Morgunblaðið - 22.07.1972, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1972
SAI BAI N | Ífrjalsuríki eftir YS. Naipaul
skinið og stundum gaf svo á
kinnungimn að löðrið þeyttist
yfir fólkið, sem úti var. Það ent-
ist því ekki til að bíða lengd. Jafn
vel húsgagnaframleiðandinn og
maðurinn frá Beirut viku sér
við og við inn í reyksalimn, þar
sem Þjóðverjarnir og Arabamir
og spænsku dansmeyjarnar sátu.
Þeim voru boðnir stólar að sitja
í. Þeir nutu samúðar vegna reið-
innar og hversu mjög hafði
reynt á þolrif þeirra. Hans beið
á verðinum. Þegar napur vind-
urinn hrakti hann undan, fór
hann inn í káetuna, settist á
neðri kojuna og hafði auiga með
bakpokanum þaðan um opnar
dyrnar. Hann brosti breitt til
þeirra sem gengu hjá.
Þá bárust fréttir af því, að
förumaðurinn hefði birzt og
hefði þegar ánetjazt leikmum.
Nokkrir amerisku unglinganna
voru á þilfarinu að virða fyrir
sér sjóinn. Sömuleiðis spænsku
dansmeyjarnar og þýzka stúlk-
an. Hans varði káetudyrnar.
Ég sá að förumaðurinn hafði
gripið um ólina á bakpokanum
sínum. Ég heyrði, að hann bar
sig upp á ensku, en reiðiflaumur
húsgagnaframleiðandans glumdi
á frönsku og arabísku, um leið
og hann lyfti báðum handleggj-
unum og pataði svo jakkalöfin
flöksuðust til.
í borðsalnum virtist reiði hús-
gagnaframleiðandans yfirborðs-
leg, eitthvað sem var samgróið
suðræna útlitinu, yfirvaraskegg-
inu og hrokkna hárinu. Bn hér
undir berum himni með áhuga-
sama áhorfendur og allt að því
lamað fórnarlamb tókst honum
betur upp. Æðiskastið varð
fölskvalaust og algert.
„Svin! Svín!“
„Það er ekki satt,” sagði föru-
maðurinn og leit biðjandi á
fólkið sem þama var komið tii
að fyligjast með.
„Svín!“
Stundin var runnin upp. Hús-
gagnaframleiðandinn, sterkur og
stæðilegur með uppstoppaðar
jakka-axlirnar sló leiftursnöggt
með vinstri hendi til gamla
mannsins. Förumaðurinn vék til
höfðinu, eins og hann varvanur
til að forðast augnaráð annarra,
svo höggið geigaði. Og hann fór
að gráta. En húsgagnaframleið-
•.*,..._____
• • « « * • • i » i
• • ••••••••
^•„•.» •••*•«
00
KJOTMIÐSTOÐIN
• •■•!•"•'•• •W
.•.•.•.•••.•.•.v.
.•.•.•.•.•.v.v.
•:•:•:•:•••••••••••'
.v.v.v.v.v
Lækjarveri, Laugalæk 2, sími 3 50 20
andinn missti fótanna við vind-
höggið, hentist utan í borðstokk-
dnn og fékk sjávarlöðrið yfir sig
í gusu. Hann lagði höndina á
brjóstið, þreifaði eftir penna og
veski og fleiru og æpti eins og
maður í mikilli neyð: „Hans!
Hans!“
Förumaðurinn beygði sig fram.,
Hann hætti að gráta. Vatnsbláu
augun ætluðu út úr tóftunum.
Hans hafði gripið traustataki um
hnútinn á doppótta klútnum
hans, teygði hann niður og sneri
upp á hann. Svo hratt hann
förumanninum aftur fyrir sig og
sparkaði um leið af alefli i bak-
pokann. Hörkusvipurinn hvarf
af brosandi andlitinu á Hans og
brosið eitt sat eftir. Förumaður-
inn hefði getað varizt fallinu en
hann kaus að láta sig detta og
settist síöan upp. Hann hélt enn
um ólina á bakpokanum. Hann
var farinn að gráta aftur.
„Það er ekki satt. Þetta sem
þeir segja, er ekki satt. Það er
ekki satt.“
Amerísku unglingarnir horfðu
út yfir borðstokkinn.
„Hans!“ kallaði húsgagna-
framleiðandinn.
Förumaðurinn hætti að gráta.
„Ha-ans!“
Förumaðurinn leit ekki í kring
um sig. Hann stóð upp með bak-
pokann og tók til fótanna.
Sagt var, að hann hefði lokað
sig inni á einu salerninu.
Þó birtist hann aftur á meðal
okkar. Tvisvar.
Um það bil klukkustundu sið-
ar kom hann inn i reyksalinn,
bakpokalaus og óttalaus að sjá.
Hann var búinn að jafna sig.
Hann gekk rakleitt inn að
vanda, leit hvorki til hægri né
vinstri. Eftir nokkur skref var
hann kominn inn á mitt gólfið
í litlum salnum, svo hann
straukst næstum við fæturna á
húsgagnaframleiðandanum, þar
sém hann sat í hægindastól og
teygði úr sér, örþreyttur með
aðra höndina yfir hálflokuðum
augunum. Fyrst brá fyrir undr-
un í svip förumannsins, síðan
reiði og fyrirlitningu. Hann leit
undan.
„Hans!“ kallaði húsgagnafram
leiðandinn, þegar hann var bú-
inn að átta sig, dró að sér fæt-
uma og hallaði sér fram í sæt-
inu. „Hans!“
Um leið og förumaðurinn leit
undan, sá hann, hvar Hans stóð á
fætur með spil í annarri hend-
inni. Skelfingarsv:«^ar kom á
andlit förumannsins. Búkurinn
fylgdi snúningi höfuðsins. Hann
snerist á hæli, sté hinum fæt-
inum þungt niður og þaut út.
Allt gerðist þetta i einni lotu
og hvert viðbragðið rak annað
. . . hann birtist, gekk fram,
snerist á hæli og lagði á flótta.
„Hans!“
Þetta var ekki hvatningaróp.
Húsgagnaframleiðandinn var
bara að teygja úr brandaranum.
Til frekari áherzlu. Hans skildi,
h!ó og settist aftur við spilin.
Förumaðurinn missti af hádeg-
isverðinum. Hann hefði átt að
hlýða fyrsta kallinum. En hann
fór í felur. Sjálfsagt á eitthvert
salernið og kom ekki fram, fyrr
en kallað var í síðara sinn. Það
gerðu Líbanon-mennirair og
Hans líka. Förumaðurinn sá þá
um leið og hann koirn í dymar.
„Ha-ans!“
En förumaðurinn hafði þegar
snúið burt.
Seinna sást til hans á neðra
þilfarinu hjá flóttafólkinu. Hann
var með bakpokann sinn en hatt
laus. Brandarinn gekk, þrátt fyr
ir fjarveru hans og án þess að
hans væri getið, — á barnum,
á mjóu þilfarinu og í reyksaln
um. „Hans! Ha-ans!" Loks var
Hans hættur að hlæja eða lita
upp. Þegar hann heyrði nafn
sitt kallað, sló hann botninn í
skrítluna með þvi að blistra.
Brandarinn lifði góðu lífi. En um
náttmál var förumaðurinn
gleymdur.
Líbanon-mennirnir ræddu um
peningamál við kvöldve-rðarborð
ið með sömu yfirborðsmennsk-
unni og áður. Maðurinin frá
Beirut sagði, að hægt væri að
græða stórfé á útflutningi á sér-
stakri gerð af egypzkum skóm.
Ástæðuna væri að rekja til sér-
stakra og óvenjulegra aðstæðna
í Mið-Austurlöndum. En fáum
væri kunnugt um þetta. Hús-
gagnaframleiðandinn sagð'ist
I þýðingu
Huldu Valtýsdóttur.
hafa vitað um þetta í marga mán
uði. Þeir gengu út frá vissu fjár-
framlagi, kepptust um það sín á
milli að vita um sem flestar duld
ar kostnaðarhliðar og gerðu síð-
an í rólegheitum áætlanir um
gifurlegan ágóða. En í rauninni
höfðu þeir ekki örvandi áhrif
hvor á annan lengur. Leiknum
var eiginlega lokið. Þeir höfðu
þegar mælt hvor annan og vegið.
Og þeir voru báðir þreyttir.
Slenið í amerisku ungliingunum
hafði einhvern veginn færzt yfir
á hina farþegana þetta síðara
kvöld. Sjálfir voru unglingarn-
ir heldur hressari. Úr hálfrökkr-
inu í reyksalnum mátti heyra
pilta- og stúlkuraddir í vinsam-
legu orðaskaki. Þeir voru lika
meira á stjái. Sérstaklega ein
stúlknanna, sem klædd var þvi
sem líktist einna helzt æfinga-
búningi listdans-ara þröngum bol
frá hálsi, fram á úlnliði og niður
á ökla. Þýzka stúlkan, sem við
höfðum kjörið í hlutverk hús-
BÍLASALA
KÓPAVOGS
hefur opnað að
Nýbýlavegi 4
Bilar til sölu:
Land Rover bensín, árg. '70
Land Rover dísil, árg '68 12
manna.
Land Rover dísil, árg. '64
Volkswagen 1500, árg. '64
Volkswagen 1302S, árg '65
Volkswagen 1302, árg. '71
Volkswagen, árg. '72, ekinn 6
þús. km.
Volvo Amazon, árg '65
Volvo Grand Lux '71
Citroen ID 19, árg '65
Citroen special, árg '71
Chevrolet Nova sjálfsk., powerst.
og bremsur, árg '70, 2ja dyra,
ekinn 25000.
Pontiac Ventura, árg. '68
Benz 230, árg '71, ekinn 20.00
km.
Benz 200, árg '67, ný innfluttur
Benz 280 S, árg '69, sjálfskipt-
ur, powerstýri.
Höfum kaupendur að flestum
tegundum bifreiða.
Opið til 5 í dag
Sími 43600.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í gatnagerð og lagnir í Hólunum, Breiðholti III.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 3.000 króna
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 2. ágúst
n.k. kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
velvakandi
0 Beiðni Vladimirs
Ashkenazys
Ingjaldur Tómasson skrifar:
„Ég hefi frestað því um nokk-
urn tíma að skrifa þessa grein,
til þess að sjá viðbrögð ein-
staklinga og félaga við óskum
Viadimirs Ashkenazys, um
stuðning við beiðni hans til
rússneskra yfirvalda, um að fað
ir hans fái ferðaleyfi til Islands
og aftur heim. Ég hefi aðeins
séð tvær greinar frá einstakling
um báðar í Morgunblaðinu. Fyr
ir nokkru birtist grein eftir
Helga Lárusson. Hann telur, að
allir íslendingar styðji Ashken
azy í þessu máli. Ég er honum
ekki alveg sammáia i þessu.
Það hefir því miður oftlega
sýnt sig, að hér á landi eru
stórir hópar manna, sem ýmist
láta sig mál þessu lík engu
skipta, eða styðja bæði ljóst og
leynt það þjóðfélagskerfi, sem
skirrist ekki við að stía ævi-
langt i sundur elskendum, fjöi-
skyldum og heilum þjóðum, ef
það er talið nauðsynlegt, til að
tryggja völd yfirráðaklíknanna
í einsflokks sósíalistarikjun-
um.
0 Með friðarorð á vörum
Það er áreiðanlega mjög al-
varlegt mái, þegar þeir fjöl-
mörgu einstaklingar, flokkar
og félög, sem sífellt eru með
orð friðar og bræðralags á vör
unum, steinþegja þegar elzta og
voldugasta sósíaiistaríkið neit-
ar föður hins fræga listamanns
og íslenzka ríkisborgara um
ferðaleyfi til íslands. Morgun
blaðið birti fyrir nokkru
beiðni Ashkenazys til Islend-
inga um stuðning við að reyna
að knýja rússnesku stjórnina
til að veita umbeðið leyfi.
Hvi þegja nú Friðarsamtök
íslenzkra kvenna, Fylkingin,
SÍNE, hernámsandstæðingar
með útvarpsráðsformanninn í
fararbroddi (hann hefir ann-
ars mjög góða aðstöðu til að
styðja þetta mál).
Q Siðferðileg skylda
Það er ekki heldur vansa-
laust, að allur hinn íslenzki
skálda- og listamannaskari,
skuli ekki segja eitt orð við
þessari rússnesku neitun. ís
lenzka ríkisstjórnin öll er öðr-
um fremur skyldug að sinna
þessari beiðni hins fræga lista
manns og íslenzka ríkisborg-
ara Ashkenazys.
0 Annars vcgar hávær
mótmæli — hins vegar
þögn
Þeir hópar fóiks, sem sifellt
eru með alls konar mótmæli
gegn einum aðila, en nefna
ekki svipaðar eða verri ávirð-
ingar hins, verða aldrei teknir
aivarlega. Dæmi: Mótmæit er
hernaði Bandarikjamanna í Ví-
etnam, en hernaði Norður-Víet
nams og Þjóðfrelsisfylkingar
innar (skæruliða) sungið lof.
Einræðisstjórn Grikkja og of-
beldisaðgerðum mótmælt kröft
uglega, en einræðisstjórn
Rússa, með heimsmet í mann-
slátrun, (fjöldamorð Stalíns,
innrás í Úngverjaland o.fl),
fangabúðaþræikun, nauðungar
flutningum og innilokun á geð
veikrahælum, er alls ekki mót-
mælt.
0 Áskorun
Ég vil að lokum skora á öll
frjálshuga félög, fjölmiðla og
einstaklinga, að láta ekki linna
mótmælum við rússneska sendi
ráðið hér, þar til umbeðið leyfi
Ashkenazys hefir verið veitt.
Ungir sjálfstæðismenn hafa
þegar riðið á vaðið, vonandi
koma fleiri á eftir.
Ingjaldur Tómasson."
Sunbeam Arrow árg.
1970 til sölu
Bíllinn er í miög góðu lagi, vel útlitandi
og ekinn aðeins 17 bús. milur.
Til sýnis að SIGTÚNI 25.