Morgunblaðið - 03.10.1971, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. ÖKTÓBER 1971
BIRGÐAVARZLA, bókfærsla, afgreiðsia. Kaup- krafa og aðrar upptýsingar, merktar Bl-11-11, sendist atf- greiðsiu Morgunblaðsins.
ATVINNA Bifvéfavirki eða maður van- ur brfreiðaviðgerðum óskast. Brfreiðastöð Steindórs sf. sími 11588.
IBÚÐ ÓSKAST Óskum eftir 2ja—3ja herb. íbúð, strax, í Reykjavík, Kópavogi eða Hafrtarfirði. Upplýskvgar í síma 13316.
KONA ÓSKAST Flugfreyja óskar etftir konu tii 'að hafa 5 ára dreng 2—3 daga í viku í stuttan tíma. Helzt í Vesturbænum. Uppl. í smna 16117 frá ménudegi.
RÝMINGARSALA Rýmirvgarsala í þrjá daga, betfst á mánudag. Góðar vör- ur. S.Ó.-búðin, Njálsgötu 23.
KLfNIKDAMA óskast á tannlækningastof- una Kleifarvegi 6. Hálfan dag inn fyrir hádegi. Uppl. á staðnum mánudcfg 4. okt. kl. 6—7 e. h. Hallur Hallsson.
BARNAGÆZLA Vil taka að mér barnagæzlu í Hafnarfirði. Sími 52160.
3JA HERB. IBÚÐ óskast á leigu sem allra fyrst, Keflavfk-Njarðvfk. Uppl. um KeflavíkurflugvöU, Sími 24324, samband 5114. Robert Bess.
TH. SÖLU er Taunus 17 M, station, árg. 1962. Uppl. í síma 92-2793 etftir kl. 7 á kvöldin.
KÓPAVOGUR Ung hjón með tvö börn óska etftir 2ja—3ja herbergja íbúð strax í eitt ár. Fyrirframgr. ef óskað er. Uppl. { sima 25291.
KONA ÓSKAST sem næst Klapparstíg, til að saekja 4ra ára telpu á Laufás- borg kl. 5, gæta hennar titf 7 laugard. 12—1. Sími 14762.
KEFLAVlK — SUÐURNES Kjólaefni — glugg atjaldaefni. Nýjar sendingar. Verzlun Sigríðar Skúladóttur sími 2061.
ATVINNA Stúfka vön IBM götun og almiennum skritfstofustörfum óskar etftir starfi. Tilboð send ist afgr. Mbl., merkt 4357, fyrir 8. þ. m.
ÞJÓNUSTA Tökum að okkur toliútreikn- rng, verðútreikmng, launaút- reíkning o. fl. Fl'jót og góð þjónusta. Upplýsingar í síma 12801 eftír kl. 17.00.
KEFLAVlK — NÁGRENNI Vorum að taka upp glæsilegt úrval af samkvæmiskjólaefn- inm. Verzlunin Steina.
BASENDAFLOÐIÐ
Aðfararnótt 9. janúar 1799
g'ekk fárviðri af suðvestri yrfir
Suðvesturland og fylgdi þvi hið
mesta sjávarflóð er sögur fara
af. Varð af þessu stórkostlegt
tjón alla leið frá Þjórsárósum
og vestur á Snæfellsnes. Þá
fuku kirkjúmar á Hvalsnesi og
á Nesi við Seltjöm, en kirkj-
umar í Kirkjuvogi og Kálfa-
tjöm stórúkemmdust Á Eyrar-
bakka braut flóðið vöru-
geymsluhús og flutu viðir og
vörur úr því upp að Flóagafli
og upp um alla Breiðamýri.
Verzlunarhús fauk i Ólafsvik
og verzlunarfiúsin á Búðum við
Hraunhöfn brotnuðu. Flóðið
gekk ytfir lægðina mffli Reykja-
vikur og Seltjarnarness og
var Valhúsahæð að sjá sem eyja
úti í hafi. Mest varð þó tjónið
á Básendum, tók alveg atf þann
stað og hefir hann ekki byggzt
síðan. Þess vegna er flóð þetta
jafnan nefnt Básendaflóðið.
Á Básendum var góð höfn,
langt og djúpt lón, þar sem skip
gátu legið svínbundin. Þama
var lengi verzlun, Englending-
ar verzluðu þar fyrst og síðan
Þjóðverjar fram að einokun. Það
er til marks um að staðurinn
hafi þótt heppilegur, að árið
1640 fluttu Danir einokunar-
verzlunina í Grindavik þangað.
Og samkvæmt leigumála á höfn
um hér á Skagannm 1706, er
leiga af Básendum % hærri
heldur en leiga á Hafnarfirði.
Þarna hefir og lengi verið út-
ræði þótt ekki fari sögur af því.
Þegar kóngsverzlunin á Bás-
endum var seld, keypti hana
Hinrik Hansen, sem áður haiði
verið verzlunarmaður í Örfiris-
ey, og hefir skilið þar etftir nafn
sitt klappað í stein. Hann fékk
gott gjaforð, Sigriði yngri dótt-
ur merkisbóndans Sigurðar Er-
lendssonar í Götuhúsum. Þau
eignuðust 9 böm og 5 þeirra
náðu fullorðins aldri.
Á Básendum var talsverð
bygging. Þar var sölubúð, íbúðar
hús, stórt vörugeymsluhús, ann-
að minna, f jós, hlaða, skemma og
enntfremur ísienzkur torfbær,
fimm hús sarnan. Fyrir ofan
þessi hús og umhverfis þau var
hlaðinn voldugur grjótgarður í
hálfhring. Innan hans munu og
bátar kaupmanns hafa verið
geymdir, en þeir voru sex: tein
seringur, sexæringur, fimm
manna far og þrír minni bátar.
Hansen lýsti þvl svo sjáltfur
hvemig ósköpin dundu á:
— Etftir að við öll, ég, kona,
4 böm, og vinnukona vomm
háttuð, varð ég þess var um
nóttina (um kl. 2) hversu veðr-
ið af suðri til vesturs magnað-
ist svo iðudega tók að braka í
húsunum. Þar að auki tfóru að
heyrast skellir, hver eftir ann-
an, eins og veggbrjótur væri að
vinna á hlið hússins og undir-
stöðu. Af þessu fór ég á fætur
til þess að lita eftir veðrinu og
vita hvað gengi á úti. Lauk ég
upp dymm eldhúsmegin, og þá
þegar brauzt sjórinn inn á mig,
með svo miklu afli að fyllti öll
herbergin á svipstundu. Flýðum
við þá í skyndi upp á lotftið,
hálfnakin upp úr rúmunum, því
við óttuðumst að við myndum
drukkna niðri. Og í myrkrinu
þorðum við ekki út úr húsinu
vegna æðandi brimaldanna og
rjúkandi otfviðris. Þama stóðum
við nú langan táma á loftinu í
sifelldum dauðans ótta, að veður
og sjór mundi þá og þegar moia
húsið að grunni, það var farið
að brotna, mótstöðuatfl þess
rýmaði og sjórinn streymdi út
og inn.
Um kl. 7 þorðum við ekki að
vera lengur á loftinu. Braut ég
þá glugga á norðurhliðinná og
þar smugum við út hálfnakin.
Ég óð með yngsta bamið á
handleggnum þar sem sjórinn
íllæddi yfir og skolaði með sér
plönkum, fjármunum og búshlut
um. Náðum þó f jósinu með mestu
erfiðismunum og hfshættu. Fjós
ið stendur svolítið hærra og f jær
sjónum en íbúðarhúsið. En tæp-
lega höfðum við verið þar fjórð
ung stundar, er mæniásinn brast
i fjósinu. Við urðum því að flýja
aftur og nú til hlöðunnar. Ann
ar gaflinn var brotinn úr henni,
en í staðinn var þar kominn
hlaði af trjáviðardóti, er við
urðum að skríða yfir með mik-
illi hættu til að komast inn.
Þama stóðum við skjálfandi
með nokkuð af þakinu, en hinn
hlutinn blakti fram og aftur
eins og blaðsnepill.
Nú gerðum við seinustu til-
raun að bjarga lítfinu, yfirgáf
um eyðilagða kaupstaðinn, héld
um til byggða og leiddumst 811.
Óðum við svo og skriðum í rok
inu, unz við eftir miklar þraut-
ir náðum næstu hjáleigu, sem
nefnist Lodda, rétt hjá Stafnesi.
Fátæki bóndinn þar, Jón Bjöms
son og kona hans, tóku á móti
okkur, — sem vorum nærri ör-
magna af kulda, áreynslu og
hugsýki, — með mestu alúð og
hjartagæzku. 1 baðstofu þessa
ráðvanda manns höfðum við að
setur og aðbúnað í 14 daga.
Voru þar alls 19 manns, þar af
10 böm og þó er baðstofan ekki
meira en 3 stafgólf.
Fólkið, sem var í bænum,
bjargaði sér upp um þekjuna, og
tókst því þann veg um nóttina
að bjarga lifi sinu með guðs
hjálp, nema aldraðri konu, sem
veðrið lamdi niður svo að hún
drukknaði i flóðinu. (Hún hét
Rannveig Þorgilsdóttir, 79 ára
niðursetningur, mjög lasburða).
Þannig var frásögn Hansens
af þessari óveðursnótt. Þegar
farið var að athuga þau herrnd-
airverk er flóðið hafði gert,
voru öll húsin meira eða minna
brotin og full af sandi og möl.
Bærinn var alveg hortfinn og
var þar etftir grjóthrúga, og
tvö hús höfðu alveg sópazt burt,
lýsisbúðin og skemman. Bátam-
ir voru allir mölbrotnir, og garð
urinn mikli umhvertfis staðinn
að miklu leyti hruninn. A-llt
svæðið var þakið möl og grjóti.
Nú mótar aðeins fyrir nokkr-
um rústum þar sem staðurinn
var.
Hansen fl-uttist tU Keflavikur
og dó þar 1802, talinn 53 ára.
Ekkjan og synir hennar fiutt-
ust til Reykjavikur. Synirnir
voru alltaf kallaðir Básenda-
bræður og voru merkir borgar-
ar hér.
Frá
horfnum
tíma
Og menn munu koma frá austri og vestri og frá norðri og
suðri og sitja til borðs í Guðsríki. (I.úk 13. 29).
1 dag er sunnudagurinn 3. október. Er það 276. dagur ársins
1971. 17. s.e. trinitatis. Árdegisháflæði er i Reykjavík kl. 05.11.
Eftir lifa 89 dagar.
Næturlæknir í Keflavík
1., 2. og 3.10. Arnbjörn Ólafsson.
4.10. Guðjón Klemenzson.
Asgrímssafn, Bergstaðastræti 74
er opið 9unnudaga, þriðjudaiga
og fimmtudaga frá kl. 1.30. Að-
ganigur ókeypis.
Listasafn Einars Jónssonar
(gengið inn frá Eiríksgötu) er
opið frá kl. 13.30—16. Á sunnu-
dögum frá 15.9.—15.12. Á virk-
um dögum eftir samkomulagi.
N&ttúrugripasafnið Hverfisgötu 116,
Opið þriðjud., fimmtud., iaugard. og
sunnud. kl. 13.30—16.00.
Ráðgjafarþjónusta Geðverndarfélags-
ins er opin þriðjudaga kl. 4.30—G.30
síðdegis að Veltusundi 3. slmi 12139.
Wónusta er ókeypis og öllum heimil.
Sýning Handritastnfunar IslantU
1971, Konungsbók eddukvæða og
Flateyjarbók, er opin á sunnudögum
kl. 1.30—4 e.h. i Árnagarði við Suður
götu. Aðgangur og sýninearskrá
ókeypis.
VINDÁSHLÍÐARKAFFI
1 dag verður kaffisala til
ágóða fyrir starfið í Vindáshlíð
í húsi KFUM og K að Amt-
mannsstíg. 1 tilefni af því átti
dagbókin stutt spjall við
Helgu Magnúsdóttur kennara
við Æfingaskóla Kennaraskóla
Islands.
— Ég á að heita formaður í
stjóm sumarstarfsins í Vindás-
hlíð, þar erum við sjö konur. Á
sunnudaginn (í dag) hellum við
upp á könnuna frá klukkan 3—
6, og svo aftur í kvöld til ágóða
fyrir fjárfrekar framkvæmdir í
Vindáishlið og heitum við nú á
alla vini og velunnara starfsins
og leggja okkur lið.
— Sumarstarfið hefur verið
starfrækt síðan 1950. Stúlkna-
skálinn okkar tekur tæpar sjö-
tíu stúlkur, sem dvelja í flokk-
um hjá okkur, viku hver flokk-
ur, frá júníbyrjun til ágústloka.
— Til dvalar koma stúlkur
alls staðar að af landinu af Suð
urnesjum, frá Vestfjörðum, Vest
mannaeyjum og svo má lengi
Gíll og Úlfur
Guðmundur A. Finnbogason
kom hér að máli við dagbókina
um daginn og sagði okkur eftir
farandi:
Sunnudaginn 26. september
sem var fagur haustdagur,
mátti sjá á lofti þrjár sólir, er
líða tók á daginn. Voru tvær sól
ir sín hvorum megin sólarinnar
sjálfrar. Gill var á undan og úlf
ur á eftir. Var úlfurinn að
þessu sinni mjög stór og bjart-
ur og man ég ekki eftir að hafa
áður séð hann jafn skæran.
Samkvæmt gamalii kenningu
um þess konar sólarfar á slíkt
að vita á gott (góða tið).
Gíllinn einn á undan sól er
ekki talinn nægja til hins betra
með veðráttuna jafnvel vita á
hið verra. (Það forna segir:
Sjaldan er gíll fyrir góðu nema
úlfur á eftir renni).
telja. Við skiptum niður í aldurs
flokka, 9—12 ára, 12—14 ára og
14—17 ára, og eru allir flokk-
ar vel sóttir.
— Um verzlunarmannahelgina
heimsækjum við herrana upp í
Vatnaskóg, og er það mikill við
burður.
Allt sumarið höfum við
kvöldvökur og andaktir (á
morgnana). Starfsemin er eng-
inn sértrúarflokkur, heldur að-
eins kristilegt starf, algeriega
innan ramma kirkjunnar. I
Vindáshlíð eigum við kirkju,
Hallgrímskirkju frá Hvalfjarð-
arströnd sem flutt var til okk-
ar og biskupinn vísiteraði á yfir
reiðinni. Var það mjög ánægju
legt, þótt ég sjálf hefði ekki
tækifæri til að vera þar við-
stödd.
í lok sumarstarfsins okkar
koma ungar stúlkur og konur
til dvalar til að tína ber og
borða góðan mat og njótá
hvíldar. Er það gert á sama hátt
og orlofin eru framkvæmd þóft
það sé ekki í neinum tengslum
við þau. Hefur þessi haustdvöl
verið afar vinsæl hjá konum
okkar og stúlkum. Mig langar
svo að lokum til að óska eftir
því, að við fáum á Amtmanns-
stígnum að sjá eins margar af
sumarstúlkunum okkar og kon-
unum eins og komið geta. Við
þurfum á fjárstyrknum að
halda. Starf okkar er algert
sjálfboðaliðsstarf, og nýtur
ekki opinbers styrks.
Þriggja
minútna
samtal
úr hversdagslífinu
Þessi áhrifamikla niynd birtist í stórblaðinu International Herald Tribune.