Morgunblaðið - 28.05.1972, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MAl 1972 £) '
Qrn Bjarnason, héraöslæknir í Vestmannaeyjum:
Um flúorblöndun neyzluvatns
1 grein i Morgunblaðinu,
sunnudaginn 14. maí 1972 var
vedtzt að kollega mínum, >ór-
oddi Jónassyni og á nokkuð sér
kennilegan máta reynt að læða
því inn hjá lesendum, að hér-
aðfelæknirinn hvetti til aðgerða.
sem stofna myndu lífi og heilsu
Akureyringa í hættu væri farið
að ráðum hans.
1 tilefni þessa vil ég leyfa mér
að koma á framfæri nokkrum al
mennum atriðum um flúor og
flúorblöndun neyzluvatns.
Liggur þá fyrst fyrir að skil-
greina fyrirbærið: Flúor er
frumefni og er í ílokki efna, sem
nefnast halogenar. Flúor er
táknað með bókstafnum F og
önnur frumefni í þessum flokki
eru kiór, bróm og joð. Flúor er
bundið í formi saita, t.d. NaF
(natríumflúoríð) og er mjög
víða í náttúrunni, í lofti, á iáði
og í iegi.
brAðar fiXorkitramr
Flúorsambönd valda bráðri
eitrun, ef þau komast í likama
manna i verulegu magni. Venju-
legast hafa slikar eitranir orðið
vegna þess, að skordýraeitur,
sem innihalda flúorsambönd
hafa fyrir slysni eða mistök kom
izt í matvæli. Hafa menn þá í
misgripum notað þessi eiturefni
í þeirri trú að um matajrsalt hafi
verið að ræða og hefir þetta
komið fyrir á veitingastöðum og
valdið eitrun hjá fjölda manna
samtímis. Helztu einkenr.i eru:
1 byrjun aðallega vegna áhrifa
fQúorsaltanna á slímhúðir melt-
ingarfæranna: Munnvatns-
rennsli, ógieði; verkir í kvið,
uppköst, niðurgangur. Siðar:
Óróieiki, vegna áhrifa á tauga-
icerfið, ehn síðar krampar. Bióð-
þrýstingur fellur og valda þvi
eituráhrif á heilastöðvar, svo og
bein áhrif á hjairtavöðvann.
Öndun örvast í byrjun en lam-
ast siðan. Dauða veldur oftast,
annað hvort önöunarlömun eða
hjartabilun.
Þessari bráðu flúoreitrun er
lýst í öllum handbókum um eitr
anir og þetta þekkja ailir lækn-
ar. Aítur á móti er í áður-
nefndri grein í Morgunblaðinu
einhverra hiuta vegna ruglað
saman einkennum bráðrar eitr-
unar og hægfara flúoreitrunar,
sem nú skal vikið að.
HÆGFARA FLÚOREITRUN
Mjög mismikið er af flúorsam-
böndum í jarðvegi i hinum ýmsu
heims- og landshlutum. Fiúor
kemst i plöntur úr andrúmsloft-
inu og jarðveginum. í líkama
manna kemst fliuor með ýmsum
fæðutegundum og drykkjar-
vatni. Þar sezt fluor i alla vefi,
en aðallega tennur og bein.
Fiúor er víða í neyzluvatni.
Sé mjög mikið magn þess í
vatninu og vatnsneyzla er mik-
il, t.d. ef veðráttu er svo háttað
að meðallofthiti er mjög hár, má
búast við hægfara flúoreitrun.
Einkennin, sem koma fram
eru: 1) Litarbreytingar á tann-
glerungi (fluorosis), í byrjiun ljós
ir blettir, sem síðan renna saman
og dökkna, tennurnar verða lé-
legri og skemmast frekar. Þess-
ar tannskemmdir koma fram
meðan tennurnar eru í vexti.
Þessar breytingar koma fram ef
fiúormagn er margfalt meira en
það, sem blandað er í vatn til að
forðast tannskemmdir, eins og
vikið verður að síðar. 2) Auk-
in harka beina (osteosclerosis)
og við aukna skammta koma
fram kalkanir í liðböndum, sin-
um og vöðvafestum og vaxandi
og iangvarandi eitrun getur
valdið bæklun. Til þess að þess-
ar breytingar komi fram þarf
dagieg neyzla að vera um 20
mg, í 10—20 ár, en það svarar
til þess, að við áðurnefnda
blöndun til tannveriidar, þyrfti
viðkomandi að drekka 20 — tutt
uigu lítra af vatni á dag.
GAGNSEMI FLÚORS
Ljót er sú mynd, sem upp er
dregin af áhrifum flúors í stór-
um skömmtum, en þetta gildir
raunar í stórum dráttum um ýms
efni, sem við notum dagiega, t.d.
matarsalt: í stórum skömmtum,
t.d. ef drukkinn er sjór, veldur
matarsalt dauða, en án hæíi-
legra skammta daglega, er iíf og
heilsa í hættu.
Að vísu er fiúor á engan hátt
lifsnauðsynlegur og við gætum
trúlega alveg án hans verið.
Aftur á móti er vitað um einn
eiginleika flúors, sem er já-
kvæður, en það er, að fCúor í
hæfilegu magni getur komið í
veg fyrir tannskemmdir, þó
ekki sé vitað með fullri vissu á
hvem hátt það gerist.
RANNSÓKNIR A
Ahrifum FLÚORS
Við rannsóknir í Bandarikjun
um hefir komið í ljós, að á stöð-
um, þar sem flúormagn í drykkj
arvatni var nærri einum millj-
ónasta hluta (1 ppm = 1 part
per miHion), voru tannskemmd-
ir mun minni en á stöðrjm, þar
sem enginn flúor var í vatn-
inu.
Eitt þekktasta dæmið er frá
útborgum Chicago. Annare veg-
ar voru hverfi þar sem fiúor-
magn var 1,2 ppm og hins veg-
ar hverfi með nálega engan flú-
or í vatni. Við rannsóknir kom
í ljós, að á flúorsvæðunum voru
sex sinnum fleiri börn með ailar
tennur heiiar og heiidartajm-
skemmdir 60% lægri, en á flúor
snauðu svæðunum.
Gaf þetta visbendingu um
visst orsakasamband og frekari
staðfesting fékkst óvænt í Baux
ite, Arkansas, eftir að ný vatns
veita var gerð. Kom þá í ljós,
að börn, sem fædd voru eftir að
flúorsnautt drykkjarvatn var
sett í veituna, höfðu margfalt
meiri tannskemmdir en börn,
sem höfðu neytt flúorblandaðs
vatns árin á undan.
Leiddi þetta til þess, að við-
tækar rannsóknir voru gerðar á
vegum Bandarísku heilbrigð-
isstofnunarinnar (U.S. Public
Health Service) til þess að
ganga úr skugga um hvort flú-
orbiöndun vatns væri hægt að
nota sem hagkvæma aðferð til
að minnka tíðni tannskemmda.
„Það heflr nú örugglega verið
staðfest með víðtækum rann-
sókmim í fjölda sveitarfélaga
að flúormagn 1 ppni er ÖRUGG
e>g HAGKVÆM heilbrigðisráð-
stöfun, sem gefnr þann árangur,
að tiðni tannskemmda minnkar í
ölhim aldursflokkiini.“
„Mestur árangur næst, þegar
börn drekka slíkt vatn fyrstu 8
ár ævinnar." (The Pharmacologi
cal.Basis of Therapeutics, 3. útg.
1966).
1 Bretiandi kom út skýrsla
1962 frá heilbrigðisráðuneyt-
inu um tiiraunir með flúor-
blöndun og brezki heilbrigðis-
ráðherrann hefir í framhaldi af
þeinri skýrsiu hvatt til þess, að
sl:ik flúorblöndun verði tekin
upp í byggðarlögum, þar sem
þeas væri óskað.
í Morgunblaðsgreininni vitn-
ar greinarhöfundur máii sínu
til stuðnings i „ummæii og nið-
urstöður ábyrgra manna, há-
lærðra lííeðlisfræðmga, efna-
fræðinga og lyfjafræðinga."
Ekki efast ég um, að allt séu
þetta iærðir menn og spekingar
og heiðursmenn í þokkabót, en
lítið stoðar þegar öliu er rugiað
saman, eins og áður er vikið að.
rAðleggingar who
Á síðasta ári kom út rit, gef-
ið út af Alþjóða heiibrigðis-
stofnuninni (WHO) og hefir
það að geyma alþjóðlega stöðl-
un drykkjarvatns (Internation-
al Standards for Drinking-Wat-
er). Þar eru gefnar ráðleggingar
um flúorblöndun drykkjar-
vatns. Á bls. 35 kemur fram að
flúorsambönd séu nauðsynleg
(„essential") til þess að minnka
tannskemmdir í bömum og íull
yrt er, að eí magn:ð sé minna
en 14 ppm, séu líkur á mikiTTi
tiðni taranskemmda. Á bls. 36 er
tafla yfir það flúormagn sem
mælt er með og birtist hún hér.
Skal þess getið til skýringa, að
í fremsta dálki er árlegt meðal-
tal hæsta hitastigs á dag i Cel-
cius-gráðum. 1 aftari dálkun-
um tveim eru efri og neðri
mörk fýrir flúor (F) í mg/L, en
mg/L = ppm.
öryggisrAðstafanir
1 greinarlok segir höfundor
títtnefndrar greinar frá 14. maí:
„Það er heldur engan veginn ör
uggt að meira magn en 1 ppm
geti ekki farið út i kerfið.“
Að visu skiptir ekki neinu
máli þó allt að 16 ppm fari út
í kerfið yfir skemmri tíma, en
þessa tölu nefnir greinarhöfund
ur. Aftur á móti er alger
óþarfi að slikt komi fyrir, en
hættulaust er það algerlega.
Nú vill svo til, að í einu
byggðarlaga hérlendis er þegar
hafin Húorblöndun neyzluvatns.
Útbúnaður sá, sem notaðuir er,
var hannaður með það fyrir aug
um að halda flúormagni milli
0,9 og 14 ppm. Reynslan hefir
sýnt að magnið hefir aldrei far-
ið upp fyrir 1,1 ppm, en aftur
á móti þarf mikla nákvæmni til
að gæta þess að magnið fari
ekki niður fvrir 0,9. Til viðtoót-
ar þessu eru svo af óháðum að-
ila gerðar flúormælin.gar þrisvar
á sólarhring.
Enda: Hver trúir þvi að iækn-
ar í viðkomandi byggðarlagi
væru meðmæltir flúorblöndun
drýkkjarvatns, ef minnsta
hætta stafaði af þessu? Ekki
má gieyma þvi að þeir sjálfir og
Ijölskyldur þeirra drekka þetta
vatn daglega!
Auðvitað er alveg hægt að
vera án flúorblandaðs vatns, en
er nokkur ástæða til að verða
af gagnsemi þess að rninnka
tannskemmdir þegar aðferðin er
bæði örugg og ódýr?
Annual average of maximum daily air lemperature in *C Recommended control limits for fluorides (as F) in mg/l
Lower Upper
10 -12 0.9 1.7
12.1-14.6 0.8 1.5
14.7-17.6 0.8 1,3
17.7-21.4 0.7 1.2
21.5-26.2 0.7 1.0
26.3-32.6 0.6 0.8
HARDASIA
II(ÍKKIJTÓLIl)
Toyota Land Cruiser
í hvaða veðri sem er.
Við hvaða skilyrði sem er.
Á Tóyota Land Cruiser geturðu vél láta vegir jafnt sem vegleys-
tekizt á við allt sem á vegi þín- ur í minni pokann.
um verður - sandbleytu, snjó, Jafnframt vægðarleysi við jepp-
aur, ísingu, urðir og stórgrýti. ann sjálfan er tekið tillit til öku-
Toyota Land Cruiser með fjög- manns og farþega. Toyota Land
urra hjóla drifi geysist upp brött- Cruiser er hinn ákjósanlegasti
ustu brekkur og kemur þér alltaf fjölskyldubíll.Vinsæídirhansum
á ákvörðunarstað. Fyrir einstak- heim allan erekkiaðfurða. Hann
iega sterkbyggðri 155 hestafla er sigurvegarí allra aðstæðna.
Toyota-umboðið
Höfðatúni 2 - Sími 25111