Morgunblaðið - 22.07.1972, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1972
19
EM!
Staðariappbót
Kennara vantar að Mýrarhúsaskóla á Sel-
tjarnarnesi, við gagnfræðastigið.
Kennslugrein er íslenzka.
I boði er staðaruppbót, allt að 48 þúsund kr.
á ári, miðað við að kennari hafi full réttindi,
eða langa og góða starfsreynslu. Kennt er
5 daga vikunnar. Kennslu er vfirleitt lokið
kl. 14.00.
Uppl. gefa: Svavar Lárusson, yfirkennari,
sími 36492 og Halldór Einarsson, sími 24104.
SKÓLANEFNDIN.
Óska ettir
húsvarðarstöðu eða umsjónarstöðu.
Er vanur verkstjóri.
Tilboð sendist Mbl. fyrir 27. merkt: „2301“.
Skrifstofustúlka
Orkustofnun óskar að ráða til sín vana
skrifstofustúlku.
Eiginhandarumsókn merkt: „778“ sendist
afgr .blaðsins með uppl. um aldur. menntun
og fyrri störf eigi síðar en 27. júlí.
ORKU STOFNUN.
Fljótur núl
Við Selbrekku 36 í Kópavogi verða til sýnis og sölu frá
hádegi á laugardag fram á sunnudagskvöld.
FORD LDT FASTBACK 1969
8 cyl., sjálfskiptur. Óvenju glæsilegur bitl. Ekinn 25 þús. mílur
og
TOYOTA CORONA MARK II 1971.
Hvítur með útvarpi og fl. aukahlutum. Ekinn 25. þús. km.
Upplýsingar í síma 42472.
Fró Vinnubúðum
þjóðkirkjunnar
Af sérstökum ástæðum getum við boðið örfáum atvinnulaus-
um unglingum laus pláss í vinnubúðunum að Tálknafirði,
sem hefjast hinn 27. júlí n.k. — um 28. ágúst. Einstakt tæki-
færi fyrir duglega unglinga fædd '57.
Nánari upplýsingar í síma 12236.
Rofvirkjor — Rofvélavirkjar
Samkvæmt fundarsamþykkt í Félagi ís-
lenzkra Rafvirkja 19. júlí s.l., er félags-
mönnum F.Í.R., óheimilt að að vinna að
nýlögnum, eða meiriháttar breytingum á
lögnum nema samkvæmt ákvæðisverðskrá.
Stjórn F.Í.R., skorar því á alla féíiagsmenn
að hafa jafnan samband við skrifstofu fé-
lagsins, áður en þeir hefja vinnu við ný verk,
eða verkáfanga við nýlagnir eða meiriháttar
breytingar á lögnum.
Starfsmenn skrifstofunnar munu aðstoða
félagsmenn við ge.rð verksamninga saman-
ber 21. gr. samnings, og veita aðrar leiðbein-
ingar og aðstoð.
Stjórn Félags íslenzkra Rafvirkja.
Símar: 23888 og 26910.
Laus staða
Staða íþróttakennara stúlkna við Mennta-
skólann á Akureyri er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og starfsferil skulu hafa borizt menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir
15. ágúst n.k.
Menntamálaráðuneytið,
17. júlí 1972.
óskar eftir starf sfoiki
i eftirtalin
störf>
Júlíana
Stefáns-
dóttir
I DAG, laugardagiim 22. júlí, er
hún Júlla i Búð í Hnífsdal sögð
sextug, en undir þvi nafni er
þessi glaða og eljusama kona
flestum kunn við Djúp og þótt
víðar væri.
Júlla í Búð ber aldurirm mjög
vel og er „glettin, spaugsöm og
spræk“, eins og þar stendur, sí-
vinnandi, létt og lipur í allri
framgöngu og hverjum manni
tU ánægju.
Júlla í Búð hefur alla tíð ver-
ið mikil búkona og sérlega nat-
in við sauðfé, og í fyrra var
meðalvigt af 10 dilkum hjá
henni 18,5 kg og allar voru tvi-
lembdar.
Júlla i Búð er einörð og fylg-
in sér, höfðingjadjörf og mann-
blendin, hefur yndi af dansi og
góðum fagnaði. Hún hefur ekki
verið við karlmann kennd um
ævina, en sennilegt er að marg-
ur ungur maðurinn hafi rennt
tU hennar hýru auga hér fyrr á
árum.
Þessum fáu orðum fylgja
beztu Eifmæliskveðjur og óskir
um heillaríka framtíð.
Vinur.
Skagasffrönd
Umboðsmaður óskast til dreifingar og
innheimtu á Morgunblaðinu á Skaga-
strönd sem fyrst.
Upplýsingar hjá umboðsmanni,
sími 4680.
Öllum þeim, sem á margvís-
legan hátt sýndu mér vináttu
í tilefni 80 ára afmælis mins
15. júli sl., þakka ég innUega.
Oddur Jónsson,
Greniniel 25.
DeSldarhjúkrunarkona
óskast til starfa í RannsóknarstöðHjartaverndar, allan daginn.
Umsóknir ásamt meðmælum sendist skrifstofu Hjartaverndar,
Austurstræti 17, fyrir 25. þ.m.
Hjartavernd.