Morgunblaðið - 16.03.1972, Page 24
24
MORGIXNBLAÐEÐ, FIMMTUDAGUR 36. MARZ 1972
fclk
í
fréttum
ÐBOTTNINGIN I ÆSINGI
Næsta óvenjulegt er að sjá
rnyndir af hinni virðulegu
Bretadrottningu öðruvísi en að
bún sé tiginmannleg og heldur
óspennandi i allri framkomu.
bess vegna er það ósköp nota-
legt að rekast á mynd eins og
hér fylgir með, þarna er
drottningin bersýnilega í hin-
um mesta æsingi, enda horfir
hún hér á kappreiðar, sem er
ein bezta skemmtan hennar.
TBUDEAU VABfl Á
AÐ BLÓTA
Nú rísa öldur hátt í Kanada
og fólk dæsir af hneykslan og
vandlætingu yfir framferði for
sætisráðherrans, Pierre Elliot
Trudeau. Hojiium hrutu sum sé
buótsyrði af vörurn í þinginu.
Síðan varð hann að 'koma fram
í sérstakri útvarpsdagS'krá sér
til varnar. Þá máttu hlustend-
ur hringja í ráðherrann og
Ráðherrar eiga ekki að blóta.
beina til hans spurningum, m.a.
hvernig í ósköpunum stæði á
því að hann gerði sig sekan
um þvilíka ósvinnu. Trudeau
samsinnti þvi í samtali við eina
fimm barna móður að þetta
hefði ekki verið rétt og hann
harmaði þetta. En svo bætti
hann við:. „En hún amma mín
sáluga hún kallaði nú það fólk
hræsnara sem æsti sig upp yf-
ir blótsyrðum annarra, en var
reyndar ekki hætis hót betra
sjálft." Sumum þótti þetta vel
svarað en öðrum þótti iðrun
ráðherrans rista heidur
grunnt.
AT
f; v'. r • i_ f£/t.
Isímm
-5fCrHUÁJTJ-
DÆTUK TYRONE POWERS
Tyrone heitinn Power var
hinn mesti hjartaknúsari og
miklir og heitir straumar fóru
um konur, sem börðu hann aug
um á hvíta tjaldinu, hvað þá ef
þær sáu hann í eigin persónu.
Þrettán ár eru nú liðin síðan
þessi ástsætii bandanísikd kvik-
myndaleikari lézt. í>á voru kon
ur harmi iostnar um all-
an heim, en að líkindum syrgðu
dætur hans tvær hann þó
einna mest, enda var hann sagð
ur með afbrigðum umhyggju-
samur faðir. Við rákumst á
þessa mynd af þeim Rominu og
Tarynu i frönsku blaði; þær
eru nú báðar komnar undir tvi
tugt og Romina hefur leikið
nokkur hlutverk í kvikmynd
um við dágóðan orðstir. Neðri
myndin sýnir þær með föður
sínum. Móðir þeirra er Linda
Christian, eiginkona Tyrone
nr. 2. Þegar hann lézt gekk
þriðja kona hans, Dolores með
barn hans sem fæddist tveimur
mánuðum eftir andlát hans.
Var það sonur, sem nú er
þrettán ára.
■:■
HÆTTA Á NÆSTA LEITI - Eftir John Saunders og Alden McWiIlianis
AT THE MOMENT,
WEST, I CDULDN'T
^ CARE LESS /
IT JUST DOESN'T FIGURE, ^
MISS UPTON / FAIRWATER BAV
SHOULD BE BEGGING VOU TO
TELLTHE WORLD ABOUT ITS J
tmr CLEAN HARBOR /
Ég skil þetta ekki ungfrú Upton.
Stjórnendur þessa staðar ættu að liggja
t hnjánum fyrir þér, til að komast I
þiáttinn og sýna hvað þeir hafa gert. Eins
og á stendur, gæti mér ekki staðið meira
á sama um það West. (2. mynd). Þessi
nmhverfisverndaraðferð var slæm hng-
mynd frá upphafi. Hífðu upp akkerin og
farðu með mig aftur til menningarinnar.
(3. mynd). í þetta skipti hefur viðskipta-
vinurinn ekki rétt fyrir sér, Dan. Hjálp-
aðu mi r að losa léttbátinn, ég ætla í
land.
Jackie: borðar ósköp af osti.
JACKIE FINNST GÓÐUR
OSTUR
Ætla má að Jackie finnist ost
ur einkar gómsætur. 1 osta-
verzlun í París keyptu
þau Jackie og Onassis ost fyrir
níutiu þúsund krónur á dög-
unum. Það fylgir fréttinni að
þa.r aí hafi þau keypt 50 kg
af Camenbert.