Morgunblaðið - 23.12.1971, Page 5

Morgunblaðið - 23.12.1971, Page 5
MORGUNÐLAÐIÐ, FIMMTUDAGIJR 23. DESEMBER 1971 5 Minning: Gunnlaugur Briem fyrrverandi póst- og símamálastióri KALLIÐ kom fyrirvaralaust. — Gunnlaugur Briem fyrrv. póst- og símamálastjóri andaðist að morgni þriðjudaginn 7. des. rúm- lega sjötugur að aldri. 1 liðlega 10 ár var ég einn af nánustu samstarfsmönnum Gunnlaugs Briem. Var það sam- starf ávallt gott og mér lærdóms- ríkt. Þótt stundum værum við sinn á hvorri skoðun og hvorug- ur gæti sannfært hinn þá féll aldrei skuggi á samstarfið, held- ur byggðist upp traust og góð vinátta. Hann var alltaf hreinn og beinn, fór aldrei aftan að fólki en sagði sitt álit á málum, án þess að hugleiða hvort það skapaði honum vinsældir eða ekki. En það voru einmitt hrein- skilni, drenglyndi, víðsýni og velvilji, sem gerðu Gunnlaug Briem að miklum og mikilsmetn- um manni hjá öllum, sem þekktu hann. Ég er ekki einn um þessa skoðun á Gunnlaugi Briem, hún er sú sama, sem aðrir samstarfs- menn hans hafa látið í ljós og talið honum til ágætis. Gunnlaugur Briem var mjög hógvær maður og ekki fyrir það að ota sér fram. En hann var mjög glöggur og fljótur að átta sig á aðalatriðum í hverju máli, braut hann þau til mergjar og viidi koma þeirn fram til lausn- ar. Var hann með afbrigðum af- kastamikill í starfi og tókst að koma fram mörgum málum á innlendum og erlendum vett- vangi landi og þjóð til farsældar. 1 afmælisgrein, sem Jónas Þor- bergsson fyrrv. útvarpsstjóri skrifaði um Gunnlaug Briem sextugan sagði hann eftirfarandi eftir erlendum manni, sem oft var með Gunnlaugi á ráðstefn- um erlendis, „að Gunnlaugur Briem hafi þar jafnan verið allra manna prúðastur og hæglátast- ur, en kunnátta hans svo djúp og víðtæk og rök svo vel undir- byggð og hófsamlega flutt, að torvelt hafi reynzt að láta það vera að taka þau til greina.“ 1 öðru sambandi segir Jónas: „Ég hefi engan mann þekkt um dagana, sem hefur haft eins mik- ið að gera og Gunnlaugur Briem póst- og símamálastjóri né held- ur afkastameiri." Undir þetta vil ég taka. Við fyrstu kynni mín af Gunnlaugi Briem undraðist ég það, að þeg- ar við vorum að ræða mál og komin vinnulok eða fram yfir þann tíma, því ekki var Gunn- laugur alltaf að gá að klukk- unni, þá dró hann pappírana úr tösku sinni næsta morg- un og var þá búinn að móta lausn þess máis, sem um var rætt kvöldið áður. Síðan vand- ist ég þessu og fannst það ekki tiltökumál. En þetta sýnir vel vinnusemi og skyldurækni Gunn laugs Briem. Hann vann stofnun sinni hverja stund og svo lang- an vinnudag, að ekki mun tima- kaupið alltaf hafa verið hátt. Þegar Gunnlaugur Briem lét af starfi póst- og símamálastjóra 30. apríl sl. kom óneitanlega í hug mér nokkur ótti við það, að erfitt væri fyrir annan eins starfsmann og Gunnlaugur var að láta allt i einu af fullu starfi og það jafn viðamiklu og staða póst- og símamálastjóra er. En á því bar ekki, hann fylgdist með þvi sem var að gerast, eyddi tímanum i lestur og gat gefið sig meira að fjölskyldunni en áður, sem var honum einkar hugljúft. Lét hann vel yfir sínu hlutskipti og virtist í engu kviða ókomnum dögum. Nær allan sinn starfsaldur vann Gunnlaugur Briem hjá Landssimanum og síðan hjá Pósti og síma. Hann var verk- fræðingur Landssimans 1929 og yfirverkfræðingur Pósts og síma 1935, en vann þá að hálfu hjá Ríkisútvarpinu. Hann var þá lærðasti maður hérlendis í radíó- fræðum. Hann var sendur á ráð- stefnu í Prag 1929 til að fá við- urkennda langbylgju fyrir ríkis- útvarpið, en þá voru svo miklir erfiðleikar á að fá slíka bylgju, að það var talið afreksverk, að það skyldi takast að fá tillit tek ið til lítillar þjóðar eins og Is- lendinga í þessu efni. Gunnlaugur Briem annaðist síðan samningagerð við Marconi- félagið i Englandi um byggingu fyrstu útvarpsstöðvarinnar og hafði með höndum yfirverk- fræðingsstörf við uppbyggingu ríkisútvarpsins allt til ársins 1953. Gunnlaugur Briem skildi manna bezt nauðsyn þess að fólk hefði sem bezta þekkingu og menntun til að bera, enda lenti oft á honum að annast kennslu- og prófdómarastörf. Gunnlaugur Briem vann hjá Auglýsing frá fjármálaráðuneytinu um bann við tóbaksauglýsingum Skv. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 63/1969 um verzlun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf, sbr. lög nr. 59/1971 um breyting á þeim lögum, eru óheimilar allar auglýsingar á tóbaki í blöðum, útvarpi, sjónvarpi, kvik- myndahúsum og utandyra, frá og með 1. janúar 1972 að telja. Athygli forráðamanna fjölmiðla og þeirra, sem verzla með tóbak er vakin á þessu lagaákvæði og á skyldu auglýsenda til að fjarlægja útiauglýsingar um tóbaksvörur strax og lögin hafa tekið gildi. Fjármálaráðuneytið, 21. desember 1971 fræðingur og yfirverkfræðingur frá 1929—1956 og póst- og síma- málastjóri frá 1956—1971. Hann verður því alla tíð talinn sá maður, sem einn ríkasta þáttinn hefur átt i þeirri þróun, sem orð- ið hefur i símamálum á undan- förnum áratugum og þá ekki sízt þeim risaskrefum, sem stig- in hafa verið í framfaraátt nú síðasta hálfan annan áratuginn. Hann átti þá ósk að koma lands- byggðinni allri í sjálfvirkt síma- samband jafnframt því að bæta þjónustumöguleika pósts og síma á sem flestum sviðum. Gunnlaugur Briem var traust- ur og ábyggilegur maður, kom það fram í öllu starfi hans og umgengni. Vil ég enn vitna til Jónasar Þorbergssonar í því sam bandi en hann segir svo í fyrr- nefndri afmælisgrein: „Grand- varari maður um alla embættis- færslu né vandaðri að virðingu sinni sem opinber þjónustumað- ur en hann, er ekki til í þessu landi og þótt víðar væri leitað." Gunnlaugur Briem var fæddur 30. marz 1901, sonur hjónanna Sigurðar Briem, póstmálastjóra og Guðrúnar Isleifsdóttur. Hann varð stúdent frá Menntaskóian- um í Reykjavik 1919 og fór þá til Kaupmannahafnar til náms. Lauk hann prófi í forspjallsvís- indum frá Kaupmannahafnar háskóla og prófi í síma- og út- varpsverkfræði frá tækniháskól- anum í ársbyrjun 1926. Var sið- an verkfræðingur i radíó- ingeniörkontoret hjá post- og telegrafvæsenet. Hann fékk 2.000,— kr. styrk frá Alþingi til framhaldsnáms, er hann stund- aði i Þýzkalandi og víðar. Heim kom hann 1928 og stundaði þá ýmis verkfræðistörf en réðst fljótlega til opinberra starfa eins og áður er getið. Gunnlaugur Briem átti sæti í stjórn Verk- fræðingafélags Islands um skeið og formaður þess 1934—1936. Hann var félagi í Akademiet for det tekniske Videnskaber i Kaup- mannahöfn. Var heiðursfélagi í Rafmagnsverkfræðingafélagi Is- lands. Hann hlaut innlend og er- lend heiðursmerki fyrir frábær störf, m.a. hina islenzku Fálka- orðu. Árið 1935, 12. október kvænt- ist Gunnlaugur Halldóru Mar- grétu Guðjohnsen frá Húsavík, hinni mætustu konu. Lifir hún mann sinn ásamt fjórum börn- um, Sigurði, Stefáni, Sigrúnu og Gunnari. Að lokum vil ég minnast á kvöldstund, sem ég veit að var Gunnlaugi Briem kær. Þegar hann varð sjötugur 30. marz sl. þá heiðraði þáverandi sam- gönguráðherra, Ingólfur Jóns- son, hann með því því að hafa boð inni í Ráðherrabústaðnum. Var tekið á móti gestum síð- degis og komu þá fjögur til fimm hundruð manns. Mun tæp- ast fleira fólk hafa verið komið saman í Ráðherrabústaðnum i annan tíma. Um kvöldið var svo veizla fyr- - ir fjölskyldu og nánustu sam- starfsmenn Gunnlaugs Briem. Þar mætti og póst- og síma- málastjórinn frá Danmörku, Gunnar Pedersen, til að flytja Gunnlaugi kveðjur og heilla- óskir frá samstarfsmönnunum á Norðurlöndum og Mikla norr- æna ritsímafélagið sendi fulltrúa sinn. Sýndi þessi móttaka betur en orð fá lýst þann mikla hiý- hug, sem þeir, er kynnzt höfðu starfsmanninum og manninum Gunnlaugi Briem, báru til hans bæði heima og erlendis. Starfsfólk Pósts og síma kveð- ur samstarfsmann og vin með þökk i huga. Og fjölskylda hans sækir styrk í þær ákveðnu skoð- anir Gunnlaugs Briem að ekki sé öllu lokið með hérvistardög- unum. Páll V. Daníelsson. Hjúhrunorkona eðn meinntæknir óskast í fullt starf í lækningastofu í Reykjavík, sem tekur til starfa í febrúarmánuði nk. Skriflegar umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf óskast sendar á afgreiðslu blaðsins fyrír 5. janúar, merktar: .Læknastofan Síðumúla 34 — 630".

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.