsamþykktir landsins á held ur veikum gmnini, þar aem þessi lög eru. En það frumvarp náði ekki fram að gainga og hefur ekki verið borið fram að nýju. NÝJAR SKIPULAGSREGLUR SÉRMENNTAÐIR MENN HEFJA STÖRF Eins og áður getur var bygg ingarnefnd Reykjavíkur m.a. fengin 1 hendur stjórn skipu- lagsmála í Reykjavík með því Opna bréfi, sem Friðrik 6. gaf út 29. maí 1839. Sjálfatjórn sveitarfélaga var óþekkt hugtak á þeirri tíð, og yfirstjórn og úrskurðarvald mála, er til þyggingarnefndar gengu, var fengið amtmanmánum. Ákvæði Opna bréfsins héldust óhögguð til ársins 1894. Þá var gerð sú breyting m.a. að tekið var í lög, að byggja mætti samföslt hús allt að 60 álnir á lengd, enda væri eldvarnargafi á milli. Þetta ákvæði leiddi til þess, að byggð þéttist mjög, og horfir þessi breyting mjög í þá átt, æm um ræðir í Dagskrá skömmu síðar. Þetlta ákvæði um sambyggingar timburhúsa var -áfwunið 1915, eftir brunann mikla í Miðbænum. Árið 1901 voru sett lög, er heimiluðu setningu byggingar- samþykktar i Reykjavík, þar sem yrði kveðið nánar á um byggingarmálefni. . bæj arkns. Þestsi heimild va.r notuð, og byggin.garsamþykkt var stað- fest 7. september 1903. Þar er að. finna ýmis ákvæði um skipu íag, . t.d. er ákveðin hámarks- stærð húss mi'ðað við lóðar- stærð. Vegghæð húss má ekki vera meiri en breddd götunnar, timburhús ekki vegghærra en 14 álnir, en steinhús ekki hærr a en 25 álnir. Lágmarksbreödd nýrra gatna var ákveðin 20 áln ir. Mikið af ákvæðuni 'byggimgar samþykktarinnar var undan- þsegt. Byggingarsamþykktin fjallaði fyrst og fremst um húsagerðina sjálfa, en ekki um skipulags- málin. Höfundur hennar var að allega Knud Zhnsen, og víkur nú sögunni, að honum. Fyrsta . áratug þessarar aldar fjölgaði meira i Reykjavík hlut fallsiega en nokkurn amnan ára tug fyrr eða síðar. Nú komu tál. starfa í Reykjavik sérmennt aðir menn á ýmsum svíðum. I sögu Reykjavíkur ber þar hæst Knud Zimsen bæjarverkfræð- ing og síðar borgarstjóra. Hafði hann fremur flestum öðrum á- hrif á fyrsta þriðjungi þessarar aldar. Er mikinn fróðleik að finna í bókinni „Úr bæ í borg“, er Lúðvík Kristj ánsson skráði eftir Zimsen með sérlegum ágætum. Knud Zdmsen virðist hafa verið á hinmi „gömlu límu“ í skipulagsmálum að sinna fyrst og fremst aðsteðjandi vanda- málum. Ekki verður séð, að hann hafi haft umtalsverðan á huga á heildarskipulagningu Reykjavikur, a.m.k. kemur sá áhugi lítið fram í ritum hans eða gerðabókum bæjarins. Má það einkennilegt kallast um slík an áhugamann, sem hann var um ýmsa hluti. Á hann að því leyti sammerkt við marga stjóm málamenn, sem virðast hafa tak markaðan áhuga á skipulags- málum. í áðurnefndu riti Knuds Ziemsens segir frá meðferð ým issa einstakra skipulagsmála, sem mjög verður afdrifarík fyr ir Reykjavik og ibúa hennar, og verður að visa til þess rits, sem er í margra höndum. Hér verður aðeins nefnt eitt mál, af því að það varð tilefni greinar um skipulagsmál frá einum brautryðjanda í nútíma húsagerð, Rögnvaldi Ólafssyni. Knud Zimsen hafði gert vet urinn 1906/1907 tillögu um það, að Kirkj ustræti yrði framlengt í Lækjargötu, en Skólabrú lögð niður. Þetta felldi bæjarstjórn tvisvar og var borið við kostn- aði, er hún taldi fylgja þessu. Rögnvaldur Ólafsson ritaði þá grein í Þjóðólf vorið 1907 og nefndi „Bæjarbót"; mælti hann þar eiindregið með tillögu Zim- sens og rökstyður hana. í lok greinarinnar segir Rögnvaldur: „Bæjarbúar láta sig annars ’al mennt allt of htlu skipta það, sem til bóta horfir og prýði í bænum. Þannig hefur þetta mál venið hafið, rætt og því ráðið til úrslita innain bæjarstjórnar- innar umsvifalaust, eins og það kæmi engum öðrum við en Gatnamót Lækjargötu og Austurstræt is 1884 henni. Þessi bær er yfirleitt svo illa byggður, að bæjarbúar mega ekki vera svo samvizkulausir að sleppa góðu tækifæri til um- bóta, þegar það býðst, þó að það kosti nokkurt fé. — Blóðtakan læknar. — Þessi örlög hvíla á er viðvörun um l>eið og hún öllum'bæjum, sem ekki eru ger hugsaðir áður en þeir eru byggð ir.“ Þessi ábeinding Rögmvaldar breytti ekki afstöðu bæjarstjóm ar, en í núverandi skipulagi Reykjavíkur er að þvi stefnt, að Kirkjustrætið verði fram- lengt í Lækjargötu. Það er vissulega rétt, sem Rögnvaldur segir í greininni: „Það er varla nokkrum vafa undirorpið, að menn munu síðar meir sjá eftir því, ef þessu tækifæri, sem nú býðst, er ekki sætt, því að aldrei mun þessi breyting fást fyrir minna fé en nú, ef allt fer að líkum.“ Ekki er mér kunnugt um, að Rögnvaldur Ólafsson hafi ritað annað um skipulagsmál Reykja víkur en þessa grein, eða hafi haft beinlínis afskipti af skipu lagsmálum bæjarims að öðru leyti. Hann lézt árið 1917, langt fyrir aldur fram. í ritdómi, sem síðar verður vikið að og birtist í Skírni 1917 ræðir hann nokk- uð um skipulagsmál almennt. Verður síðar að því vikið. FVRSTA FRÆÐIRITGERÐIN UM SKIPULAGSMÁL í LÖGRÉTTU 1912 Orðið „skipulag" er að sumu leyti vandræðaorð vegna þess, hversu merking þess er víðtæk. í merkingunni „niðurröðun byggðar" á það sér ekki nema rúmrar hálfrar aldar hefð. í ritgerð, er Bogi Th. Melsted sagnfræðingur ritaði í Ársrit Hins ísl. fræðafélags árið 1916 og síðar verður vikið að, segir hann, að við eigum ekkert orð til um þetta efni, er „unnið hef ur hefð í málinu." í tveim tölublöðum Lögréttu birtist í júnímánuði 1912 grein um skipulagsmál eftir Guðjón Samúelsson „húsagerðarlist- nema“ eins og þar stendur. — Greinin nefnist „Bæj arfyrir- komulag." Ég ætla, að þetta sé fyrsta fræðilega greinin um skipulags mál sem hér birtist, því að hug leiðingar Tómasar Sæmundsson ar, er um getur hér í upphafi, voru ekki prentaðar fyrr en 1947. Þessi grein er ekki aðeins merkileg vegna þessa, heldur líka vegna þess, að þar birtast skoðanir þess manns, sem einna mest mótaði skipulagsmál á ís landi frá 1920—1950. Guðjón Samúelsson byrjar grein sína með þessum orðum: „Bæjarfyrirkomulag er eitt mesta áhugamál nútímans. Við íslendingar höfum til þessa tíma lítið gefið okkur að þessu máli, og er það náttúrlegt. Bæir okkar eru bæði fáir og smáir, og fólk hugsar því, að það gildi einiu, hvernig þeim sé fyrir komið. Máltækið segir: „Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.“ Ég held, að við ættum að fara að veita þessu máli meiri athygli en við höfum gert. Okkur ætti að lær ast það af því, hvað aðrar þjóð ir hafa orðið að borga dýrt hirðuleysi sitt í þessu atriði, að bíða ekki of lengi. Flestir munu nú vera komnir á þá skoðun, að til þess að bær geti þrifizt, verði bæjarfyrir- komulagið að vera ákveðið Land það, sem bærinn stendur á, er ekki jarðarhluti, sem mað ur getur reist hús sin á, án þess að hugsa fyrir framtíðkini Um leið og húsaskipunin er ákveðin, er verðgildi lóðanna og heilbrigðiisfyrirkomulag bæjar ins einnig ákveðið.“ Þessu næst gerir Guðjón stutt lega grein fyrir gildi skipulags og vitnar í erlenda höfunda því sambandi. Síðan segir hann: „Margir halda ef til vill, að bæir okkar séu svo litlir, að það taki ekki að hugsa um að hafa gott fyrirkomulag í þeim Bogi Th. Melsted uuOjOn samuolsson Linar Benediktsson Þessu fer fjarri. — í Englamdi eru bæir með 600—1200 íbúum, og þeim er svo vel fyrir korrAó, að fáir bæir eru eins fallegir. Flestir bæir eiga líka fyrir sér að vaxa og þess vegna ætti að hugsa um gott bæjarfyrirkomu lag sem fyrst; reynslan hefur sýnt, að það er það ódýrasta fyrir bæina.“ Þessu næst gerir Guðjón Sam úelsson grein fyrir meginþátt- um skipulagningarinnar. Um það segir hann: „Myndun bæjarfyrirkomulags er í því fólgið: 1. að fastsetja allar aðalum- ferðargötur á þann hátt, að þær séu sem stytztar og hægastar. Ti!l þess að geta ákveðið þessar götur, verður maður að gera sér áætlun um það, hvað bærinn muni stækka á viasum ára- fjölda. Vanalega eru tekin 50— 70 ár. Einnig verður þá um leið að ákveða, hvar flestar búðir skuli vera, hvar vörugeymslu- hús, verksmiðjur og fiskþurrk- unarsvæði (ef þau eru í bæn- um) skuli vera. Þetta • síðasta atriði mun aðeins koma fyrdr í stærri bæjunum. 2. að ákveða, hvar opinberar byggingar skuli vera. 3. hvar auð svæði skulu vera. 4. að síðustu leggur maður aðrar götur efttr þvi sem bezt hentar.“ í greiniinni gerir greinarhöf- undur svo frekari grein fyrir þessum atriðum. Hann snýst mjög öndverður gegn þeáxri skoðun, sem löngum hefur ver- ið lífseig, að götur ættu umfram allt að vera beinar. „Beinar göt ur eru mjög tilbreytingarlaus- ar,“ segir Guðjón, „kemur það mest af því, að húsin, sem við þær standa, sjást svo illa. Öðru máli er að gegna, þegar götur eru bognar. Þá sjást þau i fjar lægð, og fjarsýnið (perspektiv- et) er oft mjög fallegt." Eftir að ræfct hefur verið rækilega um gerð gatna og af- stöðu húsa til þeirra, kemur Guðjón að torgum. Hann hefur mikinn áhuga á torgum — ekki síður en Tómas Sæmundsson; hefur sjálfsagt fundið fyrir torg leysinu í Reykjavik i þá tíð! Um þau segir svo: „Það, sém mest áhrif hefur á fyrirkomulag hvers bæjar, þegar litið er á það frá listar- innar sjónarmiði, eru torgin og hin auðu svæði.“ Að vísu notar hann orðið ,,torg“ i nokkuð víð- tækari merkingu en við erum vön. „Torgunum má skipta í þrjá flokka eftir því til hvera þau brúkast: 1. fl. Umferðartorg, sölutorg, þjóðartorg, skemmtisvæði og barnaleikvellir. 2. fl. Húsatorg. 3. fl. Torg fyrir minninga- merki." Hér eru ekki tök á að rekja Framhald á bls. 18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.