Morgunblaðið - 29.03.1972, Side 5
■ ,'"i .■' ■■ ■* ..— ■- ......i ..M,
MORGUNBLABIÐ, MIÐVTKUDAGUR 29. MARZ 1972
5
Aöalfundur Fáks:
Nýi skeiðvölhirinn
bylting í starfseminni
Fjórir af sex stofnendum Fáks, sem lieiðraðir voru. I>eir eru Osc-
ar Clausen, Óskar Bjartmarz, Karl Þorsteinsson og Pálmi .Tóns-
son. Þeir Ólafiir B. Björnsson og A. Rosenberg voru ekki við-
staddir.
Færeyjar:
Viðræður um sérrétt-
indi er tímabært þyki
AÐALFUNDUR hestamannafé-
iagsins Fáks var hal-dinn í fé-
lagsheknilinu 23. marz sl. Fyrir
fundinum lá itarleg skýrsla um
síðasta starfsár ásamt sundurlið-
uðum rekstrar- og efnahagsreikn
ingi.
Fundarstjóri var kosinn Har-
aldur Sveinsson, en sex stofn-
félagar Fáks voru heiðraðir
núna fyrir mikil og góð störf i
þágu félagsins. Þeir voru Oscar
Clausen, Óskar Bjartmarz, Karl
Þorsteinsson, Pálmi Jónsson, Ól-
afur R. Björnsson og A. Rosen-
berg.
Úr stjórn félagsins áttu að
ganga Sveinbjörn Dagfinnsson,
formaður, Sveinn K. Sveinsson,
varaformaður og Örn Johnson,
ritari. Voru þeir allir endurkosn-
ir, nema Örn Johnson, sem lýsti
því yfir, að þrátt fyrir mikinn
vilja til að starfa fyrir svo ágæt-
an félagsskap, gæti hann þvi mið
ur ekki gefiið kost á sér til end-
urkjörs. í hans stað var kosinn
Örn Ingólfisson. Aðrir í stjórn
félagsins eru Einar Kvaran, gjald
keri og Guðmundur Ólafisson,
meðstjómandi. I varastjóm voru
kosnir Páll S. Páisson og Bene-
dikt Björgvinsson.
1 ársskýrslunni kemur fram,
að nýr skeiðvöllur var opnaður
að Víðivöllum og olli það bylt-
ingu í aðstöðu félagsmanna til
sýninga og þjálfunar hesta
sinna. Lokaátakið við gerð skeið
vallarins og uppsetndngu girðing
arinnar beggja vegna hlaupa-
brautarinnar, var unnið af Fáks-
félögum i sjálfboðavinnu. Stjórn
félagsins skipaði margar nefnd-
ir sér til aðstoðar við starfið,
m.a. fjáröflunarnefndir, undir
ötufli formennsku þeirra Mar-
grétar Johnson og Páls S. Páls-
sonar.
Stjóm Fásks gaf út rit í tilefni
50 ára afmælis félagsins og rit-
stýrðu þvi þéir Sigurður Hauk-
ur Guðjónsson og Kristján Guð-
mundsson. Ritið fæst á skrif-
stofu félagsins og kostar kr.
250.00.
Hirðingarmenn í hesthúsum
félag.sins voru þeir Gunn-
ar Tryggvason, Sigurður
Sigurðsson, Magnús Þórðarson,
Magnús Magnússon, Sigurður
Guðmundsson og Eiður Hilmis-
son. Framkvæmdastjóri hes^.a-
mannafélagsins Fáks er Bergur
Magnússon.
Thorshavn, 27. marz.
Einikaskeyti til Mbl.
MARKAÐSMÁLANEFND fær-
eyska lögþingsins samþykkti í
dag einróma ályktun þess eðlis,
að landstjóm Færeyja skuli hafa
samband við íslenzku ríkisstjórn-
ina vegna landhelgismálsins. —
Ennfremtir að landsstjórain og
fulltrúar lögþingsins hefji þegar
tímabært verði, viðræður við fs-
lendinga um sérréttindi fær-
Moskvu, 27. marz. AP.
SOVÉZKIR vísindamenn skutu i
dag á loft ómönnuðu geimfari,
Venus VIII, sem lenda á mjúkri
lendingu á Venusi í júlí n.k. og
halda áfram þeim rannsóknum,
sem Venus VII byrjaði, er hann
lenti á Venusi 15. desember 1970.
Geimfarið sendi þá upplýsingar
eyskra fiskiskipa innan 50 milna
iandhelgi.
Nefndin telur rétt að sambaind
verði haft við íslendinga, en tel-
ur að ekki sé rétt að reka á eftir
samningsviðræðum að svo stöddu
máli. Nefndin lætur í ljós það álit
að draga megi ályktun af yfirlýs-
ingum í Alþingi íslamds og Lög-
þingi Færeyja um samvinmu lamd
anma, um að Færeyingar muni fá
sérréttindi innan íslenzku fisk-
veiðilögsögunmar. — Arge.
til jarðar í 23 mínútur áður en
saniband rofnaði.
Venus er svipuð að stærð og
jörðin, en lítið er vitað um þenn-
an nágranna okkar, annað en að
yfirbórð stjörnunnar er mjög
heitt og þakið þykkum skýja-
bólstrum.
Langferðabíll
Til sölu er 38 manna langferðabíll af gerðinni Mercedes Benz
321 árgerð 1962. Bíllinn er í góðu lagi og selst með útvarpi
og talstöð. Góðir greiðsluskilmálar. Bilaskipti koma til greina.
Bíllinn er til sýnis i dag að Höfðatúni 2.
BÍLASALA MATTHÍASAR
Símar 24540 og 24541.
Mattheusarpassían
Sökum mikillar aðsóknar verður MATT-
HEUSARPASSÍAN eftir J. S. BACH flutt
í 4. sinn í HÁTEIGSKIRKJU laugardag-
inn 1. apríl kl. 13,30.
ALLRA SÍÐASTA SINN.
Aðgöngumiðar hjá Ferðaskrifstofunni
ÚTSÝN og Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar.
PÓLÝFÓNKÓRINN.
Venus VIII á loft
125 g smjör
1 msk. klippt sleinselja
Vt msk. söxuð, sýrð gúrka
4 hringir paprika
1 tsk. kapers
1 msk. sitrónusafi
öriítið af pipar
Hrærið allt vel saman. Mótið
smjörið i sívalning um það bil
4 cm í þvermál. Vefjið plasti
utan um smjörið og kælið það
vel. Smjörið er skorið í sneið-
ar og lagt á steikt naulabuff
með tómatsneið á milli — og
vinarsniddur með sitrónusneið
á milll.
Kryddsmjör er mjög gott með
grillsteiktum réttum.
125 g smjör
2 eggjarauður
2 msk. ktipptur graslaukur
2 tsk. sitrónusafi
Hrærið ailt saman og berið
sumarsmjörið með heitu salt-
kjöti, fiskréttum og heitum
grænmetisréttum.
Hrærf smjör með mismunandi
bragðefnum gerir matinn fjöl- .
breyttari, fyllri og bragðbetri. .
125 g smjör
1 msk. klippt steinselja
Vi tsk. sykur
1 barnask. sinnep
2 tsk. sitrónusafi
Hrærið allt saman. Tatara-
smjör er mjög gott með soðn-
um, steiktum og djúpsteiktum
fiski.
Hrært smjör með mismunandi
bragðefnum gerir matinn fjöl-
breyttari, fyllri og bragðbetri.
Cs/ ' -y -
jz/omafr
125 g smjör
2 msk. tómatkraftur
(helzt ósætur)
1 tsk. klippt steinselja
Hrærið smjör, tómat og stein-
selju saman og berið með
steíktum og soðnum fiskrétt-
um.
Hrært smjör með mísmunandi
bragðefnum gerir matinn tjöl- ,
breyttari, fyllri og bragðbetri. .
125 g smjör
3 msk. kavíar
1 msk. rifinn laukur
Hrærið saman smjöri, lauk og
kavíar. Skreytið með klipptum
graslauk og notið á smurt
brauð, með köldum eggjarétt-
um og steiktum fiski.
£2
Hrært smjör með mismunandi 01
bragðefnum gerir matinn ijöi- JL
breyttari, fyllri og bragðbetri. J
Klippið út og geymið!