Morgunblaðið - 22.07.1972, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.07.1972, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1972 Minning: Jóhanna M. Bjarnasen Faedd 19. nóvember 1919. Dáin 15. júli 1972. Lygn streymir elía lífsins, viðstöðulaust, í átt að fyrir- fram ákveðnu takmarki, — sem sé þvi að krefjast mannlegra fóma þegar stund æviskeiðs hvers og eins er á enda runn- in. Engin persóna um veröld víða fær umflúið sitt skapadæg- ur, — þar fær engin mannleg hönd gripið inn í —■ og hinn jarðneski dauði er það eina i veröld hér, sem allir menn eiga vist að bera muni að, þegar æðri máttarvöld hafa ákveðið að svo skuli verða. Hið likamlega frá- hvarf af jörðu hér er lausn frá hjóli tírnans, — Iausn sem veit- ir ægifegurð, friðsæld og eilifa Dagsbrún, þar sem einn vilji rikir og eining ræður og aldrei ber skugga á. Dýrð handan móðunnar miklu, sem mannlegu viti er ofvaxið að skilja og greina og verða mun um alla framtíð. Þvi er það álit mitt að t Maðurinn minn, Gísli Gíslason, matsveinn, Ásvallagötu 55, varð bráðkvaddur 21. þ.m. Jarðarförin auglýst síðar. pyrir hönd barna okkar, Ólína Sigvaldadóttir. fráhvarf af jörðu hér sé í raun og veru fögnuður einn, enda þótt mér sé fyllilega ljóst að djúp sorg og sár harmur steðj ar oftast að aðstandendum hinna burt horfnu, — oftast nær um stund, enda þeim eftir- sjá í fráhvarfi ástvinar og ekki síst þar sem oft er um erfiðar aðstæður að ræða. En fullviss má þess hver og einn vera að heit, fölskvalaus og sönn trú á Al- msettið græðir harm og máir sorg á sksunmri stund. Þ<ví ætti fögnuður að ríkja heilsteyptur í hjörtum ástvina þeirra sem yf irgefið hafa þessa jörð, — þá mu»u undir gróa fljótt. Ég get leyft mér að láta þessar skoð- anir í Ijós, fyrir þær sakir að sjálfur hef ég persónulega reynslu af þeim og orðið bless- unarlega aðnjótandi þeirra, þá er jarðneskt fráhvarf hefir orð- ið hlutskipti ástvina minna. Því er það ekki út i bláinn að heils- hugar bendi ég ástvinum þeirr- ar ágætu konu, sem ég vil með Ijúfu geði kveðja heilshugar, hvar alhliða og óskeikula likn er að finna. Það var bjart i hug okkar bamanna, sem áttum heima við vestanverðan Brekastiginn heima í Vestmannaeyjum um miðbik þriðja áratugar þessarar aldar og á heimskreppuárunum, sem á eftir fóru. Af bamsleg- um ástæðum bámm við ekki kennsl á hvað var að gerast í veröldinni. Við vomm því áhyggjulaus, eins og bama er vandi, og lékum okkur í ýmiss konar Ieikjum. Það fór ekki hjá því að við t Eigirvkorta mín, móðir, terrgdamóðir og amma, ODDNÝ MARlA KRISTINSDÓ7TIR, Vesturgötu 27, Keflavik, verður jarðsungin frá Keflavfkurkirkju laugardaginn 22. júlí kl. 14. Blóm eru vinsamlega afbeðin, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Keflavíkurkirkju. Erlendur Jónsson. böm, tengdaböm og bamaböm. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför STEINÓLFS BENEDIKTSSONAR Börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andfát og jarðaríör ÖLAFS HÓLM THEODÓRSSONAR, Keldulandi 17. Ólöf Guðbrandsdóttir, Eyþór Ólafsson, Guðrún Ólafsdóttir, Hersir Oddsson, Agnar Ólafsson, Erla Ásmundsdóttir, Einar Ólafsson, Dóra Þorgildsdóttir, og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa GUÐMUNDAR JÓNASSONAR, bifreiðarstjóra, Glerárgötu 1, Akureyri. Einnig þökkum við starfsliði F.S.A. fyrir góða umönnun í veikindum hans. — Guð blessi ykkur öll. Þórunn Jónsdóttir, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Jónína Guðmundsdóttir, Guðbjörg Tómasdóttir, Jón Oddgeir Guðmundsson, Vilberg Alexandersson, Sveinbjörn Matthíasson, Axel Guðmundsson, og barnabörn. börnin við vestanverðan Breka stiginn ættum margt sameigin- legt í leikjum í hverfinu og leik systir mín varð m.a. Jóhanna M. Bjarnasen, ásamt Antoni eidri bróður hennar, en frú Jóhanna er einmitt nú nýlega horfin jarðneskum sjónum. Skapadæg ur hennar bar að, langt fyrir aldur fram, á Landspítaianum 15. júlí s.l. Árum saman gekk ekki hníf- urinn milli min, hennar og bróð ur hennar, — við vorum svo samhent í leikjum okkar, dag- inn út og daginn inn, að aldrei bar þar skugiga á. Ég minnist þessara bernskustunda leikja okkar með einskærri gleði og hrifni, því þá var oft og tíðum gaman að vera til og njóta hug- kvæmni frú Jóhömnu, — eða Steliu, ems og hún var alltaf kölluð, — í nýjum og nýjum leikjum. Hún var þá og æ síðan, einkar glaðlynd, kát, brosmild, Ijúf og hrókur alls fagnaðar. Og það verður að segjast eins og er, — þó mér hafi kannske á bernskuárunum þótt súrt í broti — að þessi leiksystir míin og jafriaidra átti oftast frumkvæðið að leikjum okkar. En þá er bemskuárum okkar Steliu lauk og við fórum að ■ganga í skóla, sem þá var ekki skylda fyrr en 10 ára, lauk ekki samverustundum okkar. Aila tíð, bæði í barnaskólanum, sem stóð til 14 ára aldurs, svo og í framhaidsskóla, vorum við Stella alltaf i sama bekk. Ég minnist þess að námshæfni hennar varð strax ljós og segja verður það eins og er að alla ofekar skólatíð háðum við kapp hiaup við námsgreinarnar og urðum ætið hæst í okkar bekkj um, — stundum með nákvæm- lega sömu einkunnir, en stund- um munaði 1—3 kommiim á ann an hvorn veginn, aidrei meiru. Og satt skal best segja að í ís- lensku og stærðfræði fengum við ætíð 10, sem var hæsta eink uœn, sem gefin var. Stella var dóttir hjónanna Jóhanns A. Bjarnasens kaup- manns, sonar Antons Bjama- sens verzlunarstjóra hjá J.P.T. Bryde í Eyjum og konu hans Hansínu Gunnarsdóttur, dóttur hins kunna manns Gunnars Ein- arssonar í Ás.garði í Reykjavík og því systir Hans Heilagleika Jóhannesar heitins Gunnarsson ar Hólabiskups. Þau hjónin eru mér einkar minnisstæð sakir prúðmennsku og látleysis I allri umgengni. Voru þau bæði mann kostamanneskjur, greiðug og al- þýðleg, og Jóhann heitinn ein- hver glettnasti og kímmasti mað- ur, sem ég hef nokkru sinni kynnst. Eru til margar sannar sögur af græskulausu glensi hans, gamni og afburða kirrmi. Steila giftist hinum hógværa og hjálpfúsa öðlingsmanim, vini rnínum Jakobi Ó. Ólafssyni, að stoðarbankastjóra í Eyjum, syni hjónanna Ólafs Ó. Lárussonar, hins mikiihæfa og mikilvirta héraðslæknis í Vestmannaeyjum, sem aldrei unn-i sér hvildar, hvorki nótt né dag og hans stór brotnu konu Sylviu Guðmuinds- dóttur frá Háeyri á Stokkseyri, sem lét mikið til sín taka við líknar- og hjálparstörf í Eyj- um og var vakin og sofin við þau áhugamál sín, um áratuga skeið, enda ekki ofmælt að þessi störf hvíldu mest á herðum hennar. í Vestmannaeyjum áttu þau Jakob og Stella heimili sitt ætíð, enda trygig við Eyjamar. Stella var fríð kona sýnum, hæglát hógvær og einkar lát- laus í allri framgöngu. Hún var glaðlynd, glettin og gamansöim, ekki síst í vinahópi. Og þessa glettni og kimni, sem hún var gædd, þegar hún vildi það við hafa, hefir hún eftaust fengið í arf frá föður sínum. Stella var reglusötm og afburða hjálpsöm, eins og raunar þau hjónin bæði, og hún mátti ekkert aumt sjá, fremur en Jakob eiginmaður hennar. Að slíkum konum er svo sannarlega mikil og ómetanleg eftirsjá, að slíkt verður seint eða aldrei bætt. Nú, þegar þú Stella, leiksyst- ir min og skólasystir, hverfur jarðneskum sjónum, er mér að sötinu söknuður í hu'g, þó ég sé þess fullviss að sál þin hverfur á vit annars og æðra tilveru- stígs, — þangað sem friður og fegurð ríkja ein um aldir alda. Og þegar þú nú hefur ferð þína yfir hina mannlega óskilj- anlegu miklu móðu og tekur strönd á hinu ægifagra, óendan lega landi birtu, yls og kær- leika, þar sem Ahnættið ríkir um eilifð, þakka ég þér af heilum hug bemsku- og æskuárin, svo og siðari ár. En um leið votta ég vini min- um, eftirlifandi ejjginimanni, bömum ykkar hjóna, aldraðri móður þinni, bræðrum þínum tveim, svo og öðrum aðstand- endium þínum mína dýpstu sam- úð. Jónas St. Lúðvíksson. Minning: Hanna Karlsdóttir Hanna Karlsdóttir lézt 15. júlí s.l. á Landakotsspítalanum. Hún íæddist i Gaulverjabæ í Flóa 6. júlí 1910. Foreldrar hennar voru Ingibjörg Dósóþeusdóttir frá Görðum í Aðalvik og Kari Krautwúrst vélfræðingur frá Berlín. Hjónin Kristín Þorláks- dóttir og Jón Erlendsson bóndi í Seljatungu í Gaulverjabæjar- hreppi tóku Hönnu í fóstur ný- fædda, og hjá þeim var hún til 11 ára aldurs, er hún fór til móð- ur sinnar, sem þá bjó í Reykjavik, og þar ólst hún síð- an upp. Hún gekk í Kenn- araskóla Islands og lauk þaðan prófi vorið 1931, en haustið eftir réðst hún kennari til Hesteyrar, sem var heimabyggð móður hennar. Þar kenndi hún við barnaskólann til 1934. Haustið 1935 giftist hún Steini Ásbjöms- syni stýrimanni, en samvist- ir þeirra urðu skammvinn- ar. Hann drukknaði með skipi, er fórst fyrir Norðurlandi sum- arið 1936. Hanna varð því ekkja aðeins 26 ára gömul. Á árunum 1934 til 1936 fékkst Hanna við smábarnakennslu í Reykjavík, en varð kennari við Miðbæjar- skólann í Reykjavík 1936 og gegndi því starfi til 1947. Þar kenndi hún aðallega söng og kristinfræði. Árið 1944 gekk hún að eiga séra Sigurð Einarsson, er síðast var prestur í Holti undir Eyja- fjöllum, og þangað fhittust þau hjónin 1947, en séra Sigurður tók við prestþjónustu haustið 1946. Þar bjuggu þau til ársins 1967, er séra Sigurður lézt. Á þessum árum var hún lengst af kennari og um skeið skólastjóri við Seljalandsskólann undir Vestur-Eyjafjöllum. Eftir lát séra Sigurðar fhittist Hanna til Reykjavíkur og gerðist haust- ið 1967 kennari við Vesturbæjar- bamaskólann og kenndi þar, meðan kraftar entust, eða fram á síðasta ár. Ég kynntist Hönnu fyrst, er hún kom til Hesteyrar og tók við barnakennslu þar, þá aðeins 21 árs gömul. Hún kom til þessa afskekkta sveitarfélags eins og ferskur andblær úr fjarlægð og tók til hendi, svo um munaði. Til þess var hún og ágætlega búin. Hanna hafði erft góðar gáfur og fjölbreytta hæfileika, sem henni hafði tekizt að þroska með þeirri lífsorku og lifsgleði, sem hermi var gefin i ríkum mæli. Hún lék á hljóðfæri og söng, tók af áhuga þátt í félags- lifi bæði yngri og eldri. Varð henni mjög auðvelt að hrífa nem endur sína með sér bæði til náms og starfs. Margir þeirra hafa sagt mér, að þeir minnist skóla- verunnar hjá henni alla ævi og telja hana hafa haft varanleg áhrif á sig. Hanna átti margt frændfólk í sveitinni, sem hún hafði ekki kynnzit áður, og tókst með henni og mörgu því vin- átta, sem entist ævilangt. Á þessum árum brosti lífið við Hönnu, og eftir þriggja ára dvöl fyrir vestan giftist hún Steini Ásbjömssyni. En hún fékk snemma að reyna mótlæti, og eftir tseplega 1 árs hjúskap missti hún hann af slysförum. Má nærri geta, hvílikt áfall slíkt var svo un'gri konu. En hún lét ekki bugast og sótti huggun í starf sitt og hugðarefni og hélt áfram að kenna. Árið 1944 verða aftur þátta- skil í lífi Hönnu. Þá gekk hún að eiga séra Sigurð Einarsson og fluttist skömim'U siðar með hon- um að Holti undir EyjafjöIIum. Þau eignuðust einn son, Stein Hermann, sem nú er uppkominn og kvæntur Mariu Guðbjðms- dóttur frá Selfossi. Þau eiga einn son, er ber nafn Sigurðar afa síns. Þótt þau Hanna og Siigurður væru ólik um marga hluti og þau bæði fullorðin, er þau stofn uðu til hjúskapar, varð sambúð þeirra mjög farsæl. Hanna bjó þeim gott heimili að Holti og lagði sig fram um að búa sem bezt I haginn fyrir mann sinn, svo að hanin gæti jafnframt emb- ætti sínu unnið að ritstörfum, sem hugur hans stóð til. En hún lét sér það ekki nægja, heldur tók hún einnig að sér kennslu og um tima skólastjórn I sveit- innl, auk þess sem hún tók mik inn þátt í félagslifi þar. Hanna naut sín vel í Holti. Hún hafði mikið yndi af skáld- skap og kunni vel að meta rit- störf Sigurðar. Milli þeirra rikti gagnkvæm virðing. Hún var mannblendin og gestrisin að eðl isfari og Iét vel að stjörna heim ili, þar sem oft á tiðum var gest- kvæmt. Hún var vinmörg og vin föst. Alla tíð var náið samband milli hennar og fóstru hennar og barna hennar Mörgum verður hugsað til Hönnu með hlýhug og þakklæti, þegar hún verður kvödd að Breiðabólstað í dag. Gunnar Friðrilisson. SKILTI A GRAFREITI OG KROSSA. Flosprent sf Nýfendugötu 14 sími 16480.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.