Morgunblaðið - 21.03.1972, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1972
Starfsfólk heil-
brigðisþ j ónustunnar
— verði menntað hérlendis
Þingsályktunartillaga
Odds Ólafssonar
Auður Auðuns:
U tanríkisráðuney tið
hefði átt að ganga fyrir
Framkvæmdastofnun
— um húsnæði
Á FUNDI efri deildar í gær var
til muræðu frumvarp um lán-
töku vegna kaupa á þyrlu til
Jandhelgisgæzlu. Var samþykkt
breytingartillaga frá fjárhags-
nefnd um a3 hækka lántökuheim
ildina úr 26 milljónum kr. í 45
millj. kr. í umræðunum urðu
nokkur orðaskipti vegna ákvörð
unar stjórnvalda um að utanrik-
isráðuneytið fái til afnota efstu
hæð nýju lögreglustöðvarinnar,
sem ætluð var Landhelgisgæzl-
imni. Kom fram I ræðu utanrik
isráðherra, að húsnæðisvandamál
ráðuneytisins væru slík, að t.d.
væri þar ekki stóli fyrir einn
starfsmanninn.
Fe.r hér á eftir stuttur úrdrátt-
ur úr þessum umræðum.
Auður Auðuns (S) sagði, að
mörgum hefði gramizt sú ákvörð
un, að það húsnæði sem Landhelg
isgæzluhni hefði verið ætlað í
nýju lögreglustöðinni, skyldi nú
vera tekið undir eitt af ráðuneyt
unum.
„Um leið og ég lýsi ánægju
minni yfir því, að þyrlukaupin
skuli nú vera komin á þetta stig,
og þetta góða og öfluga gæzlu-
og björgunartæki skuli nú vera
að komast í notkun fyrir okkur
íslendinga, og fyrir íslenzka sjó-
mannastétt, þá get ég ekki hjá
þvi komizt, að láta i ljós að ég
harma, að húsnæðismál Land-
helgisgæzlunnar skuli hins vegar
vera i því horfi, sem nú er ljóst
að muni vera, eða maður hefur
ástæðu til að ætla, að fullákveð-
ið sé.“
Einar Ágústsson, utanríkisráð-
herra, tók undir það, að Land-
helgisgæzlan hefði lengi búið við
léleg húsakynni og ónóg. Sér-
staklega væru þau of lítil nú,
þegar ráðgert væri að efla Land
helgisgæzluna.
Þá gerði ráðherra nokkra grein
fyrir húsnæðismálum utanríkis-
ráðuneytisins, og sagði m.a. að
heildargólfflötur þess húsnæðis,
sem ráðuneytið nú hefði til af-
nota, væri 220 fermetrar, og þar
af'hefði ráðherra sjálfur 28 ferm.
Gat hann þess að einn starfsmað
ur ráðuneytisins, forsetaritari,
sem ætti að starfa þar hálfan
daginn, hefði nú ekki stól, og
yrði hann því að vinna sín verk-
efni á skrifstofu forsetans. —
Ástæðuna fyrir þessum stólmissi,
sagði ráðherra vera þá, að blaða
fulltrúi rikisstjórnarinnar hefði
ráðið til sín einkaritara.
Loks sagðist ráðherra vona að
Landhelgisgæzlan fengi húsnæði
við sitt hæfi, þótt efsta hæð lög-
reglustöðvarinnar væri tekin til
annarra þarfa um stundarsakir.
Auður Auðuns sagði, að vissu
lega hefði mátt leita að húsnæði
fyrir ráðuneytið annars staðar en
i Iögreglustöðinni. T.d. hefði nú
kommissaraforsjá landslýðsins
fengið inni í mjög rúmgóðu hús-
næði, og fengi hún ekki séð
hvers vegna utanrikisráðuneytið
hefði ekki verið látið sitja í fyrir
rúmi með það húsnæði.
f GÆR var lögð fram á Alþingi
tillaga tii þingsályktunar um
menntun heilbrigðisstarfsfólks.
Flutningsmaður tillögunnar er
Oddur Ólafsson. Er tiilögugTein-
in svohljóðandi: Alþingi ályktar
að fela rikisstjórninni að gera
ráðstafanir til þess, að unnt verði
að mennta hérlendis ýmsa starfs-
hópa heilbrigðisþjónustunnar, er
nú verða að sækja nám sitt til
útlanda. Um er að ræða ýmsa
hópa heilbrigðistækna, svo og
sjúkra- og iðjuþjáifara, félags-
ráðgjafa og sálfræðinga. Enn-
fremur að auka og bæta aðstöðu
til kennslu hjúkrunarfólks.
í greinargerð sinni með tihöig-
unni segir Oddur Ólafsson:
„Á siðasta Alþingi voru sam-
þykkt lög um tæknimermtaðar
heiIbrigðiss'téttir. Þau lög veita
tæknimennituðu starfsfól’ki rétt
til sitarfa innan heilibrigðisþjón-
ustunnar.
Á siðustu áratugum hafa orðið
miiklar breytingar á starfsliði
heilbrigðisþjónustuinnar. Fyrrum
var fyrst og fremst um leekna og
hjúkrunarkonur að ræða, en nú
eru æ fieiri sérhætfðir starfshop-
ar teknir inn í kerfi lækninga-
sitarfsins.
Skortur á sérhæfðu starfs-
fóiki háir heilbrigðisþjón Lir-ituni.i
mjög. Sjúkra- og iðjuþjálfara
skortir vegna vaxandi en durhæf-
ingarstarfseimi, sömuleiðis er
mikil þörf fyrir aukinn fjölda
félagsráðgjafa og sálfræðmga.
Það ætti að vera mögulegt að*
mennta þessa starfshópa hér
heima. Háskóli íslands og Tækni-
skólinn þyrftu að sinna þessium
verkefnum, en mjög nauðsynlegt
er að hefjast handa sem aflra
fyrst, þar sem náinið tekur 3—4
ár. Margir sjúklingar £á ekki
fulikomna þjánustu og hjálp í
dag vegna vöntunar á starfstfólki.
Fjöldi ungs fól'ks óskar eftir a-3
læra þessi störf, en nám erlandis
er dýrt og þar að auki vaxandi
erfiðleikar að komast inn í skóla
í nágrannaiöndunum. Væri
kennsla í þt-ssum greinum tek;n
upp hér, mundi það einnig fjölga
námsbrautum í vinsæium starfs-
greinum. Tækniskóli ísiainds hef- j
ur í nokkur ár menntað meina- I
tækna með mjög góðum árangii,
og hafin er kennsla röntgen-
tækna.
Skortur á hjúkrunartfóilki er
alþekktur, og mlkið hefur verið
um hann rætt og ritað á undan-
fömuim árum, en án árangurs.
Knýjartdi nauðsyn er því að
fjölga h j ú krun a rkverrn askólum
eða auka ken nslu mögule i ka þess,
sem fyrir er. Meðan skortur er ,
,á kennsikikröftum, er liklegt, að
hægt sé að fá sérmenntaðar
hjúkrunarkonur frá nágranna-
löndunum til kennslustarfa hér.
Fjöigun sérmenntaðs starfsfói'ks
er heilbrigðisþj ónustu okkar
nauðsynlegra en flestar aðrar
umbætur, eigi hún að geta sinnt \
f ramtíðarverkefnum símim á við-
unandi háitt
^»"«»'«KR.KRISTJÁNSSON h.F.
SUDURLANDSBRAUT 2
SÍMI 3 53 00
SÁ SEMEINU S/NNI HEFUfí ÁTT
AMERÍSKAN BÍL V/LL EKKIANNAÐ
MEBCm COMET 72 ^
Fyrir utan óviðjafnanlega aksturseiginleika,
meta eigendur bandarískra bíla 'hvað mest þá
staðreynd að allur viðhaldskostnaður er
langtum minni og ending þeirra allt að tvöföld
á við það sem menn eiga að venjast.
Bjóðum nú hinn glæsilega Mercury Comet
á hagstæðara verði en nokkru sinni fyrr.
Gerið samanburð við evrópska bíla á verði
og gæðum. Sýningarbíll á staðnum.
BÍLL Á ETRÚFSHU VEBSI