Morgunblaðið - 28.05.1972, Síða 14
14
MORGU'NBLAÐIÐ, SUN'NUDAGUR 28. MAl 1972
SJÓMANNASÍÐA
í UMSJÁ ÁSGEIRS JAKOBSSONAR
Rauði ormurinn
Einföld aðferð til að
hreinsa olíu úr höfnum
Mynd I: Byrjað er á að festa
stytturnar sjö á tvöfaldan dúk-
imn.
Mynd II: Sandpokunum er
fyrst komið fyrir í pokunum og
síðan flotholtunum.
Mynd III: Efri kanturinn bor-
inn yfir pokann og lokað með
vírheftingu. Þannig fæst stifuir
efri kanturinn á veggnum.
Lítillega hefur verið drepið
hérlendis á þá aðferð að slá um
olíuna flothring, sem nú er far-
ið að nota talsvert við að
hreinsa olíu úr höfnum.
Hafnsögumaður í Gautaborg,
Brling Blomberg, fann upp
þessa aðferð sem er að sögn nýj
ung. Fyrir utan hið mikla nota-
gildi sem vonandi reynist að
þessari nýjung, er það óneitan-
lega athyglisvert í þessu tilviki
sem ýmsum öðrum, hvað snjöll
hugsun getur leyst vandamál,
sem hinum lærðustu mönnum
virðast yfrið flókin og jafnvel
óleysanleg. Árum saman hafa
vetkfræðingar á vegum hafnar-
stjórna eða olíufélaga giímt við
lausn á þeim vanda að hreinsa
olíu úr höfnum og ekki síður á
hafi úti, sem reynzt hefur enn
erfiðara viðfangs vegna sjó-
gangs, vinda og sterkra strauma.
Nú er „Rauði ormurinn“
kannski engin endanleg lausn á
vandanum, en óneitanlega er
hugmyndin einföld og snjöll.
í meginatriðum er Rauði orm-
urinn þannig gerður að hann
myndar eins konar vegg, 60 em
háan af tvöföldum sterkum plast
dúk.
Síðan eru soðnir vasar á dúk
inn og í þeim eru litlir sandpo’k
ar og einnig þríhyrndar þykk-
ar plötur úr frauðplasti, sem
verka bæði sem flotholt á vegg-
inn og hjálpa til að halda hon-
um stífum.
Veggirnir eru hafðir í 50
metra lengjum. Það er svo hægt
að bæta lengjum í orminn eftir
þörfum, með rennilokum eða
stöngum sem tengja saman lengj
urnar, þannig að bilið milli
þeirra er vatnsþétt.
Milli samsetningarstanganna
að neðan liggur svo lína með
fram neðrikanti veggsins stvttri
en veggurinn og tekur hún átak
af sjálfum plastveggnum, og or-
sakar það, að hann helzt alltaf
lóðréttur í sjónum, þó að ókyrrt
sé eða stfaumur mikill. Á vegg-
inn eru skrúfaðar 7 styttur og
þær haldast einnig lóðréttar með
því að fest er taug úr þeim ofan
verðum og í álagslinuna að neð-
an.
Nú er ekki að efa það,
að þeir, sem settir eru til að
annast hreinsun hafna hérlend-
is kunna öll deili á þessari ein-
földu aðferð, en til garnans
verða sýndar hér skýringa-
myndir svo að leikmenn geti séð,
hvað þetta er einföld aðferð og
vafalaust ódýr. Slíkan „orm“
gætu seglasaumarar okkar vafa
laust búið til og því ekki að
gera það og hafa hann til reiðu,
ef óhapp hendir.
Mynd IV: í báða enda stytt-
anna eru festar linur, sem síðan
eru splæstar við álagslínuna
eins og myndin sýnir.
Mynd V: Lengjurnar, sem
hver er 50 metrar, eru tengdar
saman með stöndum úr mjúkum
málmi. Þessar samsetningasteng-
ur taka við átakinu af álagslin-
unni.
Mynd VI: Þannig er staðið að
því að koma fyrir pokunum og
flotholtunum.
Mynd VII: Ormurinn tekinn
um borð.
Mynd VIII: Ormurinn lagður.