Morgunblaðið - 23.12.1971, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. DESEMBBR 1971
F jórða bindið í Ritsaf ni
Ármanns Kr. komið út
Fjórða bindið í Ritsafni Ár-
manns Kr. Einarssonar er kom-
ið út. Er það Falinin fjársjóður,
3. útgáfa bókarinnar.
Falinn fjársjóður er fyrsta
bókin í bókaflokknum urn Áma
og Rúnu í Hraunkoti, ,,sem
ytngri kynslóðin hefur tekið
Ármann Kr. Einarsson.
miklu ástfóstri við“, segir á
kápusíðu. Árna-bækurnar hafa
einnig verið þýddar á mál
frændþjóða o'kkar á Norður-
löndum og komið þ£ir út í
stóru upplagi.
Fyrri bindin, sem komin eru
út í Ritsafni Ármanns Kr. Ein-
arssonar eru ,,Tvö ævintýri",
„Gullroðin ský“ og „Yfir fjöll-
in fagurblá."
Prentverk Odds Björnssonar
h.f. á Akureyri gefur bókina út.
Frímerkja-
útgáfur
á árinu 1972
FIMM frímerkjaútgáfur hafa
verið ákveðnar á árinu 1972.
Kemur það fram í fréttatilkynn
ingu frá Póst- og símamálastjóm.
I Gefið verður út 250 króna fri-
Tímaritið
Goðasteinn
Goðasteinn, timarit um menn-
ingatrmál er komið út i útgáfu og
ritstjórn þeirra Jóns R. Hjálm-
arssonar og Þórðar Tómassonar.
Er þetta tímarit um menningar-
mál, 96 síður að stærð með ljóð-
um og frásögnum, sér í lagi frá
horfinni tíð. Má m.a. annars efn
is nefna: Björgun vélbáts af
Fossfjöru, um trog og troganot,
gamalt brúðkaupsljóð, jólakaup
ferð fyrir 70 árum, frá fyrri tím-
um, manntapinn við Dyrhólaey,
tvær sjúkrasögur, ljóð frá liðn-
um árum og fæðingu Hjörleifs
læknis.
merki með mynd af Herðubreið,
Evrópumerki í tveim verðgild-
um, 9 kr. og 13- kr., með mynd
eftir Finnann Paavo Huovinen,
16 króna frimerki í tilefni af ald
arafmæli „Tilskipunar um sveit-
arstjórn á Islandi," teiknað af
Gísla B. Björnssyni, frímerki í
fjórum verðgildum, 6, 8, 12 og 40
krónur, með myndum af ylrækt,
teiknað af Hauki Halldórssyni,
og ný líknarfrímerki í tveimur
verðgildum. Nánar verður til-
kynnit um þetta síðar.
Það var
mark
ÞAÐ var mark! nefnist nýútkom
in knattspyrnubók, þar sem fjall
að er um íslenzka knattspyrnu á
árinu 1971. Útgefandi bókarinnar
er BB-útgáfan í Keflavik, en að
þeirri útgáfu standa þeir Birgir
Einarsson og Baldur Hólmgeirs-
son, og rita þeir formálsorð bók
arinnar. Segja þeir m.a. í for-
málanum:
... Það' er sannfæring okkar,
að bók þessi eigi fullan rétt á
sér, og ekki aðeins sem heimild
arrit siðari tima, örlítið léttara
fram sett en blákaldar tölur i
skýrslum. Á þann hátt teljum við
möguleika til að ná til enn fleiri
áhugamanna um knattspyrnu,
glæða enn frekar áhuga þeirra,
til gagns og ánægju fyrir þessa
göfugu íþrótt.
Kaflafyrirsaginiir bókarinnar
eru þessar: „Höfum við gengið
til góðs . . . ?“ Litla bikarkeppn
in, Meistaramót KKÍ, Reykjavík
urmótið, 1. deild, Aukaleikur, Að
vera markakóngur, Hvað gerð-
ist?, Fyrirliði meistaranna, 2.
deild, 3. deild, Bikarkeppnin, Bik
armeistararnir, Landslfiikir, Þátt
taka í Evrópukeppnum, Hlaut
sæmdarheitið i þriðja sinn, Nokk
ur atriði, Unglinigaleikir.
19. Doddabótin
komin út
NÍTJÁNDA Doddabókin er nú
komin út. Heitir hún Doddi oig
apakötturinn. Doddabaékurnar
eru eftir Eriid Blyton. Bókin er
prýdd fjölda teiknimynda í lit-
um.
Þýðinguna gerði Hersteinn
Pál'sson, en bókin var prentuð
í Odda.
Útgefandi er Myndabókaútgáí
an.
QPIÐ TIL12 Á MIÐNÆTTI
Tökum upp nýjar vörur í dag
Komið og sannfærizt!!!
★ Kápur
★ Peysur
★ Prjónahiiíur
★ Kjólar
★ Terylenebuxur
★ Danskar flauelsbuxur
★ Blússur o. fl. o. fl.
POP HÚSID
BRETTISGÖTU 46 ® 25503