Morgunblaðið - 29.03.1972, Qupperneq 2
r
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1972
Mælingamenn
til Grímsvatna
5 piltar á leið þangað á skíðum
Peysufatadagur Verzlunarskóla íslands var i gær, og setti sinn svip á borgarbraginn aS
vanda. Hófst hann með samkomu í Háskólabiói, en aö henni lokinni hófst ganga prúðbúinna ver*l
unarskólanema um borgina, og voru helztu styttur borgarinnar heimsóttar. Þessi mynd var tekin
við Stjórnarráðið.
Skuttogarar
eru framtíðin
1 GÆB komst þyrla varnarliðs-
ins í Grímsvötn með tvo menn
frá Jöklarannsóknafélaginu, sem
skildir voru þar eftir til rann-
sóknastarfa. Hafði þyrlan i tvo
daga reynt að komast að skálan-
um á Grímsf.jalli, en þurft að
snúa við vegna þoku og skaf-
rennings. Dr. Sigurður Þórarins
son var með í förinni í gær. —
Sagði hann að sér hefði i fl.jótu
bragði sýnzt að umhorfs væri í
Grímsvötnum svipað og eftir
fyrri hlaup. Þó taldi hann ekki
að ishellan væri sigin til fulls.
Vegna slæmrar reynslu fyrrí
dagana, þótti þyrlumönnum ó-
varlegt að fara upp í Gríms-
vötn, sem eru í 1725 m hæð, með
þrjá menn í einu. Skildu þeir
Sigurð þvi eftir i skála Jöklafé
lagsins í Jökulheimum, meðan
þeir fóru upp með Helga Bjöms-
son, jöklafræðing og Magnús
Haiigrímsson, verkfræðing, sem
urðu þar eftir til mælinga og
rannsókna. En sóttu síðan Sig-
urð. Þeir Magnús og Helgi verða
t skála Jöklafélagsins á Gríms-
fjalii fram á páska, þegar leið-
angur frá félaginu kemur þang-
að í tveimur snjóbílum og sækir
þá.
Fleiri eru á leið í Grímsvötn.
Fimm piltar úr Flugbjörgunar-
sveitínni komu gangandi á skíð-
um í Jökulheimaskálann í fyrra
dag og sáu þyrlumenn þá við
Keriingar skammt frá jökulrönd
Inni á leið upp í gær. Piltamir
eru Jörundur Guðmundsson,
Hjaiti Sigurðsson, Magnús Magn
I G/KRKVÖI.DI átti að fara fram
frumflutningur í Kristskirkju á
Mattlieusarpassíu J. S. Bachs með
Pólýfónkórnum, en vegna veik-
inda Sigurðar Bjömssonar, sem
far* áttl með stærsta einsöngs-
hlutverkið, guðspjallamanninn,
varð að fresta frumflutnlngnum,
þar eð ekki tókst að útvega ann-
an söngvara í hans stað í tæka
tið.
I samtali við Morgunblaðið i
gær skýrði Ingólfur Guðbrands-
som, stjómandi Pólýfónskórsins,
svo frá, að þegar ljóst var að
Sigurður gæti ekki sungið, hefði
strax verið hafizt handa að 1-eita
að öðrum söngvara og haft sam-
band við marga umboðsmenn í
Bretlandi, Þýzkalandi og Svíþjóð,
meðal þeirra Jasper Parrott, um-
boðsmanns Ashkienazys.
Ingólfur sagði, að hlutverk
þetta væri mjög erfiít og vanda-
Blaðskák
Akureyri —
Reykjavík
Svart: Taflfélag Reykjavíkur
Magnús Ólafsson
Ögmundur Kristinsson.
Hvítt: Skákfélag Akureyrar
Gylfi Þórhallsson
Tryggvi Pálsson.
6. — b7-b5
ússon, Guðjón Halldórsson, Helgi
Ingólfsson og Rúnar Nordkvist.
Fjórir þeirra gengu á skíðum
yfir Vatnajökul í fyrrasumar og
lentu þá í nokkrum hrakningum,
sem þeir björguðu sér vel úr. —
Þeir ganga á skíðum og hafa far
angurinn á snjóþotu, hver dregur
35 lcg. Fara þeir að sjálfsögðu
ekki hratt yfir.
Flugbjörgunarsveitarmennirnir
fóra úr bænum á föstudag og
gistu við Þórisós. Á laugardags-
morgun gengu þeir af stað frá
Vatnsfelli áleiðis i Jökulheima,
sem er 42 km leið. Hafa þeir feng
ið þungt færi og komu ekki fyrr
en á mánudag í Jökulheima. Þá
eiga þeir 50 km leið eftir upp
jökulinn og sáust þar gangandi
úr þyrlunni í gær.
Sigurður Þórarinsson sagði, að
miklar sprungur væru í Gríms-
vötnum, eiginlega allt í kring,
en hellan sjálf ósprungin og
slétt. Gæti orðið snúið að finna
leið, sem hægt væri að fara nið
ur í vötnin, en eftir að þangað
væri komið, væri greiðfært.
í gær var hrímþoka í Gríms-
vötnum.
Auk leiðangurs Jöklafélagsins
sem fer á Vatnajökul á páskum,
mun hópur manna ætla að reyna
að fara í Grímsvötn á snjósleð-
um, svo fjölmennt verður á jökli
þá, ef allir komast á leiðarenda.
Ragnar i Skaftafelli sagði í
gær, að flóðið minnkaði heldur í
Skeiðará. Virtist það ætla að
minnka eins hægt og það óx.
samt í fhitnmgi, og aðeins á færi
beztu söngvara. Eftir hádegið í
gær tókst loks að fá Michael
Goldthorp frá Biretl andi til að
taka að sér hlutverkið, en um
seinan að hann næði fiuigvél
frá London í gær. Hann kemur
til landsins í kvöld og syngur
verkið án æfingar með kómum í
Háskólabíói á skírdag.
Að sögn Ingólfs er Goldthorp í
tölu fremistu ungra tienóra í Bret-
landi um þessar mundir — mennt
aður í Oxford, Cambridge og
London. Hann hefur haldið sjálf-
stæða hljómleika bæði í Bret-
landi og á meginlandi Evrópu,
og m. a. borið sigur úr býtum
í nokkrum söngkeppnum. Hann
hefur getið sér sérstaklega gutt
orð fyrir óratoríusöng en er einn
ig þekktur sem ljóða- og óperu-
söngvari, þar sem hróður hans
fer ört vaxandi.
Nú hefur verið á'kveðið, að
Pólýfdnkórinn efni til aukahljóm
leika í Háskólabíói á laugardag
n. k. tól. 5 síðd. og gilda þar þeir
aðgöngumiðar, sem gilda áttu að
hljómleikunum í gærtóvöldi. Einn
ig rnunu aðgöngumiðamir að
hljómleikunum, sem halda átti í
Háteigskirkju, gilda að hljóm-
leiteunuim í Hásteólabíói í stað-
inn söteum miteillar aðsóknar.
INNRÁS í S-JEMEN?
• BEIRÚT: Norðiir-Jemen
hefur hótað stríði við Suðnr-
Jemen vegna nýrra landa-
maerabardaga, sem hafa kost-
að 83 Norður-Jemena líflð.
Fréttir herma, að landamær-
um ríkjanna hafi verið lokað
og viðbúnaður fyrirskipaður.
Suður-Jemenar eru sakaðir
um að hafa sent árásarflokka
yfir landamærin atik MIG-
flugvéla, en stjórnin i Aden
hefur sakað Norður-Jenien og
Saudi-Arahíu um liðssafnað
til undirbúnings innrás i land
ið.
Akureyri, 28. m.arz.
SKUTTOGARINN Sólbakur EA-
5 er nýkominn til Akureyrar úr
fyrstu veiðiför sinni. Skipstjór-
inn, Áki Stefánsson, hafði þetta
að segja um reynsluna af skip-
inu í fyrstu ferð þess til veiða
undir íslenzkum fána:
— Túrinn gekk yfirleitt vel,
þrátt fyrir mjög slæmt tíðarfar
og nær látlausar brælur, allan
tímann. Skipið reyndist afar vel
og allir hlutir um borð. Við vor
um allir stórhrifnir af skipinu
og öllum tækjum þess og búnaði
bæði undirmenn og yfirmenn.
— Við erum kannski ekki bún
ir að ná fullum tökum á hon-
um enn, ekki farnir að hlusta eft
ir hjartaslögunum í honum, ef
svo má segja, en þettá kemur
allt og verður áreiðanlega mjög
gott.
tonn, eftir að hafa verið að í tiu
daga. Það verður að teljast alveg
Þykkvabæ, 28. marz.
ELDUR kom upp í bænum Stóra-
Rimakoti í Rangárvallasýslu í
nótt. Kviknaði í geymslu, þar
sem geymdar voru kartöflur, en
svo hagar þarna til, að tvær hlöð-
ur, fjós og tvær geymshir eru
samföst. í kartöflugeymslunni
var olíuofn og er talið líklegast
að kviknað hafi í út frá honum.
Húsfreyjan á bænum varð
fyrst vör við að eldur var kom-
inin upp í útihúsunum um kl.
13.30 í nótt. Var þegar hringt á
næstu bæi og dreif þegar að mik-
inn fjölda til að aðstoða við
þolanlegt, þegar við það er miðað
að fiskur er yfirleitt sáratregur
núna, þó að það eigi að heita há-
vertíð.
— Já, skuttogararnir eru át-eið
anlega það sem koma skal. Þeir
eru örugglega framtíðin, það er
enginn vafi á því. — Sv. P.
slöitókvistarfið, svo óg kom slökJkvi
lið frá Hvolsvelli og Hellu á
vettvang. Gekk slökkvistarfið
vel, en miklar steemmdir urðu
þó á útihúsunum, sem þó standa
uppi eftir brunann. f hlöðumum
voru um 30 hestar af heyi, sem.
er skemmt að verulegu leyti, svo
og hafa skemmzt um 150 teartöfiú
pokar og 2—3 tonin af ábuirði.
Að Stóra-Rimakoti býr Guð-
laugur Jónsson ásamt fjölskyldu
sinini. Hanm hefur orðið fyrir
miklu tjóni, því að húsin voru
lítið vátryggð. — Magnús.
Við komum inn með 150
Eru nýjar haf taráðstaf
anir í undirbúningi?
— Steingrímur Hermannsson telur nauðsynlegt
að draga úr neyzlu, byggingu „stórra og fínna
húsa“ og bifreiðakaupum
UMMÆLI Steingríms Her-
mannssonar, ritara Fram-
sóknarflokksins, í sjón-
varpsviðtali í fyrrakvöld,
benda eindregið til þess,
að ríkisstjórn Ólafs Jó-
hannessonar hafi í undir-
búningi nýjar ráðstafanir í
efnahagsmálum, sem m.a.
byggist á f járfestingar-
hömlum og innflutnings-
höftum af einhverju tagi.
í viðtali þessu lét Stein-
grímur Hermannsson í ljós
þá skoðun, að nauðsyn
hæri til að draga úr neyzl-
unni í landinu og taldi að
draga mætti úr byggingu
„stórra og fínna húsa“ og
úr bílakaupum.
f sjónvarpsviðtalinu var
ritari Framsóknarflokksins
inntur eftir því, hvaða nýjar
leiðir það væru, sem flokkur
hans vildi fara til nýrrar
tekjuöflunar, er hefðu sem
minnst áhrif á aknennan
framfærslukostnað í landinu
og urðu orftaskipti spyrjanda
og Steingríms þá á þessa leið:
Eiður Guðnason: En hvafta
leiðir eru það hér, sem átt er
við, sem hafa sem minnst
áhrif á . . .
Steingrímiir Hermannsson:
Við mundum vilja auka
spariféð t.d. verulega, það er
minnzt á það að gefa út spari-
skírteini, reyna að draga úr
neyzlu. Neyzlan er of mikil í
dag miðað við framleiðslu-
gelu þjóðarinnar.
Eiður: Höfum við það þá of
gott í dag, miðað við það, sem
við höfum efni á?
Steingrímur: Ja, við höfum
það mjög gott í dag. Ég held
við íslendingar getum ver-
ið afar ánægðir með lífið í
okkar landi, en hvort við höf-
um það of gott, það hygg ég
að sé erfitt að segja, hvenær
við höfum það of gott.
Eiður: En ef á að draga úc
neyzlu, á hvaða sviðum þá?
Steingrímur: Ja fýrst og
fremst á að draga úr neyzlu 1
á þeim sviðum þár sem '
sem telja má eins og oft er
kallað luxus eða þess háttar.
Eiður: Að menn hætti að
hyggjá sér stór og fin hús?
Stelngrímur: Já, það raættf
draga úr þvi, vissulega mættí
draga úr þvi.
Eiður: Og bílakaupum
kannski?
SteingTímur: Bílakaup hafa
verið gifurleg á undanfömuim
árum — undanförnum tveim-
ur árum — og ég er þeirrar
skoðunar að það megi draga
úr bílakaupum áreiðanlega."
Til viðbótar þessum um-
mælum Steingríms Hermanns
sönar, ritara Framsóknar-
flokksins, er ástæða til að
vekja athygli á ummælum i
forystugrein Timans í gær, en
þar segir, að „nauðsynlegt er
að gera róttækar aðgerðlr
Framtiaid á bK 1«.
Mattheu sarpassí an:
Frumflutningi frestað
vegna veikinda Sigurðar Björnssonar
Utihús brunnu að
Stóra-Rimakoti