Morgunblaðið - 16.03.1972, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAIIZ 1972„
Frá flóðunum miklu í Perú. Börn í litlum bæ virða fyrir sér rústir heimilis sins. 80% húsa í
bænum eyðilögðust. Flóðasvæðin eru 600 fermílur á Kyrrahafsströndinni.
Hughes farinn
frá Nicaragua
Los Amgeles, 14. marz — AP
BILL.IÓNAMÆRINGURINN
Howard Hughes er farinn frá
Nicaragua, þar sem hann hef-
ur farið huldu höfði í einn
mánuð. Samkvæmt opinber-
um heimildum í Managua,
höfuðliorg landsins, fór Hugh-
es i einkaflugvél til Los Ang-
eles.
Talsmaður eins af fyrir-
tækjum Hughes, Richard
Hannah, sagði hins vegar, að
„talið væri að Hughes væri í
Bandaríkjumum“, en hann
kvaðst ekki geta staðfest það,
ef hann væri um það spurður
af blaðamönnum. Annar tals-
maður Hughes sagði, að senni
legaværi í athugun hvort hann
færi aftur til Las Vegas, en
hann sagðist ekkert vita hvar
hann væri staddur.
Samkvæmt heimildum i
Nicaragua átti Hughes fund í
gær með Spmoza forseta, en
þeir hafa rætt hugsanlegan
viðskiptasamning, sem snertir
flugfélag Hughes og flug-
félag, sem Somoza á. Fulltrú-
ar Hughes munu halda þess-
um viðræðum áfram í Mana-
gua.
Áður en Hughes fór til Nic-
aragua var hann á Bahama-
eyjum. Somoza sagði honum
að hann gæti verið í landinu
eims lengi og hann lysti. Áður
en Hughes fór frá Bahama-
eyjum bjó hann einangraður
á hóteli í Las Vegas, en eign-
ir hans þar nema milijónum
dollara.
f KVÖLD bárust þær fréttir,
að Hughes væri kominm í
einkaflugvél til Vameouver í
Kaniada ásamt 15 manmia fylgd
arliði, að því er virti-st í við-
skiptaerimdum, þótt það sé
éklki staðfest. — Enginin sá
Hughes koma.
Forkosningarnar í Florida:
Áfall fyrir Muskie
sem lenti í 4. sæti
Miami, Florida, Washington,
15. marz, AP, NTB.
ir ÚRSLIT prófkosninganna á
Miami í gær urðu mikill sigur
fyrir George Wallace, ríkissljóra
I Alabama, sem fékk 42% at-
kvæða og að sama skapi ósigur
fyrir Edmund Muskie, sem lenti
i fjórða sæti, með aðeins 9% at-
kvæða. Hubert Humphrey varð
næstur Wallace með 18% og
þriðji Henry M. Jackson með
13%.
if Þcir Wallace og Humphrey
keppast nú við að lýsa sig sig-
nrvegara og sannfæra menn um,
að þeim bcri framboð Dcmó-
krataflokksins gcgn Nixon for-
seta í komandi forsetakosningum.
Muskie leggur hins vegar á-
herzlu á, að hann eigi enn eftir
22 prófkjör, áður en útséð er um
úrslit. „Ég á eftir að vinna sum-
ar orrusturnar, en tapa öðrum.
Spurningin er hver vinnur stríð-
ið?“ hafa fréttamenn eftir hon-
um.
ir Meðai repúblikana fékk Nixon
forseti langflest atkvæði, eða
87%, Ashbrook fékk 9% og Mc-
Closky 4%.
Úrslitin hafa haft þau áhrif,
að sögn fréttamanna, að sam-
keppnin u-m framboð demókrata
verður nú meira speninandi en
áður. Muskie er ekki lenigur sig-
urstranglegastur þeirra. Stjairna
hanis iæk'kaði þegar í prófkjörinu
í New Hampshire, þar seim hanm
náði ekki eiinis góðum árangri og
vænzt hafði verið — og nú hefur
hanm hrapað langt niður fyrir
það, sem búizt var við — þó svo
að ráð hafi verið fyrir því gert,
að hanin mundi eiga í vök að verj
ast vegna þátttöiku svo margra
sterkra manna og stuðnings við
Wallace á þessum slóðum.
Wallace hefur nú tryggt sér
stuðniing 75 af 81 fulltrúa demó-
krata í Florida, þegar til endan-
legs vals frambjóðanda flokks-
ms keimur á Miami Beach í júlí
í sumar. Humphrey fær þá sex,
sem eftir eru, en fréttamenm
segja fáa trúaða á, að hamm hljóti
útnefnimgu flokksimis. Humphrey
tapaði fyrir Nixom í síðustu kosn
inigum og bendir ekkert til þesa,
að honum mundi vegna betur nú.
Wallace sagði í viðtali við
fréttamenn, er úrslitin voru
kumn, að þau kæmu sér á óvart
— hanm hefði alls ekki búizt við
svo milklum sigri.
Muakie hélt ræðu á fundi stuðm
ingsmamna sinina, þegar séð varð,
hvar hainm stóð í prófkjörinu og
voru vanbrigðim augljós, bæði á
homum og áheyrendum, að því
er fréttamenm segja. Hamm gagn-
rýndi Wallace mjög harðlega og
kvaðst amdvígur öllum hamis
marbmiðum: „Það sem hefur ver
ið mér mest áfall í þessum próf-
kosningum,“ sagði Musikie, „er
ekki fyrst og fremst mimm per-
sónulegi ósigur, heldur hitt, að
sigur Wallace hefur leitt í ljós
sigur verstu eðlisþátta mamn-
anna.“
Ellefu deimókratar tóku þátt 1
prófkjöriimu á Miami og varð röð
þeirra þessi:
1. Wallace 42%
2. Humphrey 18%
3. Jackson 13%
4. Muskie 9%
5. Lindsay 7%
6. McGovem 6%
7. Chrisholm 4%
8. McCarthy 0%
9. Mills 0%
10. Hartke 0%
11. Yorty 0%
— Hussein
Franihald af bls. 1
stólar verða settir á fót í lands-
hlutunum.
Tillögur Husseins eru umdeild-
ar, en hann lagði þær fram á
fundi, sem alls sátu 500 fulltrú-
ar frá Jórdaníu og svæðum, sem
Israelar hafa hertekið. I ísra-
elska þinginu hafa fimm and-
stöðuflokkar stjórnarinnar kraf-
izt þess að þingið taki tillögur
Husseins til meðferðar hið fyrsta
til þess að hægt verði að ganga
úr skugga um það hvort stjóm
Goldu Meir, forsætisráðherra,
hafi gert samkomulag við Huss-
ein konung um Jerúsalem og
herteknu svæðin á vesturbakka
Jórdan.
Forystumenn Araba á vestur-
bakka Jórdan hafa ekkert viljað
segja um tUlögur Husseins, en
þúsundir manna á herteknu
svæðunum sátu við útvarpstæki
sin til þess að hlusta á síðustu
fréttir frá Ammam. Á Gaza-svæð-
inu sögðu hins vegar forystu-
menn Araba þar, að aldrei yrði
failizt á yfirráð Jórdaníumanna.
Þó er það sögð skoðun ýmissa
framámanna Araba á vestur-
bakkanum að tiUögur Husseins
séu of seint á ferðinni til þess
að koma að haldi, þær séu að-
eins draumur um ókomna fram-
tíð. Lítil Ukindi eru talin til þess,
að tillögur Husseins hafi nokkur
áhrif i bráð á vesturbakkanum,
enda eru yfirráð ísraela trygg og
ekkert bendir til þess að þeir
hörfi þaðan fyrr en friður verður
saminn.
í Amman neitaði stjórnartals-
maður því harðlega að sam-
komulag hefði náðst um tillög-
urnar við ísraelsstjóm, og sama
gerði talsmaður Goldu Meir, for-
sætisráðherra, í Tel Aviv. Ríkis-
stjómir Arabalanda héldu þvi
fram i dag, að tillögur Husseins
væru fyrsta skref í átt til sér-
friðar við ísrael, en talsmaður
Husseins konungs sagði, að til-
lögurnar fælu þvert á móti í sér
harðnandi afstöðu gagnvart
fsrael. „Þetta er jórdanskt innan-
ríkismál og kemur öðrum Araba-
löndum ekkert við. Palestínu-
mönnum verður veittur sjálfs-
ákvörðunaréttur í formi kosn-
inga til þess að ákveða stofnun
nýs rikis, þegar frelsi hefur unn-
izt,“ sagði talsmaðurinn.
f París sagði talsmaður
frönsku stjórnarinnar um tillög-
umar, að stjórnir, væri sammála
því að deilumálin í Miðaustur-
löndum leystust aldrei án þess
að Palestinumálið væri tekið með
í reikninginn. í London vildi
brezka stjórnin ekkert um tiliög-
urnar segja á þessu stigi.
Viðbrögð ísraela hafa hingað
til verið frekar jákvæð, en harð-
asta gagnrýnin á tillögurnar hef-
ur komið frá herskáum Pale-
stínumönnum, sem segjast aldrei
munu fallast á frið við ísrael.
Tillögurnar voru aðalumræðu-
efnið á fundi forsetanna Sadats,
Atassi og Kaddafi i Kaíró í dag,
en sagt var að þeir gæfu engar
opinberar yfirlýsingar um þær
fyrr en þeir hefðu rætt við full-
trúa ísraela. Hvarvetna í Araba-
heiminum hafa komið fram há-
vær mótmæli gegn tillögunum.
— Flugslys
Framhald af bls. 1
í kvöld hættu björgunarsveitir
í Dubai við tilraunir til þess að
komast á slysstaðinn, enda eru
rigningar, sem geisað hafa á
þessum slóðum síðan fyrir helgi,
sagðar hinar mestu í manna
minnum. Fjallið, sem vélin rakst
á, heitir Rasal Khaimah og þar
býr fólk af frumstæðum ætt-
flokki, Shihu-ættflokknum, í
hellum og steinkofum. Þeir bera
axir að Indíánasið og tala mál,
sem varla er skiljanlegt og jóðla
eins og Alpa-búar. Sumir telja
að Shihu-menn séu afkomendur
portúgalskra sæfara frá 16. öld,
og eru sumir þeirra ljóshærðir
og bláeygir. Þeir eru svo herská-
ir, að fáir hætta sér til heim-
kynna þeirra.
Einn af flugmönnum Sterling
Airways segir, að telja verði að-
stæður í Dubai eðlilegar og að
þar sé fullnægt öllum alþjóðleg-
um reglum um lendingar stórra
flugvéla. Frá þvi er skýrt, að
flugstjórmn, Ole Jörgensen,
hafi verið starfandi hjá Sterling
síðan 1966 og haft að baki 4.655
flugtima. Til þess að öðlast full
flugstjóraréttindi hjá Sterling
Airways þurfa menn' að hafa að
baki 5.000 flugtíma.
Jörgensen flaug síðast á leið-
inni Kaupmannahöfn-Ankara-
Dubai-Colombo fyrir tíu dögum.
Að sögn flugfélagsins eru notað-
ar fjórar áhafnir á þessari leið,
tvær á leiðinni austur og tvær á
heimleiðinni.
Veðurskilyrði voru ekki þann-
ig að þau hindruðu lendingu, að
því er frá var skýrt á blaða-
mannafundinum. Hins vegar
voru veðurskilyrðin mjög slæm
í dag vegna mikillar rigningar
svo að vegir voru næstum ófær-
ir. Lágskýjað var og veðrið
hamlaði björgunaraðgerðum,
sem byggjast mikið á þyrlum.
Sennilegasta orsök slyssins er
sú, að sögn yfirmanns tækni-
deildar dönsku flugmálastjórnar-
innar, að flugvélin hafi verið í
of lítiili hæð í aðfluginu. Hann
sagði þó að rannsaka yrði þetta
nánar og að litið væri vitað um
aðstæður á slysstaðnum. Dönsku
sérfræðingarnir eru reiðubúnir
að rannsaka slysið af eigin
rammleilk, ef engin rannsóknar-
nefnd hefur verið skipuð í
Dubai.
Sterling Airways barst tilkynn-
ing kl. 23 að dönskum tima í
gærkvöldi þess efnis, að flugvél-
arinnar væri saknað hjá Dubai.
Tólí þeisrra, sem fórust, voru
Norðmenn, 68 voru Danir, 20
Svíar, fjórir Finnar og tveir
Vestur-Þjóðverjar, en áhöfnin
var öll dönsk. Þetta er kallað
mesta slys í sögu danskra flug-
mála.
— Kafbátur
Framhald af bls. 1
Stefna kafbátsins og fyigd-
arskipanna bendir tii þess að
ferðinni sé heitið til hafnar
í Norður-Rússlandi.
Veðrið er tiitölulega gott á
þessum slóðum, vimdhraði um
10 mílur á kLst. og ölduhæð
um f jögur fet.
— Bernadetta
Framliald af bls. 1
22 öðriini, scm ákærðir voru
fyrir að hafa að cngu bannið
við niótmælagöngnnni, sem
efnt var til vegna atbnrðanna
í Londonderry, þegar 13
manns voru skotnir til bana.
Nítján sakbominganna, þar
á meðal Bernadetta, voru auk
þess dæmdir til að greiða 15
punda sekt. Aðspurð hvort
hún mundi greiða sektina
sagði Bernadetta: „Ég sé ti'l
þegar þar að kemur. Ég hef
um annaS og meira að hugsa
þessa stundina."
1 síðasta mánuði var Berna-
detta dæmd í sex mánaða
fangelsi fyrir þátttöku í ann-
arri ólöglegri mótmælagöhgu
og árið 1970 sat hún í fang-
elsi í fjóra mánuði fyrir að
hafa æst til uppþota. 1 gær
var henni meinað að koma til
Frakldands til að stópuleggja
fundahöld til stuðnings Irum
vegna fyrri yfirlýsinga, sem
voru taldar til þess fallnar að
æsa til óeirða.
— Bretar
Framhald af hls. I
hæft fyrirkomulag á meðan mál-
ið sé fyrir Alþjóðadómstólnum".
Tilgangurinn með þessari tiÞ
lögu er sagður sá, að tryggja
það að ekki komi til árekstra
milli skipa landann-a á umdeildr
um fiskimiðum eins og fyrr á ár-
um.
Bretar vinna nú að undirbún-
ingi þess að leggja málið fyrir
Haag-dómstólinn, og verður það
sennilega gert einhvern tíma á
næst.u þremur vikum.