Morgunblaðið - 24.05.1972, Page 4
4
MORGUNBLABIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAl 1972
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
12 21190 21188
14444 *£* 25555
14444*2:25555
22*0-22*
RAUÐARÁRSTIG 31
STAKSTEINAR
Glundroði fram
á síðasta dag
Þingrstörfin í vetur liafa ver-
ið með næsta iosaraleg-um
hætti út allt þinghaldið. Því
veldur annars vegar lélegur
undirbúningur mála og hins
vegar sundrung í stjórnarlið-
inu, sem í sumum tilvikum
náði alla leið inn í ríkisstjórn-
ina. Þetta á ekki hvað sizt við
um hin stærstu mál þingsins
svo sem afgreiðslu fjárlaga
og setningn nýrra skattalaga.
Strax sl. haust lá það fyrir,
að fjárlögin voru aðeins lögð
fram tU málamynda. Ríkis-
stjórnin hafði þá þegar gefizt
upp við að halda útgjöldum
rildssjóðs innan þess ramma,
sem fyrri skattheimta leyfði,
og varð af þeim sökum að
knýja fram ný skattalög, sem
kæmu til framkvæmda þegar
á þessu ári. Að samningu
þeirra var síðan imnið með
mjög flausturslegum hætti og
án þess að samtök sveitarfé-
laganna hefðu þar nokkra
formlega aðild að. Síðiistu dag
ana fyrir jólaleyfi voru skatta
lagafrumvörpin síðan lögð
fram og kom þá þegar í ljós,
að meðal stjórnarflokkanna
var mikUl ágreiningur um
málið, sem jafnvel náði inn í
rikisstjórnina sjálfa. Næstu
mánuðir fóru síðan i það að
berja stjórnarliða til fylgis
við skattalagabreytingarnar
og það tókst með því fororði,
að breytingamar skyldu ekki
vera nema tU eins árs. End-
urskoðuninni skyldi haldið
áfram og málið tekið upp á
næsta þingi.
Frumvarpið um Fram-
kvæmdastofnun rikisins tókst
að visu að afgreiða fyrir jól.
En það var engan veginn
þrautalaust. Ýmsum þing-
mönnum óaði hið mikla mið-
stjórnarvald, sem þar var
fengið í hendur þremur
kommisörum, þremur póli-
tiskum yfirþuklurum, eins og
félagsmálaráðherra orðar það.
Sú stutta revnsla, sem síðan
hefur fengizt af þessu þukli,
hefur staðfest bað, sem ýms-
ir óttuðust, að það er engan
veginn auðvelt að koma jafn-
vel hinum smæstu málum í
gegnum STOFNUNINA, —
skrifstofubáknið, sem enga
hliðstæðu á sér i íslenzku efna
hagslífi.
Þegar dró að þinglokum
urðu menn varið við, að liing
og ströng fundarhöld áttu sér
stað í hliðarherbergjum. Boð-
in voru látin ganga á milli.
Stundum misfórust þau og
þá varð að gera hlé á fundum
þingnefnda til þess að ein-
stakír stjómarliðar mökkiiðu
rétt. Fyrir kom, að stjórnar-
sinnar lögðu fram ítarlegar
breytingartillögur við 2. um-
ræðu, sem ráðherra jafnvel
mæiti með, en sem aldrei
voru bornar upp, — reyndust
á misskilningi byggðar, eins
og sagt er. Dæmi þessa er
Þjóðleikhúsfrumvarpið. En
allt kon þó fyrir ekki. Það
dagaði uppL Endanlega kom
það í hlut Bjama Guðnason-
ar, flokksbróður menntamála-
ráðherra, að veita þvi nábjarg
irnar.
Hér má minnast á Tækni-
skólafrtimvarpið, sem mennta
málaráðherra lagði áherzlu
á, að næði fram að ganga á
þessu þingi. Einn stjórnar-
þingmannanna, Jónas Jóns-
son, lagði til að því yrði visað
frá, eftir að hafa sjálfur skrif-
að tindir nefndarálit, þar sem
mælt var með samþykki þess.
Halldór E. Sigurðsson land-
búnaðarráðherra varð að
sætta sig við, að Framleiðslu-
ráðsfrumvarpið næði ekld
fram að ganga. Þvi olli inn-
byrðis sundrimg í Framsókn-
arflokknum, m. a. vegna fóð-
urbætisskattsins og kvótakerf
isins, sem þar átti að lögfesta.
Mágnús Kjartansson iðnað-
arráðherra hafði tekið þeirri
málaleitan sjálfstæðismanna
víðs fjarri, að tillaga um raf-
orkumál yrði athuguð betur
til næsta þings. Þar var m. a.
gert ráð fyrir stórauknu mið-
stjórnarvaldi ríkisins. Eftir að
mótmælum hvaðanæva af
landinu tók að rigna yfir AI-
þingi, brást flótti í iiðið og á
þessa tillögu var ekki minnzt
frekar.
Hér hefur verið drepið á
nokkur mál, er öll sýna þá
miklu ringulreið, sem verið
hefur á störfum Alþingis í vet
ur. Því veldur eins og fyrr
segir sumpart lélegur undir-
búningur mála og sumpart
innbyrðis sundurþykkja, en
fyrst og fremst þó stjóm-
Ieysi það, að ekki er tekizt
á við vandann.
Bílaleigan SIF hf.
Höfum opnað bílaleigu að Akur-
gerði 1 A, Akureyri. Erum með
nýja V.W. 1300 bíla.
Reynið viðskiptin.
Bílaleigan SIF hf.
Akureyri.
Riifill til sölu
Erma 22 cal. 15 skota, sjálfskipt-
ur, vestur-þýzkur ásamt sjón-
auka og hreinsisetti. Uppl. i síma
20772
Mínar beztu þakkir færi ég
öUum fjær og nær, sem heiðr-
uða mig og glöddu á marg-
víslegan hátt og gerðu mér
sjötugsafmælið þann 13. þ.m.
ógíeymanlegt.
Valgerður Gísladóttir,
Hólastekk 4, Rvík.
Dagskráin teygðist í
— á hvítasunnusamkomunni
í L.augardalshöll
„JESÚS TIL SÖLU“ og „Fer
gróðinn á gíróreikning?“ stóð
á spjöldunum, er fámennur
hópur hélt á loftí við and-
dyri Laugardalshallarinnar
að kvöldi hvítasunnudags, til
að mótmæla samkomu þeirri,
er Æskulýðsráð Reykjavíkur
og æskiilýðsfulltrúar þjóð-
kirkjunnar gengnst fyrir í
LaitgardalshöUinni og stóð
frá kl. 17 til að verða eitt
eftir miðnætti. Samkomuna
sóttu um 2500 unglingar og
nægði aðgangseyrir þeirra
ekki tU að greiða kostnað af
samkomuhaldinu, heidur verð
ur þar nokkur halli á.
Daigskráin, sem upphaf-
lega var ráðgerð 5 tíma
löng, teygði úr sér í nær 8
tima og voru unglingarnir
nokkuð teknix að þreytast i
lokin. Samkoman fór að öðru
leyti mjög vel fram og var
framkoma unglinganna með
ágætum. Er samkom'unni lauk
komu nokkrir stætisvagnar
og óku unglingunum í þau
borgarhverfi, sem liengst eru
frá Lajugard aLshöll i n n i\
Hljómsveitimar Mánaur, Trú
brot og Náttúra fluttu tónlist
sína, svo og söngfélagairnir Jó
hann og Magnús frá Keflavík,
Ámi Johnsen og Kennara-
skólakórinn. Séra Bemharður
Guðmundsson, æs'kuilýðsfuH-
trúi, var kynnir og ræddi við
nokkra flytjendanna oig ann-
að ungt fólk, einkum um trú-
mál.
Sænska J esúfólkið söng
sálma og talaði um trú sína,
8 tíma
en er það hafði verið á svið-
imu í um 20 mínútuir, tók nokk
ur hópur ungilimga sig til og
klappaði það niður af svið-
inu. Boðskapur Svíanna hafði
þó femgið nokkurn hljóm-
grunn hjá aillstórum hópi
umglimganna, sem þyrptust að
Svíunum í anddyrinu og
ræddu við þá í hálfa aðra
klukkustund.
Á iaugardagskvöld ð var
samkoma í Bústaðakirkjrj,
þar sem Svíamir töliuðu og
sungu og fengu svo góðar und
irtektir, að samkomunni ætl-
aði aldrei að ljúka, og fór hún
tvær stundir fram úr áætlun.
Á annan hvítasunnudag tóku
Svíarnir þátt í samkomu í Ak
uireyrarkirkju og fór allt á
sömiu leið og fyrr: Unga fólk-
ið sóttist eftir að fá að ræða
við þá um trúna og lífið og
fékkist ekki til að fara úr
kirkjunni fyrr en seint og síð
ar meir. Húsfyllir var í báð-
um kirkjunum.
Magnús og Jóhann frá Keflavik fengu góðar undirtektir á samkomunni í LaugardalshöU á
hvitasunnudag (Ljósm. Mbl. Kr. Ben).
ísíma 251001