Morgunblaðið - 23.12.1971, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 23.12.1971, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐEÐ, FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1971 27 Minning; Guðjón Guðmunds- son, hreppstjóri, Eyri NÚ ER G>uðjón Guðmundsson, hreppstjóri á Eyii við Ingólfs- fjörð fallinn í valinn, sá einstæðd persónuleiki, sem mim lengi lifa í minningu þeirra sem honum kynntust. Hann var mikil kempa, sem bognaði aldrei, þrátt fyrir margs konar erfiðleika, sem hann vairð að stríða við seinustu æviár in. Hann andaðist á Vífilsstöðum eftir stutta veru þar, vax fyrir fáum dögum búinn að kveðja sina heknabyggð þar sem hann hafði dvaUzt allan sinn alduT og leyst af hendi fjölþætt ævistarf með trúmennsku. Guðjón var jarðsunginn 17. nóv. sl. í Ámesi og hvílir þar við hlið sinnar trygglyndu eiginkonu sem dáin er fyrir nokkrum ár- um, eftir þungbær og löng veik- indi. Við Guðjón vorum nágrannar og samstairfsmenn um áratugi. Á heimiii hans dvaldist ég oft dög um saman, auk þess sem sam- fundir okkar voru tlðir á heimili mínu. Með okkur tókst traust vin átta og þess er mér ljúft að minn ast og þakka og með söknuði kveð ég þennan trygglynda vin og finnst skarð fyrir skildi þegar hainn er horfinn af sjónarsviðinu. Guðjón var sú persóna, sem vakti eítirtekt. Hann var léttur í spori og hafði hressilegt viðmót, dugnaðu og áhugi birtust í hverri hreyfinigu. Öllum var þegar ljóst að ekki var um neinn meðalmann að ræða. Frá honum gustaði hressilega til hinztu stundar. Á gleðistundum var Guðjón hrókur alls fagnaðar, orðalagið fjölbreytt og hugmyndaflugið mikið og hnittin tilsvör hans komu samferðamömnum hans í gott skap, enda vildu margir með homum dvelja og eignaðist hann marga vini, innlenda sem erlenda. Guðjón var hreinskilinn og hnspurslaús i tali, sagði meiningu sína hver sem í hlut áíti og gekk ekki troðnar slóðir. Hann deildi oft hart á þá, sém honum þótti misnota aðstöðu sína og sjálfur var hann þjóðrækinn og einbeitt ur í starfi og að leiðarlokum skil aði hann af sér með s,æmd. Sorgmæddur kvaddi Guðjóm á Eyri sveit sina og vini í Árnes- hreppi þar sem hann hafði búið frá bamæsku. Hann var ailla tíð bjargálna maður og ætíð traustur málsvari sinnar heimabyggðar og hlaut þjóðarviðuirkenningu fyrir störf sin. Hann lifði það glæsta tímabil, þegar öll býli sveitairinn a,r voru fullsetinn af athafna- mönnum til sjós og lamds og í sveitinni ólst upp dugmikið fóik, sem líklegt var að festi rætur í sinni heimabyggð eins og gerzt hafði um aldaraðir. Hann lifði þá tíma i sögu Ár- neshrepps, að stóratvinnurekstur hófst við Ingólfsfjörð og Djúpa- vík bæði af innle'ndum og erlend um aðilum. Mikill hluti síldar- flota landsmanna var að veiðum á Húnaflóa þar sem síldin óð í hverjum firði og vík. Fólk hvar vetna af lamdimi flykktist í hrepp inn til starfa í veirksmiðjunum. Stór hluti þjóðarteknanna var á þessum árum fenginn við strend ur Húnaflóa og þá var aldrei tal að um Árneshrepp sem hallæris sveit, enda ríkti þá velsædd i hreppnum. En síldarævintýrinu lauk árið 1947, slagbrandi var slegið fyrir dyr verksmiðjanna, sem höfðu malað þjóðarbúinu gull um ára- bil. Ekkert var gext af opinber- um aðilum til bjargar svo að byggð gæti haldizt. En áfram var TIL JÓLAGJAFA BLÚSSUR, PEYSUR, HÚFUR. Fjölbreytt úrval. GLUGGINN Laugavegi 49. BARNASKÓR SKÓSALAN LAUGAVEGI 1 Jólatrésfagnaður i 1 Iðnaðarmannafélagsins í Hafnarfirði og Kvenfélagsins Hrundar, verður í Félags- heimilinu mánud. 27. des., kl. 3 e. h. Jóladansleikur fyrir eldri börn, 12 ára og eldri, klukkan 8 sama dag. Aðgöngumiðar seldir sama dag kl. 10—12 fyrir hádegi. NEFNDIN. haldið á braut. eyðileggingarinn ar og nú er búið að eyðileggja öll fiskimið í Húnaflóa svo vart fæst bein úr sjó sem þó hefur ver ið helzti bj argræðisvegur Strandamanna frá fyrstu tíð. Það var ekki fögur sjón, sem blasti við augum Guðjóns á Eyri hvern morgun þegar hann leit til veð- urs. Við honum blöstu hrunin hús og hafnaxmannvirki, sem máttu muna sinn fífll fegri. í þann mund er Guðjón Var að kveðja heimabyggð sína í síðasta sinn sáu sjónvarpsmenn úr Rvík á- stæðu til að aka norður í Árnes hrepp til að mynda eyðilegginig una sem orðin er á Ingólfsfirði, en sáu ekki náttúrufegurðina eða alla þá miklu ræktun og uppbygg ingu, sem það duglega fólk, sem enn býr þar, er að starfa að. Guðjón á Eyri var fæddur 5. febrúar 1890. Kona hans var Sigr íður Halidórsdóttir, hin mætasta kona. Þau eignuðust fjögur börn, tvo drengi og tvær stúlkur. Að leiðarlokum kveðja sveitungar Guðjóns hann með hugljúfum minningum. Við hjónin og Mela systkinin viijum sérstaklega færa honum innilegustu þakkir fyrir ánægjulegar samverustundir, tryggð og vimáttu um áratugi. — Börnum hans og nánustu skyld- mennum flytjum við einlægar samúðarkveðjur. Sigmundur Guðmundsson frá Meltim. med DC-0 til Stokkhólms alla mánudaga og föstudaga. LOFTLEIDIR Gjafavörur í úrvali OLD SPICE GJAFASETT TABAC GJAFASETT REYKJAPÍPUR í ÚRVALI PÍPUSTATÍV TÓBAKSVESKI TÓBAKSTUNNUR TÓBAKSPONTUR PÍPUÖSKUBAKKAR VINDLINGAKASSAR MEÐ BÍLAMÓDELUM ARINÖSKUBAKKAR SONDATUNNUR (Sparklet Syphon) VINDLASKERAR VINDLAÚRVAL KONFEKTÚRVAL RONSON KVEIKJARAR í ÚRVALI RONSON REYKJAPÍPUR Verzlunin ÞÖLL, Veltusundi 3 (gegnt Hótel Islands bifreiðastæðinu) — sími 10775.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.