Morgunblaðið - 24.05.1972, Side 1
32 SIÐUR OG 8 SIÐUR IÞROTTIR
Nixon í Moskvu:
Tveir samningar náðust á f yrsta degi
Mikil áherzla lögð á að árangur
náist í viðræðum sovézkra
og bandarískra leiðtoga
Moskvu, 23. maí — AP/NTB
0 RICHAKD M. Nixon, forseti Bandaríkjanna, kom til
Moskvu í gær, mánudag, til viðræðna við sovézk yfir-
völd. Er gert ráð fyrir að viðræðurnar leiði til samninga
um takmörkun gjöreyðingarvopna, aukinna viðskipta ríkj-
anna tveggja og samvinnu um geimrannsóknir.
0 Strax í dag, á fyrsta degi viðræðnanna, leiddu viðræð-
urnar til samninga um tvö vandamál. — Þeir Nixon
og Nikolai V. Podgorny undirrituðu samning um samvinnu
ríkjanna varðandi umhverfis- og mengunarmál, og William
P. Rogers, utanríkisráðherra, og heilhrigðismálaráðherra
Sovétríkjanna undirrituðu samning um sameiginlega bar-
áttu gegn hjartasjúkdómum, krabbameini og fleiri sjúk-
dómum.
0 Við komu Nixons til Moskvu vakti það athygli að
Leonid Brezhnev flokksleiðtogi mætti ekki á flugvell-
iniun til að taka á móti gestunum, heldur aðeins þeir Nikolai
Podgorny forseti og Alexei Kosygin forsætisráðherra. Strax
eftir komuna fór Nixon hins vegar til fundar við Brezhnev
og ræddust þeir við einslega. I dag ræddust þeir svo við
á ný og áttu saman þrjá fundi.
Nixon og- Brezhnev ásamt túlk á leið til fundar.
und borgarbúar hafi safnazt
saman meðfram leið Nixons til
borgarinnar.
Nixon er fyrsti forseti Banda-
rikjanina, sem heimsækir Moskvu.
Hann kom þangað eftir hálfs
annars sólarhrings viðdvöl í
Salzburg i Austurríki, en í fylgd
með forsetamum og konu hans
eru meðai annarra þeir William
P. Hogers utanríkisráðherra og
dr. Henry Kissinger, ráðgjafi for-
setains í öryggismálum.
Þegar forsetahjónin komu til
Moskvu var f jöimenni á flugvell-
iinum til að táka á móti þeim.
Þar voru fremstir í flokki þeir
Podgomy forseti og Kosygin for-
sætisráðlherra. Eftir að skipzt
hafði verið á kveðjum könnuðu
þeir Nixon og Podgomy heiðurs-
vörð meðan þjóðsöngur Banda-
rikjanna var leikinn. Því næst
voru gestimir kynntir fyrir öðr-
um framámönnum í móttöku-
nefndinni, svo sem Andrei
Grechko vamarmálaráðherra og
Nikolai Patoliohev ráðiherra ut-
anríkisviðskiptamála. Báðir þess-
ir ráðherrar hafa mikilla hags-
muna að gæta í viðræðunum.
Enigar ræður voru fluttar á
flugvellinum, en ekið af stað
áleiðis til borgarinnar i bílalest.
Fréttamenn telja að um 100 þús-
ÓVÆNTUB FUNDUR
Samkvæmt dagskrá heimsókn-
arinnar áttu forsetahjónin að
halda frá flugvellinum til bústað-
ar síns í Moskvu, og voru engir
fundir fyrirhugaðir fyrsta dag-
inn, aðeins kvöldverðarboð með
sovézku-m leiðtogum. Það kom
því nokkuð á óvart þegar það
fréttist að Nixon hefði strax eft-
ir ko-muna átt fyrsta fund sinn
með Brezhnev. Ekki var skýrt
frá þvi hvað þeim fór á milli,
en Moskvuútvarpið sagði, að við-
ræðurnar hefðu verið gagnlegar.
Framhald á bls. 12.
Barizt af hörku einn
kílómetra frá An Loc
Loftárásir á fleiri skotmörk
Saigon, 23. ma-i. AP.
SUÐUR-vietnamskar hersveitir
eru nú aðeins um kílómetra frá
héraðshöfuðborginni An Loc, sem
kommúnistar hafa setið lun í tæp
ar sjö vikur. Þær eru í hörðum
bardögrum við norður-vietnanisk-
ar sveitir, sem reyna að vama
þeim veg að borginni. Herstjórn-
in i Saigon segir að sóknin gangi
sæmilega þótt mikið mannfall
hafi orðið á báða bóga, en engu
var spáð um hvenær liðsaukinn
kæmist til An Loc.
Þá eru etnnig harðir bardagar
í grennd við Konjtuim, en suður-
vietinajmiskar sveitir eru að reyna
að opna vegi-n-n sem tengir hana
við Pleilkiu. Norður-vietnömistou
sveiti-mar þama eru vel búnar
stónstoofaliði og þeiim s-uður-viet-
nömistou miðar hægtt áfram.
ÖRVANDI LYF?
Bandaríska hersitjórnin hef-ur
ökýrt frá þvi að tæplega 400
norðu r-vietnam.ski r heumienn hafi
verið felidir þegar þeir gerðu
stórárés í grennd við Hue á
tmánudaig. Einir 20 skriðdrekar
voru eyðilagðir. Fangar seim tekn
ir voru í fyrsta áhlaupinu, skýrðu
frá því að hermönnunum hefði
verið skipað að taka örvandi pitl-
ur, áður en þeir gerðu áráisdna,
til að gefa þeim meira þrek og
minnka ótta þeirra við að faílla.
loftárAsir HERTAR
Vamamálaráðuneyti Bandaríkj
anna tilkynnti i dag að löfbárásir
á Norður-Vietnam yrðu hertar
næst.u dagana og árásir gerðar á
fleiri skotmörk, svo seim ortouver
og veriksmiðjur sem séu nauðsyn
Framhald á bls. 12.
Nixon kannar heiðnrsvörð við komuna til Moskvu ásamt Pod-
gorny forseta.
Handtökur í Moskvu vegna
komu Nixons forseta
- Talsmenn aukinna mannréttinda vilja að Nixon
ræði þau mál við sovézku leiðtogana
- Fregnir berast af miklum átökum í Litbauen
Moskvu, AP—NTB.
• Fregnir hafa borizt til Vest
urlanda frá áreiðaniegum
heimildum í Moskvu um, að
komið hafi til mikilla óeirða
og átaka í borginni Kauna i
Sovétlýðveldinu Lithauen eft
ir útför ungs manns, sem
hafði brennt sig til hana í
mótmælaskyni við stefnu sov
ézkra yfirvalda. Fylgir það
fregninni, að einn eða tveir
lögreglumenn hiafi látizt af
sárum, sem þeir hlutu í átök-
unum, er stóðu í tvo sólar-
hringa. Hundruð ungra
manna og kvenna hafa verið
handfekin í Kauna og ná-
grenni og geysiöfliigur lög-
regfuvörður sagður á götum
borgarinnar.
• Þá hafa borizt fregnir af
handtökum manna, einkum
Gyðinga, í Moskvu tii þess
að koma í veg fyrir anðóf
gegn sovézkum yfirvöldum
meðan Richard Nixon, Handa-
ríkjaforseti, dvelst. þar í
landi. Þrjú hunðruð sovézkir
Gyðing-ar hafa skrifað Nixon
bréf og beðið hann liðsinnis
í baráttu sinni fyrir þvi að fá
að flytjast til ísraels.
• Loks hafa tveir kunnir sov
ézkir andófsmenn og baráttu-
menn aukinna mannréttinda i
Sovétrikjunnm, kjarnorkuvís-
indamaðurinn Andrei D.
Sakharov og Pyotr I. Yakir,
sonnr frægs sovézks hers-
Framhald á bls. 31.