Morgunblaðið - 23.12.1971, Blaðsíða 25
MORGUNBLA.ÐÍÐ, FIMMTU’DAGUR 23. DESFMBER 19T1
25
Borgarstjórii Reykjavikur:
Nýskipan skipulagsmála
Samþykkt a5 stofnsetja
I^róunarstofnun Reykjavíkur
tiM, þar sem hiti gaefi þá ein-
ENDANLEGA afgreiðslu fékk i
borgr&rstjórn Reyk javíkur
fúntntudaginn 16. de«. sl. tilLaga
uni nýja samþykkt uin skipu-
lagsnefnd Reykjavíkur. Tillaga
þessi var til 2. uniræðu á fundi
þessum en 1. umræða fór fram
2. des. sl., eins og skýrt hefur
verið frá i blaðinu áður. I»eírri
nýskipan er komið á skipulag-s-
málin með samþykkt þessari, að
stofnuð er Þróunarstofnun
Reykjavíkurborgar, sem á að
hafa með höndum endurskoðun
aðalskipulags Reykjavíkur, svo
og athugrun á deiliskipulagstil-
lögiini, er lagðar verða fyrir
skipnlagsnefnd, eftir því sem
skipulagsnefnd telur nauðsyn-
legt. Var tiiiagan samþykkt með
11 atkvæðum gegn 3 atkvæðum
framsóknarmanna, en borgar-
fulitrúi Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna sat hjá.
Gísli Halldórsson (S) kvaddi
sér fyrstur hljóðs við umræð-
una og rakti hann nokintð
ágreining þann um vinnubrögð
í málinu, sem borgarfulltrúar
Framsóknarfloíkksms hafa gert
og taldi hann hafa valdið seink-
un á framgangi mádsins. Gerði
hann síðan grein fyrir þeim meg
insjónarmiðum, sem búa að baki
þvi að stofna sérstaka deild með
ofangreind verkefni, í stað þess
að láta skipulagsdeild annast
þessi viðfangsefni, svo sem verið
hefur. Væri aðalskipulag í eðli
sínu allt annað starf en deili-
skipulag og tímafrek afgreiðslu-
mái. Þeir, sem ynnu að aðal-
skipulagsmálunum þyrftu að
vera lausir við dægurmálin, sem
væru tíl þess fallin að tef ja end-
urskoðun aðalskipulagsins.
Þrátt fyrir að þessi hefði ver-
ið einróma skoðun þeirrau, sem
kallaðir voru til að láta uppi áiit
á málinu, en það voru Páll lÁn-
dai, þáverandi formaður skipu-
lagsnefndar og Gústaf Pálsson,
borgarverkfræðingur, gátu borg-
arfulltrúar Framsóknarflokksins
ekki fallizt á þessar niðurstöð-
ur. Vildu þeir haida fast i rúm-
lega eins árs gamla tillögu sína
um að skipa sérstaka nefnd til
að kanna málið. Taldi Gísli, að
slík nefndarskipun nú myndi að-
eins tefja málið enn meir.
Guðmundur G. Þórarinsson
(F) talaði næstur og ítrekaði þá
skoðun sína, að mál þetta væri
ekki nægilega vel undirbúið.
Taldi hann, að rétt hefði verið
að skipa nefnd í máiið fyrir
rúmu ári, er hann flutti tiliögu
sína þar að lútandi. Það væru
svona 20—30% líkur á, að nefnd
sú, ef skipuð hefði verið, hefði
komizt að þeirri niðurstöðu um
fyrirkomulag skipulagsmálanna,
að skipuð yrðd sérstök þróunar-
stofnun, eins og hér væri ráð
fyrir gert. Ekkert væri því til
fyrirstöðu að skipa umrædda
nefnd nú, því að ekki mætti
flana að málinu. Mótmælti hann
þvi að afstaða þeirra framsókn-
armanna hefði valdið töfum í
málinu.
Sigurjón Pétursson (Ab) kvað
Alþýðubandalagið styðja tíllög-
hver fyrirheit af hálfu borgar-
stjórnarmeirihlutans um að eitt-
hvað yrði nú aðhafzt í skipu-
lagsmálunum. Kvaðst hann þó
sjá ýmislegt athugavert við til-
löguna og áskildi sér rétt tíl að
vera á móti þessu fyrirkomulagi
síðar, ef það reyndist Ela.
Birgir Isleifur Gunnarsson (S)
kvaðst fagna yfirlýsingu Sigur-
jóns um stuðning við þetta
mikilsverða mál. Sagði hann, að
þeir aðiiar, sem fjallað hefðu um
málið væru þeir, sem mesta
þekkingu hefðu á málum þess-
um hér.
Kvaðst borgarfuUtrúinn vilja
árétta þrjú atriði: 1 fyrsta lagi
hefðu hinir sérfróðu skipulags-
nefndanmenn, sem leitað hefði
verið til mælt með þessari skip-
an. I öðru lagi mætti benda á,
að hér væri ekki vikið frá þvi
meginsjónarmiði, sem gUtí um
upphaflega gerð aðalskipulags-
ins. Þá hefði það verið sérstakt
verkefni sérstakra aðiia og væri
gert ráð fyrir því sama hér. I
þriðja lagi kvaðst borgarfuUtrú-
inn vilja lýsa furðu sinni yfir því,
að Guðmundur Þórarinsson, sem
með tiilöguflutningi og ræðu-
höldum hefði sýnt svo mikinn
áhuga á skipulagsmálunum,
skyldi ekki nú, ári eftir að hann
flutti tillöguna um nefndarskip-
Nefnd um
hlutdeild
ríkisins í rekstri
barnaheimila
Menntamálaráðuneytið hefur
skipað nefnd til þess að semja
frumvarp til l&ga um hlutdeild
ríkisins í byggingu og rekstri
bamaheimila.
I nefndinni eiga sæti Guðrún
Jónsdóttir, íélagsráðgjafi, Gyða
S igvaldadóttir, forstö ð ukona,
Svava Jakobsdóttir, alþingismaS
ur, Þóna Þorleifsdóttir og Stefán
Ólafur Jómsson, fulltrúi í mennta
málaráðuneytinu, sem jafnframt
er skipaður form-aður nefndar-
innair.
(Fréttatilkynning frá
menntamáLaráðuneytiiT'U.
anina, hafa neina bugimynd um
hvernig hann vildi, að staðið
væri að skipulagsmálunum.
Gisli Halidórsson fór nokkr-
um frekari orðum um, hvert
stárí þróunarstofnunar yrði.
Sagði hann ennfremur, að
ágreiningsatriði Guðmundar Þór
arinssonar væru það UtUvæg, að
engin ástæða væri fyrir hann eða
aðra fulltrúa Framsóknarflokks-
ins að greiða atkvæði gegn mál-
inu.
Kristján Benediktsson (F)
sagði, að Hklegast hefði nú ekk-
ert verið gert í máli þessu, ef
Guðmundur Þórarinsson hefði
ekki flutt tillögu sína um nefnd-
ina fyrir ári. Hann sagði enn-
fremur, að þeir framsóknar-
menn væru á móti því, að sett
yrði á fót ný stofnun tU að ann-
ast þessi mál.
Gísli Halldórsson
Guðmundiu- Þórarinsson sagð-
ist hafa talið, að sér væri ekki
stætt á að koma með sérstakar
tiUögur um skipulagsmálin inn í
borgarstjórnina, þar sem harm
hefði aðeins átt þess kost að
hugsa þessi mál þreyttur á
kvöldin og nóttunni eftír strang-
an vinnudag. Þvi teldi hann rétt
að skipa sérstaka nefnd í málið.
Að umræðu lokinni var tiUag-
an samþykkt, eins og áður segir
með 11 atkvæðum gegn 3.
Bótagreiðslur
almannatrygginganna í Reykjavík
Bótagreiðslum lýkur á þessu ári á hádegi
24. þ. m. og hefjast ekki aftur fyrr en á
venjlegum greiðslutíma bóta í janúar.
Tryggingastofnun ríkisins.
ELIZUBUÐIN
AUGLÝSIR
Morgunsloppar
í MIKLU ÚRVALI.
ELÍZUBÚÐIN LAUGAVEGI83
SÍMI 26250
Gjafavörur í úrvali
OLD SPICE GJAFASETT
TABAC GJAFASETT
REYKJAPÍPUR í ÚRVALI
PÍPUSTATÍV
TÓBAKSVESKI
TÓBAKSTUNNUR
TÓBAKSPONTUR
PÍPUÖSKUBAKKAR
VINDLINGAKASSAR
MEÐ BÍLAMÓDELUM
ARINÖSKUBAKKAR
SONDATUNNUR (Sparklet Syphon)
VINDLASKERAR
VINDLAÚRVAL
KONFEKTÚRVAL
RONSON KVEIKJARAR í ÚRVALI
RONSON REYKJAPÍPUR
Verzlunin ÞÖLL, Velfusundi 3
(gegnt Hótel íslands bifreiðastæðinu) — sími 10775.
með DC-8
öi
Oslóar
alla sunnudagd/
þriðjudaga/ og fimmtudaga
LOFTIEIBIR