Morgunblaðið - 29.03.1972, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1972
7
ö <ý©e> öoí> áxiw ao» «©t> «0
DAGBOK
BARMNNA..
BANGSIMON
og vinir hans
Dag nokkurn kom Bang-
símon labbandi niður að
þessari brú. Skammt frá
lágu litlar grenigreinar á
víð og dreif. Hann tók eina
upp, skoðaði hana og sagði
við sjálfan sig: „Þetta er
falleg grein. Ég hlýt að
geta búið til góða vísu um
hana.“
Honum gekk erfiðlega
að finna orð, sem rímuðu,
en loks tókst honum að
koma saman þessari vísu:
Ef mér gæfist grenitré
gæti ég orðið smiður.
Uglan segir að það sé
allra bezti viður.
„Þetta var nú nokkuð
gott hjá mér,“ sagði Bang-
símon ánægður. Hann var
nú kominn að brúnni, en
þar sem hann var annars
hugar, varð honum fóta-
skortur. Hann missti grein-
ina úr höndum sér og hún
lenti niðri í ánni.
„Æ, þarna fór illa,“
sagði Bangsímon, þegar
greinin sigldi undir brúna.
Hann fór til að fá sér aðra
grein, ef vera kynni, að
honum tækist að búa til
aðra vísu um hana. En þá
langaði hann meira til að
hcrfa á ána, vegna þess að
þetta var góðviðrisdagur
og í alla staði ánægjulegur.
Þess vegna lagðist hann á
brúna og fór að horfa á
ána. Hún rann hægt leið-
ar sinnar .... og þá sá
hann allt í einu, hvar
greinin hans kom siglandi.
„Þetta er undarlegt,“ sagði
Bangsímon. „Ég missti
hana út í ána hinum meg-
in við brúna og nú kem-
ur hún fram hérna megin.
Gaman væri að vita, hvort
þetta gerist aftur.“ Og svo
fór hann til að sækja sér
fleiri greinar.
Það fór á sömu leið. Þá
lét hann tvær greinar
detta samtímis og hallaði
sér fram af til að sjá, hvor
mundi koma fyrst. En þar
sem greinarnar voru jafn
stórar, vissi hann ekki,
hvort sú var á undan, sem
hann hafði óskað sér að
ynni eða hin.
Næst lét hann því eina
stóra grein og aðra litla
detta og sú stærri kom
fyrst, og það hafði hann
einmitt sagt við sjálfan
sig. Sú minni kom á eftir
og það hafði hann líka sagt
við sjálfan sig og þess
vegna vann hann sjálfur
tvisvar. Þegar hann hélt
heim á leið til að fá sér
hressingu, hafði hann unn-
ið 36 sinnum og tapað 28
sinnum . . . já, 28 frá 36, svo
oft hafði hann unnið . . .
en ekki öfugt (ekki 36 frá
28).
Þetta var upphafið að
leiknum, sem Bangsímon
bjó til og var kallaður
„Bangsabuna“ eða „Spýtu-
leikur“ og hann og vinir
hans fóru oft í þennan leik.
Þau notuðu litlar spýtur,
vegna þess að það var
auðveldará að þekkja þær
í sundur.
Einn góðan veðurdag fóru
Bangsímon, Grislingur-
inn, Kaninka og Kengúru-
barnið í þennan leik. Þau
höfðu öll látið spýturnar
sínar detta niður samtím-
is, um leið og Kaninka
sagði „Nú,“ og svo flýttu
þau sér að gægjast fram
af brúnni hinum megin til
að sjá, hvaða spýta kæmi
fyrst. En áin var afskap-
FRflMttflbÐS
SflEfl
BflRNflNNfl
Á neðri myndinni hafa verið gerðar sjö breytingar.'
þið funclið þær?
Getið
DRATTHAGI BLYANTURINN
103
f .#/ / \
\xr zs
- B5'-71 -
FERDIN AND
'Cf,
iioftvq (,' u : ^
í $tultu nuili
SVÍAK í EBE?
# BRUSSEL: Nýskipaður
forseti framkvæmdanefndar
Efnahagsbandalagsins, Sicco
Manshoit, kveðst fús til að
veðja, að Svíar sæki um að-
ild að bandalaginu eftir f jög-
ur ár. Hann sagði, að verið
væri að ganga frá viðskipta-
samningi við Svía, sem yrði
þeim hagstæður. Hann sagði,
að brezkir jafnaðarmenn
mundu á næstu fjórum árum
endurskoða afstöðu sina
gegn aðild að EBE og viður-
kenna að þeir höguðu sér
kjánalega.
NVTT SAMBANDSRÍKI?
® KAÍRÓ: Lokið er við-
ræðum milli Egypta og íraka
um stofnun ríkjasambands
Egyptalands, Iraks og Sýr-
lands. írakar eiga hugmynd-
ina að stofnun hins nýja sam-
bandsrikis og er taiið að með
því vilji þeir hamla gegn tU-
lögum Husseins konungs um
stofnun sarnbandsríkis Jórd-
aniu. Sýrlendingar hafa tekið
dræmt í hugmyndina.
HEIMSÓKN ANDMÆLT
© MIAMI: Um þúsund kúb-
anskir útlagar efndu um helg-
ina til mótmæiaaðgerða í Mi-
ami gegn heimsókn sovézks
itafrannsóknaskips. Menn af
skipinu, sem höfðu skoðað
itorgina, urðu að fá lögreglu-
fylgd um borð. Skipið hefur
tekið þátt í rannsóknum 15
landa, á hafstraunmm, fisk-
veiðum og veðurfari á Karíba-
hafssvæðinu, og starfsmenn
þess hafa átt fundi með
bandarískum vísindamönmmi.
GRECHKO í BELGRAD
9 BELGRAD: Landvarna-
ráðherra Sovétríkjanna, And-
rei Grechko marskálkur, er
kominn í opinbera heimsókn
til .lúgóslavíu og endurgeldur
með því oplnbera heimsókn
landvarnaráðherra Júgóslav-
íu, Nikola Ljubicics herhöfð-
ingja, til Sovétríkjanna 1970,
Grechko og sendinefnd hans
munu skoða hernaðarniami-
virki í landinu.
HÁRÞU RRKAN
FALLEGR!*FLJÓTARI
i
Í€*n*M€J€Þ
VINSÆL
FERMINGARGJÖF
FYRSTA
FLOKKS
F R Á ....
SlMI 2-t420 - SUÐURG. 10 - RVlK